20.4.2021 | 17:40
Yfirklór sem engu skilar.
Hvaða sýndarmennska er þetta hjá ríkisstjórninni, af hverju var hún að halda blaðamannafund um það sem ekkert var, annað en yfirklór yfir þá staðreynd að hún annað hvort vill ekki verja landamærin, eða hefur ekki þingstyrk til þess.
Auðvitað munar um hverja glufu sem fyllt er uppí, en á meðan þekkingin segir að það þurfi ekki nema eitt smit sem sleppur út í samfélagið til að koma af stað samfélagslegu smiti, þá er aðeins eitt sem tryggir öryggi þjóðarinnarm og það er örugg sóttkví á landamærunum.
Örugg sóttkví fyrir alla sem koma til landsins, án undantekninga.
Hvað er svo erfitt við að skilja þetta??
Þetta segja allir sérfræðingar okkar, eina menntastéttin sem mótmælir þessu er lögfræðingar, og hvaða þekkingu hafa þeir á sóttvörnum??
Enga en þeir hafa mikla þekkingu í að þjóna fjársterkum sérhagsmunum.
Landamærin leka.
Staðreynd.
Fólk er að veikjast, þar á meðal börn.
Staðreynd.
Veikindin geta haft alvarleg eftirköst.
Staðreynd.
Og er ríkisstjórninni drullu, drullu, drullu sama??
Er engin samkennd með öllu því fólki sem hefur veikst illa og í raun ríkisstjórn Íslands ber ábyrgð með því að hafa alveg frá upphafi kórónufaraldursins heykst við að tryggja landamæri þjóðarinnar.
Hafa völdin útrýmt mennskunni hjá þessu fólki??
Fólk á ekki að gera sér það að leik að ferðast á tímum heimsfaraldurs.
Það er alltaf hættan að það beri með sér smit inní landið, sýki samfélag sitt, sýki samborgara sína.
Kjósi það samt að gera það, er því engin vorkunn að fara í örugga sóttkví á landamærunum.
Annað er svívirða siðleysisins, viðrinisháttur sem ekki nokkur maður á að hlusta á, hvað þá að taka mark á og tala um einhver mannréttindi í því samhengi.
Slíkt er nauðgun á því hugtaki, og móðgun gagnvart öllum þeim sem hafa barist fyrir slíkum réttindum eða þjáðst vegna skorts á þeim.
Fólk sem þarf að ferðast vegna brýnna erinda, það setur ekki fyrir sig örugga sóttkví.
Annað er bein yfirlýsing um að erindi þess séu ekki brýn.
Þetta er eitthvað svo augljóst, á ekki að þurfa að ræða þetta.
En eigi þýðir að gráta Björn bónda heldur að grafa hann og safna liði.
Ríkisstjórnin brást, hún er ekki lengur ríkisstjórn þjóðarinnar.
Hún er ríkisstjórn fjársterkra sérhagsmuna.
Gegn henni þarf þjóðin að snúast, þvinga hana til að víkja, eða girða sig í brók og verja þjóðina.
Einn listamaður hefur stigið fram.
Þeir verða fleiri.
Þeir ná athygli fjöldans, sem aðeins býður eftir raddsterkum röddum til að blása í lúðra og fylkja þjóð til varnar sér og sínum, til varnar börnum okkar sem eru að veikjast, til varnar hinu daglegu lífi sem Þórólfur hótar að frysta enn einu sinni, án þess að hafa manndóm til að krefjast öruggra varna á landamærunum.
Síðan er það Logi.
Já hann Logi.
Orðum fylgir ábyrgð, og sú ábyrgð var á eindaga í dag.
Ríkisstjórnin brást.
Núna þurfa efndir að fylgja orðum.
Eða athlægið ef svo er ekki.
Svo er það Bessastaðir.
Kveðja að austan.
![]() |
Hertar aðgerðir hjá löndum með hærra nýgengi smita |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.4.2021 | 15:32
Hingað og ekki lengra.
Segir Herra Hnetusmjör og uppreisn tónlistamanna er hafin.
Og þetta er aðeins upphafið, fólk er búið að fá nóg.
Því hefur aðeins vantað raddir gegn ofríki jakkafataklæddra manna í bakherbergjum sem eiga stjórnmálin, og leyfa þeim ekki að tryggja öryggi landsmanna.
Munum enn og aftur að innlenda hagkerfið er hryggjarstykki efnahagslífs okkar, ferðamannaiðnaðurinn, eins góður og gildur hann var, þá var þensla hans knúin áfram af erlendu vinnuafli og óraunsæjum fjárfestingum sem byggðust á falsforsendu um endalausan vöxt.
Ferðamannaiðnaðurinn er frá, hann verður aðeins í flugulíki á meðan heimsfaraldur geisar, ekki þá nema milli landa sem hafa náð að verja landamæri sín og geta því leyft innbyrðis heimsóknir líkt og á sér stað núna á milli Nýja Sjálands og Ástralíu.
Innlend hagkerfið blómstrar hins vegar á tímum heimsfaraldurinn, það er eftirspurn eftir framleiðsluvörum okkar, peningarnir geta ekki flúið í erlenda neyslu, tækifærin innanlands til að ná þeim fjármunum er ómæld, það er ef það er ekki endalaust verið að loka vegna leka á landamærunum.
Lekinn á landamærunum er hinn raunverulegi skaði efnahagslífsins, á það hafa margir hagfræðingar bent, aðeins lögfræðingar og stjórnmálamenn andmælt.
Ríkisstjórnin mun örugglega boða einhver svik við þjóð sína á eftir, einhverjar bætur á leka sem engu skilar.
Maður sér þetta á því að þegar búið að virkja skotgrafir áróðursdeildarinnar, hérna á Moggablogginu höfum þegar 2 pistla eftir Palla kóng þar sem sneytt er að Loga og Samfylkingunni, hótanir hans um að leggja fram frumvarp sóttvarnalæknis hafa greinilega valdið ótta sem núna er reynt að bregðast við.
Við sjáum þetta á nýjum pistli Björns Bjarna, sjálfsagt eina manninum sem eftir er í Sjálfstæðisflokknum sem kann að setja mál sitt fram á skýran og skilmerkilegan hátt. Björn kýs að vitna í forríka athafnakonu sem átti víst erfiða æsku samkvæmt bókum hennar, áróðurspunkturinn var, á að benda á mig eins og í gamla daga (hver skyldi annars hafa bent á hana í gamla daga??), vegna þess að ég vil fá að ferðast og ekki fara í örugga sóttkví við heimkomuna. Er mér ekki treystandi?? eins og málið snúist um það, heldur hvað gerist út í samfélaginu ef landamærin leka.
Efnislega vörn mátti síðan lesa í ágætu viðtali Rúv við Vilhjálm Árnason þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem sagði að engin ein aðferð dygði, sem er alveg rétt. Síðan bætti hann því við að reynsla Norðmanna væri að fólk sem vildi ekki virða sóttkví heima hjá sér, það stryki bara af sóttvarnahótelum.
Sem er örugglega alveg rétt, en hvaða rök eru það í málinu??, á þá bara ekkert að gera??
Þetta snýst náttúrulega um hvernig menn bregðast við hinu einbeitta brotavilja, og það er staðreynd að þar sem þessi hegðun er ekki liðin, þar hafa landamæri haldið.
Án þess að til þess hafi þurft að flytja inn hópa af Body hunters frá Bandaríkjunum, en auðvitað er það ráð og auglýsa Wanted dead or alive.
Aðalatriðið er að það á ekki að líða þetta og það á að hafa landamærin örugg.
Heykist stjórnvöld á því vegna ítaka jakkafataklæddra manna í bakherbergjum, þá er fátt annað eftir en að styðja þær raddir sem vísa í neyðarrétt borgaranna að vernda þjóð sína fyrir hættulegri farsótt.
Bandaríkin byggja á þessu rétti fólks að rísa upp gegn óréttlátum stjórnvöldum, franska stjórnarskráin er samin út frá þeim rétti.
Það er heilagur réttur að verjast á neyðartímum.
Við getum varið landamærin.
Margar þjóðir kannski geta það ekki, en við getum það.
Og tryggt þannig þjóðinni eðlilegt daglegt líf.
Herra Hnetusmjör er kannski eina röddin sem tekur af skarið í dag.
En hann er ekki einn, þó bræður hans og systur séu kannski ekki eins mörg og sandkorn Sahara, þá eru þau ansi mörg.
Katrín, Svanhvít, Bjarni, látið þið ykkur ekki detta það í hug að þið getið logið ykkur frá reiði þjóðarinnar í þetta sinn.
Þá verða ykkar vatnaskil.
Og þau verða blaut.
Kveðja að austan.
![]() |
Smit hjá leikskólabörnum fyllti mælinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2021 | 12:01
Brestir í samstöðunni.
Fram að þessu hafa sóttvarnir stjórnvalda á hverjum tíma notið stuðnings yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar. líka þegar landamærin voru opnuð fyrir smiti síðastliðið sumar með þekktum afleiðingum.
Strangar sóttvarnir megnið af haustinu, og töluvert inná nýja árið.
Stuðningurinn við stefnu stjórnvalda mældist allt að 96% þegar best var, líkt og félagi Stalín hafi haft eitthvað með talninguna að gera.
Núna, þegar alvarleiki lekans á landamærunum lá ekki fyrir, segjast aðeins 32% landsmanna styðja stjórnvöld, þar vegur hæst hollusta kjósenda Sjálfstæðisflokksins við forystu sína.
Í hvað halda menn að þetta hlutfall droppi þegar ljóst er að vegna leka á landamærunum, þurfi þjóðin enn á ný leita inní hella og gjótur í skjóli fyrir kóvid??
Þórólfur er að missa tökin á ástandinu, líklegt að hann boði hertar aðgerðir núna allra næstu daga.
Frelsið til daglegs lífs varði aðeins í um tvær vikur.
Þetta vita stjórnvöld, þetta vita stjórnmálamennirnir.
Tiltrú fólks á þeim fer óðum dvínandi eftir hina miklu samstöðu frá upphafi kórónuveirufaraldursins.
Nú er lag, og nú er komið að Loga að standa við stóru orðin.
Sjáum hvað setur.
Kveðja að austan.
![]() |
Rúmlega 62% vilja fólk í sóttvarnahótel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2021 | 15:03
Er Katrín heimsk??
Eða er hún að kikna undan álaginu??
Fattar hún ekki um hvað málið snýst eða þorir hún ekki gegn fjársterkum sérhagsmunum sem virðast hafa Sjálfstæðisflokkinn í vasa sínum?
Eða hvernig á að túlka þessi orð hennar?
"Katrín benti á að þau smit sem við sæjum núna innanlands mætti rekja til aðila sem hélt ekki sóttkví við landamærin áður en áðurnefnd reglugerð tók gildi 1. apríl. Því væri erfitt að draga of miklar ályktanir um núverandi ráðstafanir út frá því tiltekna smiti.".
Það þarf eitt smit sagði Þórólfur í dag til að koma að stað stórri hópsýkingu, eða jafnvel nýja bylgju.
Það er ljóst að landamærin héldu ekki fyrir 1. apríl vegna þess að fólk er ekki skikkað í örugga sóttkví við landamærin.
Af hverju ættu þau að halda núna eftir 1. apríl, þegar fólk er ekki heldur skikkað í örugga sóttkví??
Af hverju heldur forsætisráðherra að Þórólfur hafi sagt þessi orð á neyðarblaðamannafundi dagsins?
"Þessar hópsýkingar sýna í raun hvernig eitt smit, eða einn einstaklingur, getur sett af stað stóra hópsýkingu og jafnvel heila bylgju, sérstaklega ef ekki er farið eftir leiðbeiningum. Þessi hópsmit sýna einnig mikilvægi þess að bíða ekki með að fara í sýnatöku við minnstu sjúkdómseinkenni," segir Þórólfur. Þá sé mikilvægt að tryggja landamærin sem best og tryggja að fólk haldi sóttkví.".
Þá sé mikilvægt að tryggja landamærin sem best og tryggja að fólk haldi sóttkví.
Um það snýst málið, ekkert annað.
Og þá er skömminni skárra að forsætisráðherra upplýsi þjóð sína að hún hafi ekki burði til að vernda þjóð sína, að hún þori ekki gegn hinum fjársterku hagsmunum, en að hún spili sig svona heimska.
Öryggi við landamærin þarf að tryggja með þeim ráðum sem duga, þau ráð eru þekkt og hafa reynst vel þar sem þeim hefur verið beitt.
Við heyrðum gleðihrópin frá Ástralíu og Nýja Sjálandi þegar þessi 2 smitlausu lönd leyfðu ferðalög sín á milli, forsenda þess er hin árangursríka sóttkví við landamærin.
Taivan er smitlaust og hver hefur heyrt talað um nýja bylgju í Kína??
Stjórnmálastéttin bregst þjóð sinni ef hún grípur ekki inní.
Sérhver flokkur sem talar gegn sóttvörnum á landamærum, stimplar sig úr leik, nema í úrkynjun velmegunar er alltaf til fólk sem kýs flokka eins og Pírata.
Hefðbundinn flokkur sem það gerir, hefur aðeins um þau örfá prósent þjóðarinnar sem afneitar tilvist kóvid veirunnar, skoðanakannanir segja að þetta sé um 6%, þar eiga Píratar öruggt stórt fylgi, verði hinum að góðu að gera út á þessi 2-3% sem eftir eru.
Þetta veit skynsamt fólk í öllum flokkum, af hverju það stígur ekki fram og tekur málstað þjóðarinnar er með öllu óskiljanlegt.
Andskotinn hafi það að hinir fjársterku hagsmunir hafi mútað eða hótað öllum??
Samfylkingin boðar frumvarp, en eru það orðin tóm??
Ekki beint skörungar sem leiða þann flokk.
Allavega, þetta er ekki líðandi.
Nú er nóg komið.
Kveðja að austan.
![]() |
Frumvarp sem skyldar fólk í sóttvarnahús |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2021 | 11:34
Loksins snýst fólk til varnar.
Gegn græðginni, sjálftökunni, hinni algjöru fyrirlitningu sem hinir Örfáu, auðmenn, auðfyrirtæki, sína okkur hinum, fólkinu.
Við höfum séð þetta pakk kaupa upp stjórnmálin, endurskrifa leikreglur markaðarins í þágu hinna stóru, hið frjálsa flæði Evrópusambandsins er besta dæmi þar um, leggja niður störfin okkar, leggja heilu iðnaðarsvæðin í auðn, endurhanna framleiðslu heimsins í þrælabú alþjóðavæðingarinnar.
Á Íslandi sáum við sömu öfl afsala orkuauðlindum þjóðarinnar í faðm skrifræðis frjálshyggjunnar í Brussel, með því eina markmiði að einkavæða orkuna á markaðstorgi hins sameiginlega evrópska orkumarkaðar.
Aldrei í raun hefur fólk snúið til varnar, vissulega kaus það til vinstri gegn frjálshyggju hinnar borgarlegu flokka, en þá var það svikið í tryggðum, og í dag eru vinstri og félagshyggjuflokkar upp til hópa dyggustu stuðningsmenn þessa sjálftökukerfis auðsins sem við dags daglega kennum við alþjóðavæðinguna.
Fólk í rústum fyrri efnahagslegrar velsældar hefur síðan leitað til hægri, hinir svokölluðu hægri populistar virðast hafa farið á námskeið í marxisma, gagnrýna alþjóðavæðinguna, félagslegu undirboðin og þrælahaldið sem henni fylgir.
Viss vendipunktur var þegar bandarískur auðmaður náði til fjöldans með loforðum að líða ekki útvistun starfa og að gróðinn af þeirri útvistun yrði líka útvistaður í skattaskjól. Varð þar með Óvinurinn númer eitt, aldrei hefur einn einstaklingur náð að sameina fjölmiðla auðsins, fólk til vinstri sem og leifarnar af frjálshyggju borgarastéttarinnar gegn sér.
En samt, fólk er furðu lítið snert þó samfélög þeirra séu rænd af fámennari stétt auðmanna, með fulltingi stjórnmálastéttarinnar.
Jafnvel þó þessi sömu öfl vinni dag og nótt gegn sóttvörnum sem virka, og varnir Vesturlanda líkt og götóttur svissneskur ostur, þá hefur fólk ekki risið upp heldur liðið viðrinisháttinn.
En að ráðast á heilaga kú, sjálfan fótboltann, það var skrefið sem ekki var fyrirgefið.
Það er snúist gegn því, og sagt það sem segja þarf; "Með samstöðu getum við hrundið þessum græðgisáformum" segja Arsenalmenn.
Og þeir hjá Chelsea skafa heldur ekki af því;
"Félagar okkar og knattspyrnuáhugafólk víðs vegar um heim upplifir nú mestu svik sögunnar. Chelsea og ellefu önnur af stærstu félögum Evrópu hafa tilkynnt um fyrirætlanir sínar að stofna ofurdeild. Þessi ákvörðun byggist á græðgi og gróðavonum þeirra sem eru á toppnum og tekur ekkert tillit til dyggra stuðningsmanna, sögu okkar, framtíðar okkar eða framtíðar fótboltans í landinu. Sennilega verður ekkert af þessu, en það segir sitt að Chelsea skuli vera tilbúið til að fórna framtíð okkar í úrvalsdeildinni og enska bikarnum. Stuðningsmannasamtökin hafa rætt ítarlega við stjórn Chelsea um hin ýmsu mál undanfarnar vikur og þetta leynimakk hefur aldrei verið nefnt einu orði. Stuðningsmannasamtökin og félagar þeirra krefjast svara. Þetta er ófyrirgefanlegt. Nú er komið nóg.".
Já nú er nóg komið.
En ekki bara í fótboltanum heldur alls staðar þar sem þetta lið hefur komist upp með skemmdarverk sín.
Eitt af því er að fá sóttvarnir á landamærum sem duga, annað er að senda þá þingmenn og flokk sem sviku þjóðina í orkupakkamálinu, í pólitískt frí, sem þjóð eigum við ekki að líða svona svik og svona vinnu fyrir gíruga fjársterka sérhagsmuni.
Því það er komið nóg.
Hingað og ekki lengra.
Kveðja að austan.
![]() |
Drepur allt sem fótbolti á að snúast um |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2021 | 09:47
Kjarnyrtur Kári á kjarnyrtri íslensku
Segir sannleikann umbúðalaust á máli sem þjóðin skilur.
Hógvær sem fyrr dregur hann upp stöðu mála;
"Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir í viðtali við Rás 2 að Íslendingum hafi gengið ágætlega að halda utan um stöðuna undanfarna 12-13 mánuði en það hafi náðst með skerðingum á persónufrelsi fólks sem sé farið að pirra fólk dálítið. Hann telur að menn séu ekki mjög ákafir í að herða skrúfuna að nýju en það er mat Kára að það sé lífsnauðsynlegt. "Það sem er merkilegast í þessu öllu saman er að við getum náð utan um þetta ef við myndum vakta landamærin eins og gera skyldi.".
Já þjóðin er búin að fá nóg, hún skilur ekki þennan hringlanda, og af hverju er það ekki gert sem gera þarf, að landamærin séu vöktuð eins og gera skyldi svo ég hafi orðrétt eftir Kára.
Síðan kaghýðir Kári dómskerfið og stjórnvöld svo undan svíður, og það er leitun af manni sem skilur ekki orð hans, kannski 2-3 einstaklingar og þeir eru allir í ríkisstjórn Íslands.
"Að sögn Kára verður annaðhvort að herða reglunar til muna á landamærunum eða koma því þannig fyrir að fólki standi ekki annað til boða en að virða sóttkví. Sóttvarnayfirvöld hafi reynt að gera það með setningu reglugerðar sem kvað á um að setja mætti fólk frá ákveðnum löndum í sóttvarnahús.
"Það var einmana lítill héraðsdómari sem kvað úr um að það væri ekki í samræmi við lög sem nýbúið var að setja," segir Kári og segir að það sé nú í höndum Alþingis að setja lög sem séu það skýr að jafnvel einmana menn úti í horni skilji þau.".
Það er vítavert að einmana maður út í horni skuli hafa komist upp með að vega svona að daglegu lífi okkar og ógna heilsu náungans, slík hegðun hefur hingað til verið kennd við villidýr eða villimennsku og sérstakar byggingar byggðar til að hýsa slíkt fólk svo það skaði ekki aðra.
Ennþá vítaverðara var að æðra dómsstig skyldi hafa vísað málinu frá í stað þess að taka efnislaga afstöðu til sóttvarnalaga út frá markmiðum þeirra og almannahag, Alþingi hefur áður sett arfavitlaus lög sem æðri dómur hefur vísað til föðurhúsanna með þeim orðum að eftir þeim eigi enginn maður fara, hvað þá dæma. Það dómsstig brást þjóðinni og eina svar hennar hlýtur að vera að leggja það niður, íslensk lögfræðistétt er það fámenn að virðist að hún hefur ekki mannauð til að mann fleiri en eitt æðra dómstig, það er Hæstarétt.
En vítaverðast af öllu var að ríkisstjórnin skyldi ekki samstundis setja neyðarlög þar sem afglöp óvitanna á Alþingi var leiðrétt svo eins og Kári segir; "að setja lög sem séu það skýr að jafnvel einmana menn úti í horni skilji þau.".
Það er nú það, af hverju brást ríkisstjórnin þjóðinni, af hverju ógnar hún lýðheilsu þjóðarinnar með aðgerðaleysi sínu??
Er það vegna þess að henni er sama þó lekinn á landamærunum verði ítrekað til þess að allt mannlíf sé fyrst, skólum lokað, allt íþróttastarf bannað, öll menningarstarfsemi fryst, engir mannfagnaðir, ekkert sem má kalla eðlilegt daglegt líf??
Eða liggur vandinn í þessum 2-3 sem skilja ekki orð Kára, og ógæfa þjóðarinnar varð það að vopni að viðkomandi eru ráðherrar í ríkisstjórn Íslands?
Og hver er sá þriðji??
Þessi orð má lesa á Vísi.is, höfð eftir forsætisráðherra, í þeim kristallast mikill vanskilningur á á þeirri stöðu sem upp er komin.
"Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra var spurð í Víglínunni í dag hvort ítrekuð dæmi um sóttkvíarbrot væru ekki tilefni til að endurskoða reglur á landamærum. "Það er verið að hringja í fólk. Það er verið að kanna sérstaklega hverjar aðstæður fólks eru til sóttkvíar þannig þetta erum við allt að gera þannig við væntum þess að það muni skila árangri," sagði Katrín.".
Hvað finnst ykkur um þessi orð spurði ágætur maður í vinahópi mínum á feisbók, maður sem nýtur feisbókina dagsdaglega í málefni fjölskyldunnar eða þau sem snerta bæjarfélagið okkar sem við lifum í, en ekki í eitthvað sem má flokka undir stjórnmál eða pólitík.
En honum var greinilega misboðið eða hugsi í það minnsta.
Já hvernig finnst okkur þessi viðbrögð, það er verið að hringja í fólk, kanna aðstæður, og það á að skila þeim árangri að sóttkví haldi, eða réttara sagt, stjórnvöld vænta þess.
Er eitthvað raunveruleikaskyn í þessum orðum??
Víðir benti réttilega á að það hefði verið hringt í viðkomandi, og þar sem hann svaraði þá var farið að grennslast fyrir um hann, og sú eftirgrennslan leiddi til þess að farið var með hann á sóttkvíarhótel.
Í millitíðinni smitaði hann bara fullt af fólki, og það er staðreynd að ný bylgja er hafin.
En hvað ef maðurinn hefði svarað í símann, er einhver svo heimskur, fyrir utan 2-3 í ríkisstjórn Íslands að trúa að hann hefði játað fyrirhugað sóttvarnarbrot sitt??, er ekki líklegra að hann hefði sagt að allt væri í góðu, farið síðan út aftur og aftur, smitað og smitað, og enginn vitað neitt fyrr en um viku seinna??
Síðan en ekki síst, þá er þetta ekki bara eina brotið, bara það sem hafði alvarlegustu afleiðingarnar.
Gleymum svo ekki að pappír um smitleysi er gagnlaus því kóvid veiran smitar óháð vottorð um meint smitleysi, og við höfum þegar dæmi þar um.
Dæmum sem bara á eftir að fjölga.
Samt er eins og vanvitar stjórni okkar.
Skilji ekki eða skynji alvöru málsins.
Slíkt er ekki einleikið.
Og sá einleikur þarf að taka enda.
Forseti Íslands er samkvæmt stjórnarskrá öryggisventill þjóðarinnar þegar þing og ríkisstjórn ganga af vitinu.
Verði þjóðin á ný sett í fjötra sóttkvíar án þess að landamærunum verði lokað fyrir kóvid veirunni, þá ber honum skylda til að grípa inní.
Á þann hátt sem verður ekki misskilinn, hvað sem hann kýs svo sem að gera.
Annars sýður uppúr.
Þjóðin vill ekki lengur vera leiksoppur fjársterkra hagsmuna sem hafa stjórnmálin okkar í vasanum.
Segi eins og skáldið.
"Ekki meir, ekki meir".
Kveðja að austan.
![]() |
Yfir 20 smit í gær |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.4.2021 | 17:59
Kjarninn er svo einfaldur.
Þetta gerist og mun alltaf gerast, á meðan ekki er séð til þess að þetta gerist ekki.
Sóttkví milli skimana þarf að vera örugg, ekki háð brotavilja einstaklingsins.
Þjóðerni smitberans, erindi hans til landsins, hæð, kyn, útlit, ekkert af þessu skiptir máli.
Heldur að smit leiti ekki inn í samfélagið.
Það er skylda stjórnvalda að sjá til þess að svo verði.
Annars eru þau ekki starfi sínu vaxin.
Og þá ber þeim að víkja.
Kveðja að austan.
![]() |
Smitrakning nær óvenjulangt aftur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.4.2021 | 12:58
Einstaklingur sem virti ekki sóttkví.
Segir Víðir Reynisson, sami Víðir Reynisson sem varði hið óverjanlega, að sóttkví við landamærin sé ekki örugg, með þeim orðum að ekki væri hægt að banna allt flug til landsins.
Hvað er svona flókið við það að hafa örugga sóttkví?
Og hví í andskotanum ef hún er ekki örugg, af hverju kóa almannavarnir með og lýsa jafnvel ánægju sína með núververandi fyrirkomulag.
Að pappírar séu teknir gildir en ekki tvöföld skimun með sóttkví á milli, eða fólki sé í sjálfvald sett hvort það virði sóttkvína eða ekki, og þá með þekktum afleiðingum.
Það er hlutverk almannavarna að tryggja öryggi landsmanna, og það er þeirra að gera kröfu á löggjafann að enginn vafi sé á lagagrundvelli þeirra aðgerða sem taldar eru nauðsynlegar á hverjum tíma til að tryggja þetta öryggi.
Hlutverk þeirra er ekki að leika hlýðna eða vanhæfa embættismenn sem bakka upp vitleysu ráðherra, eða sjá jafnvel ekkert athugavert við hana.
Þeirra hlutverk er að falla með tillögum sínum, fái þær ekki brautagengi ráðamanna, segja þjóðinni sannleikann og tilkynna síðan afsögn sína ef tillögur ráðaherra ganga þvert gegn þeim.
Það er vitað í dag að fólk með pappíra getur borið með sér smit inní landið, það er raunveruleiki veirunnar að hún getur smitað aftur, og hún getur smitað bólusetta.
Það er líka vitað að fólk virðir ekki sóttkví, líkt og það er vitað að fólk virðir ekki umferðarlög, skattalög, allskonar lög. Við því er að sjálfsögðu viðurlög, en í þessa eina tilviki, brot á sóttkví, eru afleiðingarnar innanlandssmit sem sóttvarnaryfirvöld berjast gegn með allskonar kvöðum og takmörkunum á daglegt líf fólks.
Slíkar kvaðir og takmarkanir eru alltaf umdeilanlegar, og þess vegna er siðferðisleg forsenda þeirra að þessi sömu yfirvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að hindra smit yfir landamærin.
Og það er ekki gert í dag, því sóttkví er ekki örugg á meðan það er komið undir brotavilja hvort hún haldi eður ei.
Játning Víðis í dag.
Hópsmitið í Mýrdalnum.
Landamærin halda ekki.
Svarið er ekki eins og haft er eftir Víði Reynissyni, að næstu tveir til þrír dagar skipti sköpum hvort herða þurfi sóttvarnaraðgerðir innanlands.
Svarið er að stöðva lekann á landamærunum, biðja síðan þjóðina auðmjúklega afsökunar á þeim glöpum að fyrirsjáanlegur leki skyldi ekki vera stöðvaður, og þá er hægt að ræða hertar sóttvarnir, enn einu sinni enn.
Aðeins afglapinn svarar að við þessu sé ekkert að gera, að lekinn á landamærunum sé eins og heilög kýr á Indlandi, ósnertanlegur og þjóðin skuli bara enn einu sinni búa sig undir að missa af vorinu og síðan sumrinu.
Núna reynir á þjóðina að láta ekki bjóða sér þessa vitleysu.
Daglegt líf hennar er undir.
Hún á að gera kröfu á sóttvarnaryfirvöld að segja henni satt og koma með tillögur sem duga.
Hún á að gera kröfu á stjórnvöld að lagagrundvöllur sé til staðar, þurfi til þess neyðarlög, þá á hún að gera kröfu á setningu þeirra.
Flækist viðrini eða óvitar á Alþingi fyrir, og ríkisstjórnin hafi ekki meirihluta fyrir lögum sínum, þá þjóðin að gera þá kröfu á forseta Íslands að hann víki þingi frá með þeim orðum að það hafi engan rétt að vinna gegn þjóðinni á neyðartímum.
Síðan á Sjálfstæðisflokkurinn ekki að komast upp með að hafa barn í stöðu dómsmálaráðherra og forsætisráðherra ekki að líða að innan ríkisstjórnar sé ráðherra sem opinberlega brúkar munn við hann um nauðsyn sóttvarna.
Þetta er alvaran, ekki barnaleikur, það veit enginn hvernig málin eiga eftir að þróast með þessa veiru, tíminn til að sigrast á henni með bólusetningum virðist vera renna út, banvæn afbrigði veirunnar geta borist aftur og aftur að ströndum þjóðarinnar.
Þess vegna er það skylda stjórnmálanna að sjá til þess að fullorðið fólki leiði varnir hennar og það sé fullorðið fólk sem taki ákvarðarnir á öllum stigum málsins.
Það rífst enginn við raunveruleikann án þess að tapa þeirri rimmu.
Á annað ár höfum við leyft veirunni að leka inn fyrir landamærin, og allan þann tíma verið meir eða minna í fjötrum sóttvarna, vissulega ekki eins alvarlegra og víða erlendis, þökk sé snerpunni í að rekja smit og senda alla í sóttkví sem gætu verið smitaðir, en sóttvarna engu að síður sem hafa stjórnað daglegu lifi okkar allan þennan tíma.
Rifrildið þarf því að taka enda.
Sættumst við raunveruleikann og gerum það sem við þurfum að gera.
Það er vissulega fordæmalaust en við lifum bara fordæmalausa tíma.
Þar gamla orðtakið að duga eða drepast, er ekki lengur vísan í að drepast í óeiginlegri merkingu.
Það er bara svo.
Þetta er ekki val.
Kveðja að austan.
![]() |
Hópsmit í leikskólanum rakið til brots á sóttkví |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.4.2021 | 11:19
Er ný bylgja í uppsiglingu??
Og þar með sóttvarnir hertar á ný??
Þá er grundvallaratriði að almenningur fái svar við spurningunni einu.
Hvaðan kemur þetta smit??
Er þetta sami stofn veirunnar og var að angra okkur fyrir páska??
Eða er þetta nýtt smit sem hefur sloppið inní landið líkt og gerðist í Mýrdalnum??
Grundvallarspurning sem sóttvarnaryfirvöld þurfa vinsamlegast að svara.
Kveðja að austan.
![]() |
Þrettán smit innanlands átta utan sóttkvíar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.4.2021 | 22:15
Norðaustur kjördæmi, ha ha og hó hó.
Prófkör framsóknamanna kvað úr um að eftir sameiningu Austurlands og Norð-Austurlands, þá er kjördæmið aðeins Norður.
Sem er svo sem alveg skiljanlegt og skynsamlegt, atkvæða vægið er fyrir norðan.
Hins vegar ekki alveg eins skiljanlegt að það dugi fyrir einhvern á Akureyri að hringja í vini sína og vandamenn, og hókí púki, viðkomandi er efstur á lista flokksins.
Í tilviki Framsóknarflokksins má þó þakka fyrir pólitíska rétthugsun, manneskja sem enginn veit hver er, hefur aldrei sagt orð, og þar að leiðandi hvorki til vits eða heimsku, hún er og fögnum núna; KONA.
Hinn napri raunveruleiki er hins vegar, ef viðkomandi kona hefði tekið rétthugsunina aðeins lengra, og tekið höfuð ofan líkt og Glæsir forðum, þá hefði hún líka getað boðið fram hundinn sinn, að því gefnu að hún hefði verið jafn dugleg að hringja í vini sína, vandamenn, og aðra sem hún átti tök á að bjóða í kaffi, og munum, að þá er öllum sóttvarnarreglum framfylgt.
Fjöldinn fyrir kóvid hefði reyndar verið mjög svipaður.
Jú, jú, vissulega er einhver hugsanlega fyrir norðan, ekki sigurhrós, heldur með bit af slæmri samvisku, og í þriðju tilraun sinni til að sofa, í algjöru asnakasti, klikkar á þennan pistil, og hugsar, "Hvað, tók hann ekki eftir Líneik".
Og hvað getur maður sagt um þetta ágætis þorp sem enginn vissi hvað héti, og þannig séð eina fólkið sem kom, og stoppaði stutt við, var vegurinn fyrir Vattarnes, þorp sem svo sem allir sem hafa áhuga á fótbolta að ekki sé minnst á fjarðaríginn sem þó gerði Fáskrúðsfjörð gildandi, ekki reyndar vegna fótboltahæfileika heldur vegna þess sem seinna meir var frægt og kennt við Gunnar Nílsen, en jú jú, örugglega er til fólk á Austfjörðum sem veit að einu sinni var byggð við Fáskrúðsfjörð, og vissulega í dag hittir maður fleiri þar sem tala íslensku, eða ekki íslensku, en reyndar er sú vitneskja mín tilkomin fyrir kóvid.
Málið er að það man enginn eftir Líneik hér fyrir austan, ef einhver málafylgja fylgdi henni, þá myndi fólk hér ekki spyrja í grandvaraleysi sínu, ha býr einhver Íslendingur ennþá á Fáskrúðsfirði, sem þannig er ekki rök, nema Pólverjarnir taka ekki þátt í neinu, hvorki íþróttastarfsemi barnanna, foreldrafélögum grunnskólanna, félagsmálum almennt, eða eitthvað sem við kennum við mannlíf.
Samt er staðan ekki það aum hér fyrir austan, að við fáum sérstaka sendingu að sunnan, líkt og aumingja fólkið sem ennþá þraukar fyrir vestan, og hefur upp raust sína um menningu þetta og hitt, að þeir sem ennþá þrauka, séu það skrýtnir að það megi gera pening út á þá.
Svo hlæjum við hin þegar Gísli í Landanum mætir á svæðið, hlátur okkar svo djúpur, að Gísli greyið heldur ennþá starfi sínu, þó hann hafi ekki mætt í vinnuna í þó nokkuð mörg ár.
Kona skal það vera.
Sem engin veit hvað heitir.
Í byggðarlagi sem fáir vissu að væri ennþá til.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf illa að skíta í buxurnar, að ekki sé minnst á Miðflokkinn, til að nýta sér ekki þetta Hari Kari Framsóknarflokksins í Norður Kjördæmi.
VG fór svipaða vegferð, atkvæðamagnið á Akureyri og nærsveitum réði lista flokksins.
Og sú gryfja gæti beðið bæði Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins.
Líkt og enginn fatti, að fylgið er eins og það er fyrir norðan, og úrslitavægið milli flokka kemur að austan.
Hvað það varðar er Framsóknarflokkurinn úr leik, en hver ætti svo sem að kjósa flokk sem Sigurður Ingi leiðir, hvað hann varðar þá dugar ekki glóbalið, jörðin, heldur þarf flokkurinn að sækja fram í sjálfan alheiminn, í þeirri veiku von að Sigurður Ingi eigi ekki jarðarmet í sviknum kosningaloforðum, eða loforðum yfir höfuð.
En fyrir hönd dýravina hefði ég samt haldið að það hefði verið skynsamlegt að bjóða fram hund í fyrsta sæti Framsóknar í NorðAustur, voff voff er jú orðræða sem við höfum heyrt áður og getum tengt okkur við.
En kaffiboð á Akureyri, vissulega ekki voff voff, en við skiljum samt voff voffið, en það er erfitt að skilja það sem aldrei hefur verið sagtog enginn veit þar með fyrir hvað stendur.
Ekki að það komi mér neitt við, ég skil illa fólk sem kýs flokk sem ljúgari leiðir, en sem Austfirðingur, þá staldra ég við, eftir að ég las útkomuna úr prófkjöri Framsóknar hér fyrir austan.
Við erum jú kjördæmið sem tryggði Halldóri Ás, sælla minninga, 45% fylgi, slíkt fylgi er alltaf vendipunktur þegar höfuðfylkingar íslenskra stjórnmála eru svipaðar að stærð fyrir norðan.
Vanvirðingin gagnvart okkur er því algjör, eins og við séum ekki til.
Segðu mér satt sögðu Stuðmenn, félagi minn á miðjunni, félagi Valgeir, sá þetta fyrir.
"Skilmerkilegustu skoðanakannanir sýna allt svo skýrlega
að næstum er óhætt að draga ekki í efa,
sjö þúsund handahófs nöfn úr símaskránni
sögðu að sér þætti sælla að þiggja en gefa.
Segðu mér, segðu mér, segðu mér satt.
Segðu mér, segðu mér, segðu mér satt.
Ennfremur álítur marktækur meirihluti
að moldríkir hafi hendurnar vandlega laugað,
komist aftur á bak með aðgát, varúð og lagni
eins og ekkert sé, í gegnum nálaraugað.
Segðu mér, segðu mér, segðu mér satt.
Segðu mér, segðu mér, segðu mér satt.
Lýðræðið er til margra hluta nytsamt
og nóglega er ekki demantinn hægt að slípa,
en ef meirihlutanum verður á í mysunni,
til hvaða meðala mega þá réttlátu maðkarnir grípa?".
Já, svona í ljósi þess að öll svikin við kosningaloforð eru svipuð, þá hljóta jaðarbyggðir að spyrja sig eins;
Eigum við að láta vanvirða okkur.
Erum við fórnarlömb??
Þar liggur efinn.
Hvað Framsókn varðar, þá er hann ekki lengur til staðar.
Kveðja að austan.
![]() |
Ingibjörg mun leiða Framsókn í Norðausturkjördæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.5.): 3
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 1440174
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 39
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar