Eins og lög gera ráð fyrir.

 

Þá skila ég tillögum mínum til heilbrigðisráðherra, sagði Þórólfur Guðnason eftir fund hans með fullorðnu fólki, formönnum ríkisstjórnarflokkanna í morgun.

Svaraði þar með spurningunni hvort hann hefði lagt fram tillögur fyrir fundinn um hertar aðgerðir vegna hinna nýlegu samfélagssmita.

Hann var búinn að skila tillögum sínum, eins og lögin kveða á um að honum sé skylt þegar aðstæður krefja.

 

Svona eru lögin, eitthvað sem sumir ráðherrar ríkisstjórnarinnar virðast eiga erfitt með að skilja, það er ekki þeirra að koma með tillögur um aðgerðir gegn farsóttinni.

Sem og þeir fréttamenn sem síspyrja Þórólf um álit hans á litaspjöldum eða að vottorð frelsi ferðalanga frá sóttkví.

"Spurður hvort ósam­ræmi væri í því sem heil­brigðis­yf­ir­völd væru að segja og gera og svo stjórn­völd, til að mynda með því að slaka á aðgerðum á landa­mær­un­um, sagðist Þórólf­ur ekki ætla að leggja dóm á hvað stjórn­mála­menn væru að segja. Þeir hefðu frelsi til að túlka fyr­ir­liggj­andi gögn en að við þyrft­um að vanda okk­ur eins mikið og hægt er á landa­mær­un­um.".

Á mannamáli, stjórnmálamenn mega gaspra, en ég hef verk að vinna samkvæmt lögum.

 

Reynslan sker úr um hvort hinar nýju tillögur nái að stoppa í götin, allavega er ljóst að samfélagið getur ekki búið við þennan leka, fólk vill frið frá veirunni, fólk vill að landamærin séu varin.

Af hverju ekki fyrr er ekki issjú í málinu, það sem er liðið, er liðið, en það liðna krefur heilbrigðisyfirvöld um lærdóm, að það sé gert sem þarf að gera.

 

En að lokum má skemmta sér yfir barnláninu, láta enn eitt gullkorn fljóta með;

"Öll höf­um við þurft að færa fórn­ir vegna aðgerða sem grípa varð til í því skyni að verja þá veik­ustu í sam­fé­lagi okk­ar. Fórn­irn­ar eru þó mis­mikl­ar eft­ir aðstæðum hvers og eins. Þeir sem eiga lífsaf­komu sína und­ir ferðamennsku hafa fært einna mest­ar fórn­ir. Við vit­um að end­ur­reisn efna­hags­lífs­ins hvíl­ir á því hversu lang­an tíma það tek­ur ferðaþjón­ust­una að ná viðspyrnu.".

Gáfurnar svona álíka eins og að segja að þegar fiskifræðingar mæla enga loðnu, og leggja til veiðibann, að þá séu loðnusjómenn að færa fórnir umfram aðra með því að fara ekki á miðin og veiða hana.

 

Veiran er faktur og farsóttin leikur atvinnugreinar misgrátt.

Kemur misilla við fólk og fyrirtæki.

En að feisa þá staðreynd er ekki að færa fórnir, heldur bitur raunveruleiki.

 

Hins vegar færir samfélagið fórnir þegar misvitrir stjórnmálamenn afneita þeim raunveruleika, og nota rök forheimskunnar til að leyfa ferðalög milli landa án undangenginnar sóttkvíar, slíkt leiðir alltaf til faraldurs, og tilheyrandi samfélagslegra lokana.

Fórnirnar eru þá atvinnan og frelsið sem aðrir tapa vegna þeirrar heimsku.

Því það er eitthvað sem hægt er að stjórna, og sú ranga ákvörðun bitnar á öðrum.

 

Samt er ekki annað en hægt að gleðjast yfir að reynt er að stíga rétt skref.

Ekkert sjálfgefið þar sem Sjálfstæðisflokkurinn á í hlut og það mannaval sem hann lítilsvirðir þjóðina með í ríkisstjórn.

Seint skulu menn vanmeta þrönga fjárhagslega hagsmuni flokkseiganda og annarra vildarvina.

 

Rétt ákvörðun er því alltaf sigur og fagnaðarefni.

Vonum að þetta dugi, en ef ekki, þá þarf bara að gera meira.

 

Og þá fyrr en seinna.

Kveðja að austan.


mbl.is Skima börn og skylda fólk í sóttvarnahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Jehú! nú er gaman, kannski bara bjargast páskarnir og fleira vegna þess að Þórólfur hefur náð eyrum þeirra eldri í ríkisstjórn.

kv hrossabrestur.

Hrossabrestur, 23.3.2021 kl. 16:06

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Ætli það sé ekki of snemmt að kveða úr um það Hrossabrestur minn góði.

En þetta er fyrsta skrefið til að hindra þarnæstu bylgju en félagi Þórólfur er ekki of bjartsýnn á þess.

Og Kári fékk kvíðakast.

Hins vegar mun þetta stöðva áform blessaðra barnanna, svona í bili a.m.k.

Ef ekki, þá er hætt við fjöldaþátttöku í atburðinum, borgarleg handtaka óvita í ráðstólum.

Eða eitthvað svoleiðis.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 23.3.2021 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 997
  • Frá upphafi: 1321549

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 836
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband