Sóttvarnir rjúfa smitkeðju.

 

Annað er ekki í boði þegar veirusýkingar eru annars vegar.

Það þýðir að það er enginn samgangur við smitsvæði, og þar sem smit greinast eru þau sett í sóttkví.

 

Kínverjar náðu árangri því þeir virtu þessa staðreynd.

Þeir bönnuðu ekki aðeins samskipti innan sóttkvíar, þeir bönnuðu samskipti við svæði sem voru í sóttkví.

Þeir fluttu hvorki inn smit, eða út smit.

 

Íslensk sóttvarnaryfirvöld leyfðu samskipti við smitsvæði og uppskera núna fordæmalausa útbreiðslu kórónaveirunnar.

Þau búa ennþá að því skjóli að hafa tekið á móti þegar smitberar komu til landsins, en þau vita ekki um nýsmit þeirra, því veiran getur borist langar leiðir án þess að nokkur verði hennar var.

Eða sjá menn ekki samhengið, þegar um þúsund smit voru greind á Ítalíu, þá hafði Ítalía smitað yfir 10 Evrópulönd, og er uppspretta faraldurs á Íslandi.

Líkurnar á því eru engar, nema vegna þess að smitleiðir eru óþekktar, og veiran miklu útbreiddari en Exel sóttvarnarlækna gerir ráð fyrir.

 

Það er skýring þess að Kínverjar fórnuðu efnahag fyrir fólk, kusu að bjarga mannslífum þó það kostaði tímabundna efnahagserfiðleika.

Sömu rök hér á Íslandi, nema í öfugri merkingu, hér kusu yfirvöld að fórna fólki fyrir meintan efnahagslegan ávinning.

 

Íslensk sóttvarnaryfirvöld hafa sagt á þriðja viku að Kínverjar séu fífl þegar þeir gripu til sóttvarna, en þau séu gáfuð með því að gera það ekki.

Veiran er í rénum í Kína, en hún springur út hérna á Íslandi.

Enginn veit hvar sú sprenging endar.

 

Hvert er fíflið spyr maður þá.

Þeir sem vörðu mannslíf, eða þeir sem vörðu smitleiðir.

 

Þeir sem vitna í viðurkennd fræði.

Eða þeir sem vitna í Evróputrúarbrögð um hið frjálsa flæði.

 

To be or not to be.

Kórónaveirunni er skítsama.

 

Hún veikir og hún drepur.

Hún þiggur öll heimboð, spyr ekki um stjórnmál hjá húsráðanda.

Ef hún er velkomin, þá þiggur hún boðið.

 

Það er samt óþarfi að sóttvarnarlæknir og almannavarnarráð sé gestgjafi hennar.

Eða það hefði ég haldið.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Tíu ný smit í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fávitar sem kenna sig við.

 

Almannavarnir, sóttvarnir eða ríkisstjórn Íslands, setja núna fólkið í sóttkví, sem aldrei átti að hleypa úr landi.

Þetta var svo augljóst fyrir þremur vikum síðan, við værum ekki í þeirri stöðu að vera mest smitaða landið í heiminum í dag, ef þetta fólk væri ekki svo heimskt, að það væri leitun að annarri eins heimsku.

Sóttvörn byggist á því að hafa ekki samskipti við smituð svæði, ekki á því að hleypa smiti til landsins, og setja saklausa innlenda í sóttkví.

 

Ef þetta væri ekki dauðans alvara, þá væri það augljóst að mikið væri rolan sem fjármagnar sóttkví hinna heimsku ef hún krefði ekki fíflin um ábyrgð.

Við treystum þessu fólki og það flutti inn smit.

Og það veltir kostnaðinum á saklaust fólk.

 

Aumingjaskapurinn og hjarðhegðunin er svo slík, að ennþá er orð þessa fólks eins og guð hafi sagt það.

Fréttatími eftir fréttatíma hjá Ruv er viðtal við fólkið sem vísvitandi dreifði smit til þjóðarinnar, og notar síðan vald sitt til að setja saklausa í sóttkví.

Níðist á fjöldanum á meðan það heyktist á að loka smitleiðina frá Ítalíu.

Þykist svo vera rosalega hissa eins og enginn hafi bent þeim á heimsku þeirra.

 

Fífl í gær, það þarf kraftaverk til að það sé ekki fífl í dag.

Og að baki eru fávísu börnin sem hafa enga sens fyrir alvarleik málsins.

 

Hvar er sóttkvíin??

Hvar eru neyðarráðstafirnar sem takast á við áföllin sem skekja atvinnulíf þjóðarinnar??

Hvar eru viðbrögðin við birgðaskorti sem er fyrirsjáanlegur þegar veiran frystir alþjóðaviðskipti??

Hvar er allt það sem fullorðið fólk gerir þegar bregðast þarf gegn ógn sem ógnar velferð og öryggi þjóðarinnar??

 

Svarið er einfalt.

Innflutningur á sýklum sem mun örugglega ganga af matvælaöryggi þjóðarinnar dauðu.

Að ekki sé minnst á hættuna af fjölónæmum sýklum.

 

Því fávísu börnin segja.

Það er ekki til heimska sem ekki er hægt að toppa.

 

Og heiglarnir sem eldri eru, láta þau komast upp með það.

Manndómur þeirra er enginn.

Kveðja að austan.


mbl.is Allir farþegar frá Verona í heimasóttkví
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. mars 2020

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 1318297

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband