Klofin ríkisstjórn.

 

Viðtalið við Þórdísi Kolbrúnu sem vitnað er í þessari frétt, útskýrir nákvæmlega af hverju ekki er stoppað í lekann á landamærunum.

 

Sjálfstæðisflokkurinn er klofinn í herðar niður, hluti hans samsinnar sig við hægriöfga fólk víðsvegar um heiminn, sem hefur frá fyrsta degi barist fyrir frelsi veirunnar til að sýkja, til að veikla, til að drepa, rökin eru meint borgarleg réttindi einstaklingsins til að fá að fara sínu fram óháð almanna hag.

Úrkynjun sem lífsbarátta þjóðanna hefur aldrei liðið því slíkt er alltaf ávísun á beinan ósigur, þess vegna eru sett á herlög á stríðstímum, og sá sem hlýðir ekki, taldist heppinn með að sleppa við að vera skotinn.

Sem reyndi sjálfsagt lítið á, eða halda menn að það hafi fundist svo heimskur Breti sem kvað það borgaraleg réttindi sín að hafa kveikt ljós á nóttunni, þó slík ljós væru leiðarljós þýskra sprengjuflugvéla til að finna skotmörk sín??

Að sjálfsögðu ekki, fólk gefur eftir slík réttindi á neyðartímum.

 

Í dag hins vegar er fullt að fólki, hægrisinnað í bland við anarkista, sem berst fyrir frelsi veirunnar til að drepa náungann, það afneitar staðreyndum, rífst við raunveruleikann, er í raun litlu betra en fjöldamorðingjarnir sem í nafni meintra hugsjóna sprengja á almannavettvangi eða í nafni tómhyggju og tilgangsleysis, mæta vopnaðir í skóla og skjóta samnemendur sína.

Nema í gjörvallri hryðjuverka og morðingjasögu heimsins, hafa slíkir klikkhausar ekki náð að drepa eins marga og þetta hægrisinnaða öfgafólk hefur náð með baráttu sinni fyrir frelsi veirunnar til að drepa, þess réttlæting að fórnarlömbin séu hvort sem er í eldri kantinum, og myndu deyja hvort sem er.

 

Þetta er fólkið sem klýfur Sjálfstæðisflokkinn.

Þetta er fólkið sem skýrir tregðu ríkisstjórnirnar til að loka landamærunum með sóttkví sem heldur.

 

Rök þess eru fals, eins og til dæmis að þetta sé eins og hver önnur illvíg kvefpest svo ég vitni í fræg orð Sigríðar Andersen, eða að "að veiru­frít land sé út­ópía" líkt og Þórdís Kolbrún lætur hafa eftir sér.

Samt veit hún að það eru lönd sem hafa náð að verja landamæri sín líkt og Nýja Sjáland og Taiwan, að ekki sé minnst á Kína, fjölmennasta land heims og það fjórða að flatarmáli.

 

Sem og að hún veit að á meginlandi Evrópu eru ríki meira og minna lokuð vegna sóttvarna, flest frá því í haust, því samfélagsleg smit voru ekki kæfð í upphafi, heldur leyft að grafa um sig þar til það eina sem dugði var að loka á mest allt mannlíf.

Og hún ætti að vita að síðla sumars og fram eftir hausti var reynt að hemja faraldurinn með smitrakningu og sóttkví, þar til eina ráðið var að loka og læsa, og sú lokun stóð yfir hátt í þrjá mánuði.

 

Í dag eru þrjár vikur undir, ásamt tillögum að hertum aðgerðum á landamærunum.

Samt er böðlast gegn því, og klofningurinn innan ríkisstjórnarinnar gerður opinber.

 

Opinberar að grimm hagsmunaöfl vinna gegn þjóðinni, eru í raun þjóðarvá.

Þetta hefur alltaf verið vitað, en á meðan það er ekki opinbert, þá hefur formlega verið hægt að neita því að helsta ógn við velsæld og velferð þjóðarinnar sé innan sjálfrar ríkisstjórnarinnar.

 

Í djókríki, í Grínlandi er svona liðið.

En ekki hjá alvöru þjóðum.

 

Það stýrir enginn ríkisstjórn þar sem innanborðs eru ráðherrar sem í besta falli er hægt að segja um að séu mjög heimskir, því ef menn trúa sínum eigin orðum, fölsunum og blekkingum, þá er ekkert annað sem getur skýrt slíkan málflutning.

Sem er auðvitað ekki tilfellið, það er annað sem býr að baki.

Það slæmt að það gerir venjulegan heiðarlegan hryðjuverkamann að hvítþvegnum engil.

 

Viðtalið við Þórdísi Kolbrúnu eru vatnaskil ríkisstjórnarinnar.

Líði Bjarni Benediktsson það, þá er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn er óstjórntækur.

Hann er í raun þjóðarvá.

Vinnur gegn allri viðleitni þjóðarinnar við að verjast veirunni.

 

Að djóka sig frá þessu er ekki í boði.

Það er vanvirðing gagnvart þjóðinni og fórnir hennar.

Annað hvort er Þórdís vikið, eða ríkisstjórnin víkur.

Hvað þetta varðar á Katrín ekkert val.

 

En auðvitað gerir hún ekkert.

Grettir sig kannski í viðtali á morgun, verður hún spurð.

Lafhræddur Bjarni við hægri öfgana innan síns eigin flokks, mun bulla eitthvað líkt og hann gerði þegar hann reyndi að verja þá ákvörðun dómsmálaráðherra að auðvelda veirunni að sleppa í gegnum varnirnar á landamærunum.

Sigurður Ingi mun þegja, hann kann svo sem fátt annað.

 

Þannig er Ísland í dag.

Við erum þjóð sem getum ekki einu sinni tekið dauðans alvöru alvarlega, ekki þegar kemur að stjórnun landsins.

Þess vegna gafst stjórnmálastéttin upp fyrir fjárkúgun breta, þess vegna var þjóðin svikin í tryggðum í orkupakkamálinu.

Þess vegna eigum við í hjáleigusambandi við Brussel, lútum lögum þess og reglum í einu og öllu, allt sjálfstæði í lagasetningu löngu horfið.

Allt í þágu stórfyrirtækja og stóreignamanna.

 

Það er bara svo.

En það á ekki að vera svo.

Ekki ef við sem þjóð höfum snefil af sjálfsvirðingu.

 

En það er með þennan snefil.

Hann er stundum vandfundinn.

 

En þar er sökin ekki stjórnmálamannanna.

Það eitt er víst.

Kveðja að austan.


mbl.is Gagnrýnir sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Gunnar Rognvaldsson lysir thessu best...

Ég get upplýst lesendur hér um, að þarna er Evrópusambandinu rétt lýst. Ef horft er fast í andlit þessa fólks þá sjást heiladordinglar skíðandi fram og til baka á bak við annað auga og yfir í hitt, og að á bak við þau bæði er ekkert annað en gamlir köngulóarvefir. Það sama sést þegar horft í augu ríkisstjórnar Íslands í þessum efnum og hið sama sést þegar horft er í augu fylgismanna sambandsins og EES hér á Íslandi eins og úti. Þar inni er ekkert annað en einmitt þetta. Helber skríðandi heimska sem drepur fólk og eyðileggur lönd og ríki þess

1. Evrópusambandið hefur eyðilagt stjórnmálin í Evrópu

2. Evrópusambandið hefur eyðilagt sambúð ríkja í Evrópu

3. Evrópusambandið hefur eyðilagt efnahag ríkja Evrópu

4. Evrópusambandið hefur stórskaðað menningu ríkja Evrópu

5. Evrópusambandið er að eyðieggja friðinn í álfunni

6. Stofnmarkmið og tilgangur Evrópusambandsins var aldrei annar en valdarán og þjófnaður.

Og hans lysing a rikisstjorninni virdist thvi midur vera sonn...

1. Við erum með einn heilbrigðisráðherra sem enn er því sem næst þvottaheldur gamall Sovét-kommi, 30 árum eftir hrun Sovétríkjanna

2. Við erum með einn ráðherra sem er eins konar Hamborgaraofstækisáðherra með löngu nafni og sem virðist vera eineygð

3. Við erum með dómsmálaráðherra sem er eins konar MeToo dúkkulísa, án vits og ára

4. Og við erum með sjálfan Bjarna Ben formann xD sem er eins konar bimbó-haldari og ætti í reynd að vinna við afgreiðslu í banka eða á bílasölu, þar sem hann myndi njóta sín og vegna vel

5. Og við erum með forsætisráðherra sem er einfeldningur og krónískur miðstjórnarkommi, græn að utan en rauð að innan. Einu landvarnirnar sem hún þekkir eru getnaðarvarnir og fóstureyðingar

 

Thetta segir bara allt.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 31.3.2021 kl. 07:23

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Já, Gunnar getur verið napur, menn er hvað sárastir þegar þeirra eigið fólk bregst.

Þá er náttúrulega að skamma þá.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 31.3.2021 kl. 08:16

3 Smámynd: Ragna Birgisdóttir

Sæll Ómar.!

Já!.Hvernig á kona eins og Þórdís sem er meðlimur í glæpasamtökum að fara eftir lög og reglum? Hún braut sjálf sóttvarnarreglur,ekki sú eina í ráðherrahóp Sjalla,þegar að hún fór á djammið með vinkonum sínum.Þetta fólk er algjörlega blindað á sig og sinn flokk í því að gera bara nákvæmlega sem þeim hentar og komast upp með það enda vant því að fá allt sitt í gegn þótt engir aðrir megi það. Þetta er gjörsamlega glórulaust ástand hér í hinni íslensku rotnu pólitík.

Ragna Birgisdóttir, 31.3.2021 kl. 11:06

4 Smámynd: Hrossabrestur

Sæll Ómar

það er kannski að koma á daginn að vandamálið í sóttvörnum sé ríkisstjórnin sjálf,

ef það er einhver kengur í stjórnarandstöðunni þá ætti Alþingi að taka þessi mál í sínar hendur

og brýna fyrir börnunum að svona gerir maður ekki.

kv hrossabrestur.

Hrossabrestur, 31.3.2021 kl. 13:07

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Hvað segirðu Hrossabrestur, er stjórnarandstaða hérna?

Mér þykir þú segja fréttir.

En aumingjaskapur samtímans kristallast í orðum Katrínar í viðtalinu hér á Mbl.is.

Katrín er að verja sig og stefnu sína, í stað þess að ávíta ráðherrann formlega, eða það sem rétt er, krefjast afsagnar hans.

Gagnrýni Þórdísar er án raka, ályktanir hennar lýsa heimsku.

Og forsætisráðherra ber blak af stefnu sinni.

Uppáhaldsfrasi minn í dag; kanntu annan betri.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 31.3.2021 kl. 21:00

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Ragna.

Það er sterkt að orði komist hjá þér.

Veit ekki, fyrir miðjumann eins og mig sem hefur oftar en hitt hallað mér vinstra megin við miðjuna, varð það mikið áfall hvernig ríkisstjórn Jóhönnu hagaði sér eftir Hrun.

Fáheyrð svívirða í gjörvallri stjórnmálasögu vestrænna landa.

Þannig að ég sé ekki alveg hlutina svona svarthvítt í dag allavega, borgaralegir íhaldsflokkar eru eins og þeir eru, eru sprottnir út úr elítu auðs og valda, en margt gott hafa þeir gert gott í gegnu tíðina og ekkert sjálfgefið að þeir sem eru á móti þeim komi einhverju betur í verk.

Í heildina séð tel ég þessa ríkisstjórn hafa verið til gæfu fyrir þjóðina á þessum örlagatímum, bæði varðandi viðbrögð við faraldrinum, sem og hvernig hún hefur tekist á við efnahagslegar afleiðingar hans.

Ekki að það megi ekki gera betur, það er alltaf hægt, en það er hægt að gera miklu verr eða klúðra hlutunum algjörlega.

Þannig að já, ég held að Þórdís sé ekki á pari við meirihluta Sjálfstæðisflokksins, og hún er ekki vel gefin, þetta viðtal afhjúpar það algjörlega, en hún var svo sem búin að því í orkupakkaumræðunni.

En það að hún skuli komast upp með að tjá sig heimska á opinberum vettvangi er hins vegar mikið veikleikamerki núverandi ríkisstjórnar, sem er miður því að mínu dómi er hún það skásta sem er í boði miðað við núverandi skipan Alþingis.

Það langskásta ef út í það er farið, þess vegna er sorglegt að sjá metnaðarleysi Sjálfstæðisflokksins í mönnun hennar.

Af sem áður var.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 31.3.2021 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 159
  • Sl. sólarhring: 160
  • Sl. viku: 1153
  • Frá upphafi: 1321705

Annað

  • Innlit í dag: 110
  • Innlit sl. viku: 943
  • Gestir í dag: 109
  • IP-tölur í dag: 108

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband