Þarft framtak og gott.

En þjónar engum tilgangi ef þjóðin áttar sig ekki á því hvað stefna núverandi ríkisstjórnar er að gera henni.  Samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, ásamt þrælahlekkjum ICEsave, hafa aðeins eina afleiðingu.

Það verður engin sjálfstæð þjóð á Íslandi eftir nokkur ár.  Og ósjálfstæðir þrælar erlends auðvalds hafa ekkert með örlög sín að segja.

Ef þjóðfundurinn krefst ekki uppreisnar gegn Helstefnu Félagshyggjustjórnar Íslands, þá er allt sem frá honum kemur innantómur orðavaðall.

Þegar Bretar stóðu einir eftir gegn ægivaldi Nasismans, þá var þjóðin kölluð til vopna, ekki samráðsfundar.  En að stríði loknu,  þá voru málin rædd og velferðarkerfi nútímans var komið á í kjölfarið, með breiðri sátt allra stjórnmálaflokka landsins.

Þjóð sem ætlar að greiða tæpa 150 milljarða á ári í vexti af erlendum skuldum sínum, mun ekki þrífast.  Fyrst verður velferðarkerfið lagt niður, samhliða því að eigur hennar komast í hendur á erlendu auðvaldi.  Síðan missir hún sjálfstæði sitt.

Það þarf ekki þjóðfund til að skipuleggja þessar hamfarir, en það gæti þurft þjóðfund til að hindra þær.

Núna reynir á af hvaða kyni íslenska þjóðin er, þræla eða frjálsra manna.

Kveðja að austan.


mbl.is Þjóðfundurinn vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 29
  • Sl. sólarhring: 654
  • Sl. viku: 4674
  • Frá upphafi: 1326205

Annað

  • Innlit í dag: 29
  • Innlit sl. viku: 4127
  • Gestir í dag: 29
  • IP-tölur í dag: 24

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband