Stórgjaldþrotamaður á íslenska fjölmiðla.

 

Fyrir utan Moggann, þar lætur hann sér duga að eiga útgefandann.

 

Algjört vald í gegnum kennitölur sem höfðu allt sitt á þurru, á meðan Gaumur  sat uppi með skuldirnar.

Algjört vald á fjórða valdinu.

Og þjóðin lætur kjurt liggja.

Sem er sorglegt.

 

Blaðamannagreyin hjá fjölmiðlum Jóns, þurfa fyrir salti í grautinn.

Eðlilegt að þau gjammi þegar pótintátar Jóns henda ruðum útum víðan völl.

En að við sættum okkur við að stórgjaldþrota útrásarvíkingur, sem var meira að segja svo ósvífinn að hann komst upp með að láta bílstjóra sína afplána á Kvíabryggju, sé fjórða valdið á Íslandi.

Í vanheilögu bandalagi við leifarnar af fjármálaveldi Sjálfstæðisflokksins.

Hann deili og drottni, skapi ólgu, upplausn, jafnvel aðfarir að lýðræðinu.

 

Næstu vikurnar ætlar Jón að eigna sér forsetaembættið.

Fjölmiðlar hans hafa slegið tóninn.

Urrabíttu var sagt við Sigmar í morgunútvarpinu.

Og hið vanheilagabandalag virkjar sitt fólk líka.

 

Hvort sem það var í pistlum þeirra Styrmis og Björns, eða í hinum hlægilega leiðara Morgunblaðsins, sem fjallaði um túnvölu í fjarlægu landi.

Þá er ljóst að hljóðfærin spila þann tón sem hinn stórgjaldþrota skráði á nótnablað fjölmiðla sinna.

 

Bessastaði skal sigra.

Lýðræðið skal falla.

 

Auði til dýrðar.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Milljarða gjaldþrot og lítið greitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Nei þetta er misskilningur. Það er konan hans sem á allar eignirnar. Hann á sjálfur bara skuldirnar.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.4.2016 kl. 14:23

2 identicon

Þetta er hinn eini sanni Índíánahöfðingi Íslands.

þjóðþekktur á Tortóla.

Höfuðpaur hrunsins og á örugglega heimsmet í að setja fyrirtæki á hausinn!

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 19.4.2016 kl. 14:33

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Já Guðmundur, lífið er misskilningur.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 19.4.2016 kl. 15:57

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Birgir.

Heiðra skal maður söguna, en eigi má gleyma vegsemd nútíðar.

Skuggastjórnandi Íslands, ekki má gleyma þeim titli.

Sem og hinu vanheilaga bandalagi gegn Ólafi, sem vogaði sér að snúast til varnar fyrir embætti sitt.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 19.4.2016 kl. 16:00

5 identicon

Kallinn að austan er kominn í baráttuhug, það líkar mér vel :-)

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 19.4.2016 kl. 17:05

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Nei Pétur minn.

Það er Ólafur sem ákvað að taka slaginn.

Ég á honum skuld að gjalda.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 19.4.2016 kl. 17:10

7 identicon

Það er greinilegt að hnífasettin eru nú víða, samtryggða valdastéttin ætlar að fella Ólaf.

Það er undarlegt að nú skuli Davíð og Steingrímur Joð. dansa laumulega í takt.  

Það hefur alltaf verið undarlega kært með þeim.  ÓRG er þeim báðum þyrnir í augum.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 19.4.2016 kl. 17:26

8 Smámynd: Ómar Geirsson

Davíð??, þarf hann ekki líka sitt salt í grautinn???

Ætli ræturnar séu ekki frekar að rekja til bandanna sem útgefandinn hnýtti við hinn nýja auð. 

Það var sök sér að láta Moggann vera í stjórnarandstöðu við Bjarna, þegar Bjarni var í stjórnarandstöðu, en það er ekki liðið þegar Flokkurinn ræður ríkisstjórninni.

Hins vegar er alltaf gaman að hlusta á múlbundinn bolabít, sem heldur að honum sé ennþá frjálst að gelta.

Eiginlega bara fyndið.

Styrmir er hins vegar sorglegur, hann á að vera vitrari en þetta.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 19.4.2016 kl. 18:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 76
  • Sl. sólarhring: 641
  • Sl. viku: 4160
  • Frá upphafi: 1333534

Annað

  • Innlit í dag: 66
  • Innlit sl. viku: 3522
  • Gestir í dag: 66
  • IP-tölur í dag: 66

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband