Sigmundur segðu satt.

 

Ekki láta íslenska stuðningsmenn mestu fjárkúgunar sem sagan þekkir á friðartímum villa þér sýn.

Þú hindraðir Steingrím og Jóhönnu  að svíkja þjóð sína á örlagastundu.

Allir samningar sem fela í sér ólöglegan skatt til breta verða felldir af þjóðinni.

Og sú ríkisstjórn sem reynir að semja um þann ólöglega skatt verður hrakin frá völdum.

Þjóðin er búin að fá nóg af fólki sem vill borga bretum hundruð milljarða í skatt, en á ekki til krónu til að aðstoða ungt fjölskyldufólk í skuldakreppu sinni.  Skuldakreppu sem stjórnvöld bera megin ábyrgð á.

Og stjórnvöld sem eyða tveimur til þremur milljörðum króna í umsóknarferli að ESB, en á sama tíma spara milljarð í kostnað við geðlyf á tímum þar sem virkilega reynir á geðheilbrigðisþjónustu, eru stjórnvöld sem mega missa sig.

 

Og Sigmundur, þess vegna átt þú að segja satt dag og nótt, og fordæma þau vinnubrögð sem núverandi ríkisstjórn stundar.

Það er lífsspursmál fyrir íslensku þjóðina að losna við þetta fólk.

Kveðja að austan. 

 

 

 

 


mbl.is „Tek þetta ekki til mín“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 506
  • Sl. sólarhring: 1921
  • Sl. viku: 3982
  • Frá upphafi: 1325068

Annað

  • Innlit í dag: 455
  • Innlit sl. viku: 3500
  • Gestir í dag: 449
  • IP-tölur í dag: 445

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband