Grjótið úr glerhúsinu.

 

Braut að sjálfsögðu rúðu þegar því var kastað að nágrannahúsinu.

Og sá sem kastaði grjótinu krefst þess að nágranninn bæti sér skaðann, að fyrst gjaldkeri Samfylkingarinnar neyddist til að segja af sér, þá gildi slíkt hið sama um aðra aflandsbraskara.

Þeir segi af sér.

Sem sýnir fáráð umræðunnar í hnotskurn.

 

Aflandsfélög eru lögleg samkvæmt íslenskri löggjöf, löggjöf sem stjórnmálamenn settu, og allir stjórnmálamenn hafa haft tækifæri til að afnema því á síðustu 2 kjörtímabilum hafa allir flokkar verið í ríkisstjórn.

Ef aflandsfélög eru svona hrikaleg eins og sagt er, að þau séu skálkaskjól starfsemi sem þoli ekki dagsljósið, líkt og skattaundanskot, skattahagræðing, peningaþvætti eða hvað allir þessir góðu siðir fjármálamanna heita nú, þá er ljóst að löggjafi sem setur slík lög, er samsekur þeim sem hina óheiðarlegu iðju stunda.

Og þeir eru jafnsekir sem nýta ekki valdasetu sína til að breyta viðkomandi löggjöf.

Þess vegna eru gaspur og upphrópanir Svanhvítar Svavarsdóttur og Árna Páls Árnasonar í besta falli hræsni, en í versta falli hluti af þeim hráskinsleik efnahagsböðla að lama allt stjórnkerfið á meðan allt sem ekki er naglfast er hreinsað úr landi.

 

Ef varnarræða þessa auma fólks er sú að aflandsfélög séu í sjálfu sér ekki glæpsamleg, heldur hugsanleg misnotkun þeirra, þá eiga þau að sína fram á misnotkun þess fólks sem þau kusu að kasta að grjótinu úr glerhúsinu.

Hver er hin meinta misnotkun, hver er hinn meinti glæpur?

Og það hafa þau ekki gert.

Svo vörn þeirra er engin, í besta falli skinheilagir hræsnarar, í versta falli áframhaldandi þjóðníð sem þau urðu ber af í síðustu ríkisstjórn.

 

 

Síðan er framganga Árna Páls Árnasonar sérstakur kapítuli.

Hann fór í þessa umræðu án þess að athuga fyrst hvernig málin stæðu í sínum flokki, hann gerði enga kröfu til sjálfs síns, áður en hann gerði kröfur á hendur öðrum.

Kastaði með öðrum orðum steini úr glerhúsi.

Hann mátti vita hvernig málin stæðu hjá gjaldkera flokksins, Vilhjálmur Þorsteinsson var jú gjaldkeri vegna þess að hann er fjármálamaður, og hann hefði burði til að koma með fé inní flokkinn.

 

En það er hins vegar ekki það ómerkilegasta í framgöngu Árna Páls.

Heldur viðbrögð hans þegar upp komst um strákinn Tuma, þá var Pílatus tekinn á málið, "þið verðið að spyrja Vilhjálm" var sagt við fréttamenn.

Enginn stuðningur, sem svo sem tíðkast ekki innan Samfylkingarinnar, en ekki heldur skýr forysta um prinsipp Samfylkingarinnar í þessu máli öllu, sem hefði verið eðlilegast í ljósi harkalegrar gagnrýni Árna á stjórnmálamenn í öðrum flokkum.

Menn krefja ekki ríkisstjórnin um afsögn, ef menn skorti kjark til að krefjast þess sama af sínum eigin flokksmönnum.

Og meintur gunguskapur er ekki afsökun í málinu.

 

 

Eftir stendur að þjóðin er án forystu.

Viðbrögð Sigmundar Davíðs fyrstu daga umræðunnar, vekja upp alvarlegar spurningar um forystuhæfileika hans í ágjöf og brimsköflum stjórnmálanna.

Samt hátíð miðað við aulaskapinn sem formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins urðu ber af þegar þau þóttust ekki kannast við eitt eða neitt.  Eitt er að hugsa að fólk sé fífl, annað er að tala við fólk eins og fífl.

Það gera eiginlega bara fífl, og jafnvel Mogginn gat ekki þagað, þó hann benti pent á þessa staðreynd með viðtalinu við skattaráðgjafa Deiloitte.

Og þessi viðbrögð verða ekki aftur tekin.  Það er ekki svo alvarlegt að eiga ónotuð skúffufélög hér og þar, en það er alvarlegt að geta ekki haldið reisn sinni þegar svona mál koma upp.  Eins og það þurfi fyrst að æfa svörin með almannatenglinum áður en eitthvað er sagt opinberlega. 

Eins og um fígúru sé að ræða, ekki leiðtoga.

 

En þó askan sé heit, þá brennir eldurinn allt sem hann kemst í.

Og fyrir sjálfstæða þjóð er stjórnarandstaðan ekki valkostur.  Hún seldi Mammon sál sína fyrir völd, og það er ekkert sem bendir til þess að hún hafi reynt að láta þau kaup ganga til baka.

Enda áberandi í þessari umræðu persónulegt skítkast, og um formsatriði líkt og þau hvort um hugsanleg hagsmunatengsl sé að ræða, en efnisleg gagnrýni á samninga ríkisstjórnarinnar við kröfuhafana fyrirfinnst ekki.

Sem bendir til annað af tvennu, stjórnarandstaðan er sammála Gjöfinni einu, eða hún vill ná völdum til að afhenda Mammon stærri hluta af eigum þjóðarinnar.

Valdaþorstinn knýr hana áfram, ekki hugsjónir eða umhyggja fyrir þjóðarhag.

 

Svo maður spyr sig.

Hvers á þjóðin að gjalda?

Hvað höfum við gert til að eiga skilið þessa stjórnmálamenn?

 

Það er greinilegt að guðirnir eru hættir að láta elda brenna og hraun renna þegar þeim mislíkar.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Hættir sem gjaldkeri Samfylkingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vel sagt Ómar. Alveg eins og talað úr mínu hjarta. Kveðja að sunnan

Margret S (IP-tala skráð) 31.3.2016 kl. 09:58

2 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Góður pistill Ómar eins og venjulega

Kristbjörn Árnason, 31.3.2016 kl. 11:25

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hórkufínn pistill.

Gódar stundir, med kvedju ad sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 31.3.2016 kl. 12:51

4 identicon

Góður pistill Ómar.... 

Friðrik Gígja (IP-tala skráð) 31.3.2016 kl. 13:36

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Kristbjörn.

Alltaf þykir mér vænt um þegar þú kíkir við og segist hafa lesið pistla mína, og ekki verra að þér líki skrifin.

Ég veit og skil rök þín þegar þú ákvaðst að verja vinstrihreyfinguna, þó ég viti að margt hafi verið þér óljúft hjá síðustu ríkisstjórn.

Ég hins vegar hegg í báðar áttir, því í raun er ég alltaf að höggva í auðskrímslið sem ég vil dautt.  Áður en það drepur endanlega framtíð barna minna. 

Það má segja að ég sé dálítið á þeirri línu sem Steinn var í Rauða loganum sem brann svo heitt.  Án þess reyndar að deila með honum lausninni.  Að mínum dómi er hún meira húmanísk, siðleg, snýr að viðhorfum manneskjunnar um hvað má og hvað má ekki.  Og hvað viljum öðrum.

En auðkerfið vil ég dautt í eitt skipti fyrir allt.

Ég reikna með að það sé okkar sameiginlegi snertiflötur, að það hafi þú lesið út úr þessum pistli mínum þó ég sé ekki síður grimmur við stjórnarandstöðuna en stjórnarsinnana.

Takk fyrir innlitið.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 31.3.2016 kl. 14:03

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk annars fyrir innlitið kæra fólk.

Ég vil annars taka það skýrt fram, ef vera skyldi að ég hefði misskilist, að ég er alfarið á móti þeim smugum sem felast í aflandsfélögum.  Tel reyndar meira að segja að fyrirtæki sem þurfa lúta slíkum skúffueignartengslum, eigi ekki að hafa rétt til rekstur í íslenskri efnahagslögsögu.

En á meðan við höfum þessi lög, þá verður fólk ekki sjálfkrafa glæpsamlegt þó það nýti sér slík félög.  Það er jú verknaðurinn sem skiptir máli.

Í þessum pistli er ég fyrst og fremst að setja út á viðbrögð stjórnmálamanna við þessum upplýsingum, það er þar sem þeir brugðust, það er að mínum dómi.

Ég er ekki vanur að útskýra pistla mína, lendi oft í að skilja þá varla sjálfur, en ég lenti óvart í að vera lesinn, og því vil ég allavega að mín afstaða skiljist.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 31.3.2016 kl. 14:10

7 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Sæll Ómar og takk fyrir hressilegan og vel orðaðan pistil.  Þegar ég las hann sá ég fyrir mér Soffíu frænku úr Kardimommubænum vera að hyrta ræningjana.  Tónninn í þessu var alveg frábær og tek ég heilshugar undir það sem þú segir þarna. Hafðu kæra þökk fyrir og ég leyfði mér að deila þessu á FACEBOOK síðunni minni. Kveðju, Guðbjörn

Guðbjörn Jónsson, 31.3.2016 kl. 17:22

8 Smámynd: Ómar Geirsson

Velkomið Guðbjörn, það eina sem ég hef beðið um er að ég sé ekki taggaður við þessa pistla mína.

Ég á feisbók, og bloggarinn ég, eru ekki alveg sama persónan.

Bloggið er meira svona hlutverkaleikur.

Sem ég læt feisbókarvini mína alveg í friði með.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 31.3.2016 kl. 18:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 42
  • Sl. sólarhring: 319
  • Sl. viku: 1103
  • Frá upphafi: 1321866

Annað

  • Innlit í dag: 37
  • Innlit sl. viku: 916
  • Gestir í dag: 36
  • IP-tölur í dag: 36

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband