Hvers vegna flýja Sjálfstæðismenn flokkinn??

 

Á því eru margar skýringar, ein er sú að flokkurinn hefur aldrei axlað ábyrgð á gjörðum sínum fyrir Hrun, og neitað fórnarlömbum þeirrar stefnu, almenningi, um réttlæti eftir Hrun.  

Það var Sjálfsstæðisflokkurinn sem fékk AGS til landsins, það var Sjálfstæðisflokkurinn sem stóð vörð um verðtrygginguna.  

Eða réttara sagt það voru öfl innan Sjálfstæðisflokksins sem knúðu fram þetta ábyrgðarleysi, og það siðleysi að reyna ekki að bæta úr þeim skaða sem flokkurinn sannarlega bar ábyrgð á með því að leyfa örfáum mönnum að setja efnahagslífið á hliðina.  

Þennan kulda, þetta siðleysi, tók ég fyrir í bloggpistli þann 20.06 2011 þar sem Pétur Blöndal hafði eitthvað pirrað mig með lýðskrumi sínu um að verðtryggingin væri vörn fyrir lífeyri gamla fólksins.  

Pistillinn heitir Ef Pétur hefði eitthvað til málanna að leggja og kemur hér óstyttur.  Tilefnið er að hann var ræðukóngur Alþingis þingið þar á undan.

Ef Pétur hefði eitthvað jákvætt til málanna að leggja, það er eitthvað jákvætt, þá væri hið besta mál að hann talaði út i eitt.
 
En sannleikurinn er sá að það er leitun af meiri ógæfumanni meðal íslenskra stjórnmálamanna síðastliðin 800 ár en Pétri Blöndal.
 
 
Pétur Blöndal tók að sér í verktöku fyrir Baug og Hannes Smárason að eyðileggja sparisjóðskerfið þar sem hápunkturinn var aðförin að Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis.  
 
Óhætt er að fullyrða að samlögð hreyfing kommúnista og sósíalista hafi ekki valdið flokksbundnum Sjálfstæðismönnum meira tjóni en Pétur Blöndal enda launa þeir honum vel með góðu árangri í prófkjörum.
 
Þvílík er snilld mannsins.
 
 
En það var fyrst eftir Hrun sem ógæfuferill Péturs Blöndals náði nýjum hæðum.  Og ennþá var það þjónkun stóreignamenn og fjármagn sem réði för.
 
Bólupeninga átti að verja með öllum ráðum.
 
 
Á fyrstu dögum Hrunsins var þjóðin opin fyrir skynsamlegri hugsun og tillögun sem miðuðu að því að endurreisa hagkerfið og lágmarka þjáningar almennings.  Bar þar hæst tillögur ungra hagfræðinga, þeirra Jóns Daníelssonar og Gylfa Zoega, og ásamt hugmyndum Lilju Mósesdóttur um hvernig átti að tækla krónubréfavandann, voru komnar raunhæfar hugmyndir um leiðir sem hefði virkað, án þess að almenningur og fyrirtæki yrðu blóðmjólkuð.
 
Eitthvað sem fjármagnið mátti sér ekki hugsa.
 
 
Í áróðursherferðinni sem for að stað komu fyrir nöfn eins og Edda Rós Karlsdóttir, Vilhjálmur Egilsson, Gylfi forseti, Eurokratar, hagfræðingarnir sem dásömuðu útrásina, og Pétur Blöndal.  
 
Pétur var mjög áberandi í Silfri Egils, sem og í Kastljósi, þar sem hann sagði tifandi röddu, "við þurfum að hugsa um verðbólguna", eins og verðbólga væri vandi í þeim alvarlega samdrætti sem blasti við.
 
Hann kæfði líka hugmyndir Gylfa og Jóns þegar þeir komu fyrir efnahags og viðskiptanefnd og útskýrðu hvernig hægt væri að leysa skuldamál heimilanna án þess að fólk hrökklaðist af heimilum sínum.
 
Pétri til betrunar var að hann var ekki einn í þessum hráskinsleik en hann gegndi burðarhlutverki því margir skynsemismenn eru í Sjálfstæðisflokknum, og líka margir menn sem vilja koma fólki í neyð til hjálpar, og það var lýðskrum Péturs og hálfvitarök sem kæfði þessar raddir.
 
 
En hápunkturinn, það er til þessa, á hans ömurlega stjórnmálaferli, var þegar hann umventi stefnu Sjálfstæðisflokksins gagnvart skuldamálum heimilanna á haustþinginu 2010.  Og fékk flokkinn til að styðja ótillögur ríkisstjórnarinnar, tillögur sem engu hafa skilað, og enginn kannast við í dag.
 
Í stjórnarandstöðunni hafði fólk fengið vægi í flokknum.  Fólk sem vildi gera eitthvað raunhæft fyrir almenning í landinu.
 
Þar í fararbroddi var Kristján Þór Júlíusson, sem skrifað tímamótagrein um skuldavanda heimilanna, og leiðir til úrbóta, í Morgunblaðið 5. mars 2010.  Þar tók Kristján undir hugmyndir Hagsmunasamtaka Heimilanna með rökum sem allir skyldu, og á þann hátt að fólk skyldi hinar alvarlegu afleiðingar ef óréttlætið við að Hrunskuldir útrásarinnar lentu óbættar á almenning.

 

"Þær efnahagslegu hamfarir sem hér hafa riðið yfir hljóta að kalla fram samfélagsleg viðbrögð með álíka hætti og Viðlagatrygging bætir tjón af náttúruhamförum. Fjármagnseigendur hafa flestir fengið nokkrar bætur að frumkvæði stjórnvalda, með framlögum úr ríkissjóði inn í peningamarkaðssjóði og yfirlýsingu um tryggingu innstæðna í bönkum og sparisjóðum. Það örlæti bera allir skattgreiðendur landsins hvort heldur þeir skulda meira eða minna.

Ég vil hér nefna nokkur atriði sem brýnt er að tekin verði afstaða til: Neyðarlög verði sett um frystingu vísitölu neysluverðs til verðtryggingar lána við upphafsgildi fyrir kreppu. Til greina ætti að koma að miða við vísitölu neysluverðs 1. mars 2008. Innleiðing nýrrar vísitölu húsnæðislána. Ný vísitala sem speglar verðþróun fasteigna – til hækkunar og lækkunar – þarf að taka við og vera byggð á virkum viðskiptum á fasteignamarkaði. ........Útfæra þarf heimildir Íbúðalánasjóðs til að skuldbreyta hluta af veðlánum og fara með þau sem tímabundinn eignarhluta, án þess að til eigendaskipta eða nauðungarsölu þurfi að koma. .......

Löngu er kominn tími til að brugðist verði við kröfum um úrbætur fyrir yfirskuldsett heimili landsins og tugþúsundum Íslendinga þannig gefnar vonir um að þeir geti áfram verið fullgildir einstaklingar í þjóðfélaginu. "

 
Allt mikið rétt og stærsti flokkur þjóðarinnar gerði skynsemina og mannúðina að sínu. 
 
 
En eins og segir í kvæðinu "og þá kom Pétur á ferð" og í svæsinni áróðursherferð Hrunverja haustið 2010 þá tókst þeim að breyta stefnu flokksins.  
 
Þegar þúsundir  Íslendinga fór niður á Austurvöll til að heimta réttlæti í skuldamálum, þá náði Össur Skarphéðinsson að bjarga ríkisstjórn sinni með kænsku sinni og innsæi.  Tími var keyptur með því að lofa aðgerðum eftir Helgi, Hagsmunasamtök heimilanna voru plötuð í málamynaviðræður, og stuðningur Sjálfstæðisflokksins var tryggður við ótillögur sem engu hafa skilað svo ég vitni í formann Sjálfstæðisflokksins í nýlegu viðtali í Morgunblaðinu. 
 
Formaðurinn gleymdi að það var stuðningur hans sem réði framgang þessarar ótillagna, en hugmyndafræðingurinn af ógæfustefnubreytingu flokksins var Pétur Blöndal.
 
Frá honum komu rökin, frá honum kom lýðskrumið sem hinir auðtrúuðu flokksmenn gleyptu við.
 
Þó er flest fórnarlömb Hrunsins í kjósendahópi flokksins svo óhætt er að segja að mikil snilld liggur að baki stefnubreytinguni.
 
Þá snilld á Pétur Blöndal sammerkt með mörgum öðrum ógæfumönnum í pólitík.  En við sitjum vissulega aðeins uppi með skuldagúlag.
 
 
Af hverju er ég að skrifa þennan harðorða pistil um þingmann stjórnarandstöðunnar????
 
Jú afleiðingarnar af ömurleika hans eru svo miklar fyrir þjóðina, því flokkurinn sem gæti fellt ríkisstjórnina, og hafið raunhæfa endurreisn, er í gíslingu Hrunverja og þeirra helsti lýðskrumsvinnumaður er Pétur Blöndal.  
 
Krisján orðaði vel afleiðingarnar af núverandi ómennsku og það er alltílagi að rifja þau orð upp. 
 
"Við þessar aðstæður fjarar hratt undan bæði greiðslugetu og greiðsluvilja fólks. Það sem mestu skiptir þó er að tiltrú almennings á að sigrast á vandanum fjarar sömuleiðis hratt út. Óbreytt ástand mun skaða hagsmuni allrar þjóðarinnar."
 
Við erum að sjá afleiðingarnar, það er ekkert að gerast í þjóðfélaginu, og það fjarar hratt undan efnahagnum.  Það er ekki hægt að koma saman kjarasamningum á raunhæfum forsendum. Ríkissjóður þarf að skera niður ennþá meira en áætlað var vegna þess að afkoma hans er verri en áætlanir segja til um.   Verðbólgan er komin af stað og þar með hækka lánin og vanskil aukast.
 
Frekari vanskil og afskriftir munu gera Landsbankann gjaldþrota var haft eftir deildarstjóra í bankanum í Speglinum nýlega.
 
 
Við erum nefnilega stödd í vítahring þar sem allt liggur niður á við.
 
Ábyrgð þeirra sem hindruðu raunhæfar leiðir til bjargar almenningi og fyrirtækjum er því mikil. Í raun glæpsamleg því þeir hafa valdið svo mörgum miklum þjáningum.
 
Og það er glæpsamlegt að eyðileggja þjóð sína.
 
 
Vissulega trúa hinir auðtrúuðu stuðningsmenn Sjálstæðisflokksins að þetta er allt "helv." vinstri stjórninn að kenna og það eina sem þurfi er að virkja.  Og virkja.  Að þetta sé bara spurning um kanínuna í töfrahattinum.
 
En raunveruleikinn er sá að núverandi stjórn væri löngu farin frá, ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði stutt þjóðina í þeim málum sem ríkisstjórnin hefur herjað gegn henni.  Stjórnin er krafltlaus og getulaus, en hún er að framfylgja stefnu AGS í þágu fjármagns og Hrunverja.
 
Stefnu sem er stefna Sjálfstæðisflokksins.
 
Og stórframkvæmdir, fjármagnaðar fyrir erlent lánsfé, af hálfgjaldþrota orkufyrirtækjum, á prísum sem mun aðeins leiða til gjaldþrota í verktakageiranum, ofan á fyrri gjaldþrot vegna stóriðjuframkvæmda, munu ekki leysa málin, aðeins auka hann.
 
Því mínus plúss mínus, er ennþá meiri mínus.  Ekki plúss.
 
 
Og miðað við það að hinir auðtrúuðu er uppistaðan í fórnarlömbum ómennskunnar, þá ættu þeir að taka sig til og vakna, og læra að þekkja muninn á fólki og mönnum eins og Pétri Blöndal.
 
Og þeir ættu að lesa sér til um sjálfstæðisstefnuna, uppruna hennar og framkvæmd á liðnum árum.
 
Níðingsháttur gagnvart skuldsettum almenningi, rán á eignum millistéttarinnar og öll sú ómennska og spilling sem hér hefur tíðkast frá Hruni, kemur ekki fyrir í þeirri sögu.
 
Það er aðeins í dag sem það er.
 
 
Hvort svona pistill fái einhverja til að vekja menn er önnur saga.  
 
En það mátti reyna og ekki var ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur.
 
Kveðja að austan.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Las þetta Ómar og er víða sammála þarna,ég allavega seigi sem þú að við eigumm að finna gömlu góðu gyldin og fara eftir þeim/Kveðja að sunnan

Haraldur Haraldsson, 16.4.2013 kl. 14:50

2 identicon

Gjör rétt - Þol ei órétt

Halldór Gunnarsson í Holti minnti sjálfstæðisfólk á þessi gömlu og sígildu orð, ítrekað en fyrir daufum eyrum.

Nú fer Halldór fyrir Flokki heimilanna, x I í Reykjavík suður.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 16.4.2013 kl. 19:24

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir innlitið félagar.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 16.4.2013 kl. 21:26

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Já, hvorki Pétur Blöndal né aðrir geta réttlætt ráns-herferð Sjálfstæðis-flokksklíkunnar upp í gegnum tíðina!

Allir þurfa að mæta sjálfum sér í dyrunum, á leiðinni áfram í lífinu, og viðurkenna mistök og biðjast afsökunar á því sem þeir gerðu sannarlega rangt! Pétur Blöndal sleppur ekki við það sem aðrir þurfa að þola.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 16.4.2013 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 82
  • Sl. sólarhring: 1032
  • Sl. viku: 2095
  • Frá upphafi: 1322895

Annað

  • Innlit í dag: 71
  • Innlit sl. viku: 1774
  • Gestir í dag: 71
  • IP-tölur í dag: 71

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband