Eins og lög gera ráð fyrir.

 

Þá skila ég tillögum mínum til heilbrigðisráðherra, sagði Þórólfur Guðnason eftir fund hans með fullorðnu fólki, formönnum ríkisstjórnarflokkanna í morgun.

Svaraði þar með spurningunni hvort hann hefði lagt fram tillögur fyrir fundinn um hertar aðgerðir vegna hinna nýlegu samfélagssmita.

Hann var búinn að skila tillögum sínum, eins og lögin kveða á um að honum sé skylt þegar aðstæður krefja.

 

Svona eru lögin, eitthvað sem sumir ráðherrar ríkisstjórnarinnar virðast eiga erfitt með að skilja, það er ekki þeirra að koma með tillögur um aðgerðir gegn farsóttinni.

Sem og þeir fréttamenn sem síspyrja Þórólf um álit hans á litaspjöldum eða að vottorð frelsi ferðalanga frá sóttkví.

"Spurður hvort ósam­ræmi væri í því sem heil­brigðis­yf­ir­völd væru að segja og gera og svo stjórn­völd, til að mynda með því að slaka á aðgerðum á landa­mær­un­um, sagðist Þórólf­ur ekki ætla að leggja dóm á hvað stjórn­mála­menn væru að segja. Þeir hefðu frelsi til að túlka fyr­ir­liggj­andi gögn en að við þyrft­um að vanda okk­ur eins mikið og hægt er á landa­mær­un­um.".

Á mannamáli, stjórnmálamenn mega gaspra, en ég hef verk að vinna samkvæmt lögum.

 

Reynslan sker úr um hvort hinar nýju tillögur nái að stoppa í götin, allavega er ljóst að samfélagið getur ekki búið við þennan leka, fólk vill frið frá veirunni, fólk vill að landamærin séu varin.

Af hverju ekki fyrr er ekki issjú í málinu, það sem er liðið, er liðið, en það liðna krefur heilbrigðisyfirvöld um lærdóm, að það sé gert sem þarf að gera.

 

En að lokum má skemmta sér yfir barnláninu, láta enn eitt gullkorn fljóta með;

"Öll höf­um við þurft að færa fórn­ir vegna aðgerða sem grípa varð til í því skyni að verja þá veik­ustu í sam­fé­lagi okk­ar. Fórn­irn­ar eru þó mis­mikl­ar eft­ir aðstæðum hvers og eins. Þeir sem eiga lífsaf­komu sína und­ir ferðamennsku hafa fært einna mest­ar fórn­ir. Við vit­um að end­ur­reisn efna­hags­lífs­ins hvíl­ir á því hversu lang­an tíma það tek­ur ferðaþjón­ust­una að ná viðspyrnu.".

Gáfurnar svona álíka eins og að segja að þegar fiskifræðingar mæla enga loðnu, og leggja til veiðibann, að þá séu loðnusjómenn að færa fórnir umfram aðra með því að fara ekki á miðin og veiða hana.

 

Veiran er faktur og farsóttin leikur atvinnugreinar misgrátt.

Kemur misilla við fólk og fyrirtæki.

En að feisa þá staðreynd er ekki að færa fórnir, heldur bitur raunveruleiki.

 

Hins vegar færir samfélagið fórnir þegar misvitrir stjórnmálamenn afneita þeim raunveruleika, og nota rök forheimskunnar til að leyfa ferðalög milli landa án undangenginnar sóttkvíar, slíkt leiðir alltaf til faraldurs, og tilheyrandi samfélagslegra lokana.

Fórnirnar eru þá atvinnan og frelsið sem aðrir tapa vegna þeirrar heimsku.

Því það er eitthvað sem hægt er að stjórna, og sú ranga ákvörðun bitnar á öðrum.

 

Samt er ekki annað en hægt að gleðjast yfir að reynt er að stíga rétt skref.

Ekkert sjálfgefið þar sem Sjálfstæðisflokkurinn á í hlut og það mannaval sem hann lítilsvirðir þjóðina með í ríkisstjórn.

Seint skulu menn vanmeta þrönga fjárhagslega hagsmuni flokkseiganda og annarra vildarvina.

 

Rétt ákvörðun er því alltaf sigur og fagnaðarefni.

Vonum að þetta dugi, en ef ekki, þá þarf bara að gera meira.

 

Og þá fyrr en seinna.

Kveðja að austan.


mbl.is Skima börn og skylda fólk í sóttvarnahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veiran er þarna.

 

Illvíg sem fyrr, og það er sama hvað hausnum er barið oft í steinvegg, það þarf aðeins eitt smit til að koma að stað faraldri.

Það má aldrei gleymast að fyrsta staðfesta smitið greindist í Wuhan í byrjun desember 2019, 6 vikum seinna eða 22 janúar 2020 var gripið til allsherjarlokunar í borginni, sársaukafull aðgerð sem var eina bjargráðið vegna þess að þetta eina smit fékk að grassera þar til það var of seint að grípa til mildari sóttvarna.

 

Þess vegna á að þefa veiruna uppi og útrýma henni, meðan það er hægt með fjöldaskimunum og sóttkví þeirra sem hugsanlega gætu verið smitaðir.

Að bíða, að sjá til, að elta skottið á veirunni, endar aðeins á einn fullreyndan veg.

Samfélagslegum lokunum allra.

 

Börnin eru líka þarna, ennþá að manni skilst.

Þau eru að leika sér með litaspjald, og þau hafa ekki þroska eða vit til að skynja alvöru málsins.

Þau eru vítin sem við eigum að varast, vítin sem við eigum að þekkja;

"Við verðum því að velta því fyr­ir okk­ur hvert og eitt, sem ekki verðum bólu­sett þegar landið opn­ast, hver ábyrgð okk­ar sjálfra er við að draga úr áhættu með eig­in hegðun".

Þau ætla að opna landið og ábyrgðin er okkar að passa okkur, að fara í felur í okkar eigin landi.

 

Á alvöru tímum, þegar heimurinn gengur í gegn fordæmalausa farsótt, er ótrúlegt að þjóðin þurfi mest að óttast eigið ráðafólk.

Því á meðan svona er gasprað, þá er hugur og vilji ekki einbeittur að því sem skiptir öllu máli.

Því sem skiptir eina máli.

 

Að verja þjóðina.

Mannlífið, samfélagið okkar.

 

Þar þarf að verða breyting á.

Kveðja að austan.


mbl.is 21 smit um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Börnin hafa talað.

 

Og reyna sitt besta að skaða bæði flokk sinn og ríkisstjórn.

Vanþroskinn svo mikill að þau skilja ekki hvað er að málflutningi þeirra.

 

"Ekki mætti fest­ast í gildru ástands­ins; tak­mark­ana og lít­ils ferðaf­rels­is og því væri nauðsyn­legt að liðka til eins fljótt og auðið er.".

Hárrétt, en þjóðin var í þessari gildru vegna þess að staðreyndir veirusýkinga voru hundsaðar, að það þarf aðeins eitt smit til að koma að stað faraldri, og landamærin voru ekki varin síðasta sumar.

 

Við erum nýsloppin úr þessari gildru, og þá hótar blessað barnalánið okkur nýrri með því að þykjast vita betur en sóttvarnaryfirvöld.

Og fáviskan alltaf réttlætt með því að það sé verið að vernda störf, en aldrei spurt hvað hún hefur kostað mörg störf??

Hvað hafa mörg störf tapast vegna þess að samfélagið var sett í herkví sóttvarna vegna smitbylgjunnar síðasta sumar??

 

Skilja börnin ekki að þjóðin vill fá að lifa eðlilegu lífi og hún vill bíða með tilslakanir á landamærunum þar til það er öruggt að þær tilslakanir leiði ekki til nýrrar bylgju.

Hvað er svo flókið við þetta??, unglingarnir á mínu heimili skilja þetta og þeir eru ekki ennþá orðnir 17 ára.

 

Og þjóðin vill að sérfræðingar hennar, sóttvarnaryfirvöld meti þau skref sem tekin eru.

Þar sem skynsemin og varkárnin er höfð að leiðarljósi.

 

Þjóðin vill ekki að krakkar á ráðherrastól véli um þær ákvarðanir, þó þeir telji sig hafa vitsmuni til að vitna í sóttvarnalækni máli sínu til stuðnings; "Enn frem­ur vitnaði hún í orð sótt­varna­lækn­is um að góð vörn væri í vott­orðum".

Bólusetningar eru vörn mannsins gegn þessum vágesti og þær hægt og hljótt ná að brjóta hann á bak aftur.

En þetta tekur tíma, bæði erlendis og hérlendis, og við verðum að sýna þeim tíma þolinmæði.

 

Sóttvarnayfirvöld vega síðan og meta hvenær hægt er að slaka á seinni skimun og í hvaða tilvikum.

Alltaf með það að leiðarljósi að landamærin haldi.

 

Þeirra rök eru aldrei viðspyrna eða minna atvinnuleysi.

Heldur hvað er öruggt, hvað er óhætt.

Og sú farsæla leið er líka til lengri tíma litið sú leið sem skilar mestum efnahagslegum ávinningi, því heilbrigði og frelsi er alltaf samofin efnahagslegum styrk og velmegun.

 

Það er hreint út ótrúlegt að formaður Sjálfstæðisflokksins skuli hafa reynt að verja þennan barnaskap og þau afglöp að tillögur um tilslakanir á landamærum skyldi vera unnar án þess að sóttvarnalæknir hafi verið hafður með í ráðum.

Og ennþá ótrúlegra að hann skuli ekki hafa sett krakkana í samfélagsbindindi, eða bannað þeim yfir höfuð að tjá sig um sóttvarnir og fyrirkomulag þeirra á landamærunum.

 

Katrín Jakobsdóttir hafði þó tötstið að þagga niður í Svanhvíti og tali hennar um að ekki yrði hvikað frá litakerfinu sem ætti að taka við 1. mai.

Katrín gerði það reyndar ekki fyrr en Þórólfur hló að því opinberlega á blaðamannafundi og sagði að litaspjald væri aldrei innlegg í sóttvarnir og hann tæki ekki þátt í slíkri vitleysu, en Katrín gerði það þó.

 

Þetta töts vantar Bjarna.

Það skaðar hann, líkt og hann hafi ekki stjórn á sínu liði.

Eða það sem verra er, að hann sé sjálfur svo firrtur að hann sé ekki neinum tengslum við líf og hugsanir venjulegs fólks.

 

En menn byrja ekki kosningabaráttu á að skjóta sig í fótinn, að vekja upp úlfúð og ótta, og geirnegla ímynd flokksins við þrönga hagsmuni fjársterkra aðila sem hafa fjárfest í ferðaþjónustunni undanfarin ár.

Bjarni þarf því að taka sig taki, og þó hann ráði kannski ekki menntaða fóstru til starfa  í stjórnarráðið, þá má alltaf athuga hvort Nanny Mcphee sé á lausu.

Það er svo mikið undir, þetta gæti jafnvel varið bjarghringur vitleysingabandalags Pírata og Samfylkingarinnar, að flokkar sem hafa ekkert að segja, og ekkert til málanna að leggja, fái fylgi út á dómgreindarbrest og barnaskap fólks sem annars vegar skynjar ekki þjóðarsálin og hins vegar hefur ekki lágmarks þroska til að gegna starfi sínu.

 

Eldgosið gefur smágrið en ekki langan.

Vonandi notar ríkisstjórnin þann tíma til að ná sátt við sóttvarnaryfirvöld, og já kaupa beisli á börnin.

 

Haldi svo áfram að stjórna þjóðinni, því þrátt fyrir allt þá hefur stjórn hennar verið til heilla á þessum örlagatímum.

Vissulega gerð mistök, en það hefur alltaf verið reynt að bæta úr þeim.

Hún hefur tryggt stöðugleika, og sýnt augljósan vilja til að gera illt skárra, og í mörgu hefur vel tekist til.

 

Það má ríkisstjórnin eiga.

Og á svona tímum á meta slíkt og halda til haga.

 

En Nanny Mcphee, það ætti að athuga með hana.

Kveðja að austan.


mbl.is Engu fórnað fyrir aðra bylgju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vítin eru til að varast.

 

Á engan hátt er hægt að heiðra minningu allra þeirra sem hafa fallið að óþörfu í þessari illvígu farsótt sem Kóvid er.

Gleymum því ekki að maðurinn býr yfir allri þeirri tækni og þekkingu til að verjast veirunni, setja hana í bönd, og síðan útrýma henni.

Síðan er varist á landamærum.

 

Það eru ekki bara eyríki eins og Nýja Sjáland og Taivan sem hafa náð að loka á veiruna, þriðja stærsta ríki heims, það fjölmennasta, hefur líka náð þeim árangri að allt mannlíf er eðlilegt innanlands, varnirnar eru á landamærunum, en þegar minnti grunur er um að smit sé að festa rætur, þá er lokað þann tíma sem það tekur að útrýma veirunni.

Kínversk stjórnvöld gerðu það sem margt hægri fólk vestrænna landa gerir, afneituðu staðreyndum og rifust við raunveruleikann, töldu sig vita betur.

En þegar þau sáu fram hrun samfélagsins og þar með hrun efnahagskerfisins, þá sáu þau að sér, og gerðu það sem þurfti að gera.

Útrýmdu veirunni og síðan þá hefur allt blómstrað í Kína.

 

Ólíkt því sem er í flestum vestrænum löndum, sífelldar samfélagslegar lokanir, efnahagsskaði, ótímabær andlát hundruð þúsunda.

Og ekkert lát á.

 

Ítölsk stjórnvöld heiðra hina látnu í Bergamo, borgarinnar sem varð táknmynd hörmunga fyrst bylgju kóvid faraldursins.

En þau hafa ekkert lært, frá því í vor hafa þrefalt fleiri fallið vegna kóvid veirunnar, samfélagið í fjötrum, stórskaðað efnahagslíf.

Allt vegna ítaka hins heimska hægris sem vill afsanna að við séum homo sapiens, þetta vitiborna sé óþarfa forskeyti.

 

Vítin eru til að varast.

Þessi orð má lesa í þessari frétt um minningaathöfnina í Bergamo;

"Marg­ir borg­ar­bú­ar gagn­rýna yf­ir­völd fyr­ir að hafa oft seint gert sér grein fyr­ir al­var­leika far­sótt­ar­inn­ar í fyrra. Hversu seint var gripið til viðeig­andi ráðstaf­ana til að stöðva fjölg­un smita. Meðal ann­ars með því að setja á sam­komu­bann.".

Andvaraleysi sem kostaði líf ástvina þeirra.

 

Við Íslendingar eigum líka okkar víti.

Óþarfa dauðsföll, ónýtt síðsumar, stífar samfélagslegar lokanir langt fram eftir vetri, og fyrir þá sem skilja ekki sið, aðeins aura og krónur, tugmilljarðar töpuðust vegna frostavetur hinna stífu sóttvarna.

 

Og núna ætlar sama fólkið að endurtaka þessi víti.

Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur kveðið úr um að þetta séu ekki bara börnin.

 

Sumir læra ekkert, sumir skilja ekkert.

Í raun of heimskt til að vera satt.

Svo spurningin er; Hvað hangir á spýtunni??

 

Eftir Hrun var upplýst hvernig útrásarvíkingarnir mútuðu eða keyptu upp stjórnmálamenn.

Er eitthvað slíkt í gangi í dag, eru það miklir fjárhagslegir hagsmunir undir hjá hluta auðstéttar okkar, að hún hafi talið það arðvænlegt að fylla tóma vasa flokka og einstakra stjórnmálamanna í aðdraganda prófkjara og kosninga??

 

Veit ekki.

En ég veit að þegar heimskan er of heimsk til að hægt sé að skýra hana með heimsku viðkomandi, þá er skýringanna að leita annars staðar.

En svarið vita þeir sem spila sig fífl þessa dagana.

 

Á meðan skulum við sem þjóð hindra vítin.

Kveðja að austan.

 

 

 

 

 

 


mbl.is Herbílar hlaðnir líkkistum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Börnin sem þykjast vita betur.

 

Og hafa jafnvel verið staðin að því að ybba gogg við sér eldra og reyndara fólk líkt og iðnaðarráðherra gerði svo eftirminnilega í byrjun síðasta sumars þegar hún andmælti gildum rökum Gylfa Zöega hagfræðiprófessors um að skaðinn við opnun landamæranna væri margfaldur á við þann skammtíma ávinning sem ferðaþjónustan hefði af auknum ferðamannastraumi, ávinning sem varaði aðeins á meðan ný bylgja veirunnar væri að skjóta rótum og öllu yrði lokað á ný.

"Ég tel svo ekki vera" er frægt svar iðnaðarráðherra og sú forheimska kostaði þjóðina einhver prósent í samdrátt þjóðarframleiðslunnar auk ótímabærs andlást nokkurra eldri samborgara okkar.

 

Núna berast fréttir að börnin sem vita betur, hafi unnið tillögur um gildi einhverra vottorða frá löndum utan Schengen, án nokkurs samráðs við sóttvarnaryfirvöld.

Eins og enginn sé lærdómurinn eða þá það sem þarf að vera til staðar svo fólk geti lært, sé ekki til staðar.

 

Eins fáum við fréttir um að heilbrigðisráðherra hafa sagt í Kastljósi, en ekki í grínsketsi hjá Gísla Marteini, að stjórnvöld stæðu fast við þá ákvörðun sína að taka upp litakóðunarkerfi á landamærunum frá og með 1. mai.

Rökin eru reyndar ekki þráin eftir að komast aftur í öruggt skjól leikskólans og fá að lita, heldur eitthvað sem heitir fyrirsjáanleiki, að það séu einhverjir í samfélaginu sem geta ekki vaknað á morgnanna og skipulagt daginn sinn nema að búa við þennan meinta fyrirsjáanleika.

 

Maður vorkennir Ölmu að þurfa enn einu sinni að svara þessu bulli.

"Alma D. Möller land­lækn­ir bætti því við að kallað hafi verið eft­ir fyr­ir­sjá­an­leika í ýms­um aðgerðum hvað far­ald­ur­inn varðar en að veir­an byði ekki upp á fyr­ir­sjá­an­leika og mik­il­vægt væri að all­ir væru til­bún­ir í að áætlan­ir væru end­ur­skoðaðar reglu­lega.".

 

Það er ekki nema von þó að Þórólfur eyði nokkrum orðum í að útskýra efnislega að hann gegni embætti sóttvarnalæknis og hlutverk hans er samkvæmt lögum að koma með tillögur og annað sem taka tillit til aðstæðna hverju sinni, með því markmiði að vernda almenning gagnvart hinni alvöru farsótt sem herjar á heimsbyggðina.

Hans hlutverk er ekki að hlusta á börn.

Hvort sem þau þykjast vita betur eða ekki.

 

Loksins kom að því að Þórólfur lét ekki lengur bjóða sér þennan ruglanda.

Hann hefði betur gert það fyrir ári síðan, en hann lærir.

Enda löngu orðinn fullorðinn og laus við barnsskóna.

 

Og hann er í þeirri stöðu í dag að eiga síðasta orðið.

Þjóðin líður ekki annað.

Kveðja að austan.


mbl.is Erfitt að vita nákvæmlega hvaðan fólk kemur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elliært gamalmenni stuðlar að heimsófriði.

 

Það er vissulega alveg rétt að forseti Rússa, Pútín, beri ábyrgð á dauðsföllum andstæðinga sinna.

En aðeins elliært gamalmenni horfir ekki í eigin barm, og fattar að í embætti hans felst ákvörðun um að drepa andstæðinga þjóðar sinnar.

 

En vissulega þarf Biden ekki að vera elliær, hann getur höfðað til heimsku og forheimsku fólks, líkt og til dæmis við þekkjum vel hér á Moggablogginu, sem kannast aldrei við bein dráp bandaríska stjórnvalda, en halda síðan lærðar ræður um lýðræði eða mismunun á milli þeirra sem drepa með sprengiefni tengt við fólk, eða þeirra sem drepa miklu fleiri með því að sprengja allt í loft upp með drónum.

Eitthvað sem allir vita nema hugsanlega Björn Bjarnason og Davíð Oddsson.

 

Breytir engu um það að hið meinta stríð við meint hryðjuverkasamtök, ber beina ábyrgð á dauða saklausra, svo það tæki jafnvel Pútín áratugi að ná einu ári í beinum morðum bandarískra stjórnvalda.

Trump var vissulega kaupsýslumaður, en engin dæmi eru um að hann hefði verið svona heimskur að saka rússnesk stjórnvöld um að vera morðingjar.

Enda nýtti Trump sér óspart að vega og drepa meinta andstæðinga stjórnvalda í Washington.

 

Eftir stendur hvaða fífl og fábjáni leyfði hinu elliæra gamalmenni að tjá sig án þess að hið elliæri sem tryggði þessu fólki völdin, væri ekki ritskoðað.

Þetta er alvarlegra en aumkunarverðar tilraunir Brussel til að drepa bólusetningar AstraZenita, bein  afleiðing þess er aðeins ótímabær andlát þúsunda, en þegar Haukarnir fá free spil með að efna til ófriðar, að skapa stríðsástand, þá þarf mannkynið að spyrna við fótum.

Og krefjast þess að leifarnar að lýðræðinu í Bandaríkjunum hafi hemil á stríðsæsingamönnum sem efna til ófriðar í þeim eina tilgangi að auka hagnað sinn og tekjur vegna aukins herbúnaðar hin stríðshrjáðra andrúmslofts.

 

Elliært gamalmenni, hinir aumkunarverðu félags og vinstrimenn sem seldu sálu sína í glóbalvæðingu frjálshyggjunnar, og heimurinn er á barmi staðbundinna átaka sem sagan kennir að leiða að lokum til allsherjarstríðs.

Ef hið elliæra gamalmenni hefði ekki verið birtingarmynd nútímalæknavísinda um að hægt sé að hægja á eða jafnvel í miðri kosningabaráttu, láta líta út að þegar ga ga stjórnmálamaður, sé ekki svo ga ga, og jafnvel þau öfl sem að baki standa, vilja gera hið veikburða veldi Pútíns að óvini, þá er ekki hægt að líða slíkt feik og fals.

 

Sem er hin vanheilaga glóbalvæðing (alþjóðavæðing) auðs og hinna Örfáu auðmanna og alþjóðlegra stórfyrirtækja sem kerfisbundið hafa fært þekkingu og framleiðslu til Kína, sem og annarra þrælabúða alþjóðavæðingarinnar.

Trump reisti upp varnargirðingar með þekktum árangri, lífskjör vinnandi fólks í Bandaríkjunum náði sögulegum hæðum ásamt þess að ríkiskassinn fékk áður óþekktar upphæðir sem áður fóru í skattaskjól alþjóðavæðingarinnar, en núna á að snúa því tímahjóli við.

Hinn raunverulegi óvinur vestrænna ríkja, velmegunar þeirra og lífskjara, fær aftur frítt spil eftir að hafa smitað heimsbyggðina af nýjum veirusjúkdómi, hinn forni óvinur, sem er líklegast eldri en þegar Biden varð elliær, tók við áróðurskeflinu.

 

Eftir standa hérlendis fíflin sem taka undir.

Þeirra heimska er botnlaus hít, svo jafnvel elliglöp og heilarýrnun fær aldrei botnað og unnið gegn.

 

Sem og heimurinn,  sem er uppfullur af lífi sem við ólum öll.

Hvernig gat hið svarta afl Wall Street, hið siðlausa ómennska fjármagn, stolið forsetakosningunum í höfuðvígi vestræns lýðræðis??

Og talið "rétthugsunina" og fíflin þar að baki í trú um að elliært gamalmenni væri leiðtogi sem við gætum fylgt okkur um??

 

Aflið sem rústaði hinum vestrænu velferðarsamfélögum, fjármagnaði forsetakosningu Bidens, og höndina sem benti á ógnina frá Kína, hún fékk sitt show með því að benda á Rússa og hið aldna kjarnorkubúr þeirra.

Á meðan við erum endanlega rænd og rupluð, allt sem við gerðum vel, og höfum gert vel, hefur hið svarta fjármagn þess í neðra, flutt í alræðisstjórn kommúnistanna í Kína.

Svo jafnvel þegar kommúnistarnir afneituðu tilvist Covid veirunnar, þá komust þeir upp með að sýkja heimsbyggðina, og sú gjörð var ekki þeirra fyrsta.

 

Vestræn ríki í fjötrum Cóvid, Kína sem sannarlega dreifði veirunni um heimsbyggðina, eflist á kostnað þeirra starfsemi sem alþjóðavæðingin hafði ekki frekar gert út um, það er eytt, útrýmt, útvsitað með allri þekkingu og kunnáttu til meðreiðarsveina hins kínverska kommúnistaríkis.

Og vörnin er að hið elliæra gamalmenni bendir á Pútín, og þann litla stöðugleika sem við búum við í Austur Evrópu og Mið Asíu.

Ekki að hinn meðaljóni sem býr á meðal okkar, skynji vandann eða ógnina að baki óstöðugleika á þeim slóðum, en sú skynjun er forsenda alls sem kenna má við stjórnun og ákvörðunartöku okkar í Vestur Evrópu.

 

Svo látum við hið skítuga fjármagn frjálshyggjunnar og alþjóðavæðingarinnar komast upp með að elliært gamalmenni var kosið forseti Bandaríkjanna.

Líkt og við séum ekki til, í það minnsta eigum ekki líf sem við viljum verja.

 

En er það svo?

Skynjum við ekki tilveru okkar og líf á móti??

 

Ef svo er, þá skulum við spyrna á móti.

Ef við lesum svona rugl, fordæmum það.

 

Trúum að það sé von á móti.

Kveðja að austan.


mbl.is Biden segist sammála því að að Pútín sé „morðingi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauðans alvara er handan við næsta horn.

 

Og því megum við ekki núna eftir alla þessa mánuði þar sem samfélagið var meira eða minna í höftum sóttvarna, vanvirða ráðgjöf og ráðleggingar Þórólfs um að við stígum varlega til jarðar, gætum að okkur og hvert og eitt skref  til opnunar samfélagsins sé tekið að varúð, og við séum öll meðvituð um að gæta að hegðun okkar.

Það er svo auðvelt fyrir veiruna að skjóta hér rótum aftur, alveg eins og það er svo auðvelt fyrir okkur að ná að útrýma henni úr samfélaginu svo við getum tekið upp eðlilega lífshætti á ný.

 

Þetta tóks í Whuan, 11 milljóna manna borg, eftir 76 daga útgöngubann, þá hófst þar ferli þar sem samfélagslegum lokunum var aflétt í áföngum, og þegar komið var fram á sumarið var eins og engin farsótt geisaði i heiminum.

Mannlíf var þar því sem næst eðlilegt, fólk gætti vissulega að persónulegum sóttvörnum (kínverska gríman) en vörnin var staðin á borgarmörkum og síðan við landamæri Kína.

 

Það er svo mikilvægt fyrir okkur að skilja að fólk þurfti ekki svo mikið að deyja í þessum heimsfaraldri, ekki ef ríki gripu strax til þeirra ráðstafana að loka á smitleiðir veirunnar og verja síðan landamærin.

Ekki bara Kínverjar, samlandar þeirra i Taiwan eru með dánartöluna 0,4 per milljón, Thailand er með 1 per milljón, Nýja Sjáland með 5, eitthvað meira í löndum eins og Hong Kong og Singapúr.

 

Á sama tíma hundsuðu vestræn stjórnvöld alvarleik veirunnar, þegar bönd virtust vera komin á hana í byrjun sumars, faraldurinn var að deyja út, þá í forheimsku sinni var Evrópa opnuð fyrir umferð, án þess tryggt væri að smit bærust ekki milli landa.  Svipað gerðist í Bandaríkjunum.

Hundruð þúsunda dóu að óþörfu, frá því í fyrsta faraldri hefur dánartala flestra Evrópulanda þrefaldast ef ekki meir.

Við megum ekki gleyma þessum napra raunveruleika, hinir látnu eiga þá kröfu að afglöpin séu viðurkennd, af þeim dreginn lærdómur, svo fall þeirra hafi ekki verið til einskis.

 

Og tökum dæmi um þennan napra raunveruleika, gott er að miða við 1. júní, því þá var ljóst að faraldurinn var búinn í Whuan.

 

Ísland fór úr 11 í 29, tæp þreföldun, dánarhlutfallið 83 per milljón íbúa.

Danmörk fór úr 576 í 2.361, rúmleg fjórföldun, dánarhlutfallið 407 per milljón.

Svíþjóð fór úr 4.661 í 12.826, tæplega þreföldun (2,7), dánarhlutfallið 1.265.*

Portúgal fór úr 1.424 í 16.276, rúm 11 földun, dánarhlutfallið 1.603 per milljón.

Tékkland fór úr 318 í 20.396, rúm 64 földun, dánarhlutfallið 1.909 per milljón.

Ítalía fór úr 33.568 í 97.699, tæplega þreföldun, dánarhlutfallið 1.617 per milljón.

Spánn fór úr 29.079 í 69.142, rúmlega tvöföldun, dánarhlutfallið 1.478 per milljón.

Frakkland fór úr 28.808 í 86.454, þreföldun, dánarhlutfallið 1.323 per milljón.

Þýskaland fór úr 8.618 í 70.687, rúmlega 8 földun, dánarhlutfallið 842 per milljón.

Bretland fór úr 37.529 í 122.849, rúmlega þreföldun, dánarhlutfallið 1.803 per milljón.

Bandaríkin fóru úr 110.116 í 525.778, tæplega 5 földun, dánarhlutfallið 1.582 per milljón íbúa.

 

Og þessi aukning varð þrátt fyrir að á lokum var gripið til umfangsmikilla samfélagslegra lokana í öllum þessum löndum, og þær hafa staðið víðast lengur yfir en það tók Kínverja að útrýma farsóttinni úr landi sínu.

Ávinningurinn af heimskunni er því enginn fyrir utan ótímabæran dauða og margfalds efnahagslegs tjóns en hefði orðið ef veirunni hefði strax verið útrýmt í fyrstu bylgju og landamæri síðan varinn.

Vissulega hefði veiran blossað upp, en aðeins staðbundið og henni hefði þá aftur verið útrýmt með sömu aðferðarfræði.

 

Gleymum svo heldur aldrei að það var endalaust verið að naga niður sóttvarnir hérlendis með tilvísan í eitthvað sem átti að ganga betur í öðrum löndum þar sem að sögn miðuðust sóttvarnir við meðalhóf.

Gott og blessað, allir vita hvernig það endaði hjá þessum hinum, því raunveruleikinn er sá að annað hvort lokar þú á smitleiðir, eða þú situr uppi með faraldur fyrr eða síðar.

 

Við megum ekki gleyma þessu.

Styðjum núna Þórólf allt til enda.

 

Hann á það inni hjá okkur.

Kveðja að austan.


mbl.is Mótefnamælingar beðið vegna smitsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Osló lokar.

 

Á meðan við opnum.

Ástæðan er að okkar landamæri halda á meðan þeirra leka.

 

Eitt af því sem hefur skipt gífurlega miklu máli hér er að fólk hefur almennt farið eftir reglum, sem skýrir að í þessum örfáum tilvikum þar sem breska afbrigði hefur sloppið inní landið og náð að smita aðstandanda eða aðstandendur komufarþega, þá hafa viðkomandi einstaklingar virt heimkomusóttkvína og veiran því ekki náð að dreifa sér út fyrir hana.

Hefði fólk verið kærulaust þá gætum við verið í sömu sporum og Óslóarbúar í dag, að herða samkomutakmarkanir svo jarða við samfélagslega lokun, í stað þess að við erum að opna landið hægt og hljótt, án þess að fá aukningu veirusmits í kjölfarið.

 

Þetta skulum við hafa í huga þegar nagið gegn sóttvörnum hefst á ný.

Og sóttvarnaryfirvöld skömmuð fyrir að gera ennþá kröfur um grímuskyldu eða hafa ennþá takmarkanir á mannfjölda á samkomum, í verslunum og svo framvegis.

Það er ekki að ástæðulausu, það er einfaldlega hugsað til að koma í veg fyrir nýja bylgju þegar létt er á sóttvörnum í áföngum.

 

Stundum borgar sig að flýta sér hægt.

Þetta kemur allt með hækkandi sól.

Kveðja að austan.


mbl.is „Í dag má vera mæðulegur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í myrkrinu býr fól.

 

Sem gleðst yfir dauða og eymd.

 

Frá fyrsta degi hinnar alvarlegu farsóttar hefur það afvegleitt umræðuna, gróðursett falsfréttir í bland við gróusögur, jafnvel gert fólk það heimskt að það afneitar nútíma þekkingu og vísindum.

Samt ekki með reykmerkjum eða bréfdúfum sem mætti ætla miðað við fólk sem afneitar þekkingu og ætti því með réttu ekki að nýta sér afrakstur hennar, heldur með nútíma tölvum á samskiptanetinu sem við köllum alnet eða internet.

 

Afleiðingarnar eru hroðalegar, ótímabær dauði hundruð þúsunda sem hefðu ekki þurft að falla ef strax hefði verið gripið til nauðsynlegra sóttvarna á fyrstu dögum útbreiðslu veirunnar, hún einangruð og síðan útrýmt úr samfélögum okkar.

Eitthvað sem er mjög gerlegt, og hefur víða verið gert.

Að ekki sé minnst á samfélagslegar lokanir sem frysta allt mannlíf og hafa orðið nauðvörn fjölda ríkja sem féllu í gildru þeirrar heimsku sem var kölluð "að gæta meðalhófs" í sóttvörnum, hugtak úr lögum sem veiran hefur engan skilning á enda frumstæðasta lífsformið, ólæs og óskrifandi, þarf hýsilfrumu með kjarna til að viðhalda sér.

 

Dánartölurnar tala sínu máli, frá því í sumar, eftir að fyrsti faraldurinn var að mestu genginn yfir Evrópu, hafa dauðsföll víða yfir þrefaldast ef ekki meir, samt var þá allt vitað um alvarleik veirunnar, útbreiðsla hennar seinni hluta vetrar og í vor kom kannski á óvart því öld var liðin frá síðasta heimsfaraldri drepsóttar, og því var of seint gripið til samfélagslegra lokana, en sú afsökun var ekki gild eftir það.

Eitthvað garúgt, eitthvað gruggugt, talaði niður sóttvarnir, með þeim afleiðingum að opnað var fyrir smitleiðir hennar áður en henni var útrýmt, hinar miklu fórnir vetrar og vors voru því til einskis, opnað var á nýjar hörmungar og ennþá alvarlegri samfélagslegri lokanir með haustinu.

Með þekktum afleiðingum og það er ljóst að það eru öfl í þessum heimi sem vinna gegn lífinu.

 

Eymd, dauði og djöfull er ekki lengur eitthvað sem aðeins er greint frá í bókmenntum.

Heldur blákaldur raunveruleiki sem ógnar tilvist mannsins í dag.

Því þetta er aðeins byrjunin, aðeins upphafið, sagan segir að sé svona illska látin óáreitt, þá þekkir hún engin takmörk, og það kostar gífurlegar fórnir að koma á hana bönd.

Spyrjið Æsi, nógu mikið tók á slagurinn við Fernisúlf á sínum tíma.

 

Þessir frétt greinar frá einni birtingarmynd þessarar flærðar og fólsku, skurðgreftinum gegn bóluefnum og allar gróusögurnar og falsfréttirnar sem ætlað er að gera þau tortryggileg.

Þjóðernisrembingur er virkjaður líkt og sést á viðtökum Evrópusambandsins á hinu ágæta bóluefni Astrazeneca eða að bóluefnin sem komu seinna á markaðinn séu ekki eins góð og þau sem komu fyrst.

 

Hvað fólinu gengur til, jú fyrir utan eymd, dauða og djöful, má guð vita.

En ótrúlegt er að sjá hvað það á marga bandamenn og því skuli hafa tekist að gera fólsku sín að pólitískum átrúnaði á ysta hægrivæng stjórnmálanna.

Lærðum við ekkert af nasismanum og kommúnismanum??, eða er þetta hin vestræna nálgun á miðaldahugsun íslamskra öfgamanna??

Eða er mannkyninu ásköpuð þau örlög að vera svag fyrir heimsku og vitleysu, jafnvel þó í henni felist ógn við tilvist þess??

 

Ekki veit ég, ekki frekar en af hverju glæpasamtök hérlendis fái að starfa óáreitt fyrir framan nefnið á lögreglunni en ég veit að í myrkrinu býr fól.

Óáreitt nema kannski að kaþólska kirkjan reynir að hamla gegn því með særingarprestum sínum.

Það er eins og við séum búin að gefast upp, glatað trúnni, lifum í tómi, að ekkert sé þess virði að verja, ekki einu sinni lífið sem við ólum.

 

Sjálfstæði okkar, arfleið, menning, svo við lítum okkur nær, einskis vert ef það krefst fyrirhafnarinnar að verja, velmegun okkar og velferð, aðeins ránsfengur fyrir örfáa.

Samþjöppun auðs, útvistun framleiðslu í nútímaútgáfu þrælabúa hinna fornu Rómverja, skattaskjólin, hið frjálsa flæði glæpa, mannsals og eiturlyfja, allt birtingarmynd þess sama á heimsvísu, samfélögin eru ekki varin, grafið er markvisst undan framþróun tímans sem vann að útrýmingu örbirgðar, sjúkdóma og misréttis, í átt að velmegunar og velferðar fjöldans.

Fólið grefur, í besta falli felst vörn mannsins að henda einni og einni skóflu í gröfina á móti, annars er þetta að mestu látið viðgangast.

 

Heimurinn verður bólusettur svo þessi faraldur verður brátt að baki sem ógn þó hann muni alltaf krefjast aðgæslu.

En fólið sem fékk að grafa undan lífinu óáreitt, það heldur áfram að grafa.

Sínar þekktu grafir og þær nýju sem bjóðast.

 

Þannig er það þangað til að við tökum ákvörðun að breyta því.

Við Íslendingar gætum tekið stórt skref í næst kosningum með því að kjósa með sjálfstæði þjóðarinnar.

Því til þess fáum við ekki annað tækifæri, eftir þær verðum við fest endanlega í hjáleigusambandið við Brussel.

Sjálfstæði að nafninu til en lútum stjórn þess í einu og öllu í gegnum EES samninginn.

 

Fólið í myrkrinu á sér nefnilega margar birtingarmyndir.

Og það er á okkar valdi að takast á við sumar þeirra.

 

Eða sæta afleiðingum aðgerðarleysisins.

Kveðja að austan.


mbl.is Tæki hvaða bóluefni sem er í boði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sum fyrirtæki þekkt.

 

En bíddu við, af hverju er þau þá ennþá starfandi??

Afhverju eru glæpahópar þekktir og fyrirtæki sem þvo glæpsamlega fengna fjármuni þekkt??

Af hverju er ekki rætt um hlutina í þátíð??

 

Hver er verndarhöndin sem sér til þess að það er talað um nútíð?

Að starfsemin sé þekkt, fyrir framan af löggæslunni??

 

Ég bara spyr.

Kveðja að austan.


mbl.is Íslenskir glæpahópar umsvifamiklir erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2025-09-19 at 16-13-03 Bandaríkin beittu aftur neitunarvaldi
  • Screenshot 2025-09-19 at 16-13-03 Bandaríkin beittu aftur neitunarvaldi
  • Screenshot 2025-09-19 at 16-13-03 Bandaríkin beittu aftur neitunarvaldi
  • Screenshot (5956)
  • Screenshot (5957)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 589
  • Sl. sólarhring: 672
  • Sl. viku: 4307
  • Frá upphafi: 1484824

Annað

  • Innlit í dag: 505
  • Innlit sl. viku: 3697
  • Gestir í dag: 450
  • IP-tölur í dag: 433

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband