Til hamingju Ísland.

 

Þetta tókst hjá okkur.

Stjórnvöldum bar gæfa til að grípa snöggt inní, og við sem þjóð höfum virt sóttvarnir með þeim árangri að daglegt líf er aftur að komast í eðlilegt horf.

Og munum að ekkert er verðmætara en þetta daglega, hvort sem virðið er metið út frá samfélagslegum sjónarmiðum eða efnahags.

 

Þess vegna ber stjórnvöldum skylda til að tryggja að landamærin haldi, og þau halda ekki nema með tvöfaldri skimun og öruggri sóttkví ferðalanga á milli.

Og heimasóttkví er ekki örugg, það er alltaf einhver misbrestur á henni.

Þess vegna eiga stjórnvöld að tryggja lagagrundvöllinn til að hægt sé að skylda alla í örugga sóttkví þó auðvita megi skoða fleiri kosti en sóttvarnahótel.

Getur þetta ekki bara verið hluti af ferðaþjónustunni í hinum dreifðu byggðum, að bjóða uppá örugga sóttkví í friðsælli náttúru??, svo dæmi sé tekið.

 

En kóvid er ekki búið.

Það er á fullu víða um heim, fjölgun smita í löndum eins og Indlandi og Brasilíu er gróðrarstía stökkbreytinga, aðeins tímaspursmál hvenær vörn núverandi bóluefna brestur.

Og frá Evrópu berast fréttir að breska afbrigðið sé farið að veikja yngra fólk en áður, þetta mátti lesa í frétt frá Þýskalandi í gær;

"Þeir sem hafa lagst inn und­an­farið eru yngri en í fyrri bylgj­um, flest­ir á milli 40 og 60 ára, að sögn Marx. "Þeir þurfa oft að vera í önd­un­ar­vél­um og eiga síðan í langri bar­áttu við eftir­köst Covid-19," sagði Marx í sam­tali við AFP og bætti því við að fjórði hver sjúk­ling­ur sem lagst hafi inn lifi ekki af bar­dag­ann við Covid-19.".

Það er ekkert öruggt fyrr en þjóðin hefur náð hjarðónæmi með bólusetningum, og jafnvel þá þurfum við að passa vel uppá landamærin okkar.

 

Höfum það hugfast næst þegar einhver krakkinn kemur og segir að það eigi að opna landið fyrir ferðalöngum, að það eigi að taka pappíra gilda en ekki örugga sóttkví.

Það er bara ávísun á nýja bylgju.

 

En í dag getum við slakað á.

Boltinn er byrjaður að rúlla, og jú eitthvað annað líka.

Er á meðan er.

 

Njótum.

Kveðja að austan.


mbl.is Ekkert smit greindist innanlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hve augljóslega er drifið mikilvægt í aðalaflvél veiru-varnarinnar,þegar hún nýtur rammíslenskra áminninga. þetta átti að vera eitthvað svo fallegt,en týpiskt trufluð þegar andinn er hvað þakklátastur.kveðja úr Kópó. 

Helga Kristjánsdóttir, 16.4.2021 kl. 14:26

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir innlitið Helga.

Það eru víst einhverjar blikur þarna úti en er á meðan er.

Og njótum því okkar daglega lífs þar til næsti leki á landamærunum hrekur okkur aftur í gin sóttvarnaráðstafana.

Kveðja suður yfir heiðar að austan.

Ómar Geirsson, 16.4.2021 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 286
  • Sl. viku: 1070
  • Frá upphafi: 1321833

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 888
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband