Saklaus engill í viðtali.

 

Eina spurningin hvernig Logi fer að því að feika geislabauginn.

 

Hann stóð samt fyrir innihaldslausri aðför að Samherja á sínum tíma, og hefur ekki ennþá haft þann manndóm að biðjast afsökunar á þeim gjörðum sínum.

Og ef einhver skyldi ekki hafa dómgreindina í lagi, þá bætir bankaræningi ekki fyrir fyrri bankarán sín, þó hann ákveði að næsti banki sem hann rænir sé í eigu vafasams fólks.

Síðan skal því haldið til haga að Helgi Seljan kom aldrei nálægt neinu eftir Hrun sem gekk gegn hagsmunum hrægamma og arðráni þeirra á heimilum landsins.

Ekki eitt orð í þágu fólks.

 

Rifjum upp glæpina;

""„Réttarríkið Ísland“ hefur núna í nær 10 ára refsað fórnarlömbum fjármálaglæps af hörku fyrir glæp sem þau ekki frömdu. Gerendurnir hafa hins vegar hagnast stórkostlega á lögbrotum sínum.... Frá hruni hafa 10.000 fjölskyldur misst heimili sín á uppboðum og sennilega eru þær a.m.k. jafnmargar sem hafa misst heimili sín án þess að til uppboðs hafi komið. Varlega áætlað hafa því fleiri en 15.000 fjölskyldur misst heimili sín eða á bilinu 45.000 – 60.000 einstaklingar sem samsvarar öllum íbúum Kópavogs og helmingnum af Garðabæ. Á sama tíma hafa verið gerð 164.000 fjárnám hjá þessari 360.000 manna þjóð. Þar af voru 127.000 fjárnám árangurslaus.".".

 

Jafnvel siðblindur einstaklingur rennur til rifja þær hörmungar sem venjulegt fólk gekk í gegnum á þessum árum.  Jafnvel lönd sem hafa sætt árásum óvinveittra ríkja hafa ekki upplifað slíkar hlutfallslegar hörmungar líkt og íslenskur almenningur gekk í gegnum í boði gjörspilltrar stjórnmálastéttar okkar.

En annað hvort er langt í rifin hjá Helga eða hann þáði laun fyrir að gæta hagsmuna hrægammanna sem sugu hundruð milljarða út úr samfélagi okkar.

 

John Perkins, höfundur bókarinnar "Confessions of an Economic Hit Man" lýsti vel í viðtali í Silfri Egils hvernig efnahagsböðlar vinna við að skapa sundrungu, upplausn og múgæsingu í þeim löndum sem eru skotmörk alþjóðlegra hrægamma.

Öll upphlaupin frá Hruni falla vel inní þau vinnubrögð, saga Suður Ameríku er full af dæmum um slíkt, og þó að CIA hafi markað veginn, og þróað slík vinnubrögð, þá er langt um liðið síðan sú stofnun ber ábyrgð á upplausn og óáran.  En John Perkins benti á hverjir hefðu tekið við.

 

Wintris uppljóstrun Ruv er skýrt dæmi um slík vinnubrögð.

Í fyrstu mátti halda að það var verið að afhjúpa spillingu, þó engin gæti sýnt fram á hvers eðlis hún ætti að vera, en þegar í kjölfarið fylgdi pólitísk upplausn, þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins flaut einhver veginn ofaná, og hann tók síðan ákvörðun um að lækka stöðugleikaframlag hrægamma um hátt í 500 milljarða, þá er ljóst að engin tilviljun bjó að baki.

Eða að Helgi Selja og hans menn væru einhverjir bláeygðir sakleysingjar í vinnu fyrir réttlætið.

Í raun er um að ræða stærsta þjófnað Íslandssögunnar, og með stærri í vestrænni sögu.

 

Mikið megum við hin vera fávís og vitlaus ef við sjáum ekki samhengið.

Að við teljum að þekkt vinnubrögð, þekktir hagsmunir, þekktur ávinningur, hafi verið tilviljun ein, og meint verkfæri hrægammanna hafi ekki verið verkfæri, heldur riddarar réttlætisins sem fyrir tilviljun eina hafi verið staddir á vitlausum stað á vitlausum tíma.

Og hrægammarnir hafi sætt lagi.

 

Vissulega var Samherji afhjúpaður, ekkert réttlætir mútugreiðslur og arðrán  á fjarlægum slóðum.

En það hangir meir á spýtunni, það liggur fiskur undir steini.

Hann var úldinn í Wintris, og ýldan er þegar farin að gjósa upp í krossfestingunni án dóms og laga.

 

Ráðumst inní Írak sagði Rumsfeld strax eftir árásina á Tvíburaturnana, þó vitað væri að hryðjuverkamennirnir væru á vegum Al Kaida, væru Sádar, og fjármagnaðir þaðan.  Og Al Kaida sjálft naut skjóls í Afganisthan.

Setjum kvótann á uppboð og rústum þar með sjávarbyggðum landsins sögðu þingmenn Viðreisnar og Samfylkingarinnar um leið og fréttir bárust um mútur Samherja í Namibíu.

Ef eitthvað óljósari tenging en vilji Rumsfeld til að ráðast inní Írak.

Undirliggjandi er tækifærið til að nýta sér hörmungar til að ráðast á meinta óvini sína.

Óháð sekt, óháð sakleysi.

 

Kannski ekki Helga sök.

En sporin hræða.

 

Það er verðmæti í auðlindum Íslands, og hrægammarnir hafa þegar komist á blóðbragðið.

Það er gróði í markaðsvæðingu orkunnar og uppboði veiðikvótans.

Þjóð í innbyrðiserjum, á barmi upplausnar, ver sig ekki.

 

Það er þekkt staðreynd, sem dæmi sögunnar sanna.

Þau sannindi þekkja efnahagsböðlar, enda skaparar slíkra sanninda.

Og líkt og aðrir góðir iðnaðarmenn þá kunna þeir með verkfæri að fara.

 

Hvað rekur verkfærin áfram er síðan annar hlutur.

Græðgi, hégómagirni, mikilmennskubrjálæði, eða hrein fáviska úr ranni vitgrennsku?

 

Veit ekki.

Veit samt að englakomplexar eru ekki á þeim lista.

 

Það eru til margar leiðir til að afhjúpa.

En þegar krossfesting er hluti af pakkanum, þá er ljóst að afhjúpunin hefur ekkert með betra samfélag að gera.

Hvað þá samúð með fórnarlömbum rangindanna.

 

Aurinn býr að baki.

Beint eða óbeint.

 

Og valið er milli öskunnar eða eldsins.

Kveðja að austan.

 

 

 


mbl.is Ég var skíthræddur þegar ég vann á DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jamm og jæja.

 

Það eru víst tvær hliðar á peningnum, og önnur kemur fram í þessari fréttatilkynningu Síldarvinnslunnar.

Voru meint áform um uppbyggingu í Afríku blekking, eða voru það tölur á blaði, byggðar á raunsæju mati?

 

Eiginlega ber bæði Morgunblaðinu og Ruv skylda til að kanna það mál nánar, og ef þau fá gögn þar um, að eitthvað hefi verið spáð í uppbyggingu vinnslu, og grófar kostnaðaráætlanir settar á blað, þá eru miðlarnir ekki í svo góðum málum.

Því þá er ekki verið að leita sannleikans, heldur að safna tréverki í krossa, í þeim tilgangi að krossfesta menn og fyrirtæki.

Að valda skaða, sem ekki bara bitnar á þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem um ræðir, heldur líka öllu því fólki sem vinnur hjá viðkomandi fyrirtækjum og því fólki sem vinnur undir stjórn viðkomandi manna.

 

Það er auðvelt að gagnrýna.

Það er erfiðara að takast á við gagnrýni.

 

Nú reynir á fréttamiðlana, hvort þeir séu í slúðri eins og Metoo hreyfingin, eða hvort þeir axli ábyrgð á fréttaflutningi sínum og hafi það sem sannara reynist.

Sjáum hvað gerist.

Kveðja að austan.


mbl.is Síldarvinnslan segir frétt ranga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með því að þykjast!!

 

Er þetta ekki Ísland í dag, land þar sem öll umræða snýst um að þykjast, snýst um ímynd, snýst um að blekkja.

Þar sem almannatenglarnir eru menn dagsins.

 

Hvernig var þetta í orkupakkaumræðunni?, þegar forysta Sjálfstæðisflokksins gerði sér grein fyrir andstöðunni innan flokksins, með tilvísan í þá staðreynd að ódýr orka öllum til handa væri ekki bara ljósið í dýrtíðinni fyrir almenning heldur líka samkeppnisforskot atvinnulífsins, að þá ráðlagði almannatengill Bjarna Ben að segja að hann styddi regluverkið einmitt á þessum forsendum.

Svona svipuð lógík og að ég styð dauðarefsingu vegna þess að ég er á móti því að fólk sé líflátið.

 

Eða hvað talar góða fólkið í VG og Samfó oft um sjálfbærni sem leiðina til að berjast gegn hamfarahlýnun, og svo er það á fullu í störfum sínum að leggja steina í götu innlendrar framleiðslu með innleiðingu reglugerða frá Evrópusambandinu sem eru sérstaklega hugsaðar til að ganga að innlendri farmleiðslu dauðri.

Innflutningur á hráu kjöti, markaðsvæðing orkunnar, allskonar íþyngjandi reglur svo er landið opnað uppá gátt fyrir innflutningi frá löndum þar sem engar reglur eru virtar, hvorki í umhverfismálum eða varðandi kaup og kjör vinnandi fólks.

 

Þá þykjast menn bara.

Segja eitt.

Meina annað.

Framkvæma annað.

 

Sveitungi minn er ekki í góðum málum.

Ef það er eitt sem fólkið í sýndarveruleikanum fyrirgefur aldrei, þá er það þegar menn passa sig ekki og upp um þá kemst.

Það beinir nefnilega kastljósinu að öllum hinum.

 

Ég spái langri röð af fólki með grjóti í hendi,.

En sem betur fer stendur góða fólkið fyrir frjálsum innflutningi af fátæku fólki til að vinna fyrir sig illa launuð skítastörf, glerbrotin verða örugglega sópuð upp.

 

Ég man hins vegar eftir því að þegar góðærið skall á sjávarútveginum þegar kreppan skall á í fjármálakerfinu, þá voru bónusar til starfsfólks hækkaðir.

Skipastóllinn endurnýjaður, skuldir borgaðar niður, allar undirstöður styrktar til að takast á við óvissutíma sem framundan eru.

 

En það telur sjálfsagt ekkert í komandi umræðu.

Kveðja að austan.


mbl.is Vildi aðstoð við að blekkja Grænlendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kostuð aðför er alltaf einhliða.

 

Varla borga menn fyrir réttlæti handa þeim sem þeir ætla að knésetja, eða það skyldi maður ætla.

 

Í þessu samhengi skyldu menn rifja upp fleyg orð Kristins Hrafnssonar um að ætlunin væri að fella núverandi stjórnvöld í Namibíu, og slíkt er aldrei gert nema í þágu hagsmuna annarra.  Og Kristinn er varla sá einfeldningur að halda að stjórnarandstaðan sé á einhvern hátt betri en sú um margt gæfustjórn sem andspyrnuhreyfingin Swapo reyndist vera fyrir Namibíu. 

Allavega þekkir Afríka ekki önnur dæmi betri um valdatöku byltingarmanna, og þá er Suður Afríka Nelson Mandela ekki undanskilin.

Himin og haf er á milli spillingarinnar í Suður Afríku og Namibíu, frelsishetjunni miklu og arftökum hans í óhag.

En kannski eitthvað sem skiptir hvorki vestrænan hroka eða einbeittan góðvilja góða fólksins máli, þegar knésetning pólitískra andstæðinga er annars vegar.

 

Og Ruv hefur áður beitt sér í pólitískum tilgangi eða til að þjóna ákveðnum hagsmunum. 

Afhjúpun Samherja hefur ekkert með lög eða rétt að gera, markmiðið er að skapa fár, að ná fram ákveðnum pólitískum markmiðum, og ná fram grundvallarbreytingum á fiskveiðistjórnarkerfi þjóðarinnar.

Frá kvótakerfi yfir í uppboðskerfi, líkt og grunnhugsunin er í markaðsvæðingu orkuauðlindarinnar í regluverkinu kennt við Orkupakka 3.

Árásir eru alltaf einhliða, þær hafa alltaf það markmið að sigra andstæðinginn.

 

Samherji hjálpaði samt til með fáránlegri yfirlýsingu sinni um að skúringarkonunni væri um að kenna, trix sem virkaði kannski í fjarlægri fortíð þegar flokkurinn og stjórnkerfið var eitt, og því sem næst hægt að segja hvað sem er líkt og í alræðisríkjum væri, en jafnvel skoffín umræðunnar létu ekki út úr sér í dag.

Jafnvel skömminni skárra að játa sekt með þeim orðum að fyrirtækið hafi fundið upp spillinguna í Afríku, og fyrirtækið beri alfarið ábyrgð á henni í dag, í gær, í fjarlægri fortíð og um ókomna framtíð.  Og vísað síðan í Loga Einarsson um nánari útlistun á hinni altæku ábyrgð.

Allt annað en að segja að ábyrgðin væri einhvers millistjórnanda sem hefði verið ríki í ríkinu.

Eiginlega getur ekkert annað en taugaáfall æðstu stjórnenda ásamt fáránlega heimskum almannatenglum útskýrt slík viðbrögð.

 

Þar sem það er hagur þjóðar að kostað fár í þágu auðs og auðmanna, leppa og skreppa sem hafa það eina markmið að eignast auðlindir okkar, landið okkar í bókstaflegri merkingu, nái ekki að fella íslenskan sjávarútveg, eina að grunnstoðum velmegunar okkar og velferðar, þá er það gleðiefni að Þorsteinn víki og hæfur einstaklingur taki við.

Einstaklingur, sem hefur alla burði til að skapa traust um að fyrirtækið bæði upplýsi um athafnir sínar í Namibíu og vinni að fullum heilindum með stjórnvöldum, bæði hér og í Namibíu, þegar mál þess er tekið til rannsóknar.

Því þegar svona er komið þá er sannleikurinn ekki bara sagna bestur, hann er í raun eina forsenda þess að Samherji sem fyrirtæki lifi af.

Refskákinni lauk þegar tilraunin til að blekkja og afvegleiða var andvana fædd, aðeins til háðungar þeim sem það reyndu.

 

Samherji er framsæknasta fyrirtækið í sjávarútvegi í heiminum í dag.

Það er íslenskt, og á beinan og óbeinan hátt mun það vera ein af grunnstoðum velmegunar barna okkar.

Stjórnendum þess ber skylda til að taka hagsmuni þess fram yfir sína eigin, ber skylda bæði gagnvart starfsfólki sínu sem og hluthöfum, að gera það sem þarf að gera til að fyrirtækið lifi af, að það skaðist ekki meir en þegar er orðið.

Og okkur sem þjóð ber skylda til að láta ekki lýðskrum vanvita eða annarlega hagsmuni málaliða verða fyrirtækinu að fjörtjóni.

 

Við getum haft mismunandi skoðanir á stjórnkerfi fiskveiða, og við þurfum ekki að vera sátt við leikreglur nýfrjálshyggjunnar sem gegnsýra allt samfélag okkar í gegnum regluverk Evrópusambandsins.

Það er bara allt annar handleggur, sú barátta, það stríð er háð á öðrum vettvangi en á vígvelli múgæsingarinnar sem annarlegir hagsmunir kynda undir.

Það á að fara saman hjá okkur að krefjast þess að lög og regla sé virt, og að við sjálf virðum þær leikreglur sem lögum og reglu eru sett.

Þetta mál er nógu sorglegt, afleiðingar þess eru nógu alvarlegar þó við færum auðnum ekki vopn og verkfæri til að knésetja sjálfstæði okkar og velferð.

 

Það býr ekkert gott í því fólki sem hefur hæst þessa dagana.

Kveðja að austan.


mbl.is Umfjöllun Kveiks einhliða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skaðinn.

 

Hvernig sem á það er litið þá er ljóst að afhjúpun á meintum ráðgjafagreiðslum Samherja til stjórnmálamanna í Namibíu mun skaða marga, jafnt í Namibíu sem og Íslandi.

 

Doktor Ásgeir Brynjar kemst vel að orði í þessari frétt um það sem snýr að okkur sem þjóð:

"Þannig sé einna sorg­leg­ast varðandi mál Sam­herja hvaða áhrif það kunni að hafa á orðspor ís­lenskr­ar þekk­ing­ar og fisk­veiðistjórn­un­ar. „Hvaða skoðun sem fólk kann að hafa á okk­ar fisk­veiðistjórn­un­ar­kerfi er al­veg ljóst að það hef­ur reynst vel til þess að hamla gegn of­veiði. Þátt­taka okk­ar í þró­un­araðstoð í þess­um efn­um und­an­farna tvo ára­tugi hef­ur byggst á út­flutn­ingi á þekk­ingu okk­ar og kerf­is­upp­bygg­ingu.“".

Orðspor okkar er nefnilega órofinn hluti af markaðsímynd okkar, að við séum heiðarlegt fólk sem hörðum höndum hefur náð að byggja upp þekkingu og færni á sviði sjávarútvegs, og þessa þekkingu og færni erum við tilbúin að selja öðrum gegn sanngjarni þóknun, ekkert annað hangir á spýtunni.

Þess vegna er ákaflega mikilvægt að við náum að kryfja hvað fór úrskeiðis, að lærum af þessu og við sem þjóð setjum okkur eigin markmið og leikreglur sem við ætlumst til að íslensk fyrirtæki og lögaðilar virði í viðskiptum sínum og samskiptum við aðrar þjóðir.  Já, jafnvel þó það kosti málsóknir af hendi ESA, þá mega leikreglur hins frjálsa flæði ekki vera skálkaskjól fjárúlfa sem einskis svífast.

Gagnsæi ætti til dæmis vera helsti lærdómurinn, það ætti strax á morgun að setja löggjöf sem banna íslenskum lögaðilum að nota gervifélög eða aflandsfélög í viðskiptum sínum, og engin slík félög í erlendri eigu ættu að fá að reka starfsemi eða eiga eignir í íslenskri viðskiptalandhelgi.

Heiðarleiki er nefnilega auðlind, ekki síðri en orkan eða fiskimiðin.

 

Það er einnig augljóst að Samherji hefur skaðast mjög, orðspor fyrirtækisins er í rúst, það á örugglega yfir höfði sér sakamálarannsókn, sem jafnvel gæti endað með ákæru og dómi. 

En slíkt er jafnvel aukaatriði við rústirnar á ímynd fyrirtækisins, og hafi eitthvað verið eftir, þá er ljóst að viðbrögð Þorsteins Más og hans manna gengu endanlega frá trúverðugleika fyrirtækisins.

Þeir annaðhvort afhjúpa sig sem lygara, eða ef þeir segja satt, sem algjöra aula sem láta millistjórnanda spila sóló með fjármuni fyrirtækisins án þeirra vitneskju.  Eins og ekkert væri bókhaldskerfið, ekkert væri eftirlitskerfið og innri endurskoðun væri kínverskt hugtak skráð á kínversku táknmáli.

Hvað var að því segja að meintar ráðgjafagreiðslur væru forsenda viðskipta í Namibíu líkt og í öllum öðrum Afríkulöndum, það væri þeirra siður, engu síðri eða óheilbrigðari en sú kvöð á evrópsk stórfyrirtæki að þurfa ráða fyrrum meðlimi framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins sem ráðgjafa eða skipa þá í vel launaðar stjórnir fyrirtækja.

Höfum við virkilega ekkert breyst í hrokanum frá því að kristnir trúboðar unnu markvist gegn innlendum siðum og menningu, töldu hana óæðri og þeim bæri skylda að útrýma henni, þó þeir hefðu skýr fyrirmæli í biblíunni að boða aðeins trú sína. Lifir frasinn um hálfnakta villimenn svona góðu lífi??

 

Kristinn Hrafnsson og Wikileaks afhjúpuðu sig líka sem gerendur með skýr markmið.  Í viðtali í morgunútvarpi Ruv segir Kristinn án þess að skammast sín að það hefði ekki verið hægt að bíða eftir umfjöllun Al Jazeera því það væru kosningar í Namibíu bráðlega og meiningin væri að hafa áhrif á þær.

Hvaða rétt hefur Kristinn Hrafnsson til að leika guð og ráðskast svona með fólk í fjarlægu landi??  Ekki getur það verið vegna meintrar spillingar í Namibíu, samkvæmt lista um spillingu ríkja er Namibía í þriðja sæti Afríkuríkja, á eftir Botsvana og Rúanda, svo ljóst er að eitthvað annað gengur honum til.  Í þessu samhengi skulum við átta okkur á að það er ekkert sem segir að andstæðingar Swapo, stjórnarflokksins séu á einhvern hátt óspilltari eða hæfari til að stýra landinu, það er því gjörræðisverk að ætla sér að fella ríkisstjórn landsins á þessum forsendum.

Ef fjárhagslegur ávinningur útskýrir ekki slíkt óhæfuverk, þá er ljóst að slíkt athæfi má rekja til persónuleikabresta, hvort sem það er fyrirlitning  á íbúum meintra frumstæðra landa, drottnunargirni, eða Neró komplexar.

Persónulega finnst mér illskárra að Kristinn og hans félagar hjá Wikileka séu málaliðar í þjónustu samkeppnisaðila, líkt og blaðamenn Stundarinnar hafa verið frá fyrsta degi. 

 

Hins vegar er ekki augljóst hvort íslenskir stjórnmálamenn hafi skaða sjálfa sig með viðbrögðum sínum og yfirlýsingum.

Því til að geta skaðað orðspor eða ímynd, þarf eitthvað slíkt að vera til staðar.  Sem það náttúrulega er en ef hlustað er á raddir götunnar og jafnvel hlerað spjallið við eldhúsborðið þá er ljóst að inneignin er mjög takmörkuð í huga margra.

Eina sem er hægt að deila um með Samfylkinguna er hvort vitið fór algjörlega með brottför Ingibjargar eða endanlega þegar Jóhanna fór eftirlaun.  Hvernig geta viðskiptahættir í Namibíu verið forsenda enn einnar aðfarar að landsbyggðinni með stórhækkun veiðileyfisgjalda??  Hvernig er hægt að leggja að jöfnu tekjur landeiganda að laxveiði og tekjum þjóðarinnar af sjávarútvegi, og komast að þeirri niðurstöðu að laxabarónar græði meira en þjóðin??  Eða sú forheimska að leggja til að stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins sé gert óstarfhæft með því að eigur þess séu frystar??

Dugði ein saga af Bakkabræðrum eða þurfti margar??

 

Eða höfum við ekki heyrt allan ofstopann og yfirlýsingarnar áður??

Eða réttlætingarnar hjá þeim sem Samflokkurinn fól það hlutverk að stjórna í augnablikinu??

Er þetta ekki bara sama leikritið hjá fólki sem fyrir löngu seldi auð og auðmönnum sálu sína og hefur löngu fyrir Hrun unnið í einu og öllu að innleiða nýfrjálshyggju Evrópusambandsins sem kallast hið frjálsa flæði, og hefur með verkum sínum löngu sýnt að því er alveg sama um afleiðingar gjörða sinna.

Er þetta fólk ekki nýbúið að innleiða regluverk um markaðsvæðingu orkuauðlinda þjóðarinnar með tilheyrandi græðgivæðingu?? 

Endurreisti það ekki fjármálakerfið á sömu forsendum og fyrir Hrun, vann það ekki með hrægömmum að rýja vasa almennings, var ekki sátt meðal þess að auðmenn fengu skuldir sínar afskrifaðar á meðan harkan ein var í boði gagnvart venjulegu fólki.

Ekki tókst það á við regluverkið og kerfið sem leyfði auðnum að flytja gróðann til aflanda á meðan skuldir voru skyldar eftir á eignalausum kennitölum, ekki varðist það fjárkúgun breta, ekki var það samstaða á Alþingi sem felldu hin ólöglegu gengislán.

Þð er ekki úr háum söðli fyrir þetta fólk að falla.

 

Nei ofstopinn og yfirlýsingarnar hafa heyrst áður.

En ekki alltaf.

 

Ekkert heyrðist þegar þessi sárgrætilegu orð voru fest á blað af núverandi og fyrrverandi formönnum Hagsmunasamtakanna Heimilanna.

"„Réttarríkið Ísland“ hefur núna í nær 10 ára refsað fórnarlömbum fjármálaglæps af hörku fyrir glæp sem þau ekki frömdu. Gerendurnir hafa hins vegar hagnast stórkostlega á lögbrotum sínum....

Frá hruni hafa 10.000 fjölskyldur misst heimili sín á uppboðum og sennilega eru þær a.m.k. jafnmargar sem hafa misst heimili sín án þess að til uppboðs hafi komið. Varlega áætlað hafa því fleiri en 15.000 fjölskyldur misst heimili sín eða á bilinu 45.000 – 60.000 einstaklingar sem samsvarar öllum íbúum Kópavogs og helmingnum af Garðabæ. Á sama tíma hafa verið gerð 164.000 fjárnám hjá þessari 360.000 manna þjóð. Þar af voru 127.000 fjárnám árangurslaus.".

Því þetta eru jú bara við, fólkið í landinu.

Hver grætur náungann sem rekinn er út á gaddinn??

 

Skaði er skeður.

Það er samt óþarfi að magna hann upp.

 

Hann á að vera lærdómur, á þann hátt að við veltum fyrir okkur hvernig við viljum hafa ímynd landsins.

Hann á líka að fá okkur til að íhuga vitsmuni stjórnmálamann, siðferði þeirra, og hvaða hagsmuni í raun þeir þjóna.

Við eigum að setja spurningarmerki um hvernig við látum keypta fjölmiðamenn stjórna umræðunni, hvernig þeir reyna að sveigja hana frá meintum lögbrotum yfir í umræðu um ofurskatta eða eyðingu landsbyggðar með uppboðskerfi á kvóta, að ekki sé minnst á að þeir nýta svona fréttir til að ná fram markmiðum eiganda sinna, hver svo sem þau markmið eru.

Og við eigum ekki að láta fífla okkur.

 

Það gilda lög í landinu, það á að framfylgja þeim

Meint lögbrot eiga aldrei að vera forsenda fjölmiðlafárs, þar sem lukkuriddarar og harðsvíraðir málaliðar auðmanna nýta sér sviðsljósið til að ná fram persónulegum ávinningi, sér og sínum til handa.

Þau er aldrei tylliástæða til að ógna lífsafkomu tugþúsunda, eða stefna byggð og búsetu í hættu.

Og þau hafa ekkert með stjórnarskrá landsins að gera.

 

Áttum okkur á þessu.

Áttum okkur á hagsmununum sem knýja fárið áfram.

Treystum lög og reglu, föllum í ekki í far múgæsingar og skrílshugsunar.

 

Þá verður skaðinn aldrei svo að ekki megi bæta úr.

Kveðja að austan.


mbl.is Skaðar orðspor greinarinnar og Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Nóv. 2019
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 211
  • Sl. sólarhring: 369
  • Sl. viku: 3100
  • Frá upphafi: 1339274

Annað

  • Innlit í dag: 186
  • Innlit sl. viku: 2745
  • Gestir í dag: 182
  • IP-tölur í dag: 182

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband