Auðurinn á ekki nógu mikið.

 

Þó hann eigi milljarða, stjórnmálamenn og fjölmiðla, þá gleymdist að gefa auðnum Ruv.

Eiginlega allt annað fór inní risastóru viðskiptablokkirnar í árdaga Hrunsins, og féll allt eins og spilaborg, nema að spilaborg var aldrei svo fallvölt eins og hin risastóru fyrirtæki útrásarvíkinganna.

 

Nú öskra þjónar auðsins á að Ruv víki, svo þeir geti átt allt.

En af hverju látum við þá komast upp með öskur sín??

 

Viljum við fara aftur á hausinn?

Viljum við að arftakar Baugs og Jóns eigi alla fjölmiðla??

Viljum við að 25% fólkið ráði öllu??

 

Svarið við því síðast nefnda er á ábyrgð VinstriGrænna.

Hverju á að fórna fyrir forsætisráðuneytið??

 

Æran var þegar seld.

En hvað um restina??

Kveðja að austan.


mbl.is Ríkisútvarpið „fíllinn í stofunni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

„Við eig­um að búa til hér um­hverfi þar sem sjálf­stæðir fjöl­miðlar ná að festa ræt­ur þannig þeir geti sinnt sínu hlut­verki"  Óli Björn Kárason þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Alþingi í dag. 

Og hvaða hlutverki skyldu þeir eiga að sinna????

thin (IP-tala skráð) 25.1.2018 kl. 17:13

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður thin.

Eitthvað svipað hugsaði ég þegar ég las þessa frétt, en pistillinn var eiginlega saminn á innönduninni, ég þurfti að hespa hann af vegna ákveðins bráðatilfellis.

Þá dúkkar þú upp, og orðar hugsanir mínar.

Við höfum gengið í gegnum súrt og sætt, oftar ósammála en hitt.

Það er í den.

En hafðu mikla þökk fyrir að kíkja við núna.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 25.1.2018 kl. 18:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1218
  • Sl. sólarhring: 1484
  • Sl. viku: 3231
  • Frá upphafi: 1324031

Annað

  • Innlit í dag: 1119
  • Innlit sl. viku: 2822
  • Gestir í dag: 1021
  • IP-tölur í dag: 985

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband