Fyndin Katrín.

 

Hún kynnir aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi, á sama tíma hefur hún lúffað eins og barinn rakki fyrir stuðningsfólki Hamas á Íslandi.

 

Stuðningsfólk Hamas á Íslandi styður kynníðinga sem þvinga konur og barnungar stúlkur til að hylja hár sitt og höfuð með slæðum.

Stuðningsfólk Hamas á Íslandi styður miðaldahyski sem aflífar homma og lesbíur á Gasaströndinni.

Stuðningsfólk Hamas á Íslandi styður miðaldahyski sem telur nauðganir og limlestingar vopn í stríði.

 

Katrín eins og geimvera kóar með.

 

Og háðung hennar er algjör þegar hún kynnir aðgerðir ríkisstjórnar Íslands gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni á árunum 2020-2023.

Er hægt að leggjast lægra í aumingjaskap og ræfilshætti??

Svo ég vitni í hápunkt tvískinnungar og hræsni, Viktoríutíma 19. aldar, rúmast tvöfeldni Katrínar innan þess aldarháttar.

Eða eru einhver mörk hve lágt fólk getur lagst í tvöfeldni sinni???

 

Katrín virkar samt sem ærleg manneskja.

Hvaða ótti og hræðsla fær hana til að kóa með skrímslum og voðafólki, afhverju stendur hún ekki með konum gegn miðaldahyskinu??

Voðaverkum þess, gegn myrkrinu sem þetta hyski vill kæfa allt mannlíf í.

 

Gott og vel.

Katrín er kjarklaus gunga með innantóm orð á tungu.

En samt, hún þarf ekki að hæða fórnarlömb miðaldahyskisins, Hamas, Ríki Íslams, eða annarra öfga sem herja á nútímann, með því að láta eins og ekkert sé.

 

Slæmt var viðtalið í gær þegar hún tuggði upp viðbrögð ríkisstjórnar sem hafði ekki frétt af gosinu í Grindavík, en þessi frétt um samantekt ríkisstjórnarinnar gegn Hams og kóurum þeirra á Íslandi, slær samt flest met veruleikafirringar.

Það er eins og Katrín sé ekki í þessum heimi.

 

Eða hún telji að raunveruleikinn sé leikrit sem hægt sé að hafa í flimtingum.

Að þegar Hamas skríllinn kallaði "aumingjar og drullusokkar", að það hafi verið gjörningur nýlistahóps sem ákvað að endurgera hita Búsáhaldabyltingarinnar.

Hrópin hafi beinst að Geir Harde og Davíð.

 

Nema í raunveruleikanum hrópaði miðaldahyskið að henni.

Á Íslandi í dag, þann 16. janúar 2024.

Og það vottar ekki fyrir fyndni í veruleikaflótta Katrínar.

 

Eins sorglegt og það er.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Kynnti aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engisprettufaraldurinn.

 

Frönsk kennslukona sagði ungum stúlkum að Frakkland væri lýðræðisríki, þær réðu því menntun sinni og framtíð, og þær væru frjálsar með klæðaburð sinn.  Fyrir það guðlast var hún afhöfðuð, öðrum kennslukonum þessa heims til aðvörunar.

Í skólum Skandinavíu er veist að ungmennum ef þau fara ekki eftir ýtrustu kröfum Íslamista um klæðaburð eða mataræði, undirliggjandi er ógn um gróft ofbeldi og kennarar tipla á tánum skjálfandi af hræðslu.

Í Afganistan var reglulega ráðist á skóla sem veittu stúlkum menntun, það sama hefur gerst í Pakistan.  Og já, þarf ekki að taka fram að tilgangur árásanna er að drepa bæði stúlkurnar og kennara þeirra.

Í Íran eru konur drepnar ef þær bera ekki kúgunartæki kynníðinga, slæðuna rétt.

Í Saudi Arabíu eru ungum stúlkum kastað í fangelsi og þar pyntaðar fyrir þann hroðaglæp að keyra bíla.

Um alla Evrópu eru ungar konur sendar til gamla landsins þar sem þær eru neyddar í hjónaband, yfirleitt með sér mun eldri mönnum. Þær sem lúta ekki feðraveldinu er grimmilega misþyrmt, sumar jafnvel myrtar, hin svokölluðu heiðursmorð eru talin sjálfsagður hluti af réttsýna Góða fólkinu sem stjórnar umræðu Vesturlanda.  Það á jú að virða framandi menningu innflytjenda.

 

Tveir Svíar mættu til Brussel til að horfa á leik með sænska landsliðinu, þeir voru skotnir. Réttdræpir vegna þess að þeir voru Svíar.

"Tveir létust og þrír til viðbótar slösuðust eftir hnífaárás á London Bridge í bresku höfuðborginni." svo ég vitni í frétt á Vísi.is. Réttdræpt vegna þess að þau áttu heima í vestrænu landi.

"Hryðjuverkin 7. júlí 2005 voru hryðjuverkaárásir, skipulagðar og framkvæmdar af Al-Kaída hryðjuverkasamtökunum, sem gerðar voru þriðjudaginn 7. júlí 2005 og beindust gegn Lundúnum á Bretlandi. Um háannatíma, klukkan 8:50, sprungu þrjár sprengjur á 50 sekúnda fresti í þremur lestum neðanjarðarlestakerfis Lundúnaborgar. Fjórða sprengjan sprakk klukkan 9:47 í strætisvagni í Tavistock Square. Í sprengingunum létu 50 manns lífið og fjórir hryðjuverkamenn og slasaðist 700 manns. Þær ollu truflunum í samgöngukerfið Lundúna og fjarskiptakerfið landsins. Þær voru stærstu og mannskæðustu hryðjuverk í sögu Lundúna".

Al-Kaida samtökin eru af sama meiði Islamista og Hamas samtökin á Gasa, skera sig samt frá Hamas því samtökin eru ekki þekkt fyrir að nauðga og limlesta, aðeins drepa með morðárásum sínum.

 

Það er Ríki Íslams sem Hamas sækir hins vegar fyrirmynd sína í, hvernig á að myrða, nauðga og limlesta á sem viðbjóðslegasta hátt, skrímsli í mannsmynd sem engu eyra.

Þau hafa líka ráðist á borgara vestrænna landa, svo ég vitni aftur í Wikpedíu um mannskæðasta hryðjuverk samtakanna.

"Að kvöldi 13. nóvember 2015 hófst röð hryðjuverka í París og Saint-Denis í Frakklandi. Meðal annarra árása voru sex skotaárásir og þrjár sprengjuárásir samtímis. Sprengjur sprungu við íþróttavöllinn Stade de France í Norður-París kl. 21:16 þar sem fram fór vináttulandsleikur á milli Þýskalands og Frakklands. .. Í hverfum 10 og 11 létust margir í skotaárásum. Mannskæðasta árásin var í Bataclan-leikhúsi þar sem skotið var á áhorfendur á tónleikum þar sem bandaríska hljómsveitin Eagles of Death Metal kom fram. Nokkrum áhorfendum var haldið í gíslingu þangað til pattstaða við lögreglumenn sem stóð yfir í hálftíma leystist skömmu eftir miðnætti þann 14. nóvember.[1] 130 manns létust og hundruðir særðust.[1][2] Um það bil 80 meiddust lífshættulega.[1] Minnst 82 létust í árásinni í Bataclan-leikhúsinu".

Það var sem sagt ekki Hamas sem fann uppá því að drepa ungt fólk á tónleikum, þó vissulega hafi það verið einstakt hjá Hamas að ráðast á friðar og ástartónleika, og nauðganir og limlestingar tónleikagesta með sveðjum, var líka þeirra uppfinning.

 

Svona má lengi halda áfram að telja upp afrek Íslamista, sprengingar í lestarkerfinu á Madríd, smærri árásir um alla Evrópu.

Og þeir myrða ekki bara gyðinga og Vesturlandabúa, sami engisprettufaraldur hefur herjað á Suð-Austur Asíu, löndin sunnan Sahara, að ekki sé minnst á voðaverk Íslamista í Sýrlandi og Írak.

Svo náttúrulega morðárásirnar 7. október í Ísrael, þar sem mennskan var undir að alþjóðasamfélagið snérist gegn þessum engisprettufaraldri sem ógnar allri heimsbyggðinni með hryðju og voðaverkum sínum.

Sem alþjóðasamfélagið gerði ekki, þetta voru jú að megninu gyðingar, og svo fólk sem vann fyrir gyðinga, eða fólk sem heimsótti gyðinga.

 

Gott og vel, heimurinn er eins og hann er.

Núna er hluti af þessum engisprettufaraldri að gera hróp að ríkisstjórn þjóðarinnar.

Kallar ráðherra aumingja og drullusokka.

 

Og við látum bjóða okkur þetta.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is „Aumingjar“ og „drullusokkar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við styðjum morð og morðingja.

 

Þann viðbjóð að líkamar kvenna séu notaðir sem vopn í stríði, nauðganir, limlestingar

Við styðjum allan þann viðbjóð sem mannkynssagan hefur hingað til fordæmt, því við teljum að slíkur viðbjóður sé réttlætanlegur.

Fyrir réttlætanlegan málstað því við erum ekki svo heimsk að vitum ekki að allir þeir sem drepa, nauðga, misþyrma, limlesta, hafa alltaf gert það í þágu einhvers göfugs málstaðar, því af hverju ættu menn að breytast í skrímsli??

 

Þetta ef efnislegt innihald þessa stuðnings sem Sólveig Anna, og Viðar terroristi, hann allavega terroristaði allt starfsfólk á skrifstofu Eflingar, fengu nytsama sakleysingja í heildarsamtökum íslensku verkalýðshreyfingarinnar til að samþykkja.

Skilaboð íslensku verkalýðshreyfingarinnar eru skýr, ef þú berst fyrir heilagan málstað, þá máttu nauðga konum, limlesta þau, brenna fólk lifandi, sérstaklega börn, og ef unglingar okkar eru svo naví að trúa á frið og betri heim, og nota samfélagsmiðla til að koma saman á fríðar og ástartónleikum, svona í anda Yoko og Lennon, þá segir forystufólk íslensku verkalýðshreyfingarinnar;

"Hvílík úrkynjun að trúa á frið og ást, það á að skjóta ykkur, samt fyrst helst að nauðga ykkur, limlesta, skera af ykkur brjóstin, og þá má svo skjóta ykkur".

Svo ég vísi í það sem íslensk verkalýðshreyfingin er að styðja í raun.

 

Og ef það er einhver fáviti þarna úti sem heldur að voðaverk Hamas sé einstakt tilfelli, þá fylgja samtökin langri slóð systursamtaka sinna í Írak og Sýrlandi, í Bosníu eða á Sahel svæðinu í Afríku, morð, nauðganir, limlestingar.

Þúsundir á þúsundir ofan, hryllilegra manndrápa, þar sem saklaust fólk er brennt lifandi, afhausað, og þá sem miskunn eftir nauðganir og limlestingar, er blóðslóð Íslamista, og þegar þessi skrímsli hófu hryðjuverk sín í Ísrael, þá var myrt, nauðgað og limlest, í þeirri blóðugri vissu að Ísraelríki myndi snúast til varnar og ráðast inná Gasa.

Þar földu morðingjarnir sig innan óbreytta borgara, hafa nýtt þá sem mannlega skildi, telja samborgara sína betri brynvörn en stál skriðdrekanna.

 

Því þeir treystu á fíflsku og fávisku nytsamra sakleysingja sem myndu koma óhæfuverkum þeirra til varnar.

Blóðfórn þeirrar eigin þjóðar átti að siga almenningsáliti Vesturlanda gegn fyrirsjáanlegum viðbrögðum ríkisstjórnar Ísraels.

 

Eitthvað sem hefur mistekist og hefur afhjúpað fjölda kynníðinga á Vesturlöndum, sem þvinga konur og stúlkur til að hylja sig með slæðum miðaaldasamfélaga, sem og þekkta gyðingahatara, og hve gyðingahatur er ennþá útbreitt í Evrópu.

Eftir stendur hinn þögli meirihluti sem skilur ekki þessi voðaverk, skilur ekki þessar hörmungar sem miðaldahyskið kallaði yfir þjóð sína, og hundsar algjörlega mótmælafundi kynníðingana og gyðingahatarana.

 

Reyndar hafa fréttamenn, með þaulleit, fundið eina og eina eðlilega konu, sem mætir og mótmælir, því hún sér aðeins myndir að limlestum börnum, látnum börnum, og finnst það eðlilega rangt, og því mætir hún og mótmælir með kynníðingum, fórnarlömbum þeirra sem eru konur og börn í fjötrum miðaldasamfélaga, og gyðingahöturum, ómeðvituð um þann félagskap sem hún blandar geði við.

Engin þessara kvenna, sem eftir þaulleit meðvirkra fréttamanna sem styðja að nauðganir og limlestingar kvenna séu vopn í stríði, væru tilbúnar að bjóða unglinga sína á friðartónleika, sem næstu fórnarlömb þess viðbjóðs sem Hamas er, eða börn sín til að vera bútuð með sveðju í rúmum sínum, eða bíðandi að vera brennd lifandi á meðan hinir vígmóðu vígamenn réttlætis þurftu að kasta mæðinni við snæðing eða taka símtöl; "Hæ mamma, veistu, ég er búin að drepa 10 gyðinga".

 

Það er nefnilega enginn svona sjúkur í sinni, eða geðveill.

Nema kannski forystufólk íslensku verkalýðshreyfingarinnar, það kyngir öllum þessum viðbjóð til að halda samstöðu með Sólveigu Önnu.

 

Ef það er gjaldið fyrir Þjóðasáttina hina nýju;

Stuðningur við voðamenni Íslamista, og voðaverka þeirra, frá Kúrdistan til Íraks, frá Bosníu til landanna sunnan Sahara, þá má sú þjóðarsátt eiga sig.

Því engin lífskjör, engin stöðugleiki getur byggst á blóði saklausra, á nauðgunum og limlestingum, á viðbjóðslegum morðum barna og ungmenna.

Á allri meðvirkni eru takmörk.

 

Ef þetta aumkunarverða fólk, sem er varla fólk lengur, því svona beinn stuðningur við ómennsku sviptir fólk mennsku sína, vill stöðva drápin á Gasa, þá fordæmir það voðafólk sem ábyrgðina ber.

Krefst þess að það leggi niður vopn til að hlífa saklausum á Gasa.

Í stað þess að taka afstöðu með morðum og morðingjum.

 

Lágt er risið á Vilhjálmi í dag.

Kveðja að austan.


mbl.is Verkalýðshreyfingin dregur Palestínufánann að húni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forherðing og fall Svanhvítar.

 

Svanhvít Svavarsdóttir vissi að hún var að brjóta lög þegar hún ákvað að stöðva hvalveiðar daginn áður en þær áttu að hefjast.

Hvað henni gekk til er vandséð, var þetta úthugsuð ögrun gagnvart Sjálfstæðiflokknum, jafnvel hugsuð til að sprengja ríkisstjórnina og átti þá hvalveiðabannið að fylkja andstæðingum hvalveiða að baki VG.

Eða var þetta enn ein birtingarmynd valdabaráttunnar innan VinstriGrænna?, því það þarf ekki glöggvan til að sjá formannsgenið í Svanhvíti og að hún telji sit réttborna til að leiða flokkinn.  Og þar flækist Katrín fyrir.

 

En það er þetta með að brjóta lög, það varðar víst við lög, og þó ráðherrar telji sig getað ullað framan í réttarkerfið með því að segja líkt og Svanhvít gerði svo eftirminnilega; "þið stefnið bara ríkinu, það borgar", þá eru samt ákveðin takmörk  á lögbrotum ráðherra.

Og vísvitandi lögbrot Svanhvítar Svavarsdóttur olli bæði fyrirtækju og einstaklingum fjárhagslegum miska, aðeins líkamlegur miski, ofbeldi, morð er alvarlegri en glæpir Svanhvítar Svavarsdóttur.

 

Þá hefði einhver haldið, svona öll þjóðin, að Svanhvít hefði verið búin að æfa auðmýkt sem hún gæti gripið til eftir að Umboðsmaður Alþingis hefði afhjúpað lögbrot hennar og glæpi, að hún hefði óvart gert mistök í umhyggju sinni fyrir hvölum, fengið slæma ráðgjöf (sem hún fékk ekki, þeir starfsmenn ráðuneytisins sem voru ekki undir hæl hennar vöruðu hana við), henni þætti þetta svo leitt, hún væri miður sín, bæðist afsökunar og hún skyldi  aldrei gera svona aftur. 

Bara ef hún fengi að vera ráðherra áfram.

Í þeirri auðmýkt lá vígstaða hennar og gerði það erfitt fyrir Katrínu að véla hana úr ráðherrastóli.

Katrínu segi ég því mikil má einfeldnin vera ef fólk sér ekki að Katrín líður ekki svona atlögu að ríkisstjórn sem hún leiðir, og vill halda saman.

 

Meinið er að Svanhvít Svavarsdóttir þekkir ekki þann skapgerðargalla sem auðmýkt stjórnmálamanns er, og hún brást við á þann eina hátt sem hún kann, hún reif kjaft við lögin, við Umboðsmann, við þjóðina.

"Lögin eru ófullkomin", "barn síns tíma", "ég ætla að endurskoða þau", allt þetta tókst henni að segja í fyrsta fréttaviðtali sínu eftir að álit Umboðs Alþingis lá fyrir, en óheppin Svanhvít var bara ekki að tala við Jóhönnu Vigdísi, eða litlu strákana, heldur fréttamann.

"Það breytir því ekki að þú braust lög", sagði Arnar Björnsson og rammaði inn forherðingu Svanhvítar.

 

Í þessari forherðingu er fall Svanhvítar fólgið.

Eins og Eiríkur Elís Þorláksson, deildarforseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík segir í byrjun viðtengdar fréttar; "Það gengur auðvitað ekki að ráðherra noti opinbert vald og fari gegn lögum af þeirri ástæðu að hún sé lögunum mótfallin og telji þau úrelt.".

Því margt mátt Svanhvít segja en ekki að hún hefði farið gegn lögum því hún væri mótfallin þeim, þau væru ófullkomin og það þyrfti að breyta þeim.

Leikreglum réttarríkisins var jú komið á á sínum tíma til að koma í veg fyrir slíkan geðþótta valdsmanna.

Og forsendur réttarríkisins væru brostnar ef hver einasti krimmi, bankaræningi, fjárdráttari, nauðgari, gæti borið fyrir sig fordæmi Svanhvítar, og slyppi við refsingu sína vegna þess að hann væri á móti lögunum, þau væru ófullkomin.

 

Það hefur síðan verið ótrúleg lífsreynsla að hlusta á vandræðagang stjórnmálanna í kringum þessi lögbrot Svanhvítar, það er eftir að forherðing hennar lá fyrir.

Hún er krimmi, vísvitandi krimmi, það liggur fyrir, og þá tala menn ekki um hugsanleg stólaskipti, hvort þeir verji hana vantrausti eður ei, hvort það dugi að hún segi af sér eður ei.

Eins og það sé mál stjórnmálanna að afgreiða árásir á réttarríkið.

 

Kommon, af hverju telja stjórnmálamenn sig hafna yfir lög og rétt.

Af hverju geta þeir ekki virt leikreglur réttarríkisins??

Eins og við hin.

 

Réttarríkið hefur ákveðið ferli yfir lögbrot Svanhvítar.

Réttarríkið viðurkennir ekki að ráðherra séu hafnir yfir lög og reglur þess.

 

Frekleg brot ráðherra á reglum þess kalla alltaf á afsögn ráðherra.

Og segi ráðherra ekki af sér, á Alþingi að knýja hann til þess.

Síðan þarf hinn fyrrverandi ráðherra að svara til saka fyrir lögbrot sín.

Punktur.

 

Alþingi vanvirðir því þjóðina með leikaraskap sínum.

Sem er ekki nýtt.

 

En Alþingi á ekki að komast upp með að fara gegn réttarríkinu og finna hjáleið svo Svanhvít geti áfram setið á ráðherrastól

Eða sloppið við alla ábyrgð með einfaldri afsögn.

 

Þar liggja mörkin.

Fari Alþingi yfir þau mörk, þá  hefur það unnið sér inn vanhelgi laga og réttar.

 

Vanhelgt Alþingi á ekki að sitja.

Það á að víkja.

 

Þar er ekkert val.

Kveðja að austan.


mbl.is Ráðherraábyrgð kemur til álita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vér glæpablaðamenn!!

 

Við eigum erfitt að starfa með fólki sem er svo einfalt að það heldur að við blaðamenn, við Fjórða valdið, séum bundnir af lögum hinna venjulegu, hinna dauðlegu, þeirra sem eru ekki útvaldir.

Svo ég taki aðeins saman útdrátt úr þessu kostulega viðtali Mbl.is við einn af sakborningunum í eiturbyrlunarmálinu.

Og skýringu hans á að Hjálmar Jónsson var rekinn.

 

Til að stjórn BÍ gæti starfað með skrifstofu félagsins, þá þurfti að reka einfeldninginn.

Skítt með farsæl 20 ára störf fyrir félagið, skítt með almenna viðurkenningu um að Hjálmar er gegnheill í störfum sínum, jafnvel sagt að hann hafi þann fjanda og andskota sem kenndur er við æru.

 

Skattsvikarar og eiturbyrlarar hafa nú fengið grænar bólur af minna tilefni.

Æra, heiðarleiki, að virða lög og reglur samfélagsins.

Hvaða guðlast og klám er þetta eiginlega??

 

Mogginn, greyið því Mogginn í dag nær ekki einu sinni skugganum af því blaði sem negldi tryggð mína við lestur, fyrir ætternisstapa eru gegnir ritstjórar eins og Matthías og Styrmir, alvöru blaðamenn þó þeir kannski fæstir hefðu próf frá kópý og peist femínistadeild Háskólans sem kennir sig við fjölmiðlafræði, sakna samt sárlega Agnesar og rassskellingar hennar á toppinn á allri spillingu undangenginnar ára, til dæmis ráðningu Bjarna á Svanhvíti sem sendiherra, hann, það er Mogginn, gat samt spurt, og hæðst með því að láta textann flæða.

Nakinn á berangri stendur einn af glæpablaðamönnum landsins.

Einn af þeim sem tók fullan þátt í eiturbyrlunarmálinu sem kennt er við Pál skipstjóra.

 

Já Mogginn gat þetta eftir allt saman.

Skyldulesning.

Um blaðamenn á sakabekk sem kunna ekki að verja sig.

 

Áramótaskaup hvað??

Kveðja að austan.

 

Viðauki: Þess má geta að frá því að ég las þetta viðtal við varaformann BÍ, sem vakti þau viðbrögð sem má lesa í pistli mínum hér að ofan, þá leit ég yfir Mbl.is áðan og rakst þá á frétt um grein Hjálmars Jónssonar á Vísi.is.

Það sem ég hef verið að gera grín að og setja í ákveðið samhengi, má lesa um í þessari málsvörn Hjálmars, og vísa í orð hans; "Að telja ekki fram tekj­ur til skatts í eitt ár get­ur verið mis­tök, í tvö ár kannski heimska, en í þrjú ár sam­fleytt hlýt­ur að telj­ast ein­beitt­ur brota­vilji. Í mínu ung­dæmi hétu þetta skattsvik en á ný­ís­lensku nú­ver­andi for­manns heit­ir þetta endurálagn­ing!".  Og visar í skattsvik Sigríðar Daggar.

En kjarninn er samt þessi sem Hjálmar orðar svo vel; "Nú­ver­andi formaður BÍ er illa hald­in af „ís­lensku veik­inni“, sem ég kýs að kalla svo, og felst í því að setja sjálf­um sér sérregl­ur og öll­um öðrum aðrar regl­ur. Það er þjóðarósiður. Ég veit ekki hversu oft ég hef upp­lifað það á fjöru­tíu ára ferli sem blaðamaður, að brota­menn setji í herðarn­ar og segi manni að éta það sem úti frýs, regl­urn­ar gildi um alla aðra en þá.".

Allt vitiborið fólk skilur þessi orð Hjálmars, þó það sé annar þjóðarósiður að stuðningsmenn ákveðinna stjórnmálaflokka koma þessum ósið til varnar, en kannski er von um breytta tíma.  Ennþá hef ég ekki séð neinn þann auman Sjálfstæðismann að verja skipan Bjarna á Svanhvíti Hólm sem sendiherra, skipan sem aðeins vekur upp spurningar um bólfarir viðkomandi og kverkatak í kjölfarið, allavega hefur enginn genginn formaður Sjálfstæðisflokksins reynt einarðlegar að þurrka út kjörfylgi flokksins með slíkri spillingu.

En vörn VG á krimmanum Svanhvíti Svavars slær út alla hugsanlega vörn sjálfstæðismanna á bólförum Bjarna, Sjálfstæðismenn reyna ekki að verja þessar bólfarir, en VG reynir að verja krimma, þess atferlis var skýring nútíma réttarreglna eftir ofríki háaðals og konungs á réttindum borgaranna.

Aumt er VG svo aumara er vart fundið, svo kom vörn glæpablaðamanna á skattsvikum Sigríðar Daggar.

Þetta er ekki einleikið en ég vísa í grein Hjálmars um alvöru þess máls, linkinn þarf að hægrismella því vafri minn býður ekki upp á beinan link, hægri smellurinn er samt þess virði.

 

 

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/01/11/einbeittur_brotavilji_og_skattsvik_sigridar/


mbl.is Gátu vart talað saman eftir vantraustsyfirlýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Tjáir sig ekki frekar".

 

Hver væri staða blaðamennsku á Íslandi ef meint brotafólk kæmist upp með frasann; "Tjái mig ekki frekar"??

Eigum við að rifja upp þau orð Hjálmars sem kostaði hann starfið??

"Ég tel for­mann­inn ekki starfi sínu vax­inn og ég tel held­ur ekki að fólk sem hef­ur ekki hrein­an skjöld í fjár­mál­um og gef­ur ekki skýr­ing­ar í þeim efn­um eigi að vera í for­svari fyr­ir fé­lag eins og Blaðamanna­fé­lag Íslands sem stend­ur fyr­ir gildi op­inn­ar og lýðræðis­legr­ar umræðu.".

 

Váá, það er ekki von þó maðurinn hafi verið rekinn.

Það er ef Blaðamannafélag Íslands væri einkahlutafélag, þú rífur jú ekki kjaft við eigandann.

Spyrjið bara alla sem voru hjá Chelsea á meðan rússneska mafían réði þar ríkjum.

 

Nema þetta er bara svo grátbroslegt að þetta er eiginlega ekki hlægilegt lengur.

Skjaldborgin um meinta skattsvikara og eiturbyrlara er orðin brothættari en Skjaldborg Jóhönnu Sigurðardóttur um heimili landsins.

Og þá er mikið sagt.

 

Morgunblaðið, eins sorglegt og það blað er orðið í kópy/paste blaðamennsku sinni, má þó eiga að það spyr, og segir fréttir.

Hvort það sætti sig við frasa hinna seku; Tjái mig ekki frekar, á eftir að koma í ljós.

Síðan eru til ærlegir blaðamenn á Rúv, hvort þeir hristi af sér slen óttans, á líka eftir að koma í ljós.

 

En alveg eins og Alþingi er búið að vera ef það sættir sig við krimma í ráðherrastól, þá er Blaðamannafélag Íslands, og trúverðugleiki blaðamanna fyrir bí ef glæpablaðamenn komast upp með þennan gjörning sinn.

Þögnin í kringum eiturbyrlun Páls Steingrímssonar er fleinn í holdi blaðamannastéttarinnar, en þetta er banvænt holsár.

 

Svo hélt maður að það væri ekki hægt að toppa óskiljanlegu skipan Bjarna Ben á Svanhvíti Hólm sem sendiherra, eða forherðingu Svanhvítar eftir álit umboðsmanns Alþingis.

En hirðin í kringum Sigríði Dögg tókst það.

 

Hvað næst?

Hvað næst í Íslandi í dag?

 

Í landi sem telur það gott og gilt að menn sem telja nauðganir og limlestingar kvenna vera gilt vopn í stríð, sé hampað af fjölmiðlum þjóðarinnar.

Lægra reyndar ekki hægt að leggjast frá sjónarhól mennskunnar.

 

Hvað næst?

Hverju kokgleypum við næst??

 

Eru á því engin mörk.

Spyr sá sem ekki veit.

Kveðja að austan.


mbl.is Í launalaust leyfi frá RÚV – Tjáir sig ekki frekar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hve illa er komið fyrir blaðamannastéttinni??

 

Fyrir utan að flesta fjölmiðla er annaðhvort að finna á Þjóðskjalasafninu eða Þjóðminjasafninu, og þeir sem ennþá skrimta eru á leiðinni þangað, þá virðast flestir af þeim sem eftir eru ekki skilja til hvers lög og reglur eru.

Eru haldnir einhvers konar Svanhvítarheilkenni.

 

Allt frá því fyrir Hrun virðist ríkisfjölmiðill okkar vera í bullandi pólitík, fyrst og fremst Evrópupólitík, það er fréttastefna hans er mjög lituð  af hagsmunum þeirra sem vilja gangast Brussel valdinu á hönd. 

Sem og hann virðist vilja gera sig gildandi í landsmálum, og þá í þágu Evrópusambandsflokka.

Upphlaup, upphrópanir, allt til að skapa glundroða í þjóðmálaumræðunni, hafa verið hans ær og kýr.

 

Og þegar það hefur ekki dugað til, þá hefur Rúv hannað fréttir til að ná höggstað á meinta andstæðinga Brussel veldisins.

Sagan um hina meintu skæruliðadeild Samherja er dæmi um slíka hönnun, en meinið er að við þá hönnun var framinn alvarlegur glæpur, manni byrlað ólyfjan og aðeins tilviljun ein að hann lá ekki örendur á eftir.

Það er glæpur að byrla manni ólyfjan, það er glæpur að stela síma hans, það er glæpur að vinna síðan frétt uppúr hinum stolnu gögnum.

En það er þetta með lög og réttinn, til hvers eiga blaðamenn að láta slíkar reglur dauðlegra trufla sig í æðri störfum sínum??

 

Einhverjar slíkra spurninga hljóta íslenskir blaðamenn að hafa spurt sig, því niðurstaða þeirra er skýr, gerendurnir eru meira og minna í kringum stjórn Blaðamannafélag Íslands, eða þeim er reglulega hampað með viðurkenningu ýmiskonar.

Skýrarar getur svarið við einni spurningu ekki verið, við erum fjórða valdið, við eru hafnir upp fyrir lög og reglur,

 

Þess vegna var það svo bjánalegt hjá Hjálmari Jónssyni að halda að 20 ára trúmennska og vinna fyrir BÍ myndi skapa honum þau grið að hann gæti spurt eins og einfeldningarnir.

Þurfa blaðamenn ekki að hafa hreinan skjöld, hvort sem þeir eru kosnir til trúnaðarstarfa eður ei.

Er trúverðugleiki blaðamannastéttarinnar ekki undir??

Mega þeir vera á kafi í sukkinu og svínaríinu sem þeir eru svo endalaust að gagnrýna aðra fyrir??

 

Þvílíkur barnaskapur, enda maðurinn rekinn á staðnum.

Ríki í ríkinu líður ekki slíkar spurningar.

 

En hvað með okkur hin??

Bara spyr.

Kveðja að austan.


mbl.is Sagt upp eftir ágreining við formanninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland ber skyldur.

 

Katrín Jakobsdóttir varð ber að kjarkleysi þegar hún ákvað að verja lögbrjótara innan ríkisstjórnarinnar, ráðherrann væri hafin yfir lög og reglur.

Verra er þegar Katrínu skorti kjark gagnvart manni sem telur voðaverka gagnvart konum og börnum réttlætanleg sem vopn í stríði.

 

Kjarkleysi Katrínar gagnvart lögbrjótnum Svandísi Svavarsdóttur er kannski skiljanlegt, því ef Svandís hefði verið látin sæta ábyrgð líkt og aðrir krimmar, þá hefði hún tekið ríkisstjórnina með sér, það öflugur er gamli stalínisminn í kringum Svanhvíti.

Þar er Katrín forsætisráðherra, stjórnmálamaður, en femínistinn Katrín, móðirin Katrín á að standa ístaðið gagnvart feðraveldi sem svívirðir, nauðgar, limlestir og myrðir.

 

Katrín átti að segja Hjálmtý Heiðdal að hún hefði ýmigust á manni sem teldi það réttlætanlegt að líkami kvenna væri notaður sem vopn í stríði, og hún átti að segja honum að konur hafa þagað of lengi.

Hún átti að segja honum að hún skammist sín fyrir þögnina þegar þetta blóðuga feðraveldi skar brjóstin af nauðguðum konum í borgarstríðinu á Balkanskaga, og að þögn femínista hafi verið æpandi þegar hið sama feðraveldi nauðgaði og skar síðan brjóstin af sigruðum stríðskonum Kúrda í kjölfar innrásar Tyrkja á heimalendur Kúrda í Sýrlandi.  Og hún viti að ekki var mikið sagt þegar hið sama blóðuga feðraveldi nauðgaði, myrti, svívirti jafnt kristnar konur sem og konur af trúarhópi Jasída í Írak og landamærahéruðum Sýrlands.

Alltof lengi hafi konur þagað, alltof lengi hafi mæður þagað, alltof lengi hafi femínistar þagað.

 

En nú sé komið nóg af þögninni.

Hún geti ekki lengur stutt þetta blóðuga feðraveldi, nauðganir,limlestingar, sem vopn í stríð verði ekki lengur liðið, allavega meðan hún fær einhverju um ráðið.

Sama hver á hlut, sama hver réttlætingin er.

Þetta blóðuga feðraveldi sem kennt er við Íslam og Íslamista, þarf að stöðva.

Þar liggja skyldur Íslands.

 

Katrín Jakobsdóttir gat líka bent þessum manni sem finnst það "alltí góðu lagi" að limlestingar og nauðganir á konum, jafnt frá kornungum til aldraðra, séu hluti af vopnabúri hinna "réttlátu", að það er þjóðarmorð að gera morðárásir á landsvæði meintra óvina þar sem eini tilgangurinn er að drepa allt kvikt.

Það er eins og það gleymist oft í umræðunni hér á Íslandi í dag, enda er henni stjórnað af fólki sem sér ekkert athugavert við morð, nauðganir og limlestingar, ef því er beint af "réttu" fólki eins og til dæmis íbúum Ísrael eða vestrænum kennslukonum sem voga sér að segja múslímskum unglingsstúlkum frá nútímanum.

En þetta á Katrín að vita og hún á ekki að láta Hjálmtýr Heiðdal vaða yfir sig á blóðugum skóm feðraveldisins.

 

Hún gat líka bætt því við að íslensk stjórnvöld leggi hart að Ísraelum að gæta hófs í árásum sínum og gefa almennum borgurum tækifæri á að forðast vígahópana sem berjast við ísraelska innrásarliðið.

En samtökin Ísland Palestína gætu líka lagt sitt af mörkum með því að skora á hið blóðuga feðraveldi á Gasa að leggja niður vopn sína og hlífa þannig samborgurum sínum.

Það voru jú morðárásir þess sem hóf styrjöldina sem bitnar svona hart á óbreyttum borgurum Gasastrandarinnar, og það eru vígasveitir þess sem berjast innan um óbreytta borgara, sem viðhalda stríðsátökunum.

Ef hún væri kvikindi í sér, þá gæti hún líka bent þessum stuðningsmanni hins blóðuga feðraveldis að það væru aðallega konur og börn sem falla á Gasa, er skýring þess að ræflarnir fela sig í jarðgöngum sínum á meðan konurnar og börnin er í skotlínu Ísraela??

 

Katrín gat nefnilega sagt svo margt.

En sagði ekki.

 

Hún gat staðið með kynsystrum sínum.

En til þess hafði hún ekki kjarkinn.

 

Að mæta hinu blóðuga feðraveldi.

Þar sem nauðganir og limlestingar kvenna eru vopn.

 

Í stað þess kóar hún með.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Benda á að Ísland ber skyldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Free Palestina.

 

Hefur dunið á þeim hluta landsmanna sem eru fæddir um og uppúr miðri síðustu öld, það er okkur sem eru það gömul að það er vani að byrja kvöldið á að horfa á fréttir Ruv.

 

Ef það eru ekki gegnar friðargöngur undir þeim sérstöku formerkjum að öðrum deiluaðilanum sé heimilt að drepa og myrða hinn aðilann, en það sé ekki gagnkvæmt, þá eru gengnar kröfur um að Ísland slíti stjórnmálasambandi við Ísrael, taki ekki þátt í Eurovision, eða eitthvað annað, tilefnin svo mörg að það er engan veginn hægt að muna þau öll.

En stefið er alltaf Free Palestína, því þeir sem mótmæla hæst og mest eru palestínskir innflytjendur og arabískir trúbræður þeirra, og þeir sýna gestgjöfunum sem hýsa þá ekki einu sinni þá lágmarksvirðingu að hrópa slagorðið, Frjáls Palestína.

Með öðrum orðum, við sem þjóð eru langt komin með að flytja átökin fyrir botni Miðjarðarhafs inn fyrir túnfótinn hjá okkur.

 

Tjaldbúðirnar við Austurvöll eru sama eðlis.

Þær lýsa fyrirlitningu á gestgjöfunum og eru tákn um botnlausa heimtufrekju.

Í alvöru, hvernig á okkar litla þjóð að geta hýst allt flóttafólk hörmunganna á Gasa??

Og viljum við það??

Viljum við Litla Gasa í Reykjavík??

 

Látum það vera að falleg ung stúlka, vel menntuð, talandi góða ensku, ekki hennar sök að hún er kúguð af feðraveldi sem þekkir ekki orðið kvenfrelsi, hafi fengi hér flýtimeðferð til að fá ríkisborgararétt, hennar eini lifandi ættingi var hér á Íslandi, og það hrein mannvonska að leyfa henni ekki að koma til landsins.

En getum við hjálpað svona öllum, eftir vikufréttaneyslu í nóvember var maður búinn að sjá fleiri limlest börn en nokkur á að sjá alla sína lífstíð??

 

Sem og við megum alveg spyrja okkur réttmætrar spurningu um góðmennsku okkar, hefðu viðbrögð kerfisins verið þau sömu ef limlesta stúlkan hefði verið með skögultönn, og ótalandi á aðra tungu en arabísku???

Erum við í raun sömu hræsnararnir og ensku broddborgaraeiginkonur 19. aldar sem héldu teboð til að safna fjármunum til að styðja kristinboð í svörtu Afríku, en horfðu í hina áttina þegar þær sáu neyð fátækrahverfa verkamannastéttarinnar??

Eini munurinn að þær höfðu ekki lækin til að sannfæra sig um hve þær voru góðar og flottar og mega rétthugsandi?

 

Veit ekki.

Veit það samt að við getum ekki flúið raunveruleikann.

Við erum fá og við erum smá, og við erum eins og við erum.

 

Þess vegna getum við ekki bjargað heiminum, og ef við viljum reyna, og samt vera eins og við erum, þá er ekki mjög gáfulegt að flytja inn fólk sem er í hlekkjum feðraveldis sem á rætur til menningarátaka hirðingja fyrir um 4.000 árum síðan.

Hvað þá átök haturs og heiftar sem morðingjar og miðaldaöfgaskríll nærir og stjórnar.  Og það gildir um báða deiluaðila því þó Hamas hafi hafið þessi átök með voðaverkum sínum, þá er miðaldaskríllinn í ríkisstjórn Ísraels engu betri.

Hamas var bara á undan.

 

Veit ekki.

En ég virði örvæntingu þeirra sem tjaldbúðirnar gista.

Aðeins sá sem reynir getur skilið örvæntinguna sem að baki býr.

Eiga látna ættingja, limlesta ættingja, eða eiga ættingja sem ennþá hafa sloppið, en enginn veit um morgundaginn.

Og morgundagurinn kemur aftur og aftur, alltaf deyja fleiri, alltaf eru fleiri og fleiri limlestir.

 

Hver myndi ekki reyna að bjarga sínu fólki??

Með öllum þeim ráðum sem í boði eru??

 

En að styðja voðaverk Hamas, að keyra blístrandi og flautandi niður Laugarveginn til að fagna morðárásum liðsmanna samtakanna á óbreyttum borgurum, er ekki leiðin að mínu hjarta.

Fólk sem hefur ekki sið til að fordæma voðaverk, er ekki fólk sem ég vil sjá í mínu landi.

 

En samt, ég skil alveg örvæntinguna.

Skil alveg mótmæli þess, óttann sem nagar með hverjum degi sem það dregst að ættingjar þess fái að koma í öryggið og skjólið á Íslandi.

Það er svo margt í þessu og ekkert af því er gaman, skemmtilegt, ekkert sem myndi rata inní áramótaskaup tómhyggjunnar þar sem veislan og glaumið lak um hverjar dyr og út um hvern glugga.

 

Heitasta,heitasta helvíti sagði oft góður maður sem ég hafði lán að kynnast.

Þau orð lýsa vel þeirri dilemmu sem ráðafólk okkar er í.

Eða stöðu tjaldbúa á Austurvelli.

 

Þessi orð ætla ég samt ekki að gera að lokaorðum þessa pistils.

Mitt svar var alltaf; Það er ekkert grín að vera svín.

Sjaldan verið eins djúpur.

 

Palestína verður aldrei frjáls fyrr en hún slítur af sér hlekki miðaldaöfgamanna Íslamista sem nota þjóðina fyrir fóður valdabaráttu sinnar.

En það er ekki mitt að segja Palestínumönnum það.

 

Svo ætli ég endi ekki þennan pistil á fleygum orðum.

Jæja, það er nú það.

Kveðja að austan.

 

 

 

 


mbl.is Mótmæli við Alþingishúsið vekja upp spurningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Al Jazeer for­dæm­ir árás­ina

 

Og það er rétt, það er ekkert fallegt við það að blaðamenn séu drepnir á átakasvæðum, sérstaklega af þeim sem eru ekki sérstaklega áhugasamir um fréttaflutning þeirra.

En blaðamenn búa við þessa áhættu, það fylgir átakasvæðum að fólk deyr þar, hermenn ef barist er utan byggða, líka óbreyttir borgarar ef barist er innan byggðar.

 

Það er því viss hroki að krefjast að blaðamenn séu stikkfrí frá dauðanum, fari þeir inná átakasvæði þá er áhættan þeirra, þeir geta ekki verið svo skini skroppnir að halda að framleiddar séu byssukúlur sem sveigja framhjá blaðamönnum, eða sprengjur sem ekki springa í nálægð þeirra.

Og ef þeir falla, þá sé það dæmi um skepnuskap þeirra sem skaut eða sprengdi, að hafa ekki notað slíkar kúlur eða sprengjur.

 

En það er ekki þessi forheimska sem gegnsýrir þessa frétt, og blaðamaður étur beint  upp eftir fjölmiðli sem hefur tekið afstöðu í átökunum, segir því ekki fréttir, ekki frekar en þeir meintu blaðamenn sem Göbbels sendi á Austurvígstöðvarnar, sem vakti athygli mína.

Heldur þessi niðurlagsorð hennar sem eru fyrirsögn þessa pistils.

Að Al Jazeer fordæmi árásina og bætir því að fréttastöðin telji að hún ítreki mikilvægi vopnahlés.

 

Samt veit Al Jazeer allan tímann hver er forsenda vopnahlés.

Og hún er ekki óhjákvæmilegt mannfall fréttafólks stöðvarinnar.

 

Forsendan er fordæming alþjóðasamfélagsins, þar á meðal ríkja Araba, á voðaverkum Hamas, og krafan um að íbúar Gasa framselji voðamennina.

Sú heilbrigða viðurkenning mennskunnar að sumt má bara ekki, sama hve menn telji annars málstað gerandans vera réttlátan,og fari menn yfir þessi ósýnilegu mörk, þá sæti menn ábyrgð.

 

Slíkt gerir auðvita ekki Al Jazeer fréttastofan, ekki frekar en þeir fréttamenn áróðursmálaráðuneytis Göbbles sem tóku upp þær heimildarmyndir sem við eigum um voðaverk nasista, hvort sem það var í útrýmingarbúðum þeirra eða hermdarverkum SS sveita á óbreyttum borgurum Úkraínu eða Póllands.

Það er hvergi hægt að lesa úr heimildum að sá sem tók til dæmis ljósmyndina af bændakonunum sem héngu í snörum sínum í einu þorpinu í Úkraínu, hafi á nokkurn hátt reynt að segja sannleikann um þann viðbjóð, eða honum hafi orðið bumbult að snæðingi sínum um kvöldið.

Ekki frekar en það hafi komið við fréttafólk Al Jazeer eða yfirmenn þess að börn skyldu hafa verið skotin í bílstólum sínum eða brytjuð í stykki í rúmum sínum, það er þau sem voru heppin, lifðu þá ekki síðustu augnablik ómennskunnar þegar ómenni Hamas bundu þau saman, settust að snæðingi, og brenndu þau svo lifandi af þeirri máltíð lokinni.

 

Því verðugur er stríðsmaður Alla máltíðar sinnar, hvort sem hann er liðsmaður Hamas eða fréttamaður Al Jazeer.

En þeir sem eru ekki stríðsmenn Alla, til dæmis blaðamenn Morgunblaðsins, skuli kóa með þessum aumingjaskríl, það er illskiljanlegra.

 

Það þarf ekki mikla vitsmuni til að skilja, að sá sem hóf stríð með voðaverkum, hann ber ábyrgðina á að enda þau.

Og það þarf jafnvel minni vitsmuni til að skilja að það þarf tvo til að berjast, átökum á Gasa væri löngu lokið ef Hamas hefði lagt niður vopn, í stað þess að berjast við ísraelska innrásarliðið.

Minnstu vitsmuni þarf svo til  að skilja að hin meintu fórnarlömb (meint því voðaverk Hamas nutu almenns stuðnings íbúa Gasa) átakanna, geta á hvaða tímapunkti sem er stöðvað þessi átök með því að framselja þá sem ábyrgðina bera á að hafa hafið þetta stríð með voðaverkum sínum.

 

Svo þetta sé dregið saman þá er það staðreynd sögunnar að stríð drepa, þess vegna voru Sameinuðu þjóðirnar stofnaðar til að koma í veg fyrir stríð, meðal annars vegna þess að ógnarmáttur nútímavopna er slíkur, að það er ekki víst að mannkynið lifi af slík átök.

Til að koma í veg fyrir stríð var frumreglan að fordæma árás að fyrra bragði, það er árásarstríð, líkt og innrás Argentínumanna á breskt yfirráðasvæði á Falklandseyjum, árás Pútíns á Úkraínu, og morðárásir Hamas á Ísrael.

En ef ráðist var á, þá er það frumréttur sömu alþjóðalaga, að þeir sem fyrir árásinni verða, mega verja sig.  Þess vegna var gagnárás Breta á innrásarlið Argentínu réttlætanleg, þess vegna er sjálfsvörn Úkraínu réttlætanleg, og þess vegna er árás Ísraela á Gasa réttlætanlega.

 

Grunnreglan er sú að ef menn vilja ekki sitt eigið mannfall og tjón, þá ráðast menn ekki á aðra, sjálfsvarnarrétturinn er ennþá heilagur.

Þar með er það svo að á meðan Hamas verst á Gasa, þá eru stjórnvöld í Ísrael í fullum rétti að stríða þar, og slíkt stríð er alltaf löglegt.

 

Mannfall óbreyttra borgara, þegar sá sem hóf stríðið með árásum sínum, verst innan um byggðir þeirra, er þá óhjákvæmilegt, og gerir aldrei varnarstríð ólöglegt.

Með öðrum orðum, drápin á óbreyttum borgurum í Berlín, líka blaðamönnum Göbbels, voru lögleg, eða alveg þar til nasistar gáfust upp.

 

Skipti þar engu þó margur píslarvottur nasismans teldi það réttlætanlegt að gera út hermdar og morðsveitir til að drepa íbúa annarra landa, slíkt væri aðeins hryllingur og þjóðarmorð þegar morðtólin beindust að þeim, og vorið 1945 hvarflaði ekki að alþjóðasamfélaginu að þó áróðursmálaráðuneyti Göbbels fordæmdi dráp á fréttamönnum sínum, sem voru aðeins að greina satt og rétt frá þjáningum almennra íbúa Berlínar, að það væri ítrekun á vopnahléi.

Því sá sem hóf stríðið varð að ljúka því með uppgjöf sinni.

 

Það kostaði vissulega miklar mannfórnir áður en alþjóðlega samfélagið fattaði þessi einföldu sannindi, og það mátti eiga að það reyndi að bregðast við til að koma í veg fyrir átök framtíðarinnar.

En það er liðið og í dag stjórnar fólk alþjóðasamfélaginu sem brestur kjark til að fordæma það sem fordæma ber, það er víst aftur farið að skipta máli hver drepur, og hver er drepinn.

Þess vegna er sagan að endurtaka sig og þess vegna deyr fólk á Gasa.

 

Við hér á Íslandi eigum hins vegar ekki að vera þátttakendur í þeim hildarleik, og við eigum að fordæma það sem á að fordæma.

Við eigum ekki að vera svo skini skroppin að skilja ekki hver ber ábyrgðina á hörmungunum á Gasa, og hvernig á að stöðva þær hörmungar.

Og í raun er enginn svona heimskur, fréttafólk okkar hefur tekið afstöðu, það styður í raun voðamenni, og lýtur framhjá ólýsanlegum þjáningum og morðum sem aldrei er hægt að réttlæta.

 

Uppsetning á þessari frétt er dæmi um það.

Úr ranni hinna margbreytilegum ásýndum voðafólks sem þrífst á morðum og stríðsátökum.

 

Samt yrði enginn á ritstjórn Morgunblaðsins kátur ef einhver í þágu göfugs málstaðar Alla, með orðunum Alla er mikill, tæki uppá því að höggva í spað ungabörn þess, eða nauðga og skjóta ungmennin þess á friðartónleikum, til dæmis á Arnarhvoli.

Eða þeir eða samstarfsmenn þeirra yrðu dregnir út úr bílum sínu og skotnir, sem og börnin í bílstólunum sem var verið að keyra á leikskóla.

 

Hvað er að fólki, sið þess og uppeldi að geta ekki fordæmt slík voðaverk??

Af hverju eru þau í lagi ef þau eru nógu langt í burtu, og rót þeirra má rekja til deilna sem fólk tekur afstöðu til??

 

Spyr sá sem ekki getur svarað.

Því þetta er óskiljanlegt.

Algjörlega óskiljanlegt.

 

Þó veit ég að gott fólk myndi ekki horfa í hina áttina.

Og dansa taktinn sem voðamennirnir og stuðningsfólk þeirra slær.

 

Sá taktur er samt sleginn á Íslandi í dag.

Hvað segir það um okkur sem fólk, sem manneskjur??

 

Þar spyr sá sem ekki veit.

Kveðja að austan.


mbl.is Tveir blaðamenn drepnir á Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (5956)
  • Screenshot (5957)
  • Screenshot (5952)
  • Screenshot (5951)
  • Screenshot (5886)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.9.): 402
  • Sl. sólarhring: 414
  • Sl. viku: 3871
  • Frá upphafi: 1482103

Annað

  • Innlit í dag: 354
  • Innlit sl. viku: 3421
  • Gestir í dag: 325
  • IP-tölur í dag: 318

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband