Bjarna er vorkunn.

 

Aðaláhyggjur bernskunnar var hvort silfurskeiðin í munninum myndi valda varanlegum skemmdum á tönnum hans, og hann yrði því með spöng á viðkvæmum árum táningsins, þegar hann vildi skora sjálfur hjá hinu kyninu, svona egó dæmi.

 

Síðan í pólitíkinni hefur hann þurft fyrst og síðast að passa uppá fjármagn og fjárfestingar sinna og vina sinna.

Vegna þeirra stöðu þurfti hann líka að passa upp á fjármagn og fjárfestingar vildarvina flokksins, í raun endalaust kvabb því einn formaður getur ekki gert öllum til geðs.

 

En Bjarni er vel gefinn, hefur lært sína rullu vel í stjórnmálaskóla Valhallar, það eru rök á bak við sveltistefnu nýfrjálshyggjunnar.

Og full ástæða að minna á þau rök.

"Bjarni Bene­dikts­son sagði að skerðing­ar­regl­ur al­manna­trygg­inga­kerf­is­ins eigi að tryggja að tak­markað fjár­magn rati helst til þeirra sem eru í mestri þörf. "Við þurf­um bara að ákveða hvað við ætl­um að ráðstafa háum fjár­hæðum í sér­stöku des­em­berupp­bót­ina og fara yfir það hvernig hún skil­ar sér, til þess að geta svarað þess­ari spurn­ingu. En mín skoðun er eft­ir sem áður sú að það er auðvitað best að það skili sér sem mest til þeirra sem hafa minnst,"svaraði hann".

Auðvitað gengur ekki að þetta allt þarna öryrkjafólk þarna úti sem veður í peningum velti sér uppúr viðbótarpening frá ríkinu, í raun ætti að draga af því um jólin í stað þess að hækka hinar ríflegu öryrkjabætur með vísan í eitthvað sem kallað er jólabónus.

 

Bjarni komst nefnilega í gegnum sín æsku og unglingsár án þess að silfurskeiðin skemmdi tennur hans, það eru til góðir tannlæknar í Garðabænum.

Hann passaði líka vel uppá pabba sinn í aðdraganda Hrunsins, það þurfti kjark til að fara gegn skýrum lögum um innherjaupplýsingar til að hlutabréf í Glitni voru seld mínútu fyrir lokun bankanna.

Enda ljóst að 550 fermetra sumarhús í Flórída eru ekki gefins, og illt að hugsa að foreldrar manns þurfi að reiða sig á ellilífeyri almannatrygginga og jólabónus þess.

Dugar varla fyrir skúringarkonunni í mánuð, og er hún ekki vel haldin.

 

Bjarna er vorkunn.

Hann hefur ekki reynt sitt besta, hann hefur gert sitt besta.

Staðið sína plikt, og kann alla sína frasa utan bókar.

 

Fjármagn á vissulega að fara til þeirra sem þurfa þess mest.

Öll vitum við ótal dæmi um öryrkja og gamalmenni lifandi í vellystingum á kostnað skattgreiðanda þessa lands.

Einhver þarf að standa ístaðið á móti.

 

Til þess var Bjarni kosinn.

Að skamma hann fyrir það er eins og að skamma sólina fyrir að koma uppá morgnanna þegar maður nennir ekki á lappir og skammast út í morgunbirtuna.

Í besta falli ósanngjarnt.

 

Sem og að hann var kosinn til að passa uppá sína.

Sem hann hefur gert skammlaust.

En fær varla hrós fyrir.

 

Svona getur lífið verið ósanngjarnt.

Aumingja Bjarni.

 

Honum er vorkunn.

Kveðja að austan.


mbl.is Jólabónusinn skertur niður í núll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Saga þín um Bjarna minnir mann á gamansöguna um Honecker og sólina

En ég er að hlusta á sögu Obama hann var kosinn forseti því hann vildi breyta

Er einhver í kortunum sem þú treystir til að breyta íslensku þjóðfélagi ekki það að mér finnist að Obama hafi breytt miklu þegar hann hafði völdin til þess

frekar en aðrir

Grímur Kjartansson, 19.11.2020 kl. 18:52

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Grímur.

Eiginlega fáum frá því að Lilja Móses var og hét, þá hefði gott fólk mátt taka slaginn með henni.

En þú ert með þetta, þetta er saga, spéspegill, svona að gefnu tilefni því mér fannst þetta svo fyndið að hann ætlar að skila mest til þeirra sem hafa minnst.

Stundum eiga menn að hafa vit á að þegja eða segja bara að þeir eigi ekki pening, eða eitthvað, ekki bulla svona.

En Bjarni er betri en enginn, hafðu mín orð fyrir því.

Þessi enginn er til dæmis Samfylkingin og Píratar, nútímatákn yfir arabísku byltinguna í stærðfræði, núllið.

En dónt vorry, á bak við kólguskýin er birta.

Og það mun birta.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 19.11.2020 kl. 23:47

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Ómar, Bjarni er betri en engin nú ætlar ráðuneytið hans að beita sér fyrir að frítekjumark fjármagntekna hækki.

Lagt er til að frí­tekju­mark vaxta­tekna ein­stak­linga við álagn­ingu fjár­magn­s­tekju­skatts verði hækkað úr 150 þúsund kr. í 300 þúsund kr. á ári, í frum­varps­drög­um fjár­málaráðuneyt­is­ins, sem birt hafa verið í sam­ráðsgátt stjórn­valda.

Segðu svo að ekki sé hugsað um smáfuglanna. 

Það ku víst viðra til steypu í neðra í dag, með kveðju.

Magnús Sigurðsson, 20.11.2020 kl. 06:36

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Góðan daginn Magnús.

Birta og hlýna, veður fyrir steypu og brodda, það er alveg skelfilega hált.

Það þarf að hugsa um smáfuglanna eins og þú veist.

Ég lauma alltaf einum og einum fuglafóðurspoka innan um mjólkina og er alltaf jafn hissa þegar frúin rekur augun í þá og spyr hálfbyrstum rómin, Ómar, ertu ekki nýbúinn að kaupa poka.  Og eins og ímynd sakleysisins svo minnir á gamla svarthvíta með Shirley Temple í gamla svarthvíta Gagnheiðarsjónvarpinu, svara ég alltaf, ha nei, getur það verið, minni svo aldraða móðir mína í næstu kaffibollaheimsókn að nú sé komið að henni að kaupa fóðrið því grunsemdir séu vakandi á mínu heimili.

Svona gengur þetta vetur eftir vetur alveg eins og hjá honum Bjarna, hann þarf að fóðra sína.

Og passa uppá að fjármagnið skili sér sem mest til þeirra sem hafa minnst, þar er hann eilíft á vaktinni eins og ég og heimilskötturinn, það er að passa uppá smáfuglana.

Já, hann er betri en enginn, það er á hreinu.

Kveðja úr hlýjunni í neðra.

Ómar Geirsson, 20.11.2020 kl. 07:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 17
  • Sl. sólarhring: 533
  • Sl. viku: 722
  • Frá upphafi: 1320569

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 631
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband