Ég vil að náttúran njóti vafans.

 

Og þess vegna styð ég ríkisstjórnina, segir Guðfríður Lilja.

Nú er eina efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar að virkja, og virkja.

Um hvaða ríkisstjórn er Guðfríður Lilja að tala um??????''

Kveðja að austan.


mbl.is Orkuframkvæmdir upp á 70-80 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Harðarson

Aðaleinkenni stjórnarinnar hefur alltaf verið innantómur fagurgali sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Þau byrjuðu á þessu í kosningabaráttunni og fagurgalinn hefur síst minnkað síðan. Ég held að það séu eingöngu hörðustu stjórnarsinnar sem sjá ekki í gegnum þetta bull í dag.

Pétur Harðarson, 29.4.2011 kl. 20:26

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Pétur.

Ríkisstjórnin mælist samt alltaf með stöðugt fylgi, fólk til vinstri telur hana illskástu kvölina sem í boði er.

Og meðan svo er þá mun hún sitja.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 30.4.2011 kl. 11:34

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Reyndar er ríkisstjórnin ekki að mælast vel Ómar. Tæpast var þess að vænta ef miðað er við árangur. En illskárst er hún líklega og það gefur hægri öflunum ekki háa einkunn. Versti gallinn á þessari ríkisstjórn finnst mér vera þessi massíva pólitíska heimska.

Árni Gunnarsson, 30.4.2011 kl. 12:20

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Árni.

Er hún ekki að mælast með um 40% fylgi, upp og niður einhver %.  Það er nokkuð þekkt fylgi vinstriflokka í gegnum tíðina.

Samt framfylgir hún svo öfgafulla hægri stefnu, að þau ósköp standa í frjálshyggjustrákunum, sem hafa ekki kallað allt ömmu sína hvað það varðar.

En eins og ég hef oft bent á, þá er ekki til valkostur fyrir fólk.  Allur Sjálfstæðisflokkurinn, og hluti Framsóknar (auðmannseignin) styður AGS og efnahagsstefnu sjóðsins.  Eini raunverulegi ágreiningurinn er virkjunarforaðið, að VG hamlar gegn en hefur engin úrslitaáhrif.  Þar hægir raunveruleikinn á, skortur á fjármagni ásamt óvissu út i hinum stóra heim.

Í raun er aðeins ein ástæða þess að íhaldið stjórnar ekki, og hún er sú að menn mátu það skynsamlegra að sjanghæa vinstri menn á fleyið, fyrst það átti að svelta fólk og pína.  AGS stefnan hefði ekki gegnið eftir gegn sameinuðum mætti vinstriflokkanna og verkalýðshreyfingarinnar.

Þetta er ekki flóknara en það Árni, fjármagnið ræður, og það er enginn marktækur valkostur gegn því.

Helst Styrmir.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 1.5.2011 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 383
  • Sl. viku: 5324
  • Frá upphafi: 1338782

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 4693
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband