Á meðan við flytjum inn smit.

 

Skipta aðgerðir stjórnvalda engu máli.

Keðjan verður ekki rofin en slíkt er forsenda þess að útrýma veirusýkingum.

Kínverjar voru nokkrar vikur að fatta þetta, en sáu svo sig nauðbeygða að hefta ferðafrelsi fólks og setja heilu landsvæðin í allsherjar sóttkví.

 

Hér ætla blessuð fávísu börnin að endurtaka öll mistök kínverska stjórnvalda með nákvæmalegu sömu afleiðingum.

Stjórnlausri útbreiðslu og mannfalli.

 

Sjá menn ekki hvað er að gerast á Ítalíu eða Suður Kóreu??

Veiran breiðist hratt út frá og þó eru notuð öflugri ráð til að hefta útbreiðslu hennar en vinsamleg tilmæli á Feisbók um samstöðu.

Það má vera að það gildi önnur lögmál hérna, en mikil má trú manna á þau lögmál vera, ef menn hætta lífi fólks fyrir þá trú.

Og ég segi það satt, eldra fólk og fólk með undirliggjandi sjúkdóma á sama rétt til lífs og við hin.

 

Það er bara svo.

Virðum það.

Kveðja að austan.


mbl.is Forsætisráðherra hvetur til samstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferðatakmarkanir virka ekki segir sóttvarnarlæknir.

 

Samt er það svo að ef honum hefði borið gæfa til að leggja til bann á flugi til Ítalíu, og sett þá Íslendinga sem þaðan komu í 14 daga sóttkví, þá væri vandinn núna bundinn við einhverja gáma undir kontról.

Í stað þess að valda ofsahræðslu meðal þjóðarinnar með því að kalla fólk út af vinnustöðvum og vísa því í sóttkví.

 

Það liggur við að það hvarfli að manni að meðvituð ákvörðun hafi verið tekin að hindra ekki útbreiðslu veirunnar á Íslandi.

Hún sé álitin svona tæki.

Fækkunartæki.

 

Eða veit þetta fólk ekki hvað það gjörir.

Kveðja að austan.


mbl.is Ferðatakmarkanir ekki inni í myndinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Sótt­varna­lækn­ir tel­ur ekki ástæðu til að tak­marka flug­ferðir til og frá Verona".

 

Með því tók hann staðfasta ákvörðun um að bjóða kórónuveiruna velkomna til landsins, og núna er ljóst að hún tók því boði.

Og hvað svo??

 

Játa menn dómgreindarskort sitt og vanhæfni og axla ábyrgð?

Eða verða menn svo ósvífnir að kenna veirunni um að hafa nýtt sér farið, senda henni tilmæli um að hætta því, og leyfa svo fólki að halda áfram að ferðast eins og enginn sé heimsfaraldurinn??

Einhver skálkaskjól verða allavega fundin, og örugglega verður sent erindi til Eflingar hvort einhver skúringakona sé ekki á lausu til að hægt verði að benda á sökudólginn.

 

Eftir stendur sú stóra spurning.

Af hverju er landið stjórnlaust??

Af hverju er dauðans alvara höfð í flimtingum??

 

Það segir allt sem segja þarf að stóra fréttin í morgun frá innlendum stjórnvöldum var að núna ætluðu ráðuneytin að fara vinna saman, eins og samvinna sé ný uppfinning.

Í öðrum löndum ræða menn ógnirnar, áhrifin á lýðheilsu, áhrifin á efnahag.

Og hvað sé hægt að gera.

Fyrirfram, ekki eftir á.

 

En slíkt er ofviða fávísu börnunum sem hafa fátt annað afrekað en að samþykkja regluverk um braskaravæðingu raforkunnar undir styrkri yfirstjórn skriffinna Brussel.

Að ekki sé minnst á að leyfa innflutning á hráu kjöti, frjálsan innflutning á sýklum.

Það er eins og blessuð börnin lifi í sýndarveruleik, og að raunveruleikinn sé þeim ofviða.

Að alvara lífsins sé utan þeirra skilnings.

 

Hvernig lentum við í þeirri stöðu að láta þetta fólk gambla með líf okkar??

Ég bara spyr.

Kveðja að austan.


mbl.is Fyrsta tilfelli kórónuveiru greinist á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimurinn slæst við kórónuveiruna.

 

Nema náttúrulega við Íslendingar, hér gilda önnur lögmál, og hér er upphaflegri taktík beitt og var í árdaga veirusmitsins í Kína.

Vandinn talaður niður, fólk sem varar við er ofsótt, engar ráðstafanir gerðar til að hindra að hún komi til landsins.

Raftar ríða röftum með barnaskap eins og að þetta sé eins og hver önnur flensa, nema drepi færri.

Hve heimskt má fólk vera ef það heldur að allur þessi viðbúnaður útí hinum stóra heimi sé vegna meinlausrar flensu, og óttinn sé eingöngu bundinn við framandi nafn veirunnar.

 

Í þessari frétt er vakinn athygli á því að "aukn­ing­in á fjölda smitaðra er þar með meiri en til­kynnt hef­ur verið um í Kína, þar sem veir­an greind­ist fyrst.".

Sérstaklega athyglisvert því að í Kína fékk veiran að dreifa sér óáreitt í rúman mánuð, á einu þéttbýlasta svæði landsins, en í Suður Kóreu hefur verið barist frá fyrstu mínútu að hefta útbreiðslu veirunnar.

Það þarf ekki að hafa mikla dómgreind eða ályktunarhæfni að sjá að tölurnar frá Kína eru skáldaðar, hver sem skýringin á því er.  Á þetta hafa fjölmiðlar sem hafa tengsl við Kína ítrekað bent á.

 

Falsið er samt notað til að réttlæta aðgerðaleysið, og fóðrar heimskuna um samanburðinn við meinlausa flensur.

Og fólk er blekkt með samanburði á fjölda greindra með smit og dánartölum, sem er alltaf rangt því það er ekki sama tímalínan. 

Það rétta er að bera saman fjölda þeirra  sem ná fullum bata við dánartöluna.  Í dag er það hlutfall 7% samkvæmt opinberum kínverskum tölum, og munum að það er ekki hægt að treysta upplýsingum frá kínverskum stjórnvöldum. 

 

Þetta er skýringin á því hve heimurinn hefur brugðist harkalega við útbreiðslu kórónuveirunnar.

Stöðugt berast fréttir af fyrirbyggjandi ráðstöfunum eins og lokun skóla í Japan eða bann við fjöldasamkomum í Sviss.

Ítalir reyna að loka veiruna inni og Kínverjar viðhalda ennþá sínum ströngu takmörkunum á ferðum fólks á smituðum svæðum.

Öll efnahagsstarfsemi slokknar á þessum smitsvæðum og slíkt gera menn ekki nema af brýnni nauðsyn þegar önnur ráð duga ekki.

 

Þannig er raunveruleikinn í dag útí hinum stóra heimi.

Ferðamenn gufa upp, hlutabréf eru í sögulegu falli, bæði vegna áhrifanna í Kína, sem og að ferðamannaiðnaðurinn er það mikilvægur að djúpstæð kreppa þar hefur dómínóáhrif á aðra þætti heimshagkerfisins.

Nái veiran að breiðast út í öðrum löndum eins og hún gerir í dag í Suður Kóreu, þá er ljóst að sóttkvíar verða um allan heim með tilheyrandi afleiðingum á efnahagslíf, að ekki sé minnst á að deildarkeppnir í fótbolta verða ekki kláraðar í bráð.

Sem er svo sem minnsti vandinn en táknrænt fyrir það sem á eftir að gerast.

 

Þetta eru bara áhrifin á mannlífið.

Á efnahagslífið.

Áhrif vegna fyrirbyggjandi aðgerða svo hægt sé að stöðva útbreiðslu veirunnar, einangra hana og láta hana svo deyja hægt og rólega út með því að koma í veg fyrir nýsmit.

En ef það mistekst þá er illt í efni.

 

Því þetta er ekki flensa.

Þetta er sótt sem drepur hluta af þeim sem fá hana.

Og enginn veit hve margir munu falla ef veira fær að dreifa sér stjórnlaust.

 

Nema það er vitað að þeir verða ekki fáir.

Kveðja að austan.


mbl.is Hátt í 600 ný tilfelli í S-Kóreu í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er líf okkar komið undir þessu fólki??

 

Sem veit ekki einu sinni hvernig veiran smitast.

Og þarf blaðafulltrúa til að leiðrétta vitleysu sína.

Eins og menn séu elliærir eða með Alzheimer.

 

Eða hvað skýrir beina flugið frá smitsvæðum Ítalíu??

Kveðja að austan.


mbl.is Einkennalausir geta smitað aðra af kórónuveiru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikil er ábyrgð þeirra sem gera lítið úr dauðans alvöru.

 

Samkvæmt Þórólfi Guðnasyni sóttvarnarlækni er lítil sem engin ástæða til að óttast útbreiðslu kórónuveirunnar. 

Versta hugsanlega sviðsmyndin er um 300 tilfelli, og upp undir tíu dauðsföll svo vitnað sé beint í frétt Mbl.is.

 

Og það hlýtur að vakna sú spurning, til hvers eða eyða öllum þessum fjármunum og tíma í að undirbúa eitthvað sem næstum ekkert er

Hafa þeir ekkert annað að gera þarna hjá almannavarnaráði??

Er ekki að koma eldgos einhvers staðar??

 

Enn stærri furður eru þessu ofsafengnu viðbrögð um allan heim.

Þegar þetta er ekki neitt, neitt, af hverju eru kínversk stjórnvöld að loka tugmilljóna inná heimilum sínum, lama allt atvinnulíf í hjarta iðnframleiðslu sinnar, og eiga á hættu fjöldagjaldþrot fyrirtækja og efnahagskreppu.

Á vef DV má lesa þessa frétt, vitnað í Bloomberg.

"Kínverskt efnahagslíf hefur ekki farið varhluta af COVID-19 kórónaveirunni. Stór hluti fyrirtækja á miklum vandræðum því starfsemi þeirra hefur raskast mikið vegna aðgerða stjórnvalda til að hefta útbreiðslu veirunnar. Gjaldþrot vofir því yfir milljónum fyrirtækja.".

 

Er ekki alltí lagi með þetta fólk, veit það ekki það sem við vitum??

Af hverju var verið að reka embættismenn sem sögðu einmitt þetta í upphafi, að þetta væri ekki neitt, neitt og yrði að hafa sinn gang??  Skyldu þeir geta fengið vinnu hjá íslenskum stjórnvöldum, orði svona sérstakir ráðgjafar þjóðaröryggisráðs??

 

Og hvað var eiginlega að þessum lækni sem dreifði þeim meinta hræðsluáróðri að kórónaveiran væri bráðsmitandi og alvarleg ógn við lýðheilsu fólks??

Það er kannski erfitt að spyrja hann, því hann er dauður, en hann hefur örugglega dáið úr hræðsluáróðri en ekki veirusýkingunni, enda deyja ekki svona bráðungir menn, 34 ára úr þessari veiru.  Og ef hann hefur sýkst, þá hefur hann feikað bæði útlit og fæðingarár,, örugglega verið 84 á eftirlaunum, og örugglega ekki verið augnlæknir sem var að skoða augnsýkingu hjá barni, heldur bráðaliði sem var alltaf að bora í nefið á sér eftir að hafa sinnt bráðveikum eldri borgurum.

Eða eitthvað, alla vega allt annað en hann raunverulega var.  Ungur maður sem reynt var að þagga niður í, stálhraustur, en féll samt.

 

Raunveruleiki sóttvarnarlæknis hefur heldur ekki skilað sér til Ítalíu.

Þar hafa nokkrir sveitabæir verið einangraðir, um 60 þúsund manns segir Þóra Arnórsdóttir, fjölmiðlakona.

Þar hafa þegar fallið 12 einstaklingar, allt eldra fólk.

En veiran aðeins nýgengin.

 

Það er eins og eitt allsherjar samsæri sé í gangi gagnvart íslenskum stjórnvöldum og sérfræðingum þeirra.

Kínverjar ráku þá sem sögðu einmitt það sem sagt var á blaðamannafundinum í dag.  Þeir lokuðu sýktum svæðum, og tóku þar með áhættu á alvarlegum áföllum í efnahagslífinu.

Eins og það sé ekki nóg, þá rífst raunveruleikinn við hinar hófstemmdu yfirlýsingar, fólk virðir ekki hina íslensku tölfræði, og fellur langt umfram hana.

Í dag er skráð dánarhlutfall 8%, það er fjöldi látinna miðað við fjöldann sem hefur fengið fullan bata.  Það aftur virðist vera mun hærra hjá þeim sem fá hina alvarlegu lungnasýkingu.

Þetta er svona eins og að vera Palli litli einn í heiminum.

 

Svo er bara spurning, hverju trúir fólk??

Raunveruleikanum eða stjórnvöldum??

Það er mikið undir, sjálft lífið.

 

Það er nefnilega dauðans alvara að gera lítið úr drepsótt.

Eitthvað sem til dæmis kínversk stjórnvöld sáu að gengi ekki.

 

Við þykjumst vita betur.

Eða réttara sagt, ráðafólk okkar telur sig vita betur.

 

Mikil er ábyrgð þess.

Kveðja að austan.

 

 

 


mbl.is Heilbrigðiskerfið ráði við það versta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvarleiki heimsfaraldursins er að renna upp fyrir fólki.

 

Fólk hættir ekki bara að ferðast, fólk hættir líka að mæta á mannamót, hvort sem það eru íþróttaviðburðir eða annað þar sem fjöldi fólks safnast saman á lítið svæði.

 

Og á meðan engin lækning er til, þá virðist eina ráðið til að hemja drepsóttina vera að loka á allt mannlíf á sýktum svæðum.

Með tilheyrandi afleiðingum á framleiðslu og dreifingu vara, hvort sem það eru iðnaðarvörur, matvæli eða lyf.

Þannig er raunveruleikinn í Kína, þannig er raunveruleikinn að verða á Norður Ítalíu, og enginn veit hvaða lönd munu bætast í hópinn á næstu dögum.

 

Nema við Íslendingar erum lígeglaðir.

Við sættum okkur við stjórn fávísra barna sem afrekuðu það helst á síðasta ári að innleiða regluverk um markaðsvæðingu orkunnar þar sem aðeins tímaspursmál er hvenær hún verður seld á evrópskum samkeppnismarkaði.

Eins bregðast þau við ógninni af fjölónæmum sýklum með því að aflétta helstu vörn þjóðarinnar, banni við innflutningi á ófrosnu kjöti, þvert gegn ítrekuðum aðvörunum sóttvarnarlækna sem vara við að slíkir sýkla séu helsta ógn við lýðheilsu mannkyns.

Og þau keyptu einn hvítan gám sem sóttkví og þar með er málið afgreitt hvað þau varðar.  Eru staðföst í þeirri trú að kórónaveiran forðist hvíta sóttkvíargáma og muni því ekki láta sjá sig hérna á skerinu.

Þau höfðu ekki kjark að loka strax á aðstreymi ferðamanna frá sýktum löndum, og síðan þá hefur aðeins kjarkleysið aukist.

 

"Þetta er óþekkt vá sem enginn veit hvernig mun þróast" sagði prófessor við Háskóla Íslands, sérsvið, sóttvarnir, í útvarpsviðtali í morgun.

Auðheyrt var að hann skyldi ekki þá fávisku að líkja drepsóttinni saman við flensu.

Enda skilur fullorðið fólk ekki slíka veruleikafirringu.

 

En við erum varnarlaus, ægimáttur peninganna kom til valda börnum sem vita ekki hvað þau gjöra.

Sami ægimátturinn dreifir núna út sögusögnum og slúðri um að ekkert sé að óttast, eða hver er hræddur við flensu, deyr ekki bara gamla fólkið úr henni??

 

Svona er Ísland í dag.

Og það er engum nema okkur sjálfum að kenna.

Kveðja að austan.


mbl.is Verður Ólympíuleikunum aflýst?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýklar hafa ekki tilkynningarskyldu.

 

Þeir eru jafnvel svo einfaldir að þeir þekkja hvorki eyðublöð eða regluverk Evrópusambandsins.

Sem þýðir að stimpluð eyðublöð skriffinna hefta ekki útbreiðslu þeirra.

 

Þetta vissu menn í gamla daga af biturri reynslu.

Sem dæmi má nefna að rétt fyrir utan höfnina í Feneyjum er eyja sem notuð var sem sóttkví þegar vitað var að drepsóttir voru í nánd.

Samt voru þá til eyðublöð, en of mikið var í húfi að láta fífl stjórna.

Því drepsóttir drepa.

 

Og því miður falla fíflin ekki fyrst,.

Kveðja að austan.


mbl.is Enginn sérstakur viðbúnaður við heimkomu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrkynjun skriffinna

 

Er að afgreiða sýkla   með þeim orðum að ekki hafi fundist salmonella í sýnum.

Eins og að salmonella ógni íslenskum búfjárstofnum.

 

Forheimskan og fávitahátturinn verður aðeins útskýrður með greiðslum, og áður en hinir siðblindu gróðafíklar fái réttlæta sig með því að keyptir sérfræðingar kenndir við dýralækna hafi skrifað uppá innflutning á sýklum, munum að sóttvarnarlæknar hafa fordæmt þennan innflutning.

Sýklar virða ekki landamæri, þeir eru ekki keyptir, þeir skrifa ekki álitsgerðir hinna siðblindu sem hafa raðast í samtök sem kennd eru við atvinnulíf, verslun og þjónustu eða önnur samtök þar sem hugmyndafræði andskotans hefur grafið um sig.

Sýklar og veirur drepa, ekki bara einangraða búrfjárstofna, við sjáum í dag heim á heljarþröm þar sem aðeins sóttkví fær hamið drápsveiru.

 

Börnin og fávitarnir sem samþykktu frjálsan innflutning á sýklum, sem er beint tilræði við íslenska búfjárstofna, og aðeins seinna beinn innflutningur fjölónæmum bakteríum, stjórna varnarviðbrögðum þjóðarinnar gagnvar Kóranaveirunni, sem drepur um það bil fjórðung af þeim sem fá lungnasýkingu afbrigði hennar.

Þeirra eina vörn er deila um hvort þau séu börn, eða fávitar, en sú réttlæting breytir ekki þeirri staðreynd að að þetta er fólkið sem stjórnar vörnum þjóðarinnar gagnvart frjálsum innflutningi á búfjársjúkdómum, á fjölónæmum sýklum, og í dag, vörnum okkar gagnvart Kóranveirunni.

 

Hver er gæfa þjóðar sem hefur ekki betra mannaval??

 

Þegar börnin okkar eru undir.

Kveðja að austan.


mbl.is Ein sending af ófrosnu kjöti skoðuð frá áramótum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dánarhlutfallið er einn á móti fjórum.

 

Þegar fyrstu fréttir bárust af kórónaveirunni þá fylgdi með fréttinni að um fjórðungur þeirra sem sýktust, fengju lungasýkingu sem virtist vera banvæn í flestum tilvikum.

Af einhverjum duldum ástæðum hafa margir ábyrgðaraðilar gert lítið úr þeirri staðreynd, bent á að færri hafi ennþá fallið en úr mislingafaraldri, og vísað í að fjöldi látinna sé aðeins nokkur prósent af staðfestum sýkingartilfellum.

 

Rökvillan er tvennskonar.

Annars vegar þá fær mislingurinn að ganga frjáls, fólk sem greinist er ekki sett í sóttkví, eða á nokkurn hátt sé gripið til ráðstafana til að hefta útbreiðslu hans.  Sem þýðir að fjöldinn sýkist, og þá eðlilega eru dánartölur háar, ef miðað er við fjölda, þó hlutfallslega séu mjög í lægri kantinum.

Hins vegar þá er rangt að bera dánartölur við fjölda nýsmitaðra, veiran hefur sinn meðgöngutíma, þannig að með því eru ólíkar tímalínur bornar saman.

Það rétta er að bera saman fjölda látinna við fjölda læknaðra, og í dag er fullyrt að 3.838 hafi læknast á móti þeim 910 sem hafa látist.

 

Fyrstu fréttir eru því réttar, þetta er mannskæð sótt og það er í raun heiðarleg tilraun til fjöldamorða að gera lítið úr alvarleik hennar.

Hér heima fáum við þær fréttir að innlendir sem hafa heimsótt Kína séu beðnir að halda sig heima í sóttkví, en kínverskir ferðamenn fái hins vegar að valsa óhindrað um og dreifa veirunni óhindrað, séu þeir á annað borð smitberar.

Uppgefinn ástæða er hagur ferðaþjónustunnar, og ekki skal gert lítið úr þeim hag, en hversu margir mega deyja til að vernda þann hag??

Er ekki lágmarkið að sú tala sé gefin út??

 

Það er eins og við séum það veruleikafirrt að við áttum okkur ekki á hvað felst í orðinu veldisaukningu, sem er stærðfræðin að baki útbreiðslu veira.

Þær eru aðeins hamdar í upphafi, síðan er skaðinn skeður.

Í þessu tilviki óbætanlegur skaði.

 

Þessi veruleikafirring er að sama meiði og sú heimska barnanna sem stjórna þjóðinni, að leyfa örfáum siðblindum gróðafíklum frían innflutning á sýklum til landsins.

Þvert á brýnar aðvaranir helstu sérfræðinga þjóðarinnar að slíkt sé glapræði sem ekki bæði ógni heilbrigði búfjárstofna okkar, heldur líka lífi barna okkar í náinni framtíð.

Þeir benda á að ekki séu bara búfjárstofnar okkar  berskjaldaðir fyrir sýklum sökum margra alda einangrunar, heldur líka sé framleiðsla matvæla í stóriðjubúum græðginnar með þeim hætti,að aðeins sé tímaspursmál hvenær fjölónæmir sýklar breiðist út frá þeim sökum gegndarlausrar sýklalyfjanotkunar í verksmiðjum þar sem alltof mörgum gripum er hrúgað saman.

 

Þetta er tímaspursmál, samt notuðum við síðustu andartökin til að eyðileggja þá sérstöðu þjóðarinnar að hafa aðgang að matvælum sem eru framleidd á heilbrigðan hátt.

Er hægt að vera meiri fífl, er hægt að vera meiri fávitar??

 

Síðan er það öruggt að frjáls innflutningur á sýklum mun slátra innlendum landbúnaði, svo eftir verður aðeins innlend framleiðsla handa efnuðum sérvitringum.

Þjóðin verður alfarið háð innflutning á matvælum.

Í heimi þar sem eina vörnin gegn skæðum drepsóttum er að skera á flutninga milli landa.

Og það er ekki aðeins fólk sem mun falla þegar fjölónæmu sýklarnir komast á kreik, búfjárstofnar verksmiðjubúanna munu þurrkast út, og þá er ekki gáfulegt að hið frjálsa flæði siðblindu og græðgi hafi útrýmt innlendum landbúnaði, líkt og hið frjáls regluverk hótar að gera víðast hvar á evrópska efnahagssvæðinu.

 

Hvað heljarítök hafa þessir siðblindu græðgiskrímsli á samfélögum okkar??

Af hverju látum við þá komast upp með þessa afmennsku samfélaga okkar??

Eiga þeir ekki nóg, hafa þeir ekki grætt nóg??

Sjáum við ekki að það gengur ekki að heimurinn sé orðinn eitt þorp, þar sem megnið af framleiðslunni á sér stað í þrælabúum, þrælaverksmiðjum fjarlægra fátækra landa??

 

Ef ekki finnst fljótlega lækning við kórónaveirunni þá munu Kínverjar ekki getað hamið hana án þess að loka alla inni, og á meðan mannar enginn færibönd hinna siðblindu þrælahaldara.

Og aðrar þjóðir geta ekki forðað sér frá miklum hörmungum nema með því að skera á öll tengsl við sýkt svæði.

Það fyrsta sem fellur er glóbal hagkerfið, og þá standa þær þjóðir ekki vel sem hafa leyft þessum Örfáum að útvista megnið af framleiðslu sinni.

 

Hvort sem það tekst að hemja þennan faraldur eða ekki, þá er ljóst að þessi veira er aðeins aðvörun um það sem koma skal.

Að halda annað er afneitun á þeim bitra raunveruleik að sýklarnir virðast ætla að vinna stríðið við sýklalyfin.

Og heimsþorpið er berskjaldað gagnvart komandi faröldum og líklegt að það gliðni þegar hver fyrir sig reynir að verja sitt nærumhverfi.

 

Í þessu dæmi er ekki tryggt eftirá.

Þjóðir þurfa að reikna með þeim raunveruleika að vera sjálfum sér nægar um brýnustu lífsnauðsynjar í lengri eða skemmri tíma, og þær sem hundsa þá staðreynd munu upplifa örlög Rómarborgar hinnar fornu sem hafði leyft þrælahöldurum að útrýma allri matvælaframleiðslu í nærumhverfi með innflutningi á ódýru korni frá fjarlægum þrælabúum.

Róm með sínum milljón íbúa fór niður í örfá þúsund á nokkrum misserum. 

Skýringin var ekki slátrun erlendra herja, heldur var skorið á matvælaflutninga til borgarinnar þegar Vandalir lögðu undir sig kornræktarlönd Norður Afríku.

 

Eitthvað slíkt gerist alltaf fyrr eða síðar.

Og þá sveltur sá sem leyfði útvistun matvælaframleiðslu sinnar.

 

Í dag búum við að okkar.

Fífl á þingi í vasa Örfárra gróðafíkla vilja útvista því sem við eigum og höfum átt í hundruð ára.

 

Og við segjum ekkert.

Hvað veldur.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Gærdagurinn sá mannskæðasti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Feb. 2020
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 19
  • Sl. sólarhring: 519
  • Sl. viku: 724
  • Frá upphafi: 1320571

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 633
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband