Steingrímur mætti íhuga þennan brandara..

Þessi brandari útskýrir sig sjálfur en oft fylgir gamni mikil alvara.

Á góðum degi í framtíðinni ...

Steingrímur Sigfússon var dauður og kominn til himna þar sem hann hitti
Lykla-Pétur.

Lykla-Pétur varð svolítið vandaræðalegur: „Eh, velkominn,“ sagði hann loks.
„Þakka þér fyrir,“ sagði Steingrímur, „ég vissi að ég mundi enda hér“.

- „Nja,“ sagði Pétur , „þú hefur lifað sæmilega frómu lífi, eða þannig, svo
við vildum gjarnan hafa þig hér en því eru ekki allir sammála. Þú ert
umdeildur maður og það hafa fleiri áhuga á þér en við hér í himnaríki. Við
urðum að halda fund með djöflinum þar sem þetta var rætt og það endaði með
því að við gerðum samning við hann.“

„Samning!“ Hrópaði Steingrímur og var sýnilega brugðið.

„Það er nú ekki alslæmt,“ sagði Pétur, „en djöfullinn sagðist nú þegar hafa
flesta vini þína svo við sömdum um að þú eyddir einum sólarhring í helvíti
og öðrum hér hjá okkur í himnaríki og svo velur þú sjálfur hvar þú dvelur um
aldur og eilífð.

Steingrímur maldaði svolítið í móinn en samningur er jú samningur svo Pétur
vísaði honum á lyftuna, kvaddi hann og sagðist sjá hann eftir sólarhring.
Steingrímur ýtti á hnapp merktan „helvíti“ í lyftunni og seig svo langt,
langt niður á við þar til lyftan stoppaði við kolsvarta hurð. Þegar dyrnar
opnuðust stóð djöfullinn sjálfur fyrir innan. „Gamli vinur, vertu
hjartanlega velkominn, gakktu í bæinn,“ sagði djöfsi.

Steingrímur fór inn og við honum blasti risastór golfvöllur. Margir af hans
gömlu flokksbræðrum léku golf á vellinum eða stóðu í smáhópum og töluðu
saman. Golfvöllurinn var fullkominn. Það var heitt í lofti og út um allt
voru léttklæddar, snoppufríðar djöflastelpur sem færðu mönnum bjór og aðra
kalda drykki. Steingrímur lék golf allan daginn og um kvöldið bauð Svavar
Gestsson, sem hafði dáið nokkru áður, honum í „gúrme“grill (hafði sem sagt
grætt um daginn og grillað um kvöldið) ásamt Indriða, Álfheiði og fleiri
góðum vinum með öllu góðgæti sem hugsast gat. Fáum sögum fer af því hvernig
Steingrímur eyddi nóttinni en sólarhringurinn í helvíti var fljótur að líða
og morguninn eftir var honum vísað á lyftuna á ný.

Þegar Steingrímur kom aftur til himnaríkis var hann efins um ágæti þess
staðar en það var samt sem áður tekið vel á móti honum. Hann var klæddur í
englaföt og fengin harpa til að leika á. Hann eyddi deginum með því að ganga
um milli skýjanna, hlustaði á fagran fuglasöng og borðaði ferska ávexti.
Hann fékk reyndar í magann af ávöxtunum og það pirraði hann að sjá Davíð og
Þorgerði  sitja saman á skýi og leika á hörpur af mikilli innlifun.

Um kvöldið kom Pétur. „Nú ertu búinn að dvelja heilan sólarhring í helvíti
og heilan dag hér í himnaríki. Ertu kannski búinn að ákveða þig?“ Spurði
postulinn.

„Hmm,“ sagði Steingrímur, ég átti nú kannski ekki von á því en ég held að ég
velji helvíti, þrátt fyrir allt. Það er heppilegasti staðurinn fyrir mig.“
Andlitið datt af Pétri og hann reyndi hvað hann gat að fá Steingrím ofan af
ákvörðun sinni. En Steingrímur var harðákveðinn.

Á ný fór Steingrímur með lyftunni niður í helvíti og djöfullinn tók aftur á
móti honum. Hann kippti Steingrími inn en þar var þá allt öðru vísi umhorfs
en daginn áður. Brennisteinsfnykinn lagði um allt og skerandi sársaukavein
flokksbræðra hans og vina fylltu loftið. „En hvar er golfvöllurinn?“ Spurði
Steingrímur. „Og djöflastelpurnar, bjórinn og grillið?

- “Ah,“ sagði djöfullinn,  „þú skilur þetta mann best, í gær var
kosningabaráttan í fullum gangi. En nú ertu búinn að kjósa!“
 

Er ekki nóg komið af svikum í ICEsave deilunni og samstarfinu við erkióvinanna hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

Kveðja að austan.


mbl.is Hefur trú á að stjórnin lifi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þrælgóður og mér finnst að þú ættir að senda kvikindinu þennan brandara,netfangið er  sjs@althingi.is

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 6.10.2009 kl. 17:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 352
  • Sl. sólarhring: 387
  • Sl. viku: 4800
  • Frá upphafi: 1329362

Annað

  • Innlit í dag: 294
  • Innlit sl. viku: 4221
  • Gestir í dag: 262
  • IP-tölur í dag: 259

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband