Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
29.7.2024 | 16:56
Morgunblaðið bregst ekki.
Það skrifar frétt um bullið og vitleysuna sem vellur uppúr Donald Trump, eins og 4 ár hans í forsetastól hafi ekki kennt blaðinu að greina á milli þess sem kjósendur hans vilja heyra og þess sem Donald Trump stendur fyrir, eða framkvæmir.
Síðan ætti að vera einhver greind á ritstjórn blaðsins til að greina á milli hvernig Trump stjórnar umræðunni, og þess sem hann eða andstæðingar hans í Demókrataflokknum kjósa að halda á lofti í kosningabaráttu sinni.
Svo ég vitna í einn frasann sem demókratar láta hafa eftir sér og hinn ekki svo vel gefni blaðamaður Morgunblaðsins étur upp; "Í ár er lýðræðið okkar í hættu, og ef við ætlum að bjarga því verðum við að kjósa gegn valdaboðsstefnu".
Ókei, lýðræðið er kannski í hættu en hvaða flokkur, og hvaða frambjóðandi ógnar lýðræðinu vestra í dag????
Hinn ekki svo vel gefni blaðamaður Morgunblaðsins er með þetta á hreinu, að kosningabull Donald Trumps sé ógnin, sambærileg orð kosningateymis demókrata virðast hins vegar ekki ógna einu eða neinu, þó viðkomandi teymi hafi í síðustu kosningum logið upp afskiptum Rússa af forsetakosningunum 2020 þar sem Biden var kosinn, eða staðfastlega notað þær fölsku ásakanir til að beita réttarstofnunum landsins til að rannsaka þær ásakanir, með þeirri einni niðurstöðu, að því sem er logið og búið til, er ekki hægt að rannsaka til sakfellingar.
Og látið er ógert að minnast á hvernig sambærilegt bull, sambærilegar samsæriskenningar um einhverja ógn af kosningu Trump ógni lýðræðinu þar vestra, sé meginstoð kosningamaskínu demókrata.
Svona fyrir utan að Tump sé dæmdur fellon af gjörspilltu saksóknarakerfinu vestra, þar sem saksóknarar skipaðir af demókrötum, af dómstólum þar sem demókratar skipa dómara, að þar með henti hann vel í baráttunni við Kamillu Harris, sálarlausrar manneskju sem hóf sinn feril með því að ofsækja fátækt fólk á jaðri samfélagsins.
Eins og vit blaðamannsins sé minna en ekkert, að heimskan sé meiri en algjör.
Það hefur blasað við öllum sem hugsa og hafa dómgreind sína í lagi, að atlaga demókrata að bandarísku lýðræði með leikfléttunni um útnefningu Kamillu Harris, er áður óþekkt leikflétta, að varla finnst dæmi hjá Pútín eða öðrum einræðisherrum þessa heims til að sjá og upplifa hvernig leikreglur lýðræðisins hafa verið vanvirtar.
Samt hefur blaðamaðurinn á Morgunblaðinu ekki skrifað eina frétt um þessa augljósu aðför demókrata að lýðræðinu vestra eða sett spurningar við af hverju Kamila með lof á vörum og tungu um Biden, var tilbúin með stuðning meirihluta kjörmanna demókrataflokksins, innan við sólarhring eftir að rýtingar voru stungnir í bak hans.
Leikflétta og atburðarrás sem jafnvel Shakespeare hefði verið stoltur af í dramaleikritum sínum.
En blasir við öllum með dómgreindina í lagi.
Það er nefnilega þannig í dag að Mogginn bregst ekki í ófréttamennsku hins pólitíska rétttrúnaðar.
Í mörgu er hann á pari við einkafréttastofu Góða fólksins á Rúv.
Þetta síðasta vígi borgarlegra blaðamennsku uppfyllir varla kröfu þjóðskáldsins um fornar búðir, þegar það sagði að núna væri Snorrabúð stekkur.
Og borgarlegir íhaldsmenn kyngja þessu, sækja í forn minni vinstri vitleysinga sem réðust á Kína og Maó með því að skamma Hoxha og kommúnistastjórn hans í Albaníu. Með því að ráðast á augljósa ófréttamennsku Rúv, til dæmis þegar frétt um forsetakosningar í Venúsaela var látin snúast um kröfu alþjóðlegra glæpasamtaka um Ísland án landamæra, en þegja um samskonar ófréttir, eða það sem verra er, þögn um ófréttir, hjá Morgunblaðinu.
Morgunblaðið bregst vissulega ekki.
En hægri menn bregðast, með því að kyngja ófréttamennskunni, með því að skamma Rúv fyrir það sem þeir vildu sagt hafa um Morgunblaðið.
Á meðan trónir Davíð á toppnum, tannlaus, áhrifalaus, þiggur laun fyrir blekkinguna að Morgunblaðið sé ennþá borgarlegt íhaldsblað.
Sem það reyndar er en aðeins á sárafáum köflum.
Köflum sem eru svona svipaðir og þjóðvegir landsins áður en rétttrúnaður loftslagstrúboðsins fór að blanda matarolíu sem bindiefni við klæðninguna.
Á meðan rennur allt að feigðarósi.
Alþjóðleg glæpasamtök flótta og mannsalsiðnaðarins stjórna opinberri umræðu, það besta sem má segja um núverandi ráðherra er að þeir eru vanhæfir, stjórnarandstaðan þjónar öllu öðru en almenningi og þjóð, glæpaiðnaðurinn er langt kominn með að skipta um þjóð í landinu, íslensk tunga og íslensk menning er komin á válista.
Þjóðin, almenningur og fyrirtæki hans eru mergsogin af vaxtabrjálæðingum Seðlabankans, brjálæðingum sem hafa þjónað auðmagninu síðan löngu fyrir Hrun.
Og síðasti borgaralegi fjölmiðill þjóðarinnar er í andaslitrum.
Að ekki sé minnst á að Samflokkurinn ætlar að skipta út Bjarna og börnum hans, fyrir Samfylkinguna og þó fullorðinni manneskju, Kristrúnu Frostadóttir, úr ranni auðmagnsins vissulega, en samt ekki heimsk.
Á því herrans ári 2024 þá má þjóðin allavega þakka fyrir þau grið að meint vonarstjarna þjóðarinnar er þó ekki heimsk, þó hún komi úr röðum Samfylkingarinnar.
Það er þó eitthvað gott í hinu versta.
Á meðan gráta samt þjóðvegirnir, Fjallkonan og Landvættirnir.
Íslensk tunga og íslensk menning.
Heilbrigð skynsemi og dómgreind hins venjulega fólks.
Fall Morgunblaðsins er birtingarmynd fall þjóðar, sem átti, en er að missa allt.
Sjálfstæðisþrá aldamótakynslóðarinnar skóp Morgunblaðið, og á þeirri þrá lifði blaðið lengi.
Lifði allt þar til borgarleg hugsjón og borgarleg gildi lutu í gras fyrir alþjóðavæðingu auðmagnsins og fávitavæðingunni sem auðmagnið kostar svo grimmt í samfélaginu.
Í dag er þjóðin án borgarlegs flokks og án borgaralegs fjölmiðils.
Og engar breytingar þar á í sjónmáli.
Það er bara svo.
Staðreynd sem ekki er hægt að rífast um.
Á Íslandi í dag þar sem alþjóðleg glæpasamtök mannsals og flóttamannaiðnaðarins eru í hásæti umræðunnar.
Innviðir grotna og þjóðinni er boðið fávitahátt umræðunnar til að afneita þeirri staðreynd
Þar bregst Morgunblaðið ekki.
Ekki þessum napra raunveruleik sem blasir við íslensku þjóðinni í dag.
Samt, fyrir ekki svo mörgum árum, þá hefði Morgunblaðið brugðist.
Ægivaldi Samflokksins, froðu umræðunnar, samkrulli auðmagnsins við glæpalýð um að skipta um þjóð í landinu.
Það hefði ekki þagað, það hefði sagt fréttir.
Það hefði sagt satt.
Allavega í minningunni.
Minningu sem tíminn er óðum að þurrka út.
En er samt minning um það sem var og á að vera.
Um Ísland sem var og á að vera.
Sú minning má ekki deyja.
Kveðja að austan.
Augljóst grín eða árás á lýðræðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.7.2024 | 16:51
Halla og húmorinn.
Halla Tómasdóttir er fín kona, hún getur verið alþýðleg enda unnið í fiski sumarpart í æsku í Fjarðabyggð, hún er greind, og hún er skörp.
Hún er líka gráðug og fégjörn, annars hefði hún aldrei tekið þátt í uppklappi útrásinnar, en staðfesting á greind hennar er að hún hafði vit á að kúpla sig út frá meinstrím græðgisvæðingunni korteri fyrir Hrun með því að þykjast vilja græða pening í nafni kvenna, kvenfrelsis, eða hvaða orð græðgifélagið Auður notaði til að réttlæta sérstöðu sína á hinu almenna fjármarkaði kauphallanna.
Hún kom inní forsetakosningarnar eins og stormsveipur með fullar hendur fjár, búin að vinna fyrir glóbalfjármagnið, klæddi sig niður í alþýðustelpu, og vann forsetakosningarnar vegna þess að Kristrúnarliðið í Samfylkingunni ákvað að fórna frambjóðanda sínum, þeim mæta manni, Baldri Þórhallssyni.
Halla gat samt ekki flúið fortíð sína, þó auðblekktur íslenskur almenningur, í skjóli ekki vel gefins fjölmiðlafólks, munum að Femínistinn á Morgunblaðinu er ekki vel gefinn, nema í samanburði við börnin og feitu strákana á Rúv, þá reka alþjóðlegir fjölmiðlar ennþá fréttastofur, en ekki Ekki-fréttastofur.
Fyrirsagnir þeirra voru allar á einn veginn, fjárúlfur með tengsl við alþjóðlega græðgisvæðinguna, auðkona, vann íslensku forsetakosningarnar.
Sleppt var að minnast á þátt Kristrúnar í því ferli, enda þótt Kristrún Frostadóttir sé meintur frelsari vinstri og félagshyggjufólks, þá veit enginn af tilvist hennar erlendis.
Halla er samt örugglega alveg ágætis stelpa, hún vann jú í fiski sumarpart.
Og hún kann á Tikk Tokk, svo er hún vel máli farin.
Reyndar flott ef hún hefði ekki boðið sig fram undir fölsku flaggi, og hefði ekki unnið forsetakosningarnar vegna Kristrúnar og hennar valdafíknar í Samfylkingunni.
Svo kemur þessi frétt, að meint alþýðuklæði hafi aðeins verið leikbúningur hjá gráðugri fjáraflakonu, enda þarf þá hæfileika til að verða kosin formaður Viðskiptaráðs.
Ráðið sem sko alltaf að ráðast að innviðum og þjóðarhag, sem telur allt til sölu, líka þjóð og land.
Frétt um að Halla gæti ekki hamið sig þó örfáar vikur færi til innsetningar hennar í forsetaembætti Íslands, fyrst þjóna hins alþjóða auðmagns.
Hún, sem er ofsarík á mælikvarða þeirra alþýðukvenna sem hún þóttist vera í kosningabaráttu sinni, þurfti samt að græða örfáa aura í viðbót.
Eða var gróðinn talin í milljónum??, hvað veit ég sem hef aldrei grætt nokkurn aur nema þá krónu sem ég hirti upp á bílastæði Olíssjoppunnar í bænum mínum fyrir svona 15 árum síðan.
Húmorinn er samt fyrirsögn Mbl.is að halla sé komin á einhvern meintan hálan ís.
Eins og nokkur maður hafi ekki vitað hvað hún er og fyrir hvað hún stendur.
Með þessum húmor bakkar Mbl.is upp atlögu auðmagnsins að restinni að íslensku sjálfstæði, það er ekki nóg að eiga Einflokkinn á Alþingi, það getur ekki heldur látið forsetaembætti okkar í friði.
Reyndar kann ég vel að meta góðan húmor, til dæmis þegar forstjóri Síldarvinnslunnar tilkynnir árlegasamfélagsstyrki félagsins í minni heimabyggð, og er stolltur af örlætinu, en mætti samt ekki frekar hrósa Höllu fyrir útsjónarsemi, þó gróðinn sé aðeins brotabrot af tekjum hennar og auð, þá er hún eins og Jóakim Aðalönd sem lætur ekkert gróðatækifæri, hversu lítið sem gróðinn er, framhjá sér fara.
Við hin sem grátum forsetaembættið, getum varla alveg haldið áfram að gráta, eða keypt okkur snýtuklúta.
Þjóðin kaus Höllu.
Eins og hún er, ekki eins og fólk héldi að hún væri.
Á milli er diff, en sá diff er ekki Höllu sök.
Græðgi og gróði er hennar ferski andblær á Bessastaði.
Og ekki grætur Viðskiptaráðið það.
Við sem kusum hana Ekki eigum heldur ekki að gráta.
Ég kaus hana ekki.
En ég er samt hluti af þjóðinni.
Sit uppi með niðurstöðuna.
Og ég hef húmor fyrir Höllu.
Kveðja að austan.
Halla komin á hálan ís í auglýsingu Brimborgar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.7.2024 | 07:50
Seint í rass gripið.
Það má teljast mikið afrek að Joe Biden skuli hafa komist fyrir á sjónvarpsskjánum fyrir skottinu sem hann hafði milli fóta sér þegar hann tók á rás frá framboði sínu.
Aldrei í stormasamri stjórnmálasögu Bandaríkjanna hefur verið vegið eins hart að lýðræðinu með þessu sjónarspili um Joe Biden og Kamillu Harris.
Það er göfugt að afhenda yngri kynslóðum keflið en það er ekkert göfugt að gera það nokkrum vikum fyrir kosningar.
Og ef Kamila Harris er "bæði hörð af sér og mjög hæf", af hverju var hún ekki látin taka prófkjör flokksins og rúlla þeim upp??
Fáráð fréttarinnar er svo að styðja þessi orð Bidens um Kamillu með því að segja að hún hafi nú þegar "tryggt sér nægan stuðning til þess að fá útnefningu Demókrataflokksins á landsfundi hans í næsta mánuði".
Að aðför samsærisfólks að lýðræðinu lýsi einhverri hæfni í merkingunni hæfileika til að gagnast landi og þjóð en ekki sinni eigin metorðagirni og valdafíkn.
Kamilla Harris, varaforsetinn sem enginn tók eftir þó forsetinn væri bæði hrumur og með augljós elliglöp, er alltí einu orðin stjarna umræðunnar.
Bjargvætturinn sem forðaði þjóðinni að kjósa á milli tveggja frambjóðanda sem báðir virtust vera komnir fram yfir síðasta söludag, Biden þó sýnu verri.
Nema hún hefur ekki til þess lýðræðislegt umboð.
Leikflétta, sjónarspil, sýnd, allt orð sem lýsa góðri sápuóperu frá Suður Ameríku.
En eiga ekki að lýsa heljartökum örfárra flokkseiganda á bandarísku lýðræði.
Í því ljósi eru þessi orð Joe Bidens; "Að verja lýðræðið, sem er nú undir, er mikilvægara en nokkur vegtylla", örgustu öfugmæli, þau komu 6 mánuðum of seint.
Fyrir 6 mánuðum hefðu þau verið sönn og rétt, það var vissulega kominn tími á ferskar og nýjar raddir en þá fór bara sjónarspil leikfléttunnar af stað.
Það er kjarninn og þann kjarna á að ræða.
Ekki spila með, ekki kyngja þessari aðför að leifum lýðræðisins vestra.
Það er eins og að dansa með Pútín og hinu meinta lýðræði í Kreml.
Svo er alltaf kosið í Norður Kóreu og frambjóðandi alþýðunnar þar í landi, einhver Kim Jong vinnur alltaf með ríflega 110 prósent greiddra atkvæða, og þar er alltaf klappað fyrir hinum mikla stórsigri þessara hógværu alþýðuhetju.
Þar er reyndar byssukúlan undir ef ekki nógu vel er klappað, en hvað er undir hjá þeim fjölmiðlum og stjórnmálaskýrendum sem sjá ekki nekt keisarans þarna vestra??
Er þetta bara allt orðið eitt shóv, einn stór raunveruleikaþáttur þar sem mesti fáránleikinn fær alla athyglina og mesta klappið??
Er tilveru okkar í raunheimi lokið, hefur tómhyggja rétttrúnaðarins endanlega innlimað okkur í sýndarveruleikans??
Veit ekki.
Langaði bara að spyrja svona í morgunsárið.
Núna í rigningunni hér fyrir austan.
Kveðjan að austan engu að síður.
Afhendir yngri kynslóðum keflið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
24.7.2024 | 07:40
Komu landvættirnir þjóðvegunum til bjargar??
Þó það sé vissulega sorglegt að stjórnvöld geti ekki einu sinni sinnt innviðum þjóðarinnar og að Alþingi sé löngu komið úr tengslum við bæði þjóð og raunveruleikann, kristallast í að alla þessa öld hafa meint orkuskipti verið forgangsmál, á sama tíma ekkert verið gert í að afla rafmagns eða byggja upp innviði, að þá er það hrein gleðifrétt að lítið eða ekkert sé malbikað eða klætt þetta árið.
Slysagildrum ónýtra vega fjölgar ekki á meðan.
Við höfum ekkert við nýja vegi að gera á meðan stjórnendur Vegargerðarinnar eru glæpsamlega vanhæfir.
Núna nýlega afhjúpaði almennur borgari á samfélagsmiðlum að nýlagður vegur um Teigsskóg þyldi ekki einu sinni umferð gangandi vegfaranda, skósólarnir tóku með sér bikið.
Í fréttum Rúv í gær var sýnt frá reiðhjóli sem reif upp tiltölulega nýlagða klæðningu á Öxnadalsheiðinni, það sást ekki í munstur dekkjanna fyrir biki.
Það sér það hver viti borinn maður að það er tilgangslaust að leggja nýja vegi eða viðhalda þeim gömlu ef mesti þunginn sem þeir þola er þegar mýs skottast yfir veginn, annað telst of mikil umferðarþungi.
Hvernig þessi glæpsamlega vanhæfni hefur fengið að grafa um sig hjá vegagerðinni og komist upp með að í nafni umhverfistrúarbragða leggja ónýt efni á vegi landsins er spurning sem þarf að fá svar við sem fyrst.
Þjóðin í þessa stóra landi okkar á allt sitt undir samgöngum, að eyðileggja þær vísvitandi með bæði augu galopin, er glæpsamleg ósvinna, sem Alþingi og ríkisstjórn ber beina ábyrgð á.
Það hefur áður hitnað á Íslandi, það hefur áður komið 17-20 stiga hita. Og afsökunin um tíðar veðurbreytingar er hláleg, af hverju halda menn að íslensk tunga notar orð eins og umhleypingar, rysjótt tíð til að lýsa veðrinu, þessi orð voru ekki fundin upp á síðasta áratug, eða eftir að íblöndun matarolíu hófst í vegagerð.
Á meðan keyrir almenningur um og spænir upp nýlagða klæðningu, á slysagildrum sem aldrei hafa átt að leggjast.
Lækka hámarkshraðann, hið margítrekaða stef sem fréttafólk gleypir við, var kyrjað í frétt Rúv í gær. Eins og að of hröð hjólun hafi verið vandi hjólreiðamannsins sem sökk ofan í matarolíudrulluna á Öxnadalsheiðinni.
Síðan geta menn spurt sig til hvers er að hafa nýlagða vegi ef ekki er hægt að fara hraðar yfir en á hestagötunum í gamla daga, landið er stórt, vegalengdir til Reykjavíkur langar, fólk vill komast á skikkanlegum tíma en ekki eyða dögum og vikum í ferðalög vegna þess að þjóðvegir landsins eru hálfófærir vegna veðurs.
Landvættirnir hafa sannarlega vaktað þessa þjóð í 1100 ár, henni hefur alltat eitthvað orðið til bjargar á neyðartímum, af mörgu sem má taka er sú grilla í höfði hjá aldamótakynslóðinni 1900 að þessi bláfátæka þjóð kæmist til manns ef hún yrði sjálfstæð og réði sér sjálf.
Einnig má benda á neyðarviðbrögðin við hruni bankanna sem Seðlabankinn töfraði út úr handraða sínum á ögurstundu, án þeirra værum við ekki til sem þjóð í dag.
Og núna aularnir á þingi sem gátu ekki afgreitt samgönguáætlun, þeir voru víst of uppteknir að ræða þessi mannréttindi sem íslensk stjórnvöld er sífellt að brjóta á flóttafólki heimsins.
Það gerir Alþingi og ríkisstjórn svigrúm í sumar til að gera einu sinni það sem rétt er.
Að feisa raunveruleikann og takast á við hann.
Geri hún það ekki þá er þetta fólk eins og hver önnur óværa sem þjóðin þarf að losna við sem fyrst.
Þá mun reyna aftur á landvættina.
Kveðja að austan.
Mikill samdráttur í framkvæmdum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.7.2024 | 16:36
Lúserinn sem rak stóra rýtinginn í bak Biden.
Er sögð hafa þjófstartað til að tryggja sér útnefningu flokkseigandafélags Demókrata, en fréttin er að skynsemisfólk reynir að róa ástandið, biður fólk um að staldra við, að taka ekki stuðning við Brútus á þetta.
Víti hans er jú eitthvað sem ber að varast, og ennþá er til læst fólk í Demókrataflokknum sem veit hvernig Shakespeara afgreiddi Brútus og rýtinga hans.
Spurningin er hins vegar hvort viðkomandi, lúffi þegar þeir átta sig á að Brútus, það er Kamalia Harris er aðeins verkfæri, þó rýtingur hennar sé stuttur, og hafi aðeins dugað á lifandi lík, þá býr hið dulda vald flokksins yfir margfalt stærri rýtingum, eitthvað sem Clinton og frú hafa þegar skilið.
Hvernig hins vegar hið dulda vald ákvað að veðja á Harris, er dæmi um hið óskiljanlega sem hefur átt sér stað innan raða flokkseigandafélags Demókrata, nógu illskiljanlegt var að ætla sér að framlengja forsetatíð Bidens, en að vega hann til að koma Harris að, er eitthvað sem vart er hægt að skilja.
Harris er jú lúser, hefur tapað öllum kosningum nema þegar hún bauð sig fram til ríkissaksóknara Kaliforníuríkis, og lofaði meiri hörku, meiri ósveigjanleika gagnvart jaðarsettu ógæfufólki. Þá vann hún með 1,5 prósent atkvæða af heildarfjölda kjósenda, aðeins svín og þaðan af verri eintök mannlegrar flóru styðja slíka manneskju, aðrir kjósa ekki um svona embætti.
Er sem sagt, svo ég vitni í fornt líkingamál, Norn í mannsmynd.
Nema að nornir eru góðar, en Kamilla er það ekki.
En hún er kona, og hún er næstum því svört, hvaða máli skiptir það þó hún sé sálarlaus??
Góða fólkið hefur jú kyngt öðru eins.
Og hún hefur tötsið, ekki síður en Brútus.
Lúser sem hefur ekki unnið neinar kosningar, gæti jú alltaf unnið þær þegar ímyndunarsmiðir hins dulda valds leggjast á eitt.
Við Íslendingar kusum jú lepp hins alþjóða auðmagns sem forseta, hún var aðeins kona en ekki hálfsvört.
Reyndar með sál og karma, eitthvað sem Kamillu skortir, en má ekki ímyndavæða það í burt, þannig að á eftir verði hún stórasystir jólasveinsins.
Og hún er vopnfim, kann allavega að beita rýtingum.
Jæja, ég skal hætt þessu, hætta að hæða þennan skrípaleik Góða fólksins vestra.
Eftir stendur hjárænan um að Trump ógni lýðræðinu.
Sem má vel að hann geri í nánustu framtíð, þá reynir á stjórnarskrá og lýðræðislegar stofnanir Bandaríkjanna.
En fall Bidens og upphefð Kamillu er beint tilræði við lýðræði, jafnt Bandaríkjanna sem og hins vestræna heims, og það tilræðu á sér stað í dag, í beinni útsendingu.
Auður og völd Örfárra, í samvinnu við hið Djúpa vald, hefur svívirt bandarískt lýðræði með leikfléttunni um framboð Bidens sem átti að enda með framboði Kamillu Harris, þó hún hefði ekki til þess neitt umboð hins almenna kjósenda Demókrataflokksins.
Eitthvað sem jafnvel Pútín hefði verið stoltur af þegar leikflétta hans gerði hann að forsætisráðherra, og forsætisráðherrann að forseta, en valdaskipti fóru aldrei fram.
Eitthvað sem allir sáu í gegnum, en í dag virðast meginfjölmiðlar vestrænna ríkja ætla að kyngja þessari aðför að lýðræðinu þegjandi og hljóðalaust.
Það er spilað með eins og þessi gáfumannafrétt Femínistans á Morgunblaðinu gerir, en þó hann vaði ekki beint í vitinu, þá á þessi frétt of marga sína líka í meinstrím fjölmiðlum Evrópu og Bandaríkjanna.
Spilað með í stað þess að spurningar séu spurðar.
Og þeim sé svarað.
Af sem áður var.
Ég spái því samt að lúserinn tapi.
Hann er jú lúser.
Sumt blasir við.
Kveðja að austan.
Obama ekki enn lýst yfir stuðningi við Harris | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.7.2024 | 18:08
Rýtingar í bakið felldu Biden.
Eftir stendur hið óskiljanlega, hvernig datt flokkseigendum Demókrataflokksins það í hug að bjóða hann fram í annað tímabil, þegar ljóst var að strax í upphaf þess fyrra að Biden var ekki heill sökum elli??
Hvernig datt mönnum þetta í hug, og að það skuli vera fyrst núna þegar allar skoðanakannanir sýndu að Biden átti ekki séns í Trump, að þá voru rýtingarnir teknir fram??
Sem er það ómerkilegast að öllu, að þegar áframhaldandi völd voru í húfi, þá var Biden fórnað.
En það þótti í góðu lagi að bjóða fram lifandi lík í æðsta valdaembætti hins vestræna heim, þegar menn töldu sig sigra kosningarnar.
Þetta er ekki lýðræði.
Þetta er eitthvað allt annað.
Kveðja að austan.
Biden dregur framboð sitt til baka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.7.2024 | 16:29
Rafbílavæðum Ísland!!
Og bönnum innflutning á valkostum landsbyggðarinnar, bensín og díselbílum.
Fávitarnir sem þetta mæla, og í alvöru, annað orð lýsir ekki þessu veraleikafirrtu fólki, þiggja laun frá almenningi, nýta þau laun til að setja fram markmið sem eru ekki í neinum tengslum við raunveruleikann.
Ef við ætlum að skipta út jarðeldsneyti og nýta þess í stað rafmagn á samgöngur þjóðarinnar, þá byrja menn fyrst að byggja upp innvið, jafnvel virkja svo rafmagn sé til staðar.
Það er ekki gert, ekkert af þessu hefur verið gert.
Aðeins samdar yfirlýsingar, sett fram markmið, talað tungum fáviskunnar, réttlæting þeirrar fávisku er að vísa í einhverja meinta ógn sem notkun dísil- og bensínbíla íslensku þjóðarinnar hefur á hlýnun jarðar.
Sem er fjarstæða sem stenst enga skoðun.
Í dag kemst fólk á rafbílum ekki leiðar sinnar nema það sé svo heppið að fáir aðrir rafbílar séu á ferðinni á þjóðvegum landsins.
Ef ekki þá sitja menn fastir, þurfi fólk nauðsynlega að komast leiðar sinnar, þá þarf að gera eins og ættingjar að norðan og vestan sem ætluðu að mæta í jarðaför á Eskifirði, rafmagnsbíllinn varð orkulaus, engin hleðslustöð virk á Egilstöðum, til bjargar var að fávitar Exel skjalsins höfðu ekki ennþá náð í gegn að bílaleigubílar yrðu rafbílavæddir.
Með tilheyrandi aukakostnaði en bensínið skilaði ættingjunum tímalega í jarðarförina.
Lítið dæmi sem afhjúpar fávita fáviskunnar.
Fávita sem reyndar skilja ekkert í að olíubrennsla fiskistóriðjunnar, þeirrar atvinnugreinar sem skilur mestan nettóhagnað inní þjóðarbúið, hefur þurrkað út alla rafbílavæðingu þjóðarinnar, og ennþá er engin virkjun í sjónmáli.
Eftir stendur samt sú staðreynd sem atvinnufávitar (fólk sem þiggur laun fyrir að vera heimskt) skilja ekki, að strjálbýli, víðátturnar og 66 gráður lega Íslands útilokar algjöra rafbílavæðingu þjóðarinnar, það er ef menn ætla að viðhalda nútíma samfélagi á landsbyggðinni.
Og þó hinir veruleikafirrtu fávitar sem hafa límst við stjórnkerfi þjóðarinnar líkt og mý á mykjuskán, haldi að það skipti engu máli, því að þeir komist allra ferða sinna innan þéttbýlisins, þá er það bara svo að þéttbýlið getur ekki lifað án útflutningsteknanna sem verða til á landsbyggðinni.
Og allt kjaftæði heimsins fær þar engu breytt.
Þessi litla frétt sem ég pistla við er aðeins ördæmi um vanhæfnina, fávitaháttinn og hina algjöru firringu 101 Reykjavík gagnvart raunveruleikanum.
"Æ, Ó, við bara gleymdum að við höfðum skyldum að gegna".
"Ha!! Er einhver byggð fyrir utan Reykjavík??".
Og hún segir allt um vitið sem stjórnar Íslandi í dag.
Ekkert virkjað, engir innviðir byggðir upp til að mæta markmiðum, og ekki hvað síst, í nafni loftslagstrúarbragða komust örfáar konur á ríkisjötu Vegagerðarinnar, er vegakerfið í andaslitrum, matvæli í klæðningu er að gera vegi þjóðarinnar ófæra og síðan ónýta.
Fáviskan er svo algjör að fátt er rætt á Alþingi annað en meint mannréttindi eða mannréttindabrot á fólkinu sem alþjóðleg glæpasamtök dæla til landsins, kerfi sem sýgur í sig milljarða og skaðar samkeppni heiðarlegra við þá sem nýta sér fórnarlömb mannsalsiðnaðarins.
Hið fáa þar fyrir utan er einhver froða og rugl sem engin hvítur eða svartur maður skilur, velferð og hagur þjóðar er í umræðunni eins og hornreka kelling í ómagakerfi liðinna alda.
Hávaði og upphróp, svona er Ísland í dag.
Hnotskurn þess er sú stefna borgaralegra flokka Sjálfstæðis og Framsóknar, að banna innflutning á bílum eftir 2028.
Aðeins djókarirnir, rafbílarnir fluttir inn eftir það.
Boð og bönn, skattar og álögur, flest snúa að gera mannlíf á landsbyggðinni illmögulegt, jafnvel óbærilegt.
Á sama tíma eru gerðir fríverslunarsamningar við loftslagssóða heimsins, Kína og Indland.
Boðin og bönnin kæfa innlenda framleiðslu, í stað hennar kemur innflutningur frá loftslagssóðunum, fyrir hverja vöru sem er kæfð með loftslags eða umhverfissköttum, kemur margföld mengun í gegnum fríverslunarsamningana.
Samhengi sem kerfisfávitarnir á ríkisjötunni er fyrirmunað að skilja.
Eða er það svo??
Er möguleiki að einhver manneskja sem hefur lokið námi, kann að tala og reima skóna sína, sé svona heimsk??
Er það eiginlega ekki útilokað??
Er ekki líklegra að hún þjóni annarlegum hagsmunum auðróna glóbalhagkerfisins, sem markvisst hafa drepið niður atvinnu og eyðilagt samfélög vestrænna landa síðustu 30 árin eða svo??
Tala ekki staðreyndirnar sínu máli??
Í Bandaríkjunum er kosið um þessa spurningu, annars vegar framboð auðrónanna sem ákváðu að framlengja umboð elliærs gamalmennis sem heldur út daginn vegna kraftaverka nútíma læknisvísinda, og hins vegar þeirra sem hafa sagt glóbalvæðingunni stríð á hendur.
Á Íslandi er engin svona umræða í gangi, hin keypta og kostaða fáviska auðrónanna er inn í almennri umræðu, þeir sem efast eru á jaðri stjórnmálanna.
Þjóðin gekk meir að segja svo langt að hún kaus dúkkulýsu glóbalsins sem forseta, það átti jú að vera svo ópólitískt.
Eins og þjóðin sé í miðjum gjörningi að endurskapa orðatiltækið, Að fljóta sofandi að feigðarósi.
Já örsögurnar segja mikið.
Segja eiginlega allt.
Maður getur samt þakkað fyrir að fótboltinn sigraði í Berlín.
Kveðja að austan.
Ástæða fyrir andvaraleysi N1 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
19.7.2024 | 06:55
Sannleikurinn gerir yður frjáls.
En elur ekki á sundrungu.
Það elur hins vegar á sundrungu að afneita honum.
Og það er hinn eiginlegir rasismi málsins.
Víti Norðurlanda er til að varast en ekki til að taka upp.
Höfum það hugfast.
Kveðja að austan,
Segir orðræðu Helga ala á sundrung og fordómum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.7.2024 | 15:55
Meðvirkni Góða fólksins.
Talar um barnahermenn frá Svíþjóð.
Og það sem sker í eyru, að talað er um viðkomandi börn sem Svía, en ekki fórnarlömb innflytjenda stefnu Góða fólksins til langs tíma.
Eru það Svíar sem halda heilu hverfunum í gíslingu glæpagengja og ofbeldis, eru það Svíar sem hafa glæpavætt úthverfi innflytjenda þannig að sænsk lögregluyfirvöld koma aðeins þungvopnuð inní þau hverfi??
Var svarti strákurinn frá Senegal sem keppti fyrir hönd Svíþjóðar fyrir nokkrum árum síðan; Svíi eða það sem hann var, innflytjandi frá Senegal??
Hver eru endamörk þessarar meðvirkni gagnvart ógöngum Góða fólksins sem í samstarfi við alþjóðleg glæpasamtök, Flótta og Mannsalsiðnaðinn, hafa yfirfyllt norrænar þjóðir af fólki sem hefur engin tengsl við land og íbúa, önnur en þau að hafa verið hleypt inní landið??
Í Svíþjóð er þegjandi samkomulag milli krata og Svíþjóðarkrata að vopnvæða sænska herinn til að mæta þessum glæpalýð innflytjenda, þar skilur ekki á milli Svía sem hafa átt heima í Svíþjóð í mörg hundruð ár, og Svía sem hafa átt heima í Svíþjóð í mörg hundruð ár, og deila um hvort þeir séu sænskir kratar eða Svíþjóðarkratar.
Mistök voru gerð, og þau mistök verða aðeins kæfð með vopnavaldi.
Þær augljósu staðreyndir hafa algjörlega farið framhjá Femínistanum á Morgunblaðinu sem ennþá kennir Ríki í ríkinu, glæpasamtök innflytjenda við þjóðerni Dana eða Svía, eins og þessi innflutti lýður hafi eitthvað með danskan eða sænska uppruna að gera.
Þessi sami Femínisti þurfti staðfestingu frá Mannréttindavakt Sameinuðu þjóðanna sem mörg hundruð dögum seinna eftir 7. október varð að viðurkenna að voðamenni Hamas frömdu áður óþekkta stríðsglæpi í hinum vestræna heimi. Fram að því var árásaraðilinn, Hamas, aðeins fórnarlömb meintrar árásgirni Ísraela. Aldrei sagði Femínistinn sögur af voðaverkum Hamas, fyrir utan eitt skylduviðtal við Birgi Þórarinsson alþingismann, sem gat ekki þagað, og Femínistinn birti viðtal við hann í trausti þess að ekki sála tæki mark á Birgi.
Skíturinn í þessari frétt segir allt um fólkið sem getur ekki horfst í augun á að innflytjendur í Skandinavíu hafa breytt áður friðsömum samfélögum í vígvöll sem áður voru aðeins þekktir í fjarlægum löndum, reyndar á heimaslóðum hinna sömu innflytjenda.
Skíturinn stækkar þegar ekki er hægt að segja satt um hreiðrið sem voðamenn Hamas komu sér upp á Íslandi, og hafa notað til að ógna samfélaginu, stjórnvöldum okkar, í mikilli og góðri samvinnu við innlenda samstarfsaðila á þingi sem og hið meinta Góða fólk sem starfar í þágu alþjóða glæpasamtaka, Mannsals og Flóttamannaiðnaðarins (númer 2 eftir eiturlyfjaiðnaðinum í gróða og umfangi).
Að segja satt um að Free Palestína er knúið áfram af nokkrum innlendum viðrinum, þar í hópi viðbjóður sem réttlætir voðaverk Hamas, en að megninu til að innfluttum Hamas liðum og fylgifólki þeirra.
Það ber allt að sama brunni í þessari frétt um meinta barnahermenn frá Svíþjóð.
Brunni sem er þegar þurrkaður upp af gjaldþroti Góða fólksins í Svíþjóð og Danmörku, er kominn í botn í Noregi.
Brunni sem Góða fólkið vill samt grafa hér á Íslandi.
Og Femínistinn á Morgunblaðinu, þessi þarna sem beint veður ekki í vitinu, en er vissulega með próf frá Háskóla Íslands, hann grefur með.
Til háðungar og smánar borgaralegum gildum, sögu Morgunblaðsins, raunveruleikanum, staðreyndum.
Og Dabbi greyið trónar á toppnum.
Sumir þurfa ekki að taka út refsingu sína í næsta lífi.
Þeir afplána nú þegar.
Kveðja að austan.
Panta barnahermenn frá Svíþjóð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
17.7.2024 | 11:23
Alþýðan er fyrst og síðast launamenn, ekki neytendur.
Þessa fyrirsögn stal ég úr góðum pistli Páls Vilhjálmssonar sem hann skrifar um sömu frétt og þessi pistill er tengdur við.
Hún kjarnar inn gjaldþrot félagshyggjunnar sem spratt uppúr hefðbundnum jafnaðarmannaflokkum þegar menntastéttin taldi verkalýðinn og sósíalismann ekki vera nógu fínan fyrir framtíðarsýn sína.
Félagshyggjan hefur misst öll tengsl við vinnandi fólk, rætur hennar úr verkalýðshreyfingunni eru löngu slitnar, tungutak hennar er óskiljanlegt öllum þeim sem hafa ekki tekið sérstakt námskeið í kynjafræði í vestrænum háskólum.
Og hún gekk svo langt að í samvinnu við Nýfrjálshyggjuna, seldi hún vinnandi fólk í þrælabúðir glóbalsins í Kína og síðan til ennþá fátækari landa.
Heima fyrir kristallast þessi sala að í opinberum stofnunum ríkisvæðingarinnar sér bláfátækt fólk af erlendum uppruna um öll þrif, helst þarf það að vera litað til að fá að sinna þeim.
Fólk vinstra megin við félagshyggjuna, flestir úr ranni gömlu sósíalistanna og kommanna, hefur ekki náð að nýta sér þessi svik og þetta gjaldþrot jafnaðarmennskunnar, það er of jaðarsett í ýmiskonar sérvisku þó vissulega séu undantekningar þar á eins og Sólveig Anna hér uppi á klakanum.
Hægri menn hins vegar hafa gert út á hin gömlu sóknarmið róttækninnar og eru orðnir talsmenn launafólks, velferðar og þjóðernis.
Um það vil ég vísa í hinn góða pistil Páls, hann ætti að vera skyldulesning öllum þeim sem telja sig kjósa til vinstri þegar þeir kjósa Samfylkinguna eða VinstriGræna.
Nýhægri menn eru þeir kallaðir og eiga það eina sameiginlegt með Nýfrjálshyggjunni að þeir skeyta orðinu Ný- fyrir framan heit sitt.
Hvort þeir nái að bjarga hinum vestræna heimi frá fátækragildru alþjóðavæðingarinnar, alþjóðavæðingu sem líkt og regluverk Evrópusambandsins um hið frjálsa flæði fátæktar, arðráns og förufólks, sækir hugmyndaheim sinn í kenningar Nýfrjálshyggjunnar, helstu páfar Hayek og Friedman, skal ósagt látið.
Gjöreyðingin hefur náð það langt, vestræn ríki eru algjörlega háð Kína um alla framleiðslu, eru með öðru orðum ekki sjálfstæð lengur, og þjóðerni og tunga eru að hverfa í sístreymi farand- og flóttafólks.
Tilraunin er samt þess virði, alveg eins og það skilað sér hjá Guðlaugi sundkappa að reyna að ná landi í ísköldum sjónum, það er ekkert búið fyrr en það er búið.
Eftir stendur samt auðnin í stjórnmálum fyrir okkur sem eru vinstra megin við miðjuna, hvort sem við erum miðjumenn við vinstri halla líkt og við Hriflungar, jafnaðar eða félagshyggjufólk.
Flokkar okkar sviku, þeir eru orðnir gagnslaus viðrini.
Um svikin, um rætur þeirra, hugmyndaheim, hvenær samstarfið við alþjóðavæðinguna hófst, má lesa í skyldulesningu allra skyldulesninga, bókinni "Bréf til Maríu. 1.990 kr. Höfundur: Einar Már Jónsson.", Bókaútgáfan Ormstunga. ""Bréf til Maríu er hressilegur gustur um hjalla mannvísindanna og slær hroll að ýmsum við þann lestur." Páll Baldvin Baldvinsson Fréttablaðið", svo ég vitni í einn ritdóminn.
Og um innihaldið má þetta lesa; "Höfundurinn tekur á helstu álitamálum samtíðarinnar og fer á kostum í skarplegri greiningu sinni og er ómyrkur í máli. Evrópusambandið, menntamanna-marxisminn, frjálshyggjan, alþjóðavæðingin, tæknidýrkunin, póstmódernisminn og formgerðarhyggjan eru meðal þess sem tekið er til skoðunar.".
Unga fólkið skilur þetta ekki, það er of samdauna tungutaki feigðarinnar, innihaldsleysinu og frösunum.
En við eldri eigum að skilja þetta og lesa okkur til gagns.
Það er ef okkur hugnast ekki Nýhægrið.
En við fordæmum það ekki án þess að bjóða uppá valkost.
Svo einfalt er það.
Kveðja að austan.
Sveitalubbinn með Hvíta húsið í sigtinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.1.): 3
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 2022
- Frá upphafi: 1412721
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 1775
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar