"Út­göngu­bann neyðarúr­ræði sem aðeins á að grípa til sé komið í óefni."

 

Þá vitum við það, Óefni þarf til að lýst verði yfir allsherjarstríði við veiruna og henni útrýmt úr íslensku samfélagi.

Og rökin eru skýr;

" Slíkt væri tjón fyr­ir sam­fé­lagið og valda gríðarlegu tjóni. „Það yrði mikið sam­fé­lags­legt tjón af út­göngu­banni. Meðan við telj­um það ekki skila sér­stök­um ár­angri þá er eng­in ástæða til að skemma sam­fé­lagið frek­ar,“ sagði Víðir Reyn­is­son yf­ir­lög­regluþjónn og bætti við að nú­gild­andi sam­komu­bann hefði þegar haft gríðarleg áhrif á sam­fé­lagið.".

Útgöngubann myndi valda gífurlegum skaða bætir Þórólfur sóttvarnarlæknir við.

 

Gott og vel, höggið fyrir kínverskt samfélag var gríðarlegt þegar allt mannlíf var stöðvað í Hubei héraði, en það vill gleymast að þrátt fyrir stífar sóttvarnir með allskonar bönnum þá hélt framleiðsla áfram annars staðar í landinu.

Hefði sóttvarnarlæknir ekki viljandi hleypt veirunni inní landið þá værum við í sömu stöðu og Kína fyrir utan Hubei, fyrir utan ferðamannaiðnaðinn þá gengi mannlífið nokkurn veginn eðlilega, hefði allavega gert það fyrstu vikurnar þó veiran hefði samt sýjast inní landið og ýmsar hömlur væru komnar líkt og í löndum Austur Asíu sem skáru á smitleiðir strax í upphafi en eru auðvitað í stöðugu stríði við þennan vágest.

Sóttvarnarlæknir fékk síðan annað tækifæri til að grípa inní þegar hann gat gripið til hertra ráðstafana vikuna eftir að ljóst var að veiran væri komin í dreifingu, jafnframt lokað á sýkt svæði, þá hefði höfuðborgarsvæðið verið okkar Hubei.  Þar hefði mannlíf verið háð stífum takmörkum eins og í dag, en á landsbyggðinni snérist allt um að koma í veg fyrir smit, en lífið gengi annar sinn vanagang.

 

En þetta var ekki gert, þá skipti hið samfélagslega tjón litlu miðað við að ekki mætti hefta ferðafrelsi fólks eða rétt þess til að haga sér eins og fífl á tímum drepsóttarinnar.

Vissulega liðið en við þurfum að átta okkur á hvernig ný og ný rök dúkka upp þegar tekist er á við afleiðingar fyrri afglapa.

Núna má ekki skemma samfélagið meira en þegar er búið að skemma það vegna þess að réttar ákvarðanir voru ekki teknar í tíma.

Nema þegar allt er komið í óefni.

 

Við þetta er tvennt að athuga og tökum það léttvægara fyrst.

Það var allt lokað í Hubei í átta vikur en núna er mannlífið að seytla í eðlilegan farveg.

Okkur er sagt að það versta verði búið uppúr miðjum apríl, en bíddu við, hvað hefur breyst þá??  Er veiran búin að tilkynna brottför sína úr landi??, eða halda menn að þá verði ósmitað fólk komið með vottorð frá guði um því sé óhætt að heilsa upp á náungann og veiruna??

Auðvitað ekki, ef ekki er komin lækning, eða veirunni útrýmt, þá blossar hún upp að nýju, og þá er annaðhvort tekin önnur hringekja með tilheyrandi samfélagslegu tjóni, eða hún verði þá bara látin drepa að vild, sem reyndar var hin óopinber stefna sóttvarnaryfirvalda á Norðurlöndum en aðeins Svíar halda ennþá fast við.

Svo stóra spurningin, hvernig endar þetta, hvert verður hið endanlega tjón þegar dæmið er gert upp. 

Tveir mánuðir í algjört stopp (þó er lítið mál að skipuleggja grunnatvinnuvegi þannig að þeir héldust gangandi, þetta væri bara eins og að fara á vertíð í gamla daga), eða margir mánuðir í limbó þar sem samfélagið er hvorki lifandi eða dautt.

 

En stóra málið, það sem skiptir öllu var einu sinni orðað þannig.

Mannslíf er ekki metið til fjár.

Og þó það sé reynt að draga úr mennsku þeirra sem eru í lífshættu eða þegar dánir með þeim orðum að um undirliggjandi sjúkdóma sé að ræða, eða svo ég vitni í hroðann eða ómennskuna sem felst í þessari lýsingu; " Sex eru á gjör­gæslu Land­spít­al­ans og all­ir í önd­un­ar­vél og eru sjúk­ling­arn­ir all­ir um og yfir sjö­tugt.", þá er þetta samt mannslíf.

Og allavega þegar ég var ungur og lærði þessa grunnhugsun mennskunnar, þá var mér sagt; Mannslíf eru ekki metin til fjár.  Og aldrei var minnst á þá undantekningu "nema um aldraða eða fólk með undirliggjandi sjúkdóma sé að ræða, þá má meta það".

 

Við erum í dag á hnífsegg, smit eru að berast inná stofnanir okkar sem hýsa aldraða, og smit dreifast um heilbrigðiskerfið okkar.

Því drepsótt er ekki hægt að stýra, sama hvað hinir hrokafullu segja.

Og þá kemur óefnið, þá á alltí einu verið hægt að grípa til hina eina ráðs sem dugar á drepsótt, að drepa hana áður hún drepur okkur.

Sem er útgöngubann á meðan lækning er ekki til.

 

Samt finnst Hjarðhegðun heimskunnar þetta vera spurning.

En ég get svo svarið, að ef fólk á Ítalíu eða Spáni, hvort það hefði viljað fara í útgöngubann 3 vikum fyrr en það var gert, fengi það til þess annað tækifæri, þá veit ég hvert svar þess yrði.

Fengi það tækifæri til þess, þá myndi það ekki bíða eftir Óefninu.

Því sú bið er ekki mannslífa virði.

 

Því virðing fyrir mannslífum er forsenda mennskunnar.

Kjarni siðmenningar okkar.

 

Við verndum mannslíf.

Öll.

Alltaf.

 

Þar er ekkert val.

Það er skylda.

 

Skylda okkar allra.

Kveðja að austan.


mbl.is Ekki búist við harðari aðgerðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættum að taka sýni.

 

Og vandinn er úr sögunni.

Prófum fáa og við höfum fulla stjórn.

Ha, ha, ha.

 

En samt virkar þetta svoleiðis.

Morgunblaðið tók viðtal við konu sem hafði sýkst án þess að hitta Ítalíusmitbera, og þar sem böndin bárust að erlendum ferðamönnum á vinnustað hennar, þá fékk hún ekki sýnatöku fyrr en seint og síðar meir.

 

Á feisbókinni er fólk að deila svipuðum reynslusögum.

Það er ekki mælt, og þar með kemur það ekki fram í tölfræðinni.

Því er vissulega ráðlagt að halda sér í sóttkví en smit þess eru ekki rakin.

 

Undirliggjandi er að þegar pest er útbreidd þá er ekki hægt að mæla alla.

En vandinn er ef menn fara að álykta út frá hinn brengluðu tölfræði, eins og til dæmis á Ítalíu þegar menn fundu út að það væri farið að hægja á faraldrinum, heimild andlát á spítölum sem voru löngu sprungnir og fólk dó í hrönnum heima hjá sér eða á stofnunum.

Sem voru ekki með í hinni opinberri tölfræði.

 

Eitthvað svipað var hér í gangi í vikunni.

Með því að draga úr sýnatöku var hægt að sýna fram á að hægt hefði á veldisaukningunni, og fyrir utan sjálfshólið að við værum þá sú þjóð sem hefði náð mestum árangri í Evrópu, þá var hin brenglaða tölfræði notuð sem réttlæting þess að ekki þyrfti að herða aðgerðir.

Sem má vera að sé rétt en ranga forsendu má aldrei nota sem réttlætingu mikilvægra ákvarðana.

 

Forheimskan var það mikil að menn héldu blaðamannafund í vikunni þar sem greint var frá endurskoðaðri spá þar sem ætlað var að smit yrðu um 1.200.

Í dag vantar 240 jákvæð sýni og þá er sú spá sprungin.

Eftir stendur, er hægt að treysta fólki sem ítrekað bullar í mati sínum á alvarleik faraldursins??

Hvern er verið að blekkja og til hvers??

 

Hvern er verið að blekkja??

Og til hvers??

 

Það er tími til kominn að fá svar við þeirri spurningu.

Kveðja að austan.


mbl.is Smitin orðin 963 í heildina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það fannst einn sem þorði.

 

Að benda á hinn nakta keisara.

Sem hafnar staðreyndum, hafnar vísindum og leyfir vinstri höndina að laumast til að skemma það sem sú hægri af myndarskap byggir upp af vörnum gegn vágestinum sem var viljandi leyft að dreifast um samfélög okkar.

Viljandi, feisum það því sóttvarnaryfirvöld neituðu að loka á smitsvæði, sögðu að það væri ekki hægt, of mikið rask eða eitthvað.

Svo var lokað þegjandi og hljóðalaust nema erlendir ríkisborgar fengu að dreifa smiti og fá enn nema faraldurinn hefur því sem næst stöðvað flæði þeirra. 

Ekki íslensk sóttvarnaryfirvöld.

 

Það veður að halda þessari sögu til haga þar til hún er viðurkennd, því sá sem viðurkennir mistök sín, reynir að bæta úr þeim með því að verða ekki á sömu mistök.

Rannsóknir frá Kína sýna að smituð en einkennalaus leik og grunnskólabörn smita, jafnt starfsmenn sem fjölskyldu sína.

Þar er smitleki sem verður að loka.

 

Að loka af ósmituð svæði virðist virka í Kína, og hefur virkað í gegnum söguna þar sem smit berst á milli með fólki og menn hafa stjórn á leiðum inn og út.

Ég hef fyrr spurt af hverju er ekki hægt að vernda Raufarhöfn fyrst það var hægt með Peking og ég get líka spurt, af hverju er erfiðara að verja Þórshöfn en Shanghai.

Og ég ítreka, að sá sem valdið hefur og neitar ósýktum svæðum um vernd, hann ber ábyrgðina ef einhver sýkist og deyr.

Hann og enginn annar.

 

Vonandi fær Vilhjálmur vitiborna umræðu í sóttvarnarráði þar sem almenningur fær að heyra rökin með og á móti.

Þá fær þjóðin kannski skýringu á þessu 1 til 1,5 ári sem sóttvarnarlæknir segir að þurfi að halda smiteinangrun til að hún virki.

Whuan var opnuð eftir 60 daga, og þó það sé mikið framboð af heimsku í Hjarðhegðuninni, þá er jafnvel fyrir hana erfitt að teygja 60 daga uppí 365 daga, hvað þá yfir 500.

En Kína lokar á smit frá sýktum svæðum, og þannig verður það þar til lækning finnst.

Það að leyfa fólki að deyja líkt og var meðvituð ákvörðun sóttvarnaryfirvalda Evrópusambandsins 28. feb þó hún væri kölluð því fína nafni að ekki væri hægt að loka landamærum á tímum hins frjálsa flæðis, var of skelfilegt í augun kínverskra stjórnvalda eftir að þau áttuðu sig á alverleik kórónuveirunnar.

 

Hér gömblum við með hana.

Spilum rússneska rúllettu með líf fólks.

Eins og mannslíf séu ekki þess virði að berjast fyrir.

 

Mál er að linni.

Hafi Vilhjálmur þökk fyrir kjark sinn og hugrekki.

Kveðja að austan.


mbl.is Vill kalla sóttvarnaráð saman til fundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða þekking liggur að baki þessarar fullyrðingar??

 

Hafa börnin verið rannsökuð, er vísað í erlendar rannsóknir.

 

Jú segir sóttvarnarlæknir; "enda sýna rann­sókn­ir hér á landi og á hinum Norður­lönd­un­um að smit hjá börn­um er fátítt.".

En hverjar eru þær rannsóknir, hvers eðlis eru þær, og er hægt að fullyrða um smit út frá þeim??

Er sjúkdómurinn það langt genginn á Norðurlöndum miðað við löndin við Miðjarðarhaf, sem sannarlega tilkynntu smit fyrr en Norðurlönd, eða hefur eitthvað það verið á Norðurlöndum rannsakað með vísindalegum hætti sem gengur gegn niðurstöðum vísindamanna í Austur Asíu??

 

Í Nature má þetta lesa;

"Many scientists fear that this might also have led to an underestimate of kids’ susceptibility to the virus. A study of more than 700 infected children in China found that 56% had mild or no symptoms6. If the findings hold water, urgent measures are needed to curb mild and asymptomatic cases that are fuelling the pandemic, researchers say.

They call for closing schools, cancelling public gatherings and generally keeping people at home and out of public spaces. ". https://www.nature.com/articles/d41586-020-00822-x

 

Yfir helmingur sýktra barna í Kína voru með lítil eða engin einkenni. 

En smita og því er mikilvægt að loka strax skólum.

Eitthvað sem yfirvöld í Hong Kong gerðu strax, gert fljótlega í Japan þegar rannsóknir gáfu þessar vísbendingar.

En hérna er látið eins og þetta séu fréttir frá mars.

 

Þrátt fyrir að allar spár, eins hógværar og þær hafa verið, hafi reynst verið rangar.

Og miðað við fréttir kvöldsins, er Ítalíuástand yfirvofandi í heilbrigðiskerfi okkar.

Sjúklingar hrannast inn, margir fárveikir.

Eitthvað sem var aldrei viðurkennt þegar sóttvarnaryfirvöld þverkölluðust við að loka á smitleiðir inní landið.

 

Það er gert í dag þegar landið er smitað.

En af hverju var það ekki gert þegar faraldurinn lá fyrir, smitleiðir þekktar en við sjálf ósýkt??

Jú, þá var ekki talin ástæða til að óttast, eða eins og hin fleygu orð sóttvarnarlæknis voru, ef ekkert er að gert, mun heildarfjöldi smita vera um 300, þar af 10 sem verða alvarlega veikir og þurfa á gjörgæslu.

 

Þvílíkt kjaftæði út frá raunveruleikanum sem blasti við.

Öllum augljóst nema sóttvarnaryfirvöldum og hjörðinni sem kennir sig við heimskuna.

Enda hefur raunveruleikinn síðan sagt, Íslendingar eru ekkert öðru vísi en aðrar þjóðir, ef smitleiðir eru ekki rofnar, þá sýkist þjóðin, fyrst vægt, svo versnandi, loks verður lítt eða ekkert við ráðið.

Í dag erum við mitt á milli þess að lítt eða ekkert verður við ráðið.

Og gjald heimskunnar er illa veikt fólk, og deyjandi fólk.

 

Samt læra menn ekkert.

Smit á Borgarnesi, smit á Húsavík, smit í skólum í Reykjavík, rannsóknir um einkennalaus smit í börnum á leikskólaaldri í Kína, ekkert af þessu mun eiga við Reykjavík.

Það segja ónefndar innlendar rannsóknir sem og rannsóknir frá Norðurlöndum, löndum sem eru ennþá á fyrsta stigi faraldursins þar sem veirunni var leyft að dreifast stjórnlaust, en hún er ekki ennþá komið á annað stigið, að hún sé farin að drepa í hrönnum líkt og á Ítalíu og Spáni.

Vantar svona 5-15 daga uppá það, og eftir þann dauðafaraldur, er eitthvað hægt að fullyrða um smit í leikskólum og grunnskólum.

 

Samt er leikið sér að eldinum.

Samt vita menn að það er lífsnauðsynlegt fyrir samfélagið að heilbrigðisstarfsmenn, löggæsla og aðrar stéttir sem koma beint nálægt vörnum þjóðarinnar sem og að halda grunnstarfsemi gangandi, þurfi ekki að hafa áhyggjur af börnum sínum að degi til, að það séu opnir leikskólar og grunnskólar fyrir þetta fólk.

Af hverju er þá verið að auka hættuna á að utanaðkomandi smit loki öllu, fyrir alla.

Sem og að þó fyrirtæki og almenningur gæti mjög að smitvörnum með fyrirbyggjandi ráðstöfunum, þá er það til lítils að börnin reynist síðan vera einkennalaus smitberar.

 

Þetta er ekki einleikið.

Mistök á mistök ofan.

Rangar ákvarðanir út frá röngu mati.

Aftur og aftur, endalaust.

 

Sem er sárgrætilegt því það er svo margt vel gert.

Bæði hjá sóttvarnaryfirvöldum, hjá fyrirtækjum og almenningi.

 

Miðað við það ættum við að vera á pari við Taivan eða Hong Kong.

Fá smit, litlar líkur á smiti fólks í áhættuhópum.

Og þá vikur í gjörgæslu, hvað þá andlát.

 

Sem við erum ekki.

Út frá röngum ákvörðunum.

Síendurteknum.

Og enginn er lærdómurinn.

 

Sem er alvarlegast

Það er enginn lærdómur.

Á tímum sem kenndir eru við dauðans alvöru.

 

Og mannslíf eru undir.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Ekkert leikskólabarn í Reykjavík með COVID-19
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við erum brandarafólk.

 

Við fengum meir að segja gaur úr verkfræðideild til að segja okkur, að við værum mest og best í heimi.

Við hægðum á smiti og þess vegna yrðu þau svona kringum 1.200.

Samt á veiran að ná hámarki um miðjan apríl sagði stelpan sem fyrir utan kyn sitt, fékk starfið því hún var sæt og seig niður úr þyrlu.

 

Morgunblaðið, eða sá hluti þess sem ennþá er ekki róbóti, sagði frá því i gær að leikskólastjórar skyldu ekki bréf sóttvarnaryfirvalda um eðlilega starfsemi leikskóla, nýbúin að fá ordur um að láta forgangshópa ganga fyrir.

Mogganum varð það á að láta ekki hinn tölvustýrða róbóta heimskunnar taka viðtal við fólkið sem ver þjóðina fyrir útbreiðslu kórónuveirunnar, þess vegna varð blaðinu á að afhjúpa heimsku sóttvarnaryfirvalda.

 

En við skulum ekki draga það í efa að maðurinn i turninum, sem hefur vottorð uppá að hann var einu sinni með lífsmarki, ekki trénuð Entur eins og Tolkien lýsti svo vel í sinni sögu um baráttu mennskunnar við örlagadóminn, að hann lesi skrif róbótanna.

Og skilji ekkert í því að þegar sýnatökupinnar fundust, að þá hafi smittilvikum fjölgað.

Segir nokkra brandara og verði dæmdur af sögunni sem fífl.

 

Hvað rekur fólk til að sýkja þjóð sína vitandi vits, má um deila og ræða.

Líklegast treystu þau því að sóttin væri meinlaus nema fyrir fólkið sem átti hvort sem er að hagræða þannig að það fengi ekki að lifa nema ættingjar og vinir borguðu kostnaðinn.

Helstefna sem ritstjóri Morgunblaðsins hefur lengi verið svag fyrir.

 

En við skiljum ekki þessa stefnu sóttvarnaryfirvalda sögðu stjórnendur leikskóla í viðtali við þann hluta Morgunblaðsins sem ekki er ennþá sóttvarnarútbreiðsluvélmenni.

Viljinn, sjálfstæður fréttamiðill, hallur undir hægri en ekki forritaður til að styðja útbreiðslu drepsóttarinnar, afhjúpaði forheimsku þeirra sem verja þjóðina í dag.

 

""Nicholas A. Christakis, prófessor við Yale háskóla í Bandaríkjunum og einn áhrifamesti vísindamaður heims, undrast þá ákvörðun íslenskra sóttvarnayfirvalda að hvetja foreldra til að senda börn sín í grunn- og leikskóla hér á landi þótt Kórónaveiran breiðist nú hratt hér á landi og annars staðar.

Chris McClure, Bandaríkjamaður sem búsettur er hér á landi og lauk nýverið doktorsnámi í lýðheilsufræðum við Háskóla Íslands, fjallar um hvatningu sóttvarnalæknis á Twitter-síðu sinni í dag. McClure er með meistaragráðu í faraldsfræði frá Yale-háskóla og hefur sérhæft sig í rannsóknum á inflúensu, telur ákvörðun íslenskra yfirvalda óábyrga og í algjöru ósamræmi við tilmæli heilbrigðisyfirvalda í öðrum löndum.

Christakis tekur undir þetta á Twitter-þræði landa síns og telur hvatninguna byggða á slæmri ráðgjöf.

Hann segir: „Af hverju heldur Ísland að það sé eitthvað öðruvísi en Ítalía, svo dæmi sé tekið?“ spyr hann".".

 

Róbótar heimskunnar segja síðan fréttir frá leikskólum sem eru lokaðir, vegna þess að annað hvort sýktust börn eða starfsmenn.

Hvert er þá skjólið fyrir fólkið sem ver okkur hin, þegar það getur ekki lengur treyst á skjól fyrir börn sín??

Líkt og stjórnendur leikskóla bentu þeim hluta Morgunblaðsins, sem er ekki enbnþá róbót í sparnaðarskyni, í frétt sinni í gær.

 

Eða fíflin sem mættu úr Háskólanum og sögðu frá því að fyrst við hefðum ekki pinna til að mæla (munum að það var vegna þess að sóttvarnarlæknir sagði að ef ekkert yrði gert þá yrðu heildarsmit um 300) að þá yrði heildarfjöldi smita um 1.200, samt yrði toppurinn eftir nokkrar vikur.

Jafnvel fífl og fávitar, hvort sem þau vinna hjá Ríkisútvarpinu eða Morgunblaðinu, hvort sem þeim hefur skipt út fyrir jákvæða róbóta, sjá að það tekur aðeins 2-3 daga að ná þessu lágmarki.

Og hlusti þau á nýja spá, þá setja þau áður óþekkt met í heimsku, og já, róbótar sem eru forritaðir til að taka undir Hjarðhegðun heimskunnar, þeir springa, því enginn algóritmi ræður við slík frávik.

 

Samt hlusta þau sem sóru að þau myndu verja lífið sem þau ólu.

Þegar á reyndi var Hjarðhegðun heimskunnar sterkari en hvötin að gefa af sér líf og vernda það.

Slíkur er máttur kórónuveirunnar.

 

Hún afhjúpar úrkynjun samfélags sem trúði að ekkert væri þess virði að berjast fyrir.

Orkuauðlindin, dýrin sem hafa fylgt okkur frá landnámi, náunginn, samfélag okkar.

Á meðan veskið héldi áfram að bólgna út svo ég vitni í Karl Blöndal blaðamann Morgunblaðsins sem útskýrði af hverju að fólkið sem sírændi okkur, fengi áfram umboð til að stjórna samfélagi okkar.

 

Núna deyja foreldrar okkar.

Fréttir frá París og Róm, sem og USA, benda til þess að drepsóttin sé að þróa stökkbreytingu sem muni drepa börnin okkar líka.

 

Í nafni heimskunnar og Hjarðhegðunarinnar erum við sátt.

Okkur var sagt að við sjálf þyrftum ekkert að óttast.

 

En trúið mér.

Það er lygi.

Kveðja að austan.

 


mbl.is 88 til viðbótar greinst með veiruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin látna var með önnur undirliggjandi veikindi.

 

Sjaldan hef ég lesið eða heyrt í fréttum eins mikla gjaldfellingu á mennskunni og þessi orð sem fylgdu sorgarfrétt gærdagsins um fyrsta andlátið af völdum kórónaveirunnar.

Hvað kom það málinu við??, átti hún þá ekki sama rétt til lífs og við hin??

 

Mér varð hugsað til föður míns sem barðist fyrir lífi sínu á gjörgæslu Landspítalans eftir alvarlegt hjartaáfall og okkur var sagt að mjög ólíklegt væri að hann lifði það af.

En það var ekki tekið á móti honum í þetta skiptið, honum var sagt að fara til baka, hann ætti erindi sem hann þyrfti að sinna.  Og erindið var að passa strákana mína, tæplega eins árs, en ég var lítt nothæfur sökum alvarlegra bakveikinda.

Þrátt fyrir að vera með tæplega hálfan hjartavöðvann ónýtan eftir slagið, þá gerði gamli maðurinn það með sóma og átti 11 góð ár í viðbót þó reyndar síðustu 2 ár hefðu verið honum erfið heilsulega, en brosið sem hann gaf börnum og sérstaklega barnabörnum fór aldrei, "hvernig hafa strákarnir mínir það" var það sem hann spurði mig þegar hann komst síðast til meðvitundar þegar ljóst var í hvað stefndi.

 

Hefði pabbi minn fengið kórónuveiruna á þessum góðu og gjöfulum árum, þá hefði þulan um undirliggjandi veikindi verið lesin upp, eins og það réttlætti á einhvern hátt dauða hans.

Og vegna þess að veiran er talin ógna aðallega eldra fólki og fólki með þessi undirliggjandi veikindi, þá var þjóðinni viljandi leyft að smitast með þeim orðum að ekki þýddi að skera á smitleiðir

Því veiran virti ekki landamæri.

En eftir að þjóðin var orðin sýkt, þá var alveg hægt að loka á sýkt svæði eða setja fólk í 14 daga sóttkví við heimkomuna, en ekki fyrr en hún var orðin sýkt.

 

Ef frá eru taldar örþjóðir eins og San Marínó og Andorra þá höfum marga undanfarna daga verið sýktasta þjóð heims, eftir smit gærdagsins eru þau orðin 2.199 per milljón íbúa sem er 40 sinnum meira smit en skráð er í maurabúinu Kína. 

Og þar er farsóttin í rénum, en hjá okkur, magnast hún með hverjum deginum.

Þeir sjá fyrir endann á faraldrinum en við höfum ekki hugmynd um hvenær óttanum verði úthýst hjá okkur.

 

Á þessu eru skýringar, innanmein sem kallast hroki og sjálfsbyrgingaháttur fólks sem tók meðvitaða ákvörðun um leyfa þjóðinni að sýkjast.

Og hefur sannfært yfirvöld sem og harðhegðun heimskunnar að þessi mannslíf sem eru í húfi, þetta eldra fólk þarna og þetta fólkið þarna með undirliggjandi sjúkdóma, sé ekki þess virði að berjast fyrir.

Aðferðafræðin byggist öll á hugmyndafræði hunda sem gera það sér að leik að elta skottið á sjálfum sér, elst er við veiruna þar sem hún hefur smitað, en ekkert gert í tíma til að skera á smitleiðir svo hún nái ekki að smita.

Forherðingin svo mikil að þegar læknar á landsbyggðinni senda ákall um að loka á smit, þá eru löggurnar fengnar til að spila sig bjálfa með því að éta upp vitleysuna í tilkynningum sínum; ".. þjóni ekki tilgangi sínum fremur en að loka landinu öllu. Það muni fremur fresta vandanum en leysa hann enda óvíst þá hversu lengi landshlutinn yrði að vera lokaður.".

Löggan er samt ekki hugrakkari en það að nú berast fréttir að hún sé sjálf farin að loka sig inni, skjálfandi af hræðslu við smitið sem hún vill ekki loka inni því sérfræðingurinn að sunnan bannar henni það.

 

Rangindi þessarar aðferðafræði og hin undirliggjandi heimska og firring hefur oft verið lýst hér á þessari síðu, en ég rakst á bloggpistil í gær eftir annan Norðfirðing þar sem rökvillunni er lýst glimrandi vel, en tilefnið var frétt um að allt stefndi í að svörtustu spár myndu rætast.

Margt gott efni fer ofan garðs vegna þess að það er meira en að segja það að ná athygli á þessari gervihnattaöld þar sem megaframboð er á öllu svo ég fékk leyfi höfundar til að endurbirta pistil hans.

"Var stefnan í upphafi virkilega tekin á bjartsýnisspána?

Venjulega þegar um mannslíf er að tefla er unnið frá svörtustu spánni og svo slakað á eftir að menn gera sér betur grein fyrir hættunni. Og þarf virkilega að gera reiknilíkan til að búa til einhverja bjartsýnisspá sem er svo unnið eftir þegar við höfum biksvartan raunveruleikan æpandi á okkur frá Ítalíu og víðar? Ég bara átta mig ekki á þessu. Halda menn að þessi veira hafi kannski slappast eitthvað við ferðalagið til Íslands?

Ég vona bara að þessi nýi/gamli lyfjakokteill sem var verið að prófa komi að gagni þegar þetta verður komið á fullt skrið eftir nokkrar vikur því ég reikna ekki með að menn séu undirbúnir undir það sem koma skal.

Sú stefna sem menn enda með í svona bardaga er stefnan sem átti að taka í upphafi.". (Ágúst Kárason)

 

Sú stefna sem menn enda á er stefnan sem átti að taka í upphafi.

 

Við værum ekki svona sýkt í dag ef menn áttuðu sig á þessum einföldu sannindum.

Höfundur er vissulega ekki einn af sérfræðingunum að sunnan, hann er bara farsæll sjómaður sem aflar gjaldeyris svo þotuliðið geti flakkað um allar koppagrundir til að ná í smit handa þjóðinni sem heima situr, gætandi barna og búa, aflandi tekna, haldandi samfélaginu gangandi.

En hugsun hans er kristaltær og hann áttar sig strax á kjarna þess sem er forsendan að svona váboði fái ekki að gera óhindrað strandhögg meðal varnarlítillar þjóðar.

 

Lyddur sem leiða okkur þora ekki að taka réttar ákvarðanir, nema þegar skaðinn er skeður og ný æpandi mál kalla á úrlausn.

Lyddurnar skýla sér alltaf á bak við sérfræðingana.

Sjálfar dauðskelkaðar í felum á bak við einhvern fjarfundarbúnað.

 

Horfandi uppá samfélag sitt sem þeim var falið að stýra og vernda, smátt og smátt lamast því það eru alltaf að koma upp ný og ný smit.

Með tilheyrandi sóttkvíum, lokunum og öðru sem lamar allt mannlíf.

Og undirliggjandi er óttinn um afdrif sinna nánustu, nágranna sína og vini.

Um fólkið í samfélaginu sínu.

 

Hinir látnu verða ekki endurlífgaðir.

En fyrsta skrefið er að við látum ekki fjölmiðla eða sóttvarnaryfirvöld komast upp með að afmennska minningu þeirra með því að tala um undirliggjandi veikindi, eða glímdi við alvarleg veikindi eins og ég las á vef Ruv.

Við þekkjum öll fullt af fólki sem hefur verið alvarlega veikt á einhverjum tímapunkti en komið til baka og átt með okkur mörg góð ár.

Já jafnvel fólk sem á allt lífið framundan eftir bata sinn.

 

Bara þetta eina risaskref mun fá þjóðina til að skilja hina dauðans alvöru og hætta öllu hálfkáki í vörnum sínum.

Reiknum með hinu versta.

Verjumst hinu versta.

Og fögnum því þegar það gengur ekki eftir.

 

Vegna þess.

Vegna þess að við börðumst fyrir hverjum og einum.

 

Sérhvert mannslíf var þess virði að berjast fyrir.

Þannig sigruðum við og gengum stolt af orrustuvellinum.

Vitandi að við gerðum okkar besta.

 

Meira er ekki hægt að krefjast.

Kveðja að austan.


mbl.is 737 hafa greinst með kórónuveiruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóttvarnarlæknir hafnar hugmyndinni.

 

Og þá er það eins og guð hafi sagt það.

 

En hver eru afrek hans??

Undir styrkri stjórn hans erum við sýktasta þjóð heims miðað við hausatölu.

Þjóðir sem hafa notað þá aðferðafræði sem hann hafnar, að loka á smitleiðir, þær eru minnst sýktar þjóðir heims miða við hausafjölda.

Og lögreglan sem á að gæta öryggi borgaranna étur upp orð hans þó raunveruleikinn æpi á að þau séu bábiljur.

 

Lögreglan á Austurlandi, sem hefur fengið svipað ákall frá íbúum fjórðungsins, hafnar beiðni um lokun með þessum orðum; " .. þjóni ekki tilgangi sínum fremur en að loka landinu öllu. Það muni fremur fresta vandanum en leysa hann enda óvíst þá hversu lengi landshlutinn yrði að vera lokaður.“".

Sama dag og myndir bárust frá Whuan sem sýndu fólk á ferli.

Jafnvel lögregla, sem ekki veður í vitinu, á að geta talið á puttum sér dagana frá því að Whuan var sett í sóttkví og allsherjar útgöngubanni var komið á og þar til opnað var aftur.  Og ef hún getur það ekki þá hlýtur einhver kennari veitt þeim aðstoð við að telja. Það er gert svona; einn, tveir, þrír, fjórir, alveg þar til síðasti dagur sóttkvíarinnar er talinn.

Það er ekkert óvíst í þessu, veiran lifir ekki sjálfstæðu lífi og ef lokað er á allar smitleiðir hennar þá deyr hún út.

 

Ábyrgð lögregluyfirvalda á Austurlandi og Norðurlandi Eystra er mikil.

Deyi fólk á þessu svæði, þá er ábyrgðin þeirra.

Þau höfðu valdið til að grípa inní, en gerðu það ekki.

 

Það sárgrætilega er að það enda öll byggðarlög meira eða minna í sóttkví vegna smæðar og nálægðar.

Munurinn á sóttkvínni á norðausturhorninu og Húnaþingi vestra er sá að fólki var leyft fyrst að sýkjast í Húnaþingi, og svo var lokað. 

Þar sitja menn uppi með óttann og áhyggjurnar af afdrifum ættingja sinna og vina.

Og meðan er ekki lokað á smitleiðir þá er alltaf hætta á að sagan endurtaki sig.

 

Vissulega er fólk miklu meira á varðbergi núna, en halda menn að fólk hafi ekki gætt að sér í Vestamannaeyjum??

Að þetta séu bara sóðar sem kunni ekki að þrífa á sér hendurnar??

Meinið og málið er að veiran finnur sér smitleiðir líkt og hópurinn sem fór í skíðaferðalag fyrir norðan komst að.

Eina örugga sóttvörnin er að loka á öll samskipti við hana.

 

Íslensk sóttvarnaryfirvöld loka á öll samskipti við veiruna eftir að fólk er sýkt.

En sóttvörn felst í því að gera það áður.

Og hefur verið gert með góðum árangri í mjög fjölmennum löndum.

 

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessari staðreynd.

Mjög fjölmenn lönd hafa náð að halda veirunni í skefjum og það er ekkert sem bendir til þess að hún brjótist þar stjórnlaust út.

Geri hún það samt í einhverri ókominni framtíð þá hafa viðkomandi stjórnvöld keypt þjóðum sínum tíma, hindrað ótímabær dauðsföll meðal íbúanna, og stytt þann tíma sem er í óhjákvæmilega lækningu.

Við lifum jú á 21. öldinni og þetta er ekki drepsótt eins og Svarti dauði sem gengur aftur og aftur.

 

Í vörn sinni fyrir hinu óverjanlega er þá gripið til staðleysa eins og það sé ekki hægt að loka samfélög inni, útgöngubann raski daglegu lífi fólks og stöðvi í raun allt samfélagið.

En er það ekki hvort sem raunveruleikinn í dag, æ fleiri á leið í sóttkví, aðrir lifa í viðvarandi ótta um að sýkjast??

Og hver tekur á móti fólki frá sýktasta landi í heimi??

Við erum að fá á okkur svipaðan stimpil og holdsveikir höfðu á öldum áður eins og íslenskir ferðalangar hafa reynt á eigin skinni í fjarlægum löndum.  Og það er rétt að byrja.

 

Það er því grátlegra en nokkrum tárum tekur að beiðni læknanna sem standa vaktina á norðausturhorninu hafi verið hafnað með vísan í órök og bábiljur, þvert gegn reynslu þjóða sem hafa gripið til slíkra aðgerða.

Hvort skyldi vera erfiðara að loka Raufarhöfn eða Peking??

Íslendingar í Peking segja borgina ósýkta og lífið sé farið þar að ganga sinn vanagang.

Samt á að sýkja byggðirnar fyrst áður en þeim er lokað.

 

Það er verið að gambla með líf fólks.

Og allir sem ábyrgðina bera eiga að skammast sín.

 

Skammist ykkar.

Kveðja að austan.

 

PS. Tölulegar staðreyndir ljúga ekki og orðavaðall um að aðrar þjóðir líti til okkar sem fyrirmynd í baráttunni við kórónaveiruna geta ekki vísað í slíkar staðreyndir. 

Ísland.  Smit 648 eða 1.899 per milljón íbúa.  Dauðsföll 2 eða 6 per milljón íbúa.

Singapúr.  Smit 558 eða 95 per milljón íbúa.   Dauðsföll 2 eða 0,3 per milljón íbúa.

Hong Kong. Smit 387 eða 52 per milljón íbúa.   Dauðsföll 4 eða 0,5 per milljón íbúa.

Taivan   Smit  235 eða 10 per milljón íbúa.    Dauðsföll 2 eða 0,08 per milljón íbúa.

 

Þessi Austur Asíu ríki fengu fyrsta smitið um mánuði á undan okkur, hafa mikil samskipti við Kína, bæði vegna nálægðar sem og að íbúarnir eru flestir af kínverskum ættum.  Við höfðum mánuð til að undirbúa varnir okkar og læra af þeim.

Tölfræðin segir að það hafi ekki verið gert.


mbl.is Læknar vilja loka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við erum ekkert að grínast.

 

Segir andlit sóttvarna Íslands.

 

Ef blaðamenn væru ekki mjög heimskir þá myndu þeir spyrja, af hverju leyfðir þú veirunni að dreifast um landið,

Af hverju erum við sýktasta land í heimi þegar þú sagðist ekki vera að djóka.

Jókerinn hefði sagt það sama, en hann var siðblint ómenni, en hann hefði vissulega hrósað sér af því að smita heila þjóð þannig að leitun væri að öðru eins.

 

Í hverju er þá grínið fólgið??

Útgöngubanni í samfélögum sem þið kallið óskilgreinda sóttkví.

Hvenær mun það enda??

Hvenær verður aftur sótt að Húnvetningum eða Vestmannaeyingum þegar næsta smitbylgja gengur yfir??

 

Eða húmorinn þegar þið gátuð ekki einu sinni séð til þess að það væri hægt að mæla smit í landinu vegna þess að þið voruð að verða uppiskroppa með pinna (því þið vanmátu veiruna), og þá hættuð þig bara að mæla, og eruð svo stoltir að því að þið hafið Evrópumet í fækkun smita.

Hvað heimskir getið þið verið að þegar faraldur sem á sér rætur aftur til 8. mars, að hann loki núna heilu bæjarfélagi, að þá sé allt í rénum, eins og dagatalið frá 8. til 24. sé ekki til.

Það er ekki hægt að toppa heimskuna, en sjálfsagt eru til grínarar sem gætu gert það.

Mér skilst að Gísli Marteinn sé á lausu.

 

Hert samkomubann hjá sýktustu þjóð Evrópu.

Eru það 20? einstaklingar sem mega ekki lengur hittast?

Nema pólitísku ræflarnir í Þýskalandi og Bretlandi sem tala um 2 einstaklinga, þeir eru ekki grínarar, þeir hlusta ekki á speki hinna íslensku sóttvarnarsérfræðinga.

Náð okkar þjóðar er mikil að eiga svona frammúrskarandi sérfræðinga sem halda haus, þegar aðrar þjóðir, milljóna þjóðir, tugmilljóna þjóðir halda að útgöngubann virki, þegar við vitum betur.

Vit okkar er miklu meira en hlutfallið frá 2 yfir i 20, við erum gáfuðust, við höldum sko blaðamannafundi.

 

Á meðan dreifist veiran út.

Eins og enginn sé morgundagurinn.

 

Og ég get svo svarið það.

Hún er ekki að grínast.

Kveðja að austan.

 

PS. Og ef eitthvað getur toppað heimskuna, þá eru það þessi orð landlæknis;

" „Við erum upplýst og dugleg þjóð. Við eigum frábærlega menntað og duglegt heilbrigðisstarfsfólk. Við erum með góða innviði og kunnum að standa saman þegar á þarf að halda. Ef við við getum ekki tekist á við þessa veiru hver þá?“".

Við erum ekki upplýst þjóð, þá værum við ekki með um 1.899 smit á milljón íbúa, þá værum við ekki svo hissa að þjóðir í nauðvörn hleypi ekki smituðustu þjóð í heimi í land á flugvöllum sínum líkt og nýjustu fréttir herma.

Ef við værum upplýst, og sóttvarnaryfirvöld okkar væru ekki Jókerar, þá værum við með smit eins og Taivan, með 9 smit per milljón íbúa.

Og þeir sem deyja í dag og næstu daga, væru á lífi.

En Jókerinn spáir reyndar ekkert í slík sannindi, telur það reyndar löst frekar en kost.

En hver hefði trúað að hann væri helsti ráðgjafi íslenskra sóttvarnaryfirvalda.

Ha ha, því líkt bull, en sá sem hlær, hann tók ekki með í reikninginn Hjarðhegðun heimskunnar.


mbl.is „Við erum ekkert að grínast með þetta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fávitafrétt um fávita.

 

Fólk er að deyja, og regluverkið þvælist fyrir.

Þó það sé frá Evrópu, þó það sé geirneglt í EES samninginn líkt og braskaravæðing orkuauðlinda okkar, eða innflutningur á sýklum, þá er mikið að ef Skriffinnurinn fær að flækjast fyrir.

 

Á stríðstímum er það fyrsta sem stjórnvöld gera (fullorðið fólk en ekki börn) er að fangelsa svona fólk.

Sem vinnur með óvininum hvort sem það er að miðla upplýsingum líkt og kostaði nokkra lífið á Bretlandi á sínum tíma (voru hengdir fyrir miðlun upplýsinga), eða vinnur með veiru.

 

Ef blaðamenn eru valdir eftir öðru en útliti eða klæðaburði, þá væri þessi frétt ekki svona orðuð.

Ef eitthvað er á milli eyrnanna, þá yrði einfaldlega spurt, af hverju er ekki búið að fjarlægja þessa manneskju??

Á það benti Kári í annað eða þriðja sinn í netfærslum sínum, nema hann var svo kurteis að benda á alvarleikann og afleiðingarnar en lét okkur hinum um spurninguna.

 

Ömurleikinn er nefnilega slíkur að það dugar ekki að tala við ráðherra, Kári þarf að virkja almenningsálitið svo kerfið lúffi.

Sem honum er ekki fyrirgefið, ný hindrun er sett út í stað þeirrar sem fólkið fjarlægði.

 

Þetta er ekki boðlegt.

Þetta er ekki viðunandi.

 

Og skammist ykkar Moggamenn að fatta það ekki.

Þið eruð ekki eyland, þið eigið líka ástvini eins og við hin.

 

Við breytum ekki fávitum EES regluverksins.

En á dauðans alvörum tímum er það fávitafrétt að vitna í þá.

Það eru mannslíf í húfi.

 

Gleymum svo ekki hvaða skoffín var það fyrsta sem flúði þegar ljóst var að hið evrópska regluverk um frjálst flæði á sýktu fólki hafði gert Ísland að sýktustu þjóð Vesturlanda.

Það var sjálfur sendiherra hins frjálsa flæði á sýklum og sjúkdómum.

 

Hann gat ekki feisað afleiðingar hins frjálsa flæðis.

En okkur ber skylda að berjast við það.

Kveðja að austan.


mbl.is Gagnrýnir ÍE fyrir að láta ekki vita strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er öðruvísi á Íslandi en öðrum sýktum löndum??

 

Jú faraldurinn er ekki eins langt genginn og því höfum við ennþá tíma.

Þess vegna spyr maður sig, af hverju er þessi tími ekki nýttur??

Hann bjargar jú mannslífum, er það ekki einhvers virði.

 

Það er strangt útgöngubann á Ítalíu og Spáni.

Sem fólk tekur alvarlega því það vill ekki að fleiri deyi, en þegar er teiknað í skýin vegna þess að kjarklaus stjórnvöld hlustuðu á úrelta sóttvarnarlækna sem sögðu, það er ekkert hægt að gera annað en að hægja á útbreiðslunni.

Á sama tíma var margt gert í löndum Austur Asíu, og það virkaði.

Við værum  til dæmis með því sem næst ósmitað land ef við hefðum lokað í tíma á þekktar smitleiðir, í stað þess að vera með fleiri smit í fjölda talið, ekki hina margfræga hausatölu, en milljóna þjóðir Austur Asíu.

Og hefðu Ítalía og Spánn haft leiðtoga sem segðu hinu úreltu sóttvarnaryfirvöldum að halda kjafti, og sett strax á útgöngubann, þegar ljóst var í hvert stefndi, þá væri Kína ennþá með flest dauðsföll í heiminum í dag.

Þau gerðu það ekki og fólk geldur þess með lífi sínu.

 

Við breytum ekki þeirri staðreynd að þjóðinni var vísvitandi leyft að sýkjast og við stefnum óðfluga inní lokakafla veirusmitsins, þegar hún springur út og ekkert verður við ráðið.

En við þurfum ekki að láta allt enda með ósköpum eins og raunin varð á Ítalíu, og allt bendir til að verði líka á Spáni, þó var gripið fyrr þar í taumana svo hugsanlega verður faraldurinn þar ekki eins slæmur og hefði orðið ef menn hefðu tekið ítölsku smitleiðina alveg í botn.

Við þurfum þess ekki ef við höfum ennþá vott af manndóm í okkur og stöndum upp og mótmælum.

Þó það væri ekki annað en vegna ástvina okkar.

 

Ferðamenn smita ekki, það er ekki hægt að setja alla sem koma til landsins í sóttkví er okkur sagt.

Í Morgunblaðinu í dag er viðtal við konu sem fékk örugglega smit frá erlendum ferðamönnum því ekki hafði hún verið í tengslum við Ítalíufara þegar hún fékk smitið.  Til að geta haldið áfram að ljúga í þjóðina, þá var erindi hennar ekki svarað þegar hún bað um mælingu.  Hver veit hvað það vítaverða athæfi á eftir að kosta marga smitaða áður en yfir líkur??

Í öðru viðtali er sagt frá Ítalíusmiti, líklegast af hurðasnerli, og sami Ítalíusmitberi smitaði son sinn án þess að hitta hann, en sonurinn gekk frá farangri foreldra sinna.

Síðan er okkur talið í trú um að smitaðir ferðamenn geti ekki borið smit inní landið, að lífsýni sem þeir skilja eftir sig út um allt, sýki ekki íslenska ríkisborgara, en hvað þá með alla erlendu ríkisborgarana sem vinna hérna??, er smitveiran líka vandlát á þá??

 

Heimskan æpir framan í vitborið fólk, sem er tegundaheiti okkar, Homo sapiens, en samt komast sóttvarnaryfirvöld upp með útskýringar sínar eins og við séum öll stödd í Leikhúsi fáránleikans.

Og þegar allt um þrýtur, þá er sagt að ekki sé hægt að setja alla sem koma til landsins í sóttkví.

 

Af hverju er það hægt í Peking, íbúafjöldi 21 miljón, hjarta stjórnsýslu Kína?  Þar eru ótal leiðir inní borgina, og hún er ekki sýkt, það staðfesta útlendingar sem búa í borginni.

Af hverju er það hægt í Taivan, íbúafjöldi 28 milljónir, fjöldi smita 169, samt loka þeir á erlenda ferðamenn, við með okkar 569 smit, treystum okkur ekki til þess að sögn.

 

Þetta er drepsótt segja Ítalskir læknar.

Hérna heldur hjarðhegðun heimskunnar að þetta sé meinlítil flensa nema fyrir fólk í áhættuhópum.

Meinlítil flensa sem hægt er að stýra, og þegar það mistekst sem það augljóslega er búið að gera, þá er það vegna þess að ekkert er hægt að gera.

Annað en að veiran sýki okkur og drepi.

 

Ég las brandarabréf hjá leiðarahöfund Morgunblaðsins núna í morgun.

Ástæða þess að við tölum ekki þýsku og heilsumst með Heil kveðju er sú að fyrir nokkrum áratugum var eldri maður sem brást ekki þjóð sinni þegar hann sá í hvað stefndi.

Hann sagði ekki brandara, hann talaði mannamál á Ögurstundu.

Hann fór gegn Hjarðhegðun heimskunnar og hlaut bágt fyrir.

 

Hann er talinn maður að meiri í dag.

Kveðja að austan.


mbl.is „Útgöngubann ekki á teikniborðinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Mars 2020
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 995
  • Frá upphafi: 1321547

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 834
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband