2.10.2020 | 11:13
Dauðinn gengur laus.
Þarna úti, í líki veiru sem ógnar fólki sem er komið á aldur eða er með undirliggjandi sjúkdóma.
Þarf hann að drepa til að snúist sé til varnar??
Hvað veldur sinnuleysinu, aðgerðarleysinu??
Það er brýnt að þeirri spurningu sé svarað.
Það á ekki að þurfa jarðarfarir til þess.
Kveðja að austan.
![]() |
Einn bætist við á gjörgæslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2020 | 20:57
Að mæra fjöldamorð
Er kúnst og krefst sérstaks innrætis.
Stefna sænskra stjórnvalda hefur kostað 5.893 Svía lífið, samkvæmt opinberum tölum, og þar er ekki vel talið.
Á sama tíma dóu samtals 1.269 manns í Danmörku, Noregi og Finnlandi, íbúatala Svíþjóðar erum 9 milljónir, íbúatala hinna landanna er um 15,5 milljónir.
Í þeim löndum fékk veikt fólk hjálp þar til yfir lauk, í frétt BBC má lesa þetta um gæsku sænskra heilbrigðisyfirvalda;
""They told us that we shouldn´t send anyone to the hospital, even if they may be 65 and have many years to live. We were told not to send them in," says Latifa Löfvenberg, a nurse who worked in several care homes around Gävle, north of Stockholm, at the beginning of the pandemic.
"Some can have a lot of years left to live with loved ones, but they don´t have the chance... because they never make it to the hospital," she says. "They suffocate to death. And its a lot of panic and it´svery hard to just stand by and watch."". (BBC 19 may).".
Annars vegur siður, hins vegar villimennska.
Samt höfðu öll Norðurlöndin sömu upplýsingar um alvarleik veirunnar, en munurinn lá í staðfestu sænskra stjórnvalda að reyna að ná hjarðónæmi meðal þjóðarinnar.
Þó vitað væri að slíkt myndi kosta fjölda fólks lífið.
Gæfa sænsku þjóðarinnar var að önnur lönd lokuðu á ferðir til Svíþjóðar svo nýsmit þar í landi fjöruðu smán saman út með veikingu veirunnar.
Ef sami kraftur hefði verið í henni líkt og á Norður Ítalíu, þá hefðu miklu fleiri fallið, en slíkt var ekki vitað fyrir.
Í þessu samhengi verða menn að hafa í huga svo ég vitna í sænskan lögfræðing, Katinku Svanberg, jur.dr och gästforskare i internationell rätt vid Melbourne universitet,sem skrifaði grein í Gautlandspóstinn undir yfirskriftinni; "Sverige bryter mot mänskliga rättigheter när de offrar de äldre", það er sænsk stjórnvöld brjóta á mannréttindum aldraða þegar þeim er fórnað að sænsk stjórnvöld, líkt og stjórnvöld annarra siðaðra ríkja hafa skuldbundið sig til að vernda borgara sína gagnvart farsóttum og sjúkdómum, og slík vernd nær skilyrðislaust til allra hópa, jafnt rauðhærða sem aldraða.
" Unlike comparable I-countries, the government has refrained from binding measures against the spread of infection. When many lives are sacrificed due to the government´s and the Public Health Agency´s strategy, it is a violation of human rights introduced in the Swedish constitution as well as the EU Treaty and against the principle of human security.
The UN Convention on Economic, Social and Cultural Rights states that everyone has the right to health and that the state must prevent epidemics The right to life is enshrined in Article 6 of the 1966 UN Convention on Civil and Political Rights, in the UN Universal Declaration of Human Rights, as well as in the European Convention on Civil and Political Rights.
The right to life is a prerequisite for the exercise of other rights. But the right to life is not worth much if a pandemic rages freely. The right to life is therefore guaranteed by other human rights such as the right to health. The UN Convention on Economic, Social and Cultural Rights states that everyone has the right to health and that the state must prevent epidemics: "[prevent, treat and combat all epidemic diseases and create conditions that ensure all medical and hospital care in the event of illness."
The EU´s fundamental rights also include a general ban on discrimination. The elderly must not be discriminated against and must be treated with dignity.". (Translator snaraði úr sænsku yfir í ensku).
Stefna sænskra stjórnvalda gengur gegn sænsku stjórnarskránni og brýtur alla mannréttindasáttmála sem þjóðin á aðild að.
Hún var vísvitandi og leiddi til ótímabæra dauðsfalla þúsunda saklausra borgara landsins.
Annars staðar þar sem veiran felldi svona hlutfallslega marga þá hafði hún breiðst út áður en stjórnvöld almennt í Evrópu gerðu sér grein fyrir alvarleik hennar.
Og í þeim löndum gripu viðkomandi stjórnvöld til harðra sóttvarna sem lokuðu á smitleiðir veirunnar og náði þannig tökum á útbreiðslu hennar og í kjölfarið snarfækkaði dauðsföllum.
Ef viðkomandi stjórnvöld hefðu farið sænsku leiðina þá hefðu hundruð þúsunda látist í viðbót samkvæmt einföldum veldisútreikningum þegar þekktra dauðsfalla.
Svo dæmi sé tekið frá Spáni þá höfðu 196 dáið þann 14 mars síðastliðinn þegar þarlend stjórnvöld gripu til strangra sóttvarna sem fólust því sem næst í allsherjarlokun á samfélaginu. Viku seinna, 21 mars höfðu 1.381 látist, þann 28. mars höfðu 5.982 látist, 4. apríl var talan komin í 11.947, þann 11,. 16.606 og þegar kúrfan fór loksins að fletjast út, það er um mánaðarmótin apríl-mai, þá höfðu rúmlega 24.500 látist, og það var aðeins skráð mannfall á spítölum landsins, hjúkrunarheimili voru til dæmis fyrir utan þá tölu.
Á sex vikum fór sem sagt fjöldi látinna úr 196 í 24.500, og samkvæmt blaðinu El Pais þá "The real Covid-19 death toll in Spain: at least 44,868 victims".
Skelfilegar tölur, en hefðu orðið ennþá skelfilegri ef spænsk stjórnvöld hefðu kosið að fórna fólki fyrir meintan efnahagslegan ávinning.
Á sex vikum rúmlega 220 faldaðist dauðsföll, vissulega hægir á veldisaukningu eftir því sem fleiri smitast, en akur fólks í áhættuhópi var ennþá lítt plægður, þó talan hefði aðeins tífaldast næstu 6 vikurnar þá hefðu 440.000 látist vegna covid veirunnar.
Þetta er það sem kallast að mæra vísvitandi fjöldamorð því sænsk sóttvarnaryfirvöld og sænsk stjórnvöld vissu alveg hvað þau voru að gera.
Að bera þeirrar gjörðir saman við einbeittar aðgerðir íslenskra sóttvarnayfirvalda sem höfðu þá frumforsendu að vernda mannslíf, ekki eyða þeim, er út úr öllu korti.
Er sverta í sinni svörtustu mynd.
Og er Morgunblaðinu til ævarandi skammar að birta athugasemdarlaust.
Ísland með sín 28 dauðsföll per milljón íbúa og Svíþjóð með sín 583 dauðsföll per milljón íbúa er á engan hátt sambærilegt, ekki frekar en það er hægt að bera saman Þýskaland nútímans saman við Þýskaland 4. áratugar síðustu aldar, þó þjóðin sé sú sama, mælandi á sömu tungu.
Siðferðislegt gjaldþrot sænsku þjóðarinnar er algjört og ég ætla að láta Katinku eiga lokaorðin um þá eymd;
"I´m worried about my dad who´s 84 years old. He is from the time when the "folk home" was built and can therefore not imagine that the elderly or sick would be sacrificed in the first instance for economic reasons by a social democratic government. He can not believe that staff in the home care service in Stockholm are infected, because they act as usual, without mouth guards.
His grandchildren are afraid that their grandfather will become one of the anonymous figures in the death statistics. It is time for the Swedish state to immediately stop violating international law and adapt to current law to save lives. ".
Já, sænsku kratarnir af öllu fólki.
Afgreiða lifandi fólk sem dauðar tölur í bókhaldi tölfræðinnar.
Slíkt er ætíð endalok mennskunnar.
Og er ekki til breytni fyrir siðað fólk
Kveðja að austan.
![]() |
Leið Svía ekki svo ólík okkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2020 | 17:43
Veiran dreifist út í samfélagið.
Æ fleiri eru í sóttkví, æ fleiri fyrirtæki tilkynna skerta starfsemi vegna sóttkvíar starfsmanna eða smita á meðal þeirra.
Villuljósið um að Reykvískir skólar væru að vinna sig út úr vandanum reynist tálsýn ein, fyrir einn skóla sem nær að klára sóttkví, bætast tveir við.
Nú þegar er eitt hjúkrunarheimili smitað, aðeins dagaspursmál hvenær fleiri bætast við.
Vandinn eykst með hverjum deginum.
Og í stað þess að viðurkenna vandann, og kalla á aðgerðir sóttvarnaryfirvalda, þá bregst forstjóri Landsspítalans við líkt og hann vilji vera næsta sögupersónan í Pollýönnu 2.
Hann ræður við vandann að því gefnu að veiran sé vitsmunavera og ákveði af góðmennsku sinni að sýkja ekki starfsfólk Landspítalans.
Sem hefur ekki verið reyndin það sem af er.
Hvaða afneitun er þetta??
Af hverju geta menn ekki feisað staðreyndir og brugðist við þeim??
Hættuleg veira gengur laus, það er ekki gerð tilraun til að setja hana í bönd, og þar með smitar hún fólk, líka starfsfólk Landspítalans.
Að ekki sé minnst á að spurningin snýst ekki um hvort Landsspítalinn ráði við fjölgun kóvid sjúklinga.
Sá sem veikist illa er engu bættari með það.
Sá sem lendir í öndunarvél er engu bættari með það.
Sá sem deyr er engu bættari með það.
Hvað gerðist??
Af hverju tóku menn alltí einu þá ákvörðun að hætta að verja þjóðina??
Af hverju varð sænska leiðin ofaná??
Að leyfa veirunni að sýkja og drepa undir stjórn.
Þetta hefur ekki verið útskýrt fyrir þjóðinni.
Kveðja að austan.
![]() |
Ný innlögn á 12 klukkustunda fresti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2020 | 10:04
Það er engin eyland.
Og smit dreifast hægt og hljótt á um alla Evrópu í dag.
Land sem setti önnur lönd á rauðan lista í gær, er sjálft sett á hinn sama lista af öðrum löndum í dag.
Þetta var líklegast stærsta blekkingin við körfuna um opin landamæri, að halda að það hefði engar afleiðingar að smitberar fengju að ferðast milli landa án undangenginna sóttkvíar.
Sóttvarnarlæknir upplýsti í útvarpinu í morgun að við værum að glíma við 2 afbrigði veirunnar, en um 110 afbrigði hefðu verið stöðvuð við landamæraskimun.
Og spurði síðna hvernig ástandið væri í dag ef landamærin hefðu ekki verið skimuð??
Svarið er einfalt.
Verra.
Fyrr.
Samt var grafið undan skimun við landamærin frá fyrsta degi, og sá skurðgröftur magnaðist um allan helming þegar seinni skimun eftir 5 daga sóttkví var tekin upp.
Þá var ljóst að ein skimun við landamæri næði ekki öllum smitum, og með auknum smitum í Evrópu þá myndi þeim tilvikum fjölga þar sem veiran slyppi inní landið.
Aðgerðin var varnarviðbrögð svo þó yrði hægt að hafa landið lengur opið fyrir ferðalöngum því ákvörðun um opin landamæri er ekki einhliða, það er til lítils að hafa landamærin opin líkt og Svíar höfðu, þegar enginn mátti ferðast þangað án þess að fara í sóttkví við heimkomuna.
Samt var látið eins og að stjórnvöld væru að skemma fyrir eða jafnvel eyðileggja innlenda ferðaþjónustu.
Málaliðarnir sem hæst gjömmuðu skautuðu í áróðri sínum algjörlega framhjá þeirri staðreynd að smituð lönd eru sett á rauðan lista hjá löndum sem telja sig öruggari og ferðamennskan þar með sjálfdauð.
Sem og þeir þögðu yfir að samdrátturinn í ferðalögum til Íslands var á pari við samdráttinn hjá öðrum ferðamannalöndum Evrópu.
Og þarna úti er fullt af trúgjörnu fólki sem lét glepjast.
En raunveruleikinn á alltaf lokaorðið.
Þrátt fyrir hinar ströngu sóttvarnir á landamærunum er landið komið á rauða lista hjá helstu nágrannalöndum okkar.
Ferðalög hingað eru talin áhættusöm.
Hvort sú staðreynd slái á skurðgröftinn gagnvart sóttvörnum þjóðarinnar er hins vegar ólíklegt.
Öðru verður bara logið, annað verður spunnið upp.
Það eru svartar sálir þarna úti með mikil fjárráð sem munu ekki linna látum fyrr en líkin fara að hrannast upp.
Gegn þeim stendur sannleikurinn og Þórólfur.
Í vörn sem verður að nauðvörn ef ekki tekst að stöðva útbreiðslu veirunnar með skimun og smitrakningu.
Hvað það varðar hefur siðað fólk ekkert val.
Sannleikurinn og Þórólfur þarfnast stuðnings þess.
Líkkestir eru aldrei val í siðuðu samfélagi.
Kveðja að austan.
![]() |
Þjóðverjar setja Ísland á rauðan lista |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.9.2020 | 16:49
Ef hægt er að mæla siðblindu.
Þá munu vísindamenn seinna meir rífast um hvort sé skýrara dæmi fundur Sigríðar Andersen með sænska fjöldamorðingjanum, eða að uppklapp Morgunblaðsins á þeim fundi.
Persónulega tel ég að Morgunblaðið toppi Sigríði.
Byggi á frétt blaðsins í gær um fórnarlömb Kóvid í Svíþjóð, þar sem hinn nýráðni hægri öfginn á blaðinu náði að kúga fréttastjórann til að birta mynd af eldri manni, þar sem undirliggjandi var hinn heiðni tónn, að þessum hefði hvort sem er átt að kasta fyrir ætternisstapa.
Ég veit þetta vegna þess að svona lágkúra hefur aldrei sést áður á síðum Morgunblaðsins.
Munum að mörg hægri blöð kóuðu með mannvonsku nasismans, áður en til seinna stríðs kom, en Morgunblaðið stóð þá alltaf vaktina með mennsku og manngildi.
Síðan má vísa í forkastanlegt Reykjavíkurbréf, sem annars vegar á eina skýringu, að Davíð sé með elliglöp, og því viljalaust verkfæri, eða hann sé í gíslingu hægri öfga á blaðinu. Líklegast bundinn inní skáp eða í böndum í sumarbústað í ætt við sögur Stellu Blómkvist.
Yfirskrift Reykjavíkurbréfsins var vísan í leigumorðingja, en undirtónninn var að "þau hefðu dáið hvort sem er".
Vitnað var í breskan siðblindingja sem sagði að aðeins 1/3 af kóvid dauðsföllum í Bretlandi væru vegna kóvid, hin hefðu dáið hvort sem er.
Siðblindinginn er líklegast að vísa í að 2/3 hefðu hvort sem er dáið vegna aldurs eða undirliggjandi sjúkdóma, síðan vísar hann í að óheft flensa hefði hvort sem er drepið fleiri en kóvid eftir sóttvarnir.
Samhengið var grímulaus árás illskunnar á sóttvarnir Borisar Johnson forsætisráðherra Bretalands.
Undirliggjandi árás á íslenskar sóttvarnir.
Davíð er gikkur, en Davíð er ekki illmenni.
Illmenni sem mæra fjöldamorð hafa tekið yfir ritstjórn Morgunblaðsins.
Vika fyrr í sóttvörnum í Bretlandi hefði bjargað um 20.000 manns, vika seinna hefði kostað um 40.000 til 50.000 þúsund mannslíf í viðbót, miðað við veldisaukningu smita og hlutfalls dauðsfalla út frá þeirri veldisaukningu.
Einföld tölfræði, einföld staðreynd út frá grafinu um veldisaukningu smita og dauðsfalla.
Samt ráðast hægri öfgar á Johnson fyrir að grípa til nauðsynlegra sóttvarna, og þær árásir fengu vægi í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins.
Líkleg réttlæting, þau hefðu dáið hvort sem er.
Léttvæg fundin í réttarkerfi Þýskalands sem dæmdi hjúkrunarfræðing fyrir fjöldamorð þó réttlæting hans var að fórnarlömb hans hefðu hvort sem er dáið sökum aldurs eða veikinda.
Hvaða ómenni segja við foreldra sína, afa eða ömmur, að þau megi alveg kafna lifandi vegna kóvid, þið hefðuð hvort sem er dáið fyrr eða síðar vegna aldurs???
Jú hægri öfgar innan Sjálfstæðisflokksins, og ráðandi afl á ritstjórn Morgunblaðsins.
Maðurinn, sem vísvitandi bar ábyrgð á dauða þúsunda, er ekki í fangelsi vegna þess að hann nýtur stuðnings ríkisstjórnar sinnar, hann er upphafinn á síðum Morgunblaðsins, í boði Sjálfstæðisflokksins.
Í boði Bjarna Ben.
Ef þetta væri rétt, þá hefði lítið orðið úr Nurnberg réttarhöldunum.
Að glæpur væri ekki glæpur nema stjórnvaldið sem ábyrgðina ber, væri sigrað.
Og stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna væri skurnið eitt.
Stríðsherrar Afríku eða Balkanskaga væru frjálsir menn, án ábyrgðar, í skjóli hægri öfga.
En þetta er ekki rétt.
Fjöldamorð eru fjöldamorð.
Þýski hjúkrunarfræðingurinn slapp ekki.
Japanski trúarleiðtoginn sem hvatti undirmenn sína til að dæla blásýru í neðanjarðarlestarkerfi Tokyó, hann var hengdur.
Hans afsökun að lögreglan náði að koma í veg fyrir fjöldamorðin var léttvæg fundin.
Í dag eru ekki sóttvarnir á Íslandi.
Hægri öfgarnar í Sjálfstæðisflokknum hafa kúgað ríkisstjórn Katrínu Jakobsdóttur til að falla frá sóttvörnum, það er aðeins skimað og krossað fingur.
Afleiðingarnar þegar komnar í ljós, illa veikt fólk, er komið á spítala, og sumir á gjörgæslu.
Því sænska leiðin, að líða drápsveiruna í samfélaginu, er opinber stefna ríkisstjórnar Íslands.
Veiran má drepa ef hún á fund með fórnarlömbum sínum.
Tegnell verður dæmdur.
En líklegast ekki hengdur.
Hann telur sig ósnertanlegan, en til eru þúsundir mynda af svipuðum ómennum sem fengu sinn dóm að lokum, fallegi einkennisbúningurinn hjálpaði þeim ekki neitt.
Illvirkin stóðu uppúr, og þau voru metin.
Og ekki léttvæg dæmd.
Þetta kallast siðmenning.
Að líða ekki fjöldamorð.
Við eigum heldur ekki að líða fólkið sem mærir þau.
Kveðja að austan.
![]() |
Sigríður ræðir við Tegnell |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
15.9.2020 | 23:19
Vér vitringar segjum.
Að "gagnlegt væri að útskýra markmið sóttvarnaaðgerða betur og auka fyrirsjáanleika um þær eftir því sem við verður komið".
Og staðfesta þar með að þeir hafi unnið svo mjög fyrir kaupi sínu að þeim hafi ekki gefist tími til að fylgjast með því sem næst daglegum fundum fulltrúa sóttvarnaryfirvalda með þjóðinni í gegnum beina útsendingu Rúv.
Núna þegar birtir til hjá þeim, og verkefnum fækkar, þá má ætlast til að þetta ágæta fólk setjist niður með hlaðvarpi Rúv og renni í gegn fundum síðustu 8 vikna eða svo, þar sem markmið sóttvarnaaðgerða hafa verið vel og ítarlega útskýrt fyrir þjóðinni. Af hverju, til hvers og svo framvegis.
Í framhaldinu má svo reikna með að fyrri liður þessar kostulegu framsetningar verði strikaður út.
En verra er þetta með fyrirsjáanleikann, það er fyrirsjáanleika sóttvarna á tímum þar sem engin veit neitt um þróun veirunnar, hvort hún sé á förum blessunin eða hvort einhverjir vitleysingar innan stjórnkerfisins taki mark á þessu markmið sem lesa má í frétt Mbl.is að "Að skoða hvort aðrar sóttvarnaaðgerðir á landamærum séu mögulegar án þess að taka of mikla áhættu fyrir þróun faraldursins erlendis."., og afleiðingin verði taka þrjú á nýrri bylgju.
Munum að bylgja tvö hófst á svipuðum orðavaðal þvert gegn varnaðarorðum lækna og hagfræðinga sem voru ekki í vasanum á Samtökum Atvinnulífsins.
Og allir vita hvernig fór.
En að því gefnu að ekki sú hlustað á svona fávisku þá er fyrirsjáanleikinn nokkuð fyrirsjáanlegur, veiran er á leið úr landinu, og henni er bannað að koma aftur.
Sem vekur reyndar upp spurningar um hvort ekki eigi að láta sóttvarnaryfirvöld takast í leiðinni á stöðugan innflutning lífsgæðaflóttafólks, en það er reyndar efni þessa pistil óviðkomandi.
En svona djóklaust, hver lætur svona vitleysu út úr sér?
Fyrirsjáanleiki sóttvarna á tímum heimsfaraldurs??
Eiginlega ætti að senda þetta ágæta fólk til Ísraels, sem voru að loka og læsa, eitthvað sem lá ekki ljóst fyrir um mitt sumar, eða til Bretlands sem létu lok og læs miðast við 6 manns, reyndar eitthvað sem mátti sjá fyrir því þar stjórnar fólk með tens fyrir hægri öfgum sem heldur að frasi sé sóttvörn.
En ef íslensku vitringarnir færu til dæmis í sjónvarpsviðtal í þessum löndum, og töluðu um fyrirsjáanleik sóttvarna, þá er hugsanlega möguleiki að aðhláturinn myndi snögglega lækna þau af svona bulli.
Og auðvitað veit þetta fólk betur, margt er skynsamlega sagt.
Til dæmis þetta; "Að mati starfshópsins gegna stjórnvöld lykilhlutverki í að sporna gegn frekara tjóni, t.d. með því að dreifa byrðum áfallsins, skapa skilyrði til að fullnýta framleiðsluþætti þegar aðstæður leyfa, vernda samband atvinnurekenda og starfsfólks, standa vörð um viðskiptasambönd og tryggja að mikilvæg þekking og reynsla glatist ekki á meðan ástandið varir.".
Reyndar gruna ég þau um ritstuld en burtséð frá því þá er ljóst að þetta með fyrirsjáanleikann er samvinnuverkefni fulltrúa fjármálaráðherra og fulltrúa Atvinnulífsins, hugsað sem dúsu uppí munn hægri öfga í Sjálfstæðisflokknum sem og því fólki hjá Samtökum atvinnulífsins sem lifir ennþá í afneitun um að þarna úti sé heimsfaraldur sem hefur sett heimsbyggðina á hvolf, þar á meðal allt sem tengist efnahagslífi.
Dúsan fóðrar heimskuna og ég efa ekki að hægri öfginn hér á Morgunblaðinu mun gera sér mikið mat, jafnvel gefa út sérstakan kálf, um mikilvægi þess að auka fyrirsjáanleika sóttvarnaaðgerða á tímum heimsfaraldurs.
Hann mun hins vegar þegja þunnu hljóði yfir fallexinni sem afhausaði allt bjánatalið og blekkinguna um að það hefðu verið hertar sóttvarnir á landamærum sem hengdu ferðaþjónustuna.
"Samkvæmt skýrslunni skar Ísland sig ekki úr hvað varðar samdrátt í komu ferðamanna í sumar. Samdrátturinn var svipaður á Íslandi og í mörgum öðrum löndum þar sem ferðaþjónusta er mikilvæg, svo sem á Spáni og í Grikklandi.
Bent er á það í skýrslunni að vísbendingar eru um að tekið hafi að draga úr flugumferð og ferðamennsku samhliða vexti faraldursins í ágústmánuði bæði hér á landi og víða í Evrópu áður en almenn tvöföld skimun með sóttkví hófst á landamærunum 19. ágúst. Sú þróun virðist hafa haldið áfram. Einnig er sýnt skýrt fram á það í skýrslunni að áhættan af einfaldri skimun sé þó nokkuð meiri en af núverandi fyrirkomulagi. Því er líklegt að sá samdráttur vegna breytts fyrirkomulags skimunar sé í raun töluvert minni af fyrrgreindum ástæðum. ".
Þegja þunnu hljóði því staðreyndir hafa aldrei þjónað markmiðum hans um stöðugt innstreymi á veirunni inní landið með tilheyrandi árásum á daglegt líf landsmanna.
Eins reikna ég með að hægrihópsálin hér á Moggablogginu haldi áfram sínu striki, hægri öfginn í Sjálfstæðisflokknum slær taktinn og þetta er taktfast fólk.
Staðreyndir hafa aldrei truflað göngu þess.
Verra er með Sigmund Davíð eftir að hann fór að róa á mið lýðskrumsins
Óvissan sem jókst svo mikið þegar loksins var tekin ákvörðun um að loka landamærunum fyrir veirunni.
Skyldu viðbrögð hans við skýrslunni vera að hrópa harðari sóttvarnir, það er enginn fyrirsjáanleiki í afléttingu þeirra, ég fékk ekki klippingu í mars, núna þarf rakarinn aðeins að hafa grímu, á að opna hjúkrunarheimlin, hvaða fyrirsjáanleiki er það miðað við hinar stífu lokanir í mars og apríl, af hverju er ekki ennþá lokað, það á loka þeim víðast í Evrópu.
Fyrirsjáanleiki, fyrirsjáanleiki.
En hann mun ekki biðjast afsökunar á frumhlaupi sínu.
En spjótin standa á því aumkunarverðu fólki sem leiða samtök ferðaþjónustunnar, á meðan þau hömuðust gegn hertum sóttvörnum við landamærin með allskonar þvættingi og blekkingum, þá fór í súginn dýrmætur tími til að fá stjórnvöld til að gera ákkúrat það sem starfshópur fjármálaráðherra leggur til og ég feitletraði hér að ofan.
Það er eins og þetta fólk hafi verið á mála hjá erlendu afli, (skamstafað ESB) við ýta undir upplausn og ótta í samfélaginu, og með skrumi sínu hafi það vísvitandi málað ferðaþjónustuna út í vegg, því engin þjóð, enginn almenningur vill atvinnugrein sem segir að forsenda tilveru hennar sé lokað og læst samfélag vegna strangra sóttvarna.
Öll samúð og samkennd gufaði upp á fyrst vikunni eftir að áhlaupið gegn sóttvarnaryfirvöldum hófst.
Aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart vanda ferðaþjónustunnar er æpandi, en það óp drukknaði í hávaða og glamri fólks sem gaf almenningi puttann með málflutning sem ekki hélt vatni, stóðst enga skoðun í því ástandi sem heimsbyggðin öll er að glíma við.
Munum að það var veiran sem olli högginu, innlendar sóttvarnir hafa mildað það högg eins og hægt er, en þeim er um megn að láta höggið hverfa, láta heimsfaraldur gufa upp.
Það yrði ekki einu sinni reynt í Hollywood mynd, jafnvel ekki í Bollywood mynd, því allur góður endir á sín takmörk, því ef þau eru ekki virt, þá hættir endirinn að vera góður, verður aðeins fíflalegur.
Allavega hefur fólk verið rannsakað af minna tilefni.
Það er grafalvarlegt mál að grafa undan lýðheilsu og efnahag þjóðarinnar.
Og munum að aðförin var skipulögð, hún var samræmd þar sem bæði Rúv og Mogginn tók þátt, öll fingraför bentu á almannatengil.
Hver fjármagnaði, hvaða hagsmuna var hann að gæta??
En hvernig læt ég.
Það eru víst alltaf minni tilefnin sem eru rannsökuð, og jafnvel þó þau reynist stór, þá liggur sökin oftast hjá skúringarkonunni, stundum hugsanlega hjá húsverðinum.
En við fengum skýrslu.
Vonandi taka menn mark á henni.
Það þarf að deila byrðum.
Sem minnir mig á, hvar var fulltrúi launafólks??
Hvar var fulltrúi heimilanna??
Og er mönnum virkilega alvara með að láta heimsfaraldur, eitthvað sem er algjörlega ófyrirsjáanlegt og óviðráðanlegt, hækka húsnæðisskuldir landsmanna??
Er það þannig sem menn ætla að dreifa byrðunum??
Þá getur jafnvel Hollybollywood skrifað góðan endi.
Hvað þá stjórnvöld.
Kveðja að austan.
![]() |
Skammtímafórn fyrir langtímaávinning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.9.2020 | 09:33
Hvar liggja mörk mannúðarinnar.
Er spurning sem við þurfum að spyrja áður en lengra er haldið.
Flestum, nema kannski samtökunum No Border, er ljóst að smáþjóð eins og Ísland getur ekki tekið nema við brot af öllum þeim börnum sem eru á flótta í heiminum í dag.
Slíkt verkefni er meir að segja ofviða meðalstórum þjóðum eins og Svíþjóð eða Hollandi, og yrði erfitt stærstu þjóðum Evrópu.
Og eftir stæði alltaf spurningin, hvað svo??
Kæmi ekki önnur bylgja fólks í leit að betri lífskjörum, í Afríku búa yfir 1,3 milljarðar samkvæmt síðustu tölum, margir við mikla fátækt, og hvað hindrar mikla fólksflutninga norður eftir ef opinber stefna er að það sé tekið á móti öllu börnum á flótta??
Svo má ekki gleyma fólki sem er á raunverulegum flótta undan stríði og öðrum hörmungum, en það er fólkið sem er í flóttamannabúðum, hefur ekki efni á að vera á faraldsfæti.
Síðan er fátækt ekki bara bundin við Afríku.
Tekur Evrópa endalaust við??
Tekur Ísland endalaust við??
Breytir samt ekki því að vandinn er kominn heim í stofu og uppi er hávær krafa um að við bregðumst við eins og enska hefðarfrúin sem gaf betlarabarninu mat og smáaur, en hundskammaði síðan ráðsmanninn fyrir að barnið skyldi hafa sloppið inn fyrir hlið og girðingu.
Við eigum sem sagt að herða reglurnar næst og sjá til þess að þetta komi ekki fyrir aftur.
Lausnin er því eins og með óhreinu börnin hennar Evu, ef þau sjást ekki, þá eru þau ekki til.
Endirinn á mannúðinn er þá gagnvart næstu fjölskyldu, að kerfið eigi að sjá til þess að henni sé vísað úr landi áður en börnin festi rætur.
En gerir slíkt okkur eitthvað að betri manneskjum??
Vissulega má færa rök fyrir því að það er erfitt að horfast í augun á saklausum börnum og vísa þeim á dyr út í kulda og óvissu.
Mikil herpa þarf að vera í hjarta okkur ef við skiljum ekki þessi orð Friðþjófs, skólastjóra Háaleitisskóla Ásbrúar.
"Ég vona að það komi ekki til þessarar brottvísunar. Það myndi hryggja mig mjög ef það yrði niðurstaðan, ég vil bara ekki trúa því að það verði að veruleika, segir Friðþjófur Helgi, sem telur aðgerðir yfirvalda grimmilegar.
Friðþjófur Helgi segir börnin hafa myndað vinatengsl við skólafélaga sína og lagt rækt við íslenskunámið sem og annað nám. Þetta eru kurteisir og prúðir krakkar sem eiga sína drauma um framtíðina og vilja gjarnan að þeir draumar rætist á Íslandi.".
Þó við getum ekki leyft draumum annarra barna rætast á Íslandi, þá getum við leyft draumum þessara barna að rætast.
Enski hefðarmaðurinn sem ættleiddi Oliver Twist, bjargaði ekki öllum götubörnum, en hann bjargaði einu og gaf þar með hinum von.
En hvað hefði hann gert ef daginn eftir hefðu verið 10 fátækt börn fyrir utan dyrnar hjá honum, starandi á hann soltnum vonaraugum??
Svo 100, svo 1.000, svo 10.000??
Dickens gerði sér grein fyrir þessari dilemmu og lét því Oliver vera af göfugum ættum, hann var í raun að komast í rétt umhverfi, en hin 9.999 götubörnin höfðu ekki þá forsendum, lífið ætlaði þeim fátækt og örbirgð.
Mannúð okkar hefur nefnilega mikið með uppruna þess sem er hennar aðnjótandi.
Margir gagnrýna að faðirinn er bókstafstrúarmaður og tilheyrir stjórnmálaarmi öfgasamtaka sem berjast fyrir nýjum miðöldum í Mið Austurlöndum, það var víst eitthvað óklárað í þeim fyrri.
Eins að slíkt komi eitthvað börnunum við eða þannig.
Aðrir segja, og þar með margir fulltrúar Góða fólksins, að trúaröfgamenn, allavega ef þeir eru múslímskir, sem neyða dætur sínar til að bera slæðu um leið og þær komast á blæðingar, eigi að vera velkomnir í samfélag okkar.
Þeir séu fulltrúar fjölbreytileika mannlífsins, og vísa þá sjálfsagt í að þjóðfélag sem tryggir almenn mannréttindi kvenna, veiti ekki af mótvægi þeirrar miðaldahugsunar að staða konunnar sé einhvers staðar á milli húsdýra og manna.
Rök út af fyrir sig myndu kannski margir segja inní sér, þó þeir myndu vart ljá máls á því opinberlega.
Hins vegar er öruggt að mannúð þessa fólks, sérstaklega Góða fólksins, fyndi sér sín takmörk ef viðkomandi flóttamaður væri meðlimur Ku Klux Klan, á flótta undan bandarískri réttvísi, en segði það hér blákalt að það væri vegna stjórnmálaskoðana sinna.
Léti hann taka mynd af sér með kúgaðri konu sinni og brosandi börnum, sjálfur með hakakrossinn tattóveraðan í andlit sitt þá er ég hræddur um að margir sem núna mótmæla, myndu taka undir kröfuna um brottvísun barna hans úr landi.
Sérstaklega ef hann útskýrði að hinn áberandi hakakross á andliti nýlegrar kynþroska dóttur hans, væri hans leið til að tjá trú sína á yfirburði hvíta kynstofnsins.
Krossinn væri tákn þess að kynþroska hvítum stúlkum væri ætlað að eiga mörg börn til að fjölga hvíta kynstofninum og hann væri einmitt búin að finna frænda í gamla landinu, reyndar ekki frá Pakistan eða Egyptalandi, heldur feitan miðaldra bónda úr fjöllum Montana, sem myndi bráðlega sækja stúlkuna og giftast henni.
Já börnin myndu ekki njóta vafans, mannúðin myndi benda á föðurinn en ekki þrá þeirra um drauma sem þau vilja láta rætast í nýju landi í stað þess lands sem er föðurland þeirra.
Munurinn er að hatursboðskapurinn nærist á kynþætti en ekki trú, hann er hvítur, ekki brúnn, og það að kúga ungar stúlkur til að hylja hár sitt þykir víst minni kúgun en krafan um tattú, þó er annarhver maður með tattú og glingur á líkama sínum í dag.
Mannúð okkar er nefnilega alltaf valkvæð, hræsnin er að kannast ekki við það.
Og hún á sér mörk.
Alltaf.
Hvort komið er að þeim mörkum í dag skal ég hins vegar ekki um segja.
Kveðja að austan.
![]() |
Vill ekki trúa að þeim verði vísað úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.9.2020 | 17:28
Þegar siðleysingjar stjórna þjóð.
Þá fáum við frétt eins og þessa.
Að það sé varað við ferðalög til landa þar sem seinni bylgja veirunnar hefur ekki náð sér á strik.
"Aftur á móti telur sænska ríkisstjórnin ekki óhætt að ferðast til Finnlands og Eystrasaltsríkjanna þrátt fyrir að samkvæmt upplýsingum frá Sóttvarnastofnun Evrópu séu það þau ríki þar sem fæst smit eru á hverja 100 þúsund íbúa.".
Það á víst að hefna sín á löndunum sem tóku hart á sænska smitinu.
Ófréttin er sú að það er flestum löndum sama hvort sænsk stjórnvöld hafi aflétt ferðatakmörkunum, þau glíma við sinn vanda og flytja ekki inn smit ef þau ætla að láta innlendar sóttvarnir virka.
Telji þau smit útbreitt í Svíþjóð, þá loka þau.
Sænsk stjórnvöld hins vegar sjá ekkert athugavert við að ferðamenn geti borið smit inní landið.
Líklegasta skýringin er að það tókst ekki að drepa nógu marga í síðustu smitbylgju.
Hægri öfginn sem peningar plöntuðu inná ritstjórn Morgunblaðsins og hefur samviskusamlega týnt til allar örfréttir sem geta nýst til að grafa undan sóttvörnum þjóðarinnar, hann telur það frétt að Svíar og Breta séu með gagnkvæmar reglur um ferðir án sóttkvíar milli landanna.
Sem var vissulega ekki órökrétt þar sem stífar ferðatakmarkanir til Svíþjóðar, úrkasts Evrópu, hafa hægt á seinni smitbylgjunni í landinu.
Svíar smita ekki í augnablikinu, gamla veiran dó sökum aldurs, smitvarnir Evrópu hafa hindrað nýja útbreiðslu í landinu.
En það sem hinn heimski hægri öfgi fær ekki skilið, og er fréttin í þessari frétt, er að Svíar launa Bretum greiðann með því að leyfa innflutning á smit frá Bretlandi.
Þetta er fimm daga frétt frá Bretlandi;
"Smitum hefur fjölgað á ógnarhraða í Bretlandi síðustu daga og á mánudag taka gildi hertar samkomutakmarkanir þar í landi. Þá mega aðeins 6 koma saman, hvort sem það er innandyra eða úti. Hingað til hafa 30 mátt koma saman. Breska ríkisútvarpið greinir frá en Boris Johnson forsætisráðherra gefur út sérstaka tilkynningu um nýjar takmarkanir seinna í dag".
Bresk stjórnvöld herða mjög sóttvarnir, og í kjölfar þess leyfa sænsk stjórnvöld óhindraðar ferðir til og frá Bretlandi.
Síðan er einhver brennivínssali borinn fyrir því að veiran smitist ekki á breskum krám, sem líklegast á þá að vera ástæðan fyrir afléttingu Svía á ferðatakmörkunum til Bretlands, það vita allir hvort sem er að ofurskattlagningin á áfengi í Svíþjóð þýðir að Svíar gera aðeins eitt í ferðalögum sínum til útlanda, þeir kaupa og neyta áfengis.
Ef ég er heimskur segir hægri öfginn, þá hljóta lesendur blaðsins að vera það líka.
Eftir stendur spurningin, af hverju gengur restin af ritstjórninni ekki út og fær sér vinnu þar sem vitsmunum þeirra er ekki ógnað á hverjum degi??
En við því er einfalt svar, flugið tók við, jafnt óánægðum blaðamönnum, kennurum eða hjúkrunarfræðingum, kórónaveiran stoppaði víst þá flóttaleið.
Skömm sé henni.
Við erum samt heppin sem þjóð að siðleysingjar hægri öfganna stjórna ekki okkur.
Og sem lesendur Morgunblaðsins getum við alltaf þó beðið.
Fyrir Mogganum og starfsmönnum hans.
Það hefur oft verið beðið að minna tilefni.
Kveðja að austan.
![]() |
Svíar aflétta ferðatakmörkunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.9.2020 | 18:00
Er Sigmundur farinn að róa á mið lýðskrumsins??
Gera Miðflokkinn að regnhlífasamtökum kverúlanta og hægri öfga??
Eða hvernig á að túlka þessi orð hans og höfum hugfast að hann vel gefinn maðurinn hefur ekki heimsku sér til afsökunar.
"Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði að það hefði gengið vel á Íslandi að fást við kórónuveiruna miðað við mörg önnur lönd. Nema hvað, nú seinniparts sumar, hefur óvissan verið miklu meiri en í upphafi. Í upphafi var útskýrt fyrir okkur hvað sóttvarnaryfirvöld ætluðu sér, þau ætluðu að stýra þessu með þeim hætti að heilbrigðisyfirvöld réðu við það, við fengum að sjá myndir af þessari kúrfu og farið yfir hvað það þýddi að fletja kúrfuna, sagði Sigmundur Davíð.
Hann bætti við að nú væri það algjörlega óljóst að sínu mati hvert markmið stjórnvalda í viðureigninni við þessa veiru væri. Hann væri sammála Katrínu í því að stjórnvöld hlytu að vilja vernda heilsu og efnahag landsmanna eins og kostur er. En með hvaða hætti? Hvaða takmörkum ætla menn að stefna að til að ná því óljósa meginmarkmiði? spurði Sigmundur Davíð. ".
Hvað óvissa hefur verið meiri núna seinnipart sumars miðað við í vor?? Og hvað er það sem er óljóst í stefnu stjórnvalda??
Í vor fengum við bylgju sem virtist geta orðið stjórnlaus miðað við reynslu annarra landa.
Íslensk sóttvarnaryfirvöld lögðust í upphafi gegn lokun landamæra og sögðust ætla að stjórna faraldrinum með smitrakningu og sóttkví. Markmið var þá sagt vera að fletja út smitkúrfuna svo heilbrigðiskerfið réði við veikt fólk sem hefði dáið án meðhöndlunar.
Síðan lögðust allar flugsamkomur af um allan heim og ferðalög milli landa voru ekki leyfð án sóttkvíar, eitthvað sem var ekki bundið við Ísland.
Og þá náðum við loksins tökum á útbreiðslunni og náðum að útrýma veirunni úr íslensku samfélagi undir vorið.
Þegar landamærin voru opnuð á ný þá var það gert á þann hátt að skimað var fyrir veirunni auk þess að nokkur lönd voru talin örugg og það þyrfti ekki að skima.
Þá var markmiðið að veiran fengi ekki aftur að breiðast út, reiknað var með staðbundnum sýkingum, en vonast til að smitrakning og sóttvarnir kringum smitið myndi duga til að nýr faraldur færi ekki á stað.
Þessi stefna mistókst, landamærin láku og smit dreifðist um samfélagið án þess að hægt væri að rekja uppruna þess.
Á sama tíma bentu óháðir hagfræðingar á að ávinningurinn af smitlausu samfélagi væri meiri en kostnaðurinn við að verja landið með sóttkví við landamærin.
Málamiðlun stjórnvalda var 5 daga sóttkví og seinni skimun, og fullur stuðningur við markmið sóttvarnaryfirvalda um að eyða veirunni svo almenningur gæti lifað eðlilegu lífi, án stöðugra sóttkvía, hafta á samkomum og viðburðum, hægt væri að stunda og keppa í íþróttum og skólarnir væru opnir án þess að þeir minntu á þriðja flokks öryggisfangelsi í Suðurríkjum Bandaríkjanna.
Skýr stefna, skýr markmið, og svo spilar Sigmundur sig fífl og þykist ekkert sjá annað en óvissu, eða ekki skilja með hvaða hætti stjórnvöld ætluðu að vernda heilsu og efnahag þjóðarinnar??
Hvað er svo flókið við það markmið að almenningur geti lifað eðlilegu lífi og til að ná því markmiði að þá er tvær skimanir við landamærin og 5 daga sóttkví þar á milli??
Það er engin afsökun fyrir Sigmund að til eru fífl þarna úti, sum jafnvel skreyta sig með doktorsnafnbót í lýðheilsufræðum, sem benda á árangur sóttvarna og gagnálykta síðan að þar með séu þær óþarfar.
Hvað þá að hann skýli sig á bak við harðskeyttan áróður hagsmunaafla sem bæði ljúga til um hættuna við opin landamæri hvað varðar ferðafólk, og ýkja skaðann af 5 daga sóttkvínni.
Landið var að lokast hvort sem er vegna seinni bylgjunnar, það skýrir hluta afpantana sem og að stjórnlaus útbreiðsla veirunnar í Evrópu er mætt með hörðum sóttvörnum heima fyrir, í því ástandi er fólk lítið eða ekkert að ferðast.
Nema hugsanlega, hugsanlega til landa sem eru veirufrí og því lítil sem engin áhætta að ferðast til.
Munum síðan að ein birtingarmynd lygaáróðursins var sú fullyrðing að hér væri ekki gætt meðalhófs miðað við alvarleik hinnar nýju bylgju, og bent á vægari sóttvarnir í nágrannalöndum okkar.
Sem var rétt að hluta, en aðeins að hluta því menn báru ekki saman sömu tímalínur í útbreiðslu veirunnar.
Sem og að mörg lönd voru ofurseld stjórnmálamönnum sem tóku ekki hlutina nógu alvarlega, beittum frösum sem sóttvörn líkt og frjálshyggjudeildin í Bretlandi gerði.
Afleiðingin stjórnlaus útbreiðsla, miklu strangari sóttvarnir.
Því menn rífast ekki við raunveruleikann, og ef hann er banvænn þá drepur hann.
Nema að fíflin deyja fyrst.
Það er gæfa okkar að lýðskrumarar og fífl stjórna ekki þjóðinni í dag.
Megi sú gæfa haldast.
Kveðja að austan.
![]() |
Sóttvarnaraðgerðir svo lengi sem faraldurinn geisar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.9.2020 | 22:29
Sannleikurinn gerir menn frjálsa.
Spurning reyndar hvort hálfsannleikur sé í þá áttina.
Vissulega er það lofsvert að síðasta vígi heimskunnar í Svíþjóð falli með því að játa þá staðreynd að óöld ríkir í Svíþjóð, og sú óöld hafi aukist í réttu hlutfalli við fjölgun innflytjenda.
En það er bein lygi að kenna félagslegum aðstæðum eða skorti á tækifærum um þá óöld.
Staðreyndin er sú að mikill fjöldi innflytjenda hefur ekki þann bakgrunn að aðlagast hátækniþjóðfélagi þar sem skortur á menntun er ávísun á undirmálslíf lágra launa og samfélagslegrar fyrirlitningar, og hvað gerir þá fólk sem hefur ekki sömu tækifæri og innfæddir??
Jú, það bjargar sér.
Á þann hátt sem það kann best.
Undirliggjandi er síðan gífurlegur menningarmunur á gamaldags friðsömum Svíum sem skrifræðið barði alla döngun úr fyrir mörgum öldum, og fólki sem kemur frá átakasvæðum, þar sem átök eru drifin áfram að mismunandi þjóðerni, kynþáttum, trú eða félagslegri eða efnahagslegri stöðu.
Gamaldags friðsami Svíinn myndi ekki endast út vikuna á slíkum svæðum, en fólkið sem kemur til Svíþjóðar er fólkið sem lifði af.
Það skapar sér sína eigin stöðu út frá því sem stendur því til boða, og þá út frá sínu eigin gildismat og lífsviðhorfum.
Gildismati og lífsviðhorfum sem það flutti með sér til sinna nýju heimkynna, sem móta svo samskipti þess bæði innbyrðis sem og við yfirvöld eða almenning gistilandsins.
Múslimar verða til dæmis ekki trúlausir blóðkaldir Svíar á einni nóttu, ekki á einni kynslóð, ólíklega á einni öld, og líklegast aldrei yfir höfuð.
Blóðheitir íbúar Balkanskagans breytast heldur ekki í friðsöm möppudýr á einni nóttu.
Og þó rasismi Góða fólksins fær það til að trúa að guð hafi skapað svart fólk til að þrífa undan því skítinn fyrir lágmarkslaun, þá er það bara ekki svo.
Draumsýnin um hið friðsama velferðarþjóðfélag lifir jafnlengi og íbúarnir sem deila þeim draumi.
Og þeir íbúar eru í minnihluta í Svíþjóð í dag.
Örugglega hafa sænsk yfirvöld eitthvað fyrir sér þegar þau skella skuldina á meintar 40 glæpafjölskyldur, og örugglega hefur rasismi Góða fólksins eitthvað að segja líka.
En þetta er eins og að setja hatt á toppinn á ísjaka, og segja síðan að hatturinn sé ekki bara allur ísjakinn, heldur borgarísjaki að auki þökk sé hattinum.
Svíþjóð í dag er ekki lengur þjóðríki heldur suðupottur ólíkra þjóða- og menningarbrota.
Þeir sem þar búa deila ekki sameiginlegu gildismati, heldur skilgreina sig út frá uppruna, menningu eða trú.
Og það er bara í Hálsaskógi þar sem öll dýrin eru vinir, í raunveruleikanum éta þau hvort annað, eða berjast um yfirráð.
Og ástandið sem þykir vont í dag, verður ekki innan svo langs tíma talið hátíð, að það hafi þó verið friðsamara á fleiri stöðum en hitt.
Sænsk stjórnvöld höfðu fyrir löngu glatað sál sinni í hræsni sinni og tvöfeldni, höfðu því enga sál til að selja.
En þau seldu þjóð sína í staðinn.
Fyrir þá ímynd að lítið land gæti leyst vanda heimsins með því að flytja hann inn og pakka honum síðan inn í orðskrúð og tvískinnung rétttrúnaðarins.
Vandi heimsins hefur ekkert breyst.
En Svíþjóð hefur breyst.
Og verður ekki breytt til baka.
Spurningin er bara hvort menn viðurkenni það.
Kveðja að austan.
![]() |
Sinnaskipti í innflytjendamálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.9.): 957
- Sl. sólarhring: 1187
- Sl. viku: 5035
- Frá upphafi: 1486736
Annað
- Innlit í dag: 864
- Innlit sl. viku: 4307
- Gestir í dag: 811
- IP-tölur í dag: 781
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar