Maðurinn er fífl

sagði Sigurður Líndal, mjög kurteislega í stuttri grein í Fréttablaðinu, um málflutning Jóns Baldvins Hannibalssonar, í grein hans í Morgunblaðinu fyrir skömmu.

Vissulega sagði Sigurður það ekki berum orðum, notaði nokkrar línur til að rökstyðja fullyrðinguna, þannig að öllum sem lesa er ljóst það álit sem Sigurður hefur á málflutningi Jóns.

Jón Baldvin hefur farið mikinn í að koma skuldahlekkjum á íslenska alþýðu, öfugt við föður hans sem fór mikinn við að tryggja henni mannsæmandi lífskjör, en honum varð það á að birta það opinberlega sem hann hefur hingað til látið sér nægja að birta  á blogginu sínu, sér og nokkrum heittrúuðum Borgunarsinnum til ánægju.  Og það er rógur um valinkunna íslenska fræðimenn í lögfræði, þau Stefán Már Stefánsson, Björg Thorarensen og Herdísi Þorgeirsdóttir.   Það þarf ekki að taka fram að þetta eru allt starfandi prófessorar í dag.

Og slíkt gat Sigurður ekki liðið, og flengdi Jón greyið, svo undan sveið.

Jón hafði ekki vit á að þegja eftir að þeir félagarnir Stefán Már og Lárus Blöndal sýndu fram á að fullyrðingar Jóns um borgunarskyldu íslenskrar alþýðu á skuldum Björgólfs og Björgólfs, vegna meintrar mismunar neyðarlaganna, væru í ætt við röfl vitleysinga og hann hélt áfram sínu meinta bulli í Morgunblaðsgrein skömmu seinna.  En sagði þar að þessir fræðimenn, Stefán, Björg og Herdís, væru að ætt sveitalögfræðinga, sem enginn hlustaði á í borginni miklu við bakka Senne.

Hvað Jón gerir núna er spennandi að sjá.  Hefur hann vit á þegja í þeirri veiku von að fólk gleymi bulluganginum í honum eftir nokkur ár eða svo, eða festir hann sig ennþá meir í forarpytti vitleysunnar.

Ætli Sigurður flengi hann þá ekki aftur???

Kveðja að austan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 960
  • Sl. sólarhring: 972
  • Sl. viku: 2021
  • Frá upphafi: 1322784

Annað

  • Innlit í dag: 827
  • Innlit sl. viku: 1706
  • Gestir í dag: 729
  • IP-tölur í dag: 721

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband