23.11.2020 | 13:54
Nú verður þú að tala mannamál Þórólfur.
Það eru landamærin sem leka, þú hefur margoft sagt það.
En þú tekst ekki á við þann leka í tillögum þínum.
Þú ræðst á almenning.
Samfélagið getur ekki endalaust verið í herkví sóttvarna, vegna þess að þú ert kjarklaus og tekst ekki á við þá hagsmuni sem beita sér gegn því að lokað sé fyrir lekann.
Þú segir; "Á sama tíma eru nýir stofnar að koma inn í gegnum landamærin.".
Svarið hlýtur að vera að stoppað sé í þennan leka, annars ertu ekki starfi þínu vaxinn, svo einfalt er það.
Aðeins þá getur þú réttlætt sóttvarnir sem lama allt mannlíf, stórskaðar allt íþróttalíf, heldur menningu og listum læstum inní gímaldi samfélagslegra lokana og fjarlægðartakmarka, og taka af okkur jólin.
Vegna þess að þú segir að "Það megi alls ekki gerast að litlar hópsýkingar sem greinist við landamærin verði að stórum hópsýkingum."
Sem er eins og að segja að það megi ekki leyfa íkveikjum verða að stórum brunum, sem er rétt, en þá stöðva menn íkveikjurnar þegar vitað er hverjir kveikja í, í stað þess að skipa brottflutning úr húsum, fjölga í slökkviliði, halda stanslausar brunaæfingar því það veit enginn hvar brennuvargarnir, sem allir vita hverjir eru, kveikja næst í.
Ef lögreglan og slökkviliðið brygðust svona við, þá myndir þú segja að þetta fólk væri galið, óhæft til að vernda almenning.
Þú myndir segja það Þórólfur.
Það myndi allir segja það.
Nema kannski þeir sem fengju borgað frá brennuvörgunum svo þeir fengju að stunda iðju sína í friði.
Og það ömurlegast er Þórólfur að þessi leki er vegna innflutnings á skammtíma ódýru vinnuafli sem fengið er til landsins á skítakaupi til að vinna verk sem annars væri sinnt af innlendum á eðlilegu kaupi og kjörum.
Með öðrum orðum ertu samsekur í að brjóta niður innlendan vinnumarkað.
Það eru hagsmunirnir sem eru undir.
Hið siðblinda frjálshyggjuflæði hins frjálsa flæðis Evrópska efnahagssvæðisins.
Í stað þess að mæta siðblindunni.
Þá beinir þú spjótum þínum að þjóðinni.
Það er ekki rétt Þórólfur.
Það er ekki rétt.
Þetta er ekki sú siðfræði sem ömmur okkar ólu okkur upp í.
Það er bara svo.
Og þær vita alltaf hið rétta.
Orð slæmrar samvisku fá því ekki breytt.
Kveðja að austan.
![]() |
Fylgst verði vel með þeim sem greinist við landamæri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.11.2020 kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
22.11.2020 | 12:33
Þetta er rök ríkisstjórnarinnar í hnotskurn.
Fyrir stuðningsaðgerðum sínum vegna heimsfaraldursins.
Að vinna gegn efahagslegri upplausn, upplausn samfélagsins, og koma einstaklingnum og fyrirtækjum hans til hjálpar á ögurstundum.
Það hefur gífurlega mikið verið gert, og það er öruggt að meir verður gert eftir því sem aðstæður framtíðarinnar kalla á aðgerðir.
Hlustun er lykilatriðið í velheppnuðum aðgerðum.
Og nýjustu ráðstafanir ríkisstjórnarinnar bera þess öll merki að hún hefur hlustað á raddir samfélagsins.
Það er greinilega meir verið að fókusa á vanda minni rekstraraðila og í það minnsta fyrirheitin eru góð þó það eigi eftir að koma í ljós hvort einhverjum kerfiskörlum verði leyft að flækjast fyrir, eltast við tittlingaskít formsatriðanna, beina hjálpinni frá neyðinni,kannski með þeim óhugnanlegu afleiðingum sem við lásum um í þessari frétt.
Raddir um þetta heyrast og sporin hræða.
Manneskja sem kann ekki að skammast sín réttlæti hundsun TR á aðstoð til barna sem fæðast með holgóm, þvert á anda laga þar um og ekki má gleyma Breiðavíkursmáninni þar sem þeir fitnuðu sem tróðu inní reglugerðina að enginn mætti fá bætur nema að sérfræðingar mætu miskann, þar með varð aðeins nánösin eftir handa fórnarlömbum þessa hryllingsstaðs.
Eins efa ég ekki að fjármagn hafi verið sett í að vinna gegn sjálfsmorðsbylgjunni sem lögreglan varð vitni að í vor, það er marka á má frétt þar sem þetta var haft eftir lögregluþjóni.
Það er mikill ónotaður mannauður gleðigjafa þarna úti vegna samfélagslegra lokana, hví ekki að setja fjármagn í pott sem gleðigjafar geta sótt í,þeir fá hvort sem er einhverjar bætur, gegn því að útbúa gleðiprógrömm til höfuðs þunglyndi og einsemd.
Vinalínur, símalínur, sálfræðiaðstoð, almenn aukning á fjármagni til geðheilbrigðismála, allt þetta eru dæmi um það sem hægt er að gera.
Og er gert að einhverju leiti í einni eða annarri mynd.
Vegna þess að sóttvarnarráðstafanir eru glæpur ef engar hliðarráðstafanir fylgja.
Svona líkt og að stjórnvöld fyrirskipi brottflutning frá strandsvæðum vegna yfirvofandi fellibyls, en láti svo hina brottfluttu þjást í kulda og vosbúð, án húsnæðis eða aðgang að matvælum.
Eitthvað sem að sjálfsögðu er ekki gert.
Við erum lánsöm að stjórnvöld okkar hlusta.
Við erum lánsöm með að bæði seðlabankastjóri og fjármálaráðherra skilja að það er ekkert val en að beita fjármálalegum aðgerðum og það hafa þeir gert þó þeir séu báðir mótaðir af hinni ráðandi hagfræði heimskunnar að gjaldmiðill sé fasti og það sé æðra öllu að verja hann þó það sé kostnað þess samfélags sem stendur að baki gjaldmiðlinum.
Það er líklegast skýring þess að verðtryggingin hefur ekki verið fryst gagnvart áhrifum heimskreppu farsóttarinnar.
En sá sem hefur eini sinni tekið slaginn við heimskuna, fetar stigu sem leiðir hann inní lendir skynseminnar og þar fær hann vopn sem duga gegn upplausn og ógnum fordæmalausra tíma.
Þess vegna verður kerfiskarlinn, sem sendi Landspítalanum kröfum um 4,2 milljarða niðurskurð, rekinn á morgunn eða hinn.
Því fíflin eru það fyrsta sem samfélög sjá að þau hafi ekki efni á þegar sjálf tilveran er undir.
Þannig er það.
Þannig verður það.
Ríkisstjórnin hefur fengið próf sem hún hefur staðist að mestu.
Próf sem um leið hafa afhjúpað innihaldsleysi og tilgangsleysi Evrópuflokka Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata.
Fyrir utan að vera einstaklega illa mannaðir, þá er ljóst að evran hefði orðið okkur hengingaról sem hefði drepið samfélag okkar því þjóðin hefði aldrei náð sér úr skuldafeni farsóttaráranna.
Krónan fleytir okkur hins vegar áfram, þó heimskan tali um að við séum að taka lán hjá framtíðinni, þá er það þannig að engin þjóð getur í raun skuldað seðlabanka sínum, skuld er aðeins þegar hún er tekin í erlendum gjaldmiðli.
Við lifum erfiða tíma.
En gjöfula tíma þó ljótt sé frá því að segja.
Því það reynir á fólk og samfélag, og aðeins samhent og skynsöm komust við út úr þessum vanda.
Sem gerir okkur sterkari á eftir.
Það er gjöf lífsins á tímum farsóttarinnar.
Gjöf sem er í hendi þó það eigi eftir að pakka henni inni.
Það er okkar að sjá til þess með opinni og heiðarlegri umræðu um það sem við teljum að þurfi að gera, um það sem á eftir að gera, og um það sem við teljum að megi betur gera.
Við höfum þegar samkenndina og væntumþykjuna.
Viljann til að deila byrðum, hjálpa, gera gott úr því sem samt er alltaf erfitt.
Ennþá vantar leiðsögnina.
Að einhver skýri út fyrir þjóð sinni að geti ekki allir haldið sínu í fordæmalausu tekjufalli þjóðarbúsins.
En við getum öll haldið því sem skiptir máli.
Lífi okkar og tilveru.
Sem er það eina sem skiptir máli.
Svo ég segi bara.
Leiðsögn óskast.
Með fyrirfram þökk.
Þá er gjöfin okkar.
Kveðja að austan.
![]() |
Sorg meðal íbúa Liege |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.11.2020 | 09:59
Já en hvað um evruna??
Hvers á hún að gjalda, af hverju minnist Logi ekki á hana líka??
"Ekki nóg að gert"!
"Hlusti loksins á tillögur Samfylkingarinnar"!
Undirstrikar mikilvægi evrunnar!
Og Loga hefði tekist að segja það þrennt sem honum var samviskusamlega kennt að nýr formaður Samfylkingarinnar þyrfti að kunna þegar hann tjáði sig um allt sem er milli himins og jarðar, í þessu lífi eða öðrum, hvort sem um er að ræða smár tittlingaskítur eða fordæmalausir tímar farsóttarinnar.
Á meðan hann segir ekkert annað þá eykst fylgi Samfylkingarinnar hægt og bítandi, minningin um landráðin í ICEsave eða svikin við íslensk heimili fölnar inní óminni gleymskunnar fyrir orðsnilld formannsins.
Íslensk stjórnmál í dag, það er hvorki logið uppá þau eða Samfylkinguna.
Þess vegna, þrátt fyrir allt, eigum við að meta núverandi ríkisstjórn.
Það er þó fólk í henni og það er að reyna sitt besta.
Vilji menn meira þá þarf opna umræðu, opinn umræðuvettvang, og ekki hvað síst opinn vilja til að vega og meta hugmyndir og tillögur, þar sem þeim er leyft að þróast, jafnt í eitthvað sem er skynsamlegt og framkvæmanlegt, eða í nýjar hugmyndir og tillögur, því þannig vinnur mannsandinn, hugsun leiðir að sér hugsun, hugmyndir að sér hugmyndir.
Fordæmalausir tímar þröngva oft mönnum til slíkra samræða.
Við lifum slíka tíma í dag og þó það megi hrósa íslenskum stjórnmálamönnum að vera ekki með nag eða leiðindi þá er ekki hægt að hrósa þeim fyrir umræðuna.
Því hún hefur ekki eiginlega verið nein.
Aðeins fyrirsjáanlegir frasar skylduumræðunnar þar sem alltaf það sama er sagt og Mogginn nær að ramma svo vel í fyrirsögn þessarar fréttar.
"Ekki nóg að gert en þó skref í rétta átt.
Það er samt hægt að gera miklu betur.
Það er alltaf hægt.
Eitt sem öskrar á athygli er hinn mikli mannauður sem hefur misst lífsviðurværi sitt.
Bætur tryggja vissulega salt í grautinn en þær örva ekki athafnaþrá og sjálfsbjargarhvöt fólks sem við köllum í daglegu tali nýsköpun.
Svo má ekki endurtaka mistökin frá 2008.
Um það er þögn, æpandi þögn.
Það má gera betur.
Það á að gera betur.
Og það mun verða gert betur.
En hvað, hvernig hvenær??
Til þess er umræðan, þar eru tækifærin til að hafa áhrif.
Þess vegna er hún næsta verkefnið.
Tökum hana.
Kveðja að austan.
![]() |
Ekki nóg gert, en þó skref í rétta átt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2020 | 14:44
Uppgjöf fyrir sérhagsmunum.
Hins frjálsa flæðis sem flytur inn ódýrt vinnuafl, og er nákvæmlega sama hvort viðkomandi sé sýktur eður ei.
Þetta eru götin á landamærunum, sem sóttvarnaryfirvöld gátu ekki þvingað ríkisstjórnina til að stoppa upp í.
Aur í vasa er mikilvægari en almannahagur.
14 daga sóttkvíin hefur lekið og valdið hópsýkingum, þó eðli málsins vegna hefur tekist að hemja þann leka því ekki er mikill samgangur milli vinnuþræla hins félagslega undirboða, og almennings.
Eftir stendur fólk með blóð á höndum sem ekkert hefur lært.
Mannsal og hin félagslegu undirboð hins frjálsa flæðis Evrópusambandsins eru æðri þjóðarhag eða lífi og limum landsmanna.
Rökin sjálfsagt að það eru svo litlar líkur, en þau rök höfum við heyrt áður.
Fyrir utan samfélag í frosti sóttvarna hafa þau kostað 16 líf, og eyðilagt jólahald þjóðarinnar.
Afhverju.
Afhverju?
Afhverju??
Kveðja að austan.
![]() |
Óbreytt fyrirkomulag á landamærum til 1. febrúar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2020 | 07:48
Alltaf má finna eitthvað til að gleðjast yfir.
Núna fundu menn frétt frá OECD þar sem sagði að við værum að skora hátt á meðaltalinu.
Ég læt mér duga að fara reglulega inná kóvid vefinn worldometers.info og fæ allar upplýsingar upptúdeit.
Þar stendur skýrum stöfum, með stóru letri að hluti af þingmönnum og ráðherrum Sjálfstæðisflokksins séu stórhættulegir bjánar, veiran er frá línulegum vexti yfir í veldisvexti um mestalla Evrópu.
Munum bara að meðaltöl bæta ekki líf þeirra 16 sem hafa þegar fallið vegna þriðju bylgjunnar.
Munum að fyrir júlílok var ljóst að landamærin láku inn smit þrátt fyrir skimun við landamærin.
Munum að veiran slapp inní landið 14. ágúst, tregðan í Sjálfstæðisflokknum hindraði nauðsynlega ákvörðunartöku um seinni skimun og sóttkví þar á milli til 18 ágúst.
Og hún hefur ekki verið látin sæta ábyrgð og hún er ennþá að.
Hótar þjóðinni ótímabæri opnun landamæranna.
Grefur grimmt undan sóttvörnum með afneitun og falsi.
Þannig er Ísland í dag og látum ekki segja okkur annað.
Kveðja að austan.
![]() |
Meðal Evrópulanda með fæst dauðsföll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.11.2020 | 17:20
Bjarna er vorkunn.
Aðaláhyggjur bernskunnar var hvort silfurskeiðin í munninum myndi valda varanlegum skemmdum á tönnum hans, og hann yrði því með spöng á viðkvæmum árum táningsins, þegar hann vildi skora sjálfur hjá hinu kyninu, svona egó dæmi.
Síðan í pólitíkinni hefur hann þurft fyrst og síðast að passa uppá fjármagn og fjárfestingar sinna og vina sinna.
Vegna þeirra stöðu þurfti hann líka að passa upp á fjármagn og fjárfestingar vildarvina flokksins, í raun endalaust kvabb því einn formaður getur ekki gert öllum til geðs.
En Bjarni er vel gefinn, hefur lært sína rullu vel í stjórnmálaskóla Valhallar, það eru rök á bak við sveltistefnu nýfrjálshyggjunnar.
Og full ástæða að minna á þau rök.
"Bjarni Benediktsson sagði að skerðingarreglur almannatryggingakerfisins eigi að tryggja að takmarkað fjármagn rati helst til þeirra sem eru í mestri þörf. "Við þurfum bara að ákveða hvað við ætlum að ráðstafa háum fjárhæðum í sérstöku desemberuppbótina og fara yfir það hvernig hún skilar sér, til þess að geta svarað þessari spurningu. En mín skoðun er eftir sem áður sú að það er auðvitað best að það skili sér sem mest til þeirra sem hafa minnst,"svaraði hann".
Auðvitað gengur ekki að þetta allt þarna öryrkjafólk þarna úti sem veður í peningum velti sér uppúr viðbótarpening frá ríkinu, í raun ætti að draga af því um jólin í stað þess að hækka hinar ríflegu öryrkjabætur með vísan í eitthvað sem kallað er jólabónus.
Bjarni komst nefnilega í gegnum sín æsku og unglingsár án þess að silfurskeiðin skemmdi tennur hans, það eru til góðir tannlæknar í Garðabænum.
Hann passaði líka vel uppá pabba sinn í aðdraganda Hrunsins, það þurfti kjark til að fara gegn skýrum lögum um innherjaupplýsingar til að hlutabréf í Glitni voru seld mínútu fyrir lokun bankanna.
Enda ljóst að 550 fermetra sumarhús í Flórída eru ekki gefins, og illt að hugsa að foreldrar manns þurfi að reiða sig á ellilífeyri almannatrygginga og jólabónus þess.
Dugar varla fyrir skúringarkonunni í mánuð, og er hún ekki vel haldin.
Bjarna er vorkunn.
Hann hefur ekki reynt sitt besta, hann hefur gert sitt besta.
Staðið sína plikt, og kann alla sína frasa utan bókar.
Fjármagn á vissulega að fara til þeirra sem þurfa þess mest.
Öll vitum við ótal dæmi um öryrkja og gamalmenni lifandi í vellystingum á kostnað skattgreiðanda þessa lands.
Einhver þarf að standa ístaðið á móti.
Til þess var Bjarni kosinn.
Að skamma hann fyrir það er eins og að skamma sólina fyrir að koma uppá morgnanna þegar maður nennir ekki á lappir og skammast út í morgunbirtuna.
Í besta falli ósanngjarnt.
Sem og að hann var kosinn til að passa uppá sína.
Sem hann hefur gert skammlaust.
En fær varla hrós fyrir.
Svona getur lífið verið ósanngjarnt.
Aumingja Bjarni.
Honum er vorkunn.
Kveðja að austan.
![]() |
Jólabónusinn skertur niður í núll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2020 | 23:05
"Þetta er ekki drepsótt".
Segja tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins.
Njóta stuðnings a.m.k. tveggja ráðherra flokksins.
Halda áfram að berjast fyrir ótímabæru andláti samborgara okkar.
Það er eins og blóðfórnin, 16 andlát sem þau bera beina ábyrgð með því að þvælast fyrir lokun landamæranna í sumar hafi ekki svalað blóðþorsta þeirra.
Þetta er ekki drepsótt segja þeir, hvurslags endalausa fáviska er þetta??
Er fólk ekki fólk ef það er ekki yngra fólk??
Veit það ekki að það þurfti samfélagslegar lokanir í vor til að hindra að hundruð þúsunda létust ekki úr farsóttinni í nokkrum af stærstu ríkjum Vestur Evrópu.
Þegar það var lokað á Spáni, 14. mars höfðu 202 látist, mánuði seinna þegar veldisvöxturinn fór loksins að verða línulegur, þá höfðu 19.000 látist, mánuði seinna í línulegum vexti, rúm 28.000.
Á Ítalíu var lokað 9. mars, 464 látnir, mánuði seinna 18.334, þá verður kúrfan meira línulega, 9. mai eru 30.473 látnir.
Bretar lokuðu 23. mars, þá höfðu 331 látist, 21.731 mánuði seinna, kúrfan byrjar að verða línuleg sirka 02. mai, þá höfðu 27.910 látist, mánuði seinna rúmlega 38.000.
Hefðu stjórnvöld viðkomandi landa ekki skorið á smitleiðir með samfélagslegum lokunum, verið það miklir fávitar að trúa að þetta væri ekki drepsótt í veldisvexti, og lagt til ráð Sigríðar Andersen, að fólk passaði uppá persónulegar sóttvarnir, þá hefði miðað við veldisvöxtinn, hátt í milljón manns dáið í þessum þremur löndum fyrir sumarbyrjun.
Ekki bara úr kóvid því spítalarnir hefðu verið orðnir óstarfhæfir vegna þess að heilbrigðisstarfsfólk hefði hríðfallið.
Bara í þessum þremur löndum.
Heilbrigðisstarfsfólk klæðist kóvidgallanum vegna þess einmitt að þetta er drepsótt.
Það er gripið til samfélagslegra lokana einmitt vegna þess að þetta er drepsótt.
Svo er hluti Sjálfstæðisflokksins að telja okkur í trú um að svo sé ekki.
Berst gegn sóttvörnum sem er í raun tilraun til fjöldamorða þegar drepsótt er annars vegar.
Ríkisstjórn okkar gat réttlæt opnun landamæranna í sumar með vísan í almenna heimsku og dómgreindarleysi, þetta fólk hafði jú samþykkt Orkupakka 3 án þess að sögn gera sér grein fyrir að þar með væri skrifræðisbákni Evrópusambandsins afhent yfirstjórn orkuauðlinda þjóðarinnar.
Sú heimska og dómgreindarleysi hafi skýrt að ekki var hlustað á þá lækna og hagfræðinga sem vöruðu við því feigðarflani.
En af hverju var svona seint gripið til aðgerða þegar ljóst var í um miðjan júlí að landamærin hríðláku??
Er skýringin sú að einn stjórnarflokkurinn er skipaður fólki sem veit ekki hvað drepsótt er, sem veit ekkert til hvers sóttvarnir eru, veit ekkert um veldisvöxt smita, eða annað sem þarf til að hægt sé að taka vitrænar ákvarðanir á hættutímum.
Og það sé svo heimskt að þegar allar vestrænar þjóðir hafa beygt sig fyrir raunveruleikanum og grípa til ströngustu sóttvarna til að hindra að línlegur vöxtur dauðsfalla breytist í óviðráðanlegan veldisvöxt sem mun kosta hundruð þúsunda lífið, milljónir ef allt fer á versta veg með hruni heilbrigðisþjónustunnar, að þá taki það upp baráttu fyrir opnun landamæra þjóðarinnar og setji almennt spurningu við árangursríkar sóttvarnir þjóðarinnar.
Var heimska allan tímann skýring þess að þetta fólk þvældist fyrir sóttvarnaryfirvöldum??
Spyr sá sem ekki veit.
Svarið er formanns Sjálfstæðisflokksins.
Hann getur ekki þvegið ábyrgðina af núverandi faraldri, blóðfórninni eða efnahagslegum og samfélagslegum afleiðingum hans, af höndum sínum.
En hann getur tekist á við meinið í sínum flokki.
Hver dagur sem líður sem hann þegir, er dagur sem er ekki hægt að túlka á annan hátt en að hann sé sammála þessari heimsku.
Að hann telji vágestinn ekki drepsótt, að hann sé andsnúinn sóttvörnum þjóðarinnar.
Því þú getur ekki á sama tíma sagst vera sammála sóttvarnaryfirvöldum og um leið liðið beina atlögu að þeim.
Það er ekkert lýðræði á dauðans alvöru tímum að vega að sóttvörnum þjóðarinnar.
Það er ekkert lýðræði að þingmenn í það minnsta komist upp með að hvetja til fjöldamorða á þeim forsendum að þeir sem líklegastir til að deyja sé ekki ungt fólk.
Á öllu eru mörk.
Jafnvel þegar Sjálfstæðisflokkurinn á í hlut.
Þau mörk hafa verið rofin.
Kveðja að austan.
![]() |
Það liggur fyrir að þetta er ekki drepsótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2020 | 09:07
Göngum hægt um gleðinnar dyr.
Það eru frábærar fréttir að bóluefni komi fljótlega upp úr áramótum.
Enn eitt dæmið um styrk mannsandans þegar allir leggjast á eitt á hættu og ögurstundum.
En hættan er ekki liðin fyrr en öllum stendur bóluefni til boða.
Aðeins þá næst hið svokallaða hjarðónæmi mennskunnar sem er andstæða þess hjarðónæmis sem átti að fást með að fólki væri slátrað eins og gripum þar til veiran hætti að breiða úr sér svo ég vitni í nýlega boðun hluta þingmanna Sjálfstæðisflokksins.
Sporin hræða.
Þrátt fyrir ítrekaðar aðvaranir allra helstu sérfræðinga þjóðarinnar gegn ótímabæri opnun landamæranna þá taldi ríkisstjórn Íslands sig vita betur, og allir vita hvernig það fór.
Hún vissi ekki rassgat eins og sagt var á mannmáli þegar ég var ungur einhvern tímann uppúr miðri síðustu öld, og ástandið í dag er nákvæmlega eins og varað var við.
Fólk hefur látist, frosið samfélag i fjötrum sóttvarna, viðvarandi ótti um hvern skaðar veiran næst.
Sporin hræða.
Í kvöldfréttir sjónvarpsins mætti Svanhvít Svavarsdóttir galvösk, nýbúin að kasta enn einu sinni sök sinni á starfsfólk Landakots, og tilkynnti alþjóð að eftir að framlínufólk og viðkvæmir hópar hefðu fengið bólusetningu, að þá yrði landið opnað á ný.
Hvað hún átti nákvæmlega við útskýrði hún ekki.
En sporin hræða.
Er það virkilega meining ríkisstjórnarinnar að veita veirunni frelsi korteri fyrir sigurinn yfir henni??
Eins og enginn sé lærdómurinn af ábyrgð sinni á ótímabærum andlátum 14 einstaklinga eða öllu því tjóni sem önnur og þriðja bylgjan hefur valdið samfélaginu, jafnt mannlífi eða afkomu heilu starfsstéttanna.
Eins og þetta fólk gerir sér ekki grein fyrir að alvarleiki veirunnar er ekki eingöngu mældur í fjölda fallinna heldur líka hvernig hún leikur fullfrískt heilbrigt fólk.
Sviptir það kannski starfsorku fyrir lífstíð.
"Ungir og heilbrigðir einstaklingar hafa sýnt einkenni líffærabilunar og skertrar líkamsstarfsemi allt að fjórum mánuðum eftir sýkingu. Einstaklingar með langa Covid hafa lýst viðvarandi einkennum á borð við þreytu, andleysi, verki og heilaþoku"." (Úr frétt Mbl.is um eftirköst veirunnar í Bretlandi).
Það er full ástæða til að fara varlega.
Sýna þolinmæði þar til þjóðin er örugg.
Nú þegar hefur það miklu verið fórnað, að það er vanvirðing við þær fórnir að vanvit sleppi veirunni lausri á síðustu metrunum.
Við þurfum að útrýma henni úr samfélaginu.
Og ekki hleypa henni inn aftur.
Vonandi er það stefna ríkisstjórnarinnar.
En henni er því miður trúandi til alls.
Sporin hræða.
Kveðja að austan.
![]() |
Lausn handan við hornið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2020 | 16:28
Sök ber af sér sakir.
Það þarf ekki að rífast um að mistök áttu sér stað á Landakoti, mistök sem er ekki hægt að hengja á húsnæði, starfsmannaeklu eða annað.
Þau mistök þarf starfsfólk Landsspítalans að takast á við og vinna úr, réttilega benti yfirsmitlæknirinn á í Kastljósviðtali þar sem snatar frjálshyggju og valds vildu fá einhvern til að hengja, að það mætir enginn í vinnu á Landspítalann með því markmiði að gera mistök.
Hýenur valdsins, taglhnýtingar stjórnmálaflokkanna, allra þeirra sem ábyrgðina bera, skulu skammast sín til að halda kjafti, þau vörðu niðurskurð á niðurskurð ofan, hagræðingarkröfur sem fyrir mörgum árum tálguðu alla starfsemi inn að beini, síðan þá vó niðurskurðurinn að kjarna þess sem hélt þjóðarspítala okkar gangandi.
Aumkunarverðasta að öllu því auma í samfélagi okkar, fjölmiðlafólkið sem hefur selt sálu sína fyrir að halda vinnu á auðfjölmiðlum, eða samkrulli valdsins í Brussel við alþjóðlega hrægamma, dagsdaglega kallað Ríkisútvarpið, ætti að ganga hægt um fordæmingardyr, því seld sál býður alltaf síns lokadóms.
Svanhvít á samt að hafa vit á að þegja.
Þegar hún var aðeins yngri og hafði ennþá sál til að selja að boði Steingríms sem vildi verða ráðherra, þá tók hún að sér böðulshlutverk AGS, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, að undirlægi hrægammanna, að loka allri spítalaþjónustu á landsbyggðinni.
Var svo aum og ómerkileg að hún kallaði það hagræðingu.
Landsbyggðarfólk mótmælti, en ögurstundin var samhent mótmæli lækna í Reykjavík sem bentu a að dýrast af öllu var að hafa alla sjúklinga landsins á einu hátæknisjúkrahúsi, þar væru miklu dýrari rúm undir en á spítölum landsbyggðarinnar.
Rifjað upp svo við gleymum ekki fortíð Svanhvítar Svavarsdóttur.
Hvernig væri ástandið í dag ef við hefðum bara einn spítala???
Meginskömm Svanhvítar er samt að hafa látið undan hægra öfgafólki í þing, ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins, og ekki lokað landamærunum í tíma fyrir kórónuveirusmiti.
Landamærin láku, það var ljóst í byrjun júlí, miðað við tregðu kerfisins þá er eðlileg töf að reglur á landamærum hefðu ekki verið hertar fyrr en í júlílok.
Svanhvít dagsetti breytingar sínar á 19. ágúst, og þurfti hún til slag Kára klára gagnvart hægri öfgum, sjálf þagði hún, eins og hún hefur alltaf þagað.
Franska veiran kom inní landið 14. ágúst.
Hún hefur lamað samfélag okkar, og valdið ótímabærum andlátu 14 samlanda okkar.
Allt vegna aumingjaskapar Svanhvítar Svavarsdóttur.
Manneskjunnar sem sveik heimili landsins í hendur hrægamma, sem sveik í ICEsave, og hefur síðan svikið flest sem kenna má við hugsjónir mannúðar og mennsku.
Hún samþykkti Orkupakka 3.
Hefði Svanhvít Svavarsdóttir staðið í lappirnar gagnvart Sigríði Andersen og dúkkulísum hennar í ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins, þá hefði aldrei reynt á smitvarnir Landakots.
Þá væri starfsfólkið þar aðeins önnum kafið, en ekki yfirhlaðið af verkefnum sem engan endi tók og tekur.
Gerði sitt besta við vonlausar aðstæður.
Í aðstæðum sem forystufólk smitvarna Landsspítalans varaði alvarlega við.
En Svanhvít kaus að hundsa.
Er hægt að leggjast lægra??
Ég bara spyr.
Kveðja að austan.
![]() |
Augljóst að gera má betur á Landakoti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.11.2020 | 10:05
Við vissum þetta ekki.
Er ávalt viðkvæðið þegar siðblindan og siðleysið á bak við alþjóðavæðinguna er afhjúpað.
Sem er örugglega rétt, það er valkvæð afstaða að vita ekki neitt innan gæsalappa, kallast trúverðug neitun.
Þá fara menn í vettvangsferð með bundið fyrir augun, tappa í eyrun og anda í gegnum hátæknilofsíu, svo menn finni ekki lyktina af mannlegu eymdinni sem knýr gróðavél þeirra áfram, heyri ekki grát og stunur hins örmagna verkafólks, eða sjái aðstæðurnar sem minna meir á þrælabú hins gamla Rómarveldis en eitthvað sem má kenna við nútímann.
Nei þetta er saklaust fólk, skinheilagt fólk.
Það leitar bara alltaf eftir lægstu tilboðunum, löngu búið að útvista öllum störfum úr framleiðslugeira Vesturlanda, og þegar lægsta tilboð er tekið, þá er strax byrjað að knýja fram lækkun á því, með fram að stöðugt er leitað nýjum löndum eða héruðum þar sem fátæktin er meiri, og þar með vinnuafl sem lætur bjóða sér ennþá svívirðilegri kjör.
Því þannig vinna þeir sem blóta þann í neðra.
Og þeirra er kerfið, alþjóðavæðingin, hið frjálsa flæði hins innra markaðar Evrópusambandsins, reglur sem skylda hið opinbera til að taka ávalt hinu lægsta tilboði og svo framvegis.
Við sjáum fríverslunarsamninga þar sem innlend framleiðsla á ekki breik gagnvart þrælahöldurunum, við sjáum sífellt flóknara regluverk sem virðist hafa þann eina tilgang að framleiða kostnað, til dæmis í landbúnaðinum og svarið er síðan, við þurfum að flytja inn því þið eruð ekki samkeppnisfær.
Og núna síðast sjáum við hvernig þessir djöflar (fornt orð yfir þá sem dýrka og þjóna þeim í neðra) hafa yfirtekið baráttu mannsandans gegn lofslagsvánni, henni er breytt í tæki sem skattleggur fátækt fólk út úr samfélaginu (hefur ekki efni á orkunni sem knýr heimilin eða nýtísku skattlausu rafmagnsbílunum svo dæmi sé tekið), grænir skattar og dýr orka hrekur framleiðslu til landa sem þurfa ekki að standa skil á neinum loftslagsskuldbindingum.
Eykur þar með sogið í þrælabúðir alþjóðavæðingarinnar.
Við sjáum hvernig frjálsa flæðið virkar á Íslandi, störf sem fólk vill ekki vinna sökum lélegra kjara miðað við erfiði þeirra eða aðbúnað, eru mönnuð með fátæku farandverkafólki í stað þess að lögmál markaðarins hækki laun og bæti aðbúnað svo innlendir vilji sinna þeim.
Í raun hefur hið frjálsa flæði þurrkað út áratuga baráttu samtaka verkafólks fyrir bættu kjörum og aðbúnað.
Þeir sem lifa af í kerfi hinna lægstu tilboða, eru þeir sem vilja fara verst með fólk.
Og við vitum þetta öll.
En við gerum ekkert í því.
Ekki á meðan þetta snertir aðra.
En þetta snertir okkur öll að lokum.
Feisum það.
Og gerum eitthvað í því.
Til dæmis með því að þurrka út Samfylkinguna og aðra stuðningsflokka hins frjálsa flæðis.
Það væri góð byrjun.
Kveðja að austan.
![]() |
Þrælað út fyrir þekkt vörumerki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.9.): 0
- Sl. sólarhring: 904
- Sl. viku: 4078
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3443
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar