Þegar upp kemst um strákinn Tuma.

 

Þá er Tumi alltaf jafn hissa, tafsar, roðnar og vill síðan hverfa niður úr gólfinu.

 

Ekki það að ég kannast ekki við þessi viðbrögð Tuma, en ég er ekki forsætisráðherra sem var staðinn að því að treysta ekki þjóðinni fyrir upplýsingum um sín persónulegu fjármál.

Sem jafnvel mætti fyrirgefa, en ekki yfirklórið, ekki tafsið, ekki þá aumlegu tilraun að láta flokksmenn sína slá um sig skjaldborg en hafa ekki kjarkinn sjálfur til að halda uppi vörnum og útskýra sín mál.

 

Málið væri auðleyst ef Sigmundur ætti einn í hlut, en formaður og varformaður Sjálfstæðisflokksins sýndu þjóðinni álíka dónaskap og Sigmundur, töluðu við hana eins og við værum öll fífl.

Enginn af þeim "upplýstu" virtustu hafa þann heiðarleika og kjark að útskýra sín mál undabragðalaust.

 

Ríkisstjórnin er ómarktæk í dag, hún er einfaldlega history.

Getur vissulega hangið áfram eins og draugstjórn, líkt og ríkisstjórn þeirra Jóhönnu og Steingríms var síðustu misseri sín, en á meðan stjórnar enginn þjóðinni.

Og deilur munu loga stafna á milli á þjóðarskútunni.

Þess vegna mun stjórnin segja af sér á morgun, ef þjóðarhagur er einhvers metinn.

Í kosningabaráttunni gefast næg tækifæri til að útskýra öll aflandstengslin, endurheimta traust, og annað sem þarf til að þetta fólk geti haldið áfram að stjórna þjóðinni.

 

Annað er ávísun á upplausn.

Og jafnvel endurkomu ICEsave þjófanna.

Frá öskunni í hinn brennandi eld.

 

Eina sem gæti þá komið þjóðinni til bjargar er aðkoma Bessastaða, að Ólafur rjúfi þing og skipi utanþingsstjórn

Sem hafi það eina hlutverk að rannsaka allan hroðann.

Öll svikin, allt baktjaldamakkið, jafnt hjá þessari ríkisstjórn, sem og hinni síðustu.

 

Því lýðræði er ekki þannig að valið eigi aðeins að standa á milli tveggja bófahópa sem ata hvorn annann auri.

En þannig eru íslensk stjórnmál í dag.

 

Svo síðasta von lýðræðisins eru Bessastaðir.

Og gamli maðurinn þar.

 

Hinn valkosturinn, skríparæðið, er upphafið af endalokum okkar.

Eða kannski lokahnykkurinn á þegar löngu hafinni atburðarrás þar sem bara á eftir að skipta um kennitölu þjóðarinnar og breyta henni í eitt stórt aflandsfélag.

Í vasa auðs og fjármagns.

 

Þetta gengur ekki.

Við hljótum öll að sjá það.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Seldi hlutann degi fyrir breytingu á lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hvað með hlutverk Hæstaréttar Íslands í bankalagaregluverkinu? Bara stikk frír Hæstiréttur? Sem heldur sínu striki, því enginn dómstóll stoppar spilltan Hæstaréttar-dómstól Íslands?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 4.4.2016 kl. 00:45

2 identicon

"Því lýðræði er ekki þannig að valið eigi aðeins að standa á milli tveggja bófahópa sem ata hvorn annann auri." Þetta er staðan í hnotskurn. En hvenær fórum við af sporinu? Var það þegar einkavæðinginn mikla á tíunda áratugnum fór af stað og náði hámarki með sölu Búnaðarbankans og Landsbankans. Sá síðarnefndi hefur verið duglegur við að freista fólks með aðgangi að skattaskjólum og var reyndar byrjaður á því fyrir einkavæðingu. 

Toni (IP-tala skráð) 4.4.2016 kl. 07:19

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Anna.

Hæstiréttur dæmir eftir lögum, og það er þannig að ekki hefur verið sýnt fram á lögbrot á hjá neinum að þeim stjórnmálamönnum sem teknir voru í bólinu.

Það var trúverðugleiki þeirra sem hvarf á einni nóttu, vegna klaufalegra viðbragða.

Sigmundi er ekki stætt, ekki frekar en Nixon eftir sjónvarpsviðtalið fræga þegar hann sagði ekki vera crook.

En það er ekkert betra sem tekur við.

Því miður.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 4.4.2016 kl. 08:06

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Nei Toni, það er ekki félegt ástandið, og ég fæ ekki betur séð en auðurinn sigri.

Því bæði bófagengin stjórnast af sama leikbrúðumeistarunum.

Hvenær þetta fór úrskeiðis, þá er tvennt sem þarf að hafa í huga.

Þjófakerfið sem slíkt er alþjóðlegt, og það er ákveðin pólitísk hagtrú sem hefur réttlætt það.  Og dæmið gekk upp vegna þess að vinstri flokkarnir ánetjuðust.

Til einföldunar þá getur þú þekkt hina ánetjuðu úr hópi Andófsins, þeir tala um hagræðingu, og þeir ráðast ekki gegn kerfinu.  Tala svona um stjórnarskrá eða lýðræðisumbætur, líkt og slíkt hefði hjálpað hinum umsetnu gyðingum í Warsjá.

En það seinna snýr að hvenær stjórnmálin brugðust, og þá er aðeins einn maður sem getur svarað því.

Og það er Steingrímur Joð Sigfússon, hvenær ákvað hann að svíkja?

Og af hverju?

En kosturinn við svona gengjastríð er að þá höfum við smáfuglarnir speis, hvort sem það er til að fá sér sæti og virða fyrir sér hjaðningsvígin, eða íhuga hvort það sé líf efir algjör yfirráð glæpamanna.

Spurning sem menn velta fyrir sér í fátækrahverfum Mið og Suður Ameríku.

Þetta verður ljótt, þetta verður leiðinlegt, og það er aðeins einn lúser.

Þjóðin.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 4.4.2016 kl. 08:19

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta gengur ekki. Við hljótum öll að sjá það.

Alveg rétt ályktað. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.4.2016 kl. 11:35

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Já Ásthildur, jafnvel Styrmi er ofboðið.

Og það er ekki bara Sigmundur, allt þetta fólk þarf að afla sér nýs umboðs.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 4.4.2016 kl. 14:03

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Algjörlega sammála. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.4.2016 kl. 15:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 12
  • Sl. sólarhring: 355
  • Sl. viku: 3515
  • Frá upphafi: 1330345

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 2984
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband