Athugasemdir

1 identicon

Það á að keyra þetta í gegn, Það er stríðsyfirlýsing við yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar.  Það þýðir að stjórnvöld lýsa yfir stríði við alla flokka, það þýðir niðurbrot þeirra.  Allir þeir sem vilja verja sjálfstæði og fullveldi lands og þjóðar eigs nú einungis einn valkost:  Mynda þverpólitískan flokk sjálfstæðissinna til varnar landi og lífi þjóðar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.5.2019 kl. 10:37

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Nú tekur þú sterkt til orða Símon Pétur,.

Þriðjungur þjóðarinnar er á þessari línu, og frjálshyggjuflokkarnir þrír heilshugar að baki.

En gamla góða þjóðlega íhaldið okkar í VG, Framsókn og Sjálfstæðisflokknum er munaðarlaust eftir þessa samþykkt.

Sumt er ekki hægt að svíkja, og ef það er svikið, þá áttu ekki samleið.

En hvort gömlu mennirnir hafi kjarkinn til að stíga það skref er önnur saga.

Kannski býr einhver Churchil í þeim, sjáum til.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 13.5.2019 kl. 11:44

3 identicon

Þeirra er kvölin, eða völin.

Að liggja vælandi út í horni,

eða sameinast í leiftursókn

undir einum gunnfána sjálfstæðissinna

til varnar fullveldi lands og lífi þjóðar.

Það er að gera hið eina rétta og að vilja

yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar.

Eina sem nú vantar, er að velja hið rétta

en láta kvölina lönd og leið.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.5.2019 kl. 12:18

4 identicon

Sælir - Ómar og Símon Pétur frá Hákoti / sem og aðrir gestir, Ómars !

Tek undir: með ykkur báðum, ......................... keyri HEIMSKIR og GRÁÐUGIR þingmenn þessa þvælu (III. Orkupakkann) í gegn, og fái skraut Fuglinn á Bessastöðum (Guðna Th. Jóhannesson) til þess að samþykkja þennan óskapnað kallar það jú á 1 / FULLKOMIÐ STRÍÐ almennings gagnvart alþingi og Engeyinga plágunni, Ómar.

Við getum ekki - PERSÓNULEGA:: látið það spyrjast til okkar afkomenda, hinna síðari tíma, að hafa EKKERT aðhafst, til þess að sporna við þeim hryðjuverkum, sem fámenn glæpaklíka suður í Reykjavík hyggst fara af stað með, á næstu dögum, piltar !

Svo einfalt - er það / horfandi til hagsmuna, komandi alda fólksins ! ! !

Með beztu kveðjum: að venju, austur í fjörðu /

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.5.2019 kl. 12:20

5 identicon

.... verðskulda Íslendingar: hina óþrjótandi vináttu Rússa við þá (Íslendinga), í gegnum aldirnar ? ? ?

200 míl­ur | mbl | 13.5.2019 | 12:01

Samið um fisk­veiðar við Rúss­land

Formenn samninganefnda Rússlands og Íslands, S. Simakov og Jóhann Guðmundsson.

For­menn samn­inga­nefnda Rúss­lands og Íslands, S. Sima­kov og Jó­hann Guðmunds­son. Ljós­mynd/​At­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneytið

 

Fundað var í Moskvu í síðustu viku í fisk­veiðinefnd Íslands og Rúss­lands um fisk­veiðisamn­ing fyr­ir árið 2019, svo­nefnd­an „Smugu­samn­ing“, sem í þessu til­viki snýst um þorskveiðar Íslands í rúss­neska hluta Bar­ents­hafs­ins. Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu frá at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneyt­inu.

Þar seg­ir að samn­ing­ar hafi tek­ist á milli þjóðanna. „Samn­ing­ur­inn fel­ur í sér að ís­lensk fiski­skip gefa veitt 6.592 tonn af þorski í rúss­neska hluta Bar­ents­hafs­ins 2019 auk allt að 1.978 tonna af öðrum teg­und­um, en þar af get­ur þó ýsu­afli aldrei orðið meiri en 521 tonn. Jafn­framt var samið um svo­kallaðan sölu­kvóta sem er um það bil þriðjung­ur af því magni sem nefnt var hér að fram­an.“

Rúss­nesk fiski­skip fái á móti 1.500 tonn af mak­ríl og 2.000 tonn af kol­munna frá Íslandi sem þau geti veitt á alþjóðlegu hafsvæði. Þess­ar afla­heim­ild­ir séu tekn­ar af þeim heild­arafla sem Ísland hafi ákveðið í þess­um tveim­ur fisk­teg­und­um.

Formaður ís­lensku samn­inga­nefnd­ar­inn­ar var Jó­hann Guðmunds­son, skrif­stofu­stjóri í at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneyt­inu, en formaður rúss­nesku sendi­nefnd­ar­inn­ar var S. Sima­kov, yf­ir­maður alþjóðamála hjá Sjáv­ar­út­vegs­stofn­un Rúss­lands.

 

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.5.2019 kl. 12:46

6 identicon

Þingmenn sem ætla að keyra innleiðingu OP3 í gegn með hraði

eru eins og þjófar að næturlagi.  Ræflar sem þora ekki að taka slaginn.  Gungur og druslur.

Þeir sem hanga sem hengilmænur áfram í flokkum þeirra, verða þá kenndir við þá.

Þeir eiga völina að gera hið rétta, að mynda samsteypuflokk heiðvirðra sjálfstæðissinna.

Allt annað er kvak í horni þjófanna. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.5.2019 kl. 12:47

7 identicon

Sæll Ómar

Svona einfalt er þetta:  Sátt, eða stríð.

Sáttin getur ekki verið í boði, þar sem þingmenn flokkanna kasta stríðshanska að almenningi landsins.  Brotavilji þingmanna flokkanna er algjör. Þá hlýtur eina ráðið að vera, að hópurinn að baki Orkunnar okkar myndi stjórnmálaafl, flokk sem myndi koma sterkur til þess stríðs sem framundan er.  Það er ekki bara OP3, OP4 og OP5 eru á næsta leiti og það eru engir friðarpakkar, heldur stríðspakkar gegn fullveldinu. 

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 13.5.2019 kl. 13:29

8 identicon

Upphafsorð Bjarna Jónssonar, rafmagnsverkfræðings, í nýjasta pistli hans,

Er einhver kostur við #OP3 og #OP4 í sjónmáli fyrir Ísland, eru þessi:

Það er alveg ljóst, að eftir samþykkt Alþingis á Orkupakka #3 mun fljótlega hefjast umræða um OP#4. 

Það er þannig útilokað, að orkupakkaumræða verði ekki við lýði, þegar líður að næstu þingkosningum. 

Sá hlær bezt, sem síðast hlær. 

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 13.5.2019 kl. 14:37

9 Smámynd: Júlíus Valsson

Það skemmtilega er, að í næstu þingkosningum verður EES-samningurinn og tilheyrandi framtíðar-orkupakkar lagðir undir. Þetta er rétt að byrja. 

Júlíus Valsson, 13.5.2019 kl. 15:22

10 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Símon Pétur.

Betur líst mér á orðalagið yfirgnæfandi hluti þjóðarinnar, það heldur til haga að meðal vor er fólk sem selur land sitt og þjóð fyrir hálfan silfurpening eða þaðan af minna.  Svo eru ákaflega margir mjög hrifnir af slíku athæfi, og segjast sumir að þeir myndu gera þetta ekki fyrir neitt.

En bíðum og sjáum, það er ennþá von um sátt, annars hefur þetta lið ekkert lært.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 13.5.2019 kl. 15:32

11 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Óskar.

Guðni er ágætur í að heimsækja börn og aðra velmeinandi, skaðar ekki hans glæsilega frú.

En skömmum hann samt í hófi í þessu máli, varnagli var sleginn af landsölufólki að hafa landráðin í formi þingsályktunartillögu svo Guðni þarf ekki að skrifa undir.

Guðni leynir nefnilega á sér.

Og hefur vaxið mjög frá fyrsta degi í embætti.

En hve stór hann er orðinn, hefur ekki enn reynt á.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 13.5.2019 kl. 15:36

12 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Símon Pétur þriðji.

Það er mikið lagt í ef sótt er í orðaforða Steingríms Joð þegar honum er mikið niður fyrir.

Ekki að hann kunni kjarnyrt mál hér á árum áður svo eftir var tekið.

En slökum okkur, Írar unnu ekki orrustu í rúm 300 ár með svona æsingi.

Þeir héldu kannski æru sinni, en engu öðru.

Kveðja að austan.

 

 

 

Ómar Geirsson, 13.5.2019 kl. 15:39

13 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Pétur Örn.

Vissulega er brotaviljinn algjör ef marka má það sem barnið segir sem virðist ekki hafa þroska til að átta sig á alvarleik málsins.

En ég trúi því að fullorðið fólk sé þarna líka og það átti sig á alvarleikanum.

En hins vegar græt ég ekki þá stöðu að EES samningurinn sé undir.

En því miður held ég að orkupakka 4 til hins óendanlega því hvenær hættir skrifræðið??, verði ekki stríðspakkar á fullveldið því þú ræðst ekki á það sem er farið.

Stríðið er núna, ekki seinna.

Í þessum pakka yfirtekur regluveldið okkur og hagar málum í samráði við einkaframtakið, ekki þjóðina.

Ég veit að þú veist það, en margur sem í hjarta sínu er á móti, en segir já út af flokkstryggði eða vegna þess að hann er átakafælinn, segir, tökum slaginn seinna.

Það er bara ekki í boði.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 13.5.2019 kl. 15:52

14 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Júlíus.

Auðvitað losnar stjórnmálastéttin ekki við þessa umræðu, en þegar hún er næstum því öll á einu máli, þá er valkostur óánægjunnar enginn.

Hvort sem okkur líkar betur eða verr, þá verðum við andstæðingar hjálendu stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu að íhuga þessi orð mín sem komu í fyrsta bloggpistli dagsins;

"Það má vera að peningarnir nái sínu í gegn á þingi í vor, en það verður þeirra Pyrrhosarsigur.

Því sá sigur vinnst á rústum hinna borgaralegu flokka, og rústum þeirra mun myndast afl sem mun endurheimta sjálfstæðið, forræðið og almenning.

Að sverfa til stáls gegn þjóð sem er að vakna af dvala og lýtur leiðsögn fullorðins fólks, er ekki skynsamlegt, krakkaherinn og einfeldningarnir munu lítið hafa í hana að gera.

Og viðrini góða fólksins hafa aðeins vægi á meðan þjóðin sefur.".

Ætli Frosti endi bara ekki sem forsætisráðherra í ráðuneyti þar sem meðalaldur verður um og yfir sjötugt.

Sjáum til, það er núna eða bless Ísland.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 13.5.2019 kl. 15:57

15 identicon

Sammála því að flokkstryggðin er hér allt lifandi að drepa.  Og einnig að baráttan er núna.  Og henni er ekki lokið.  Hún er rétt að byrja.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 13.5.2019 kl. 16:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 116
  • Sl. sólarhring: 1039
  • Sl. viku: 2129
  • Frá upphafi: 1322929

Annað

  • Innlit í dag: 103
  • Innlit sl. viku: 1806
  • Gestir í dag: 102
  • IP-tölur í dag: 102

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband