Við styðjum morð og morðingja.

 

Þann viðbjóð að líkamar kvenna séu notaðir sem vopn í stríði, nauðganir, limlestingar

Við styðjum allan þann viðbjóð sem mannkynssagan hefur hingað til fordæmt, því við teljum að slíkur viðbjóður sé réttlætanlegur.

Fyrir réttlætanlegan málstað því við erum ekki svo heimsk að vitum ekki að allir þeir sem drepa, nauðga, misþyrma, limlesta, hafa alltaf gert það í þágu einhvers göfugs málstaðar, því af hverju ættu menn að breytast í skrímsli??

 

Þetta ef efnislegt innihald þessa stuðnings sem Sólveig Anna, og Viðar terroristi, hann allavega terroristaði allt starfsfólk á skrifstofu Eflingar, fengu nytsama sakleysingja í heildarsamtökum íslensku verkalýðshreyfingarinnar til að samþykkja.

Skilaboð íslensku verkalýðshreyfingarinnar eru skýr, ef þú berst fyrir heilagan málstað, þá máttu nauðga konum, limlesta þau, brenna fólk lifandi, sérstaklega börn, og ef unglingar okkar eru svo naví að trúa á frið og betri heim, og nota samfélagsmiðla til að koma saman á fríðar og ástartónleikum, svona í anda Yoko og Lennon, þá segir forystufólk íslensku verkalýðshreyfingarinnar;

"Hvílík úrkynjun að trúa á frið og ást, það á að skjóta ykkur, samt fyrst helst að nauðga ykkur, limlesta, skera af ykkur brjóstin, og þá má svo skjóta ykkur".

Svo ég vísi í það sem íslensk verkalýðshreyfingin er að styðja í raun.

 

Og ef það er einhver fáviti þarna úti sem heldur að voðaverk Hamas sé einstakt tilfelli, þá fylgja samtökin langri slóð systursamtaka sinna í Írak og Sýrlandi, í Bosníu eða á Sahel svæðinu í Afríku, morð, nauðganir, limlestingar.

Þúsundir á þúsundir ofan, hryllilegra manndrápa, þar sem saklaust fólk er brennt lifandi, afhausað, og þá sem miskunn eftir nauðganir og limlestingar, er blóðslóð Íslamista, og þegar þessi skrímsli hófu hryðjuverk sín í Ísrael, þá var myrt, nauðgað og limlest, í þeirri blóðugri vissu að Ísraelríki myndi snúast til varnar og ráðast inná Gasa.

Þar földu morðingjarnir sig innan óbreytta borgara, hafa nýtt þá sem mannlega skildi, telja samborgara sína betri brynvörn en stál skriðdrekanna.

 

Því þeir treystu á fíflsku og fávisku nytsamra sakleysingja sem myndu koma óhæfuverkum þeirra til varnar.

Blóðfórn þeirrar eigin þjóðar átti að siga almenningsáliti Vesturlanda gegn fyrirsjáanlegum viðbrögðum ríkisstjórnar Ísraels.

 

Eitthvað sem hefur mistekist og hefur afhjúpað fjölda kynníðinga á Vesturlöndum, sem þvinga konur og stúlkur til að hylja sig með slæðum miðaaldasamfélaga, sem og þekkta gyðingahatara, og hve gyðingahatur er ennþá útbreitt í Evrópu.

Eftir stendur hinn þögli meirihluti sem skilur ekki þessi voðaverk, skilur ekki þessar hörmungar sem miðaldahyskið kallaði yfir þjóð sína, og hundsar algjörlega mótmælafundi kynníðingana og gyðingahatarana.

 

Reyndar hafa fréttamenn, með þaulleit, fundið eina og eina eðlilega konu, sem mætir og mótmælir, því hún sér aðeins myndir að limlestum börnum, látnum börnum, og finnst það eðlilega rangt, og því mætir hún og mótmælir með kynníðingum, fórnarlömbum þeirra sem eru konur og börn í fjötrum miðaldasamfélaga, og gyðingahöturum, ómeðvituð um þann félagskap sem hún blandar geði við.

Engin þessara kvenna, sem eftir þaulleit meðvirkra fréttamanna sem styðja að nauðganir og limlestingar kvenna séu vopn í stríði, væru tilbúnar að bjóða unglinga sína á friðartónleika, sem næstu fórnarlömb þess viðbjóðs sem Hamas er, eða börn sín til að vera bútuð með sveðju í rúmum sínum, eða bíðandi að vera brennd lifandi á meðan hinir vígmóðu vígamenn réttlætis þurftu að kasta mæðinni við snæðing eða taka símtöl; "Hæ mamma, veistu, ég er búin að drepa 10 gyðinga".

 

Það er nefnilega enginn svona sjúkur í sinni, eða geðveill.

Nema kannski forystufólk íslensku verkalýðshreyfingarinnar, það kyngir öllum þessum viðbjóð til að halda samstöðu með Sólveigu Önnu.

 

Ef það er gjaldið fyrir Þjóðasáttina hina nýju;

Stuðningur við voðamenni Íslamista, og voðaverka þeirra, frá Kúrdistan til Íraks, frá Bosníu til landanna sunnan Sahara, þá má sú þjóðarsátt eiga sig.

Því engin lífskjör, engin stöðugleiki getur byggst á blóði saklausra, á nauðgunum og limlestingum, á viðbjóðslegum morðum barna og ungmenna.

Á allri meðvirkni eru takmörk.

 

Ef þetta aumkunarverða fólk, sem er varla fólk lengur, því svona beinn stuðningur við ómennsku sviptir fólk mennsku sína, vill stöðva drápin á Gasa, þá fordæmir það voðafólk sem ábyrgðina ber.

Krefst þess að það leggi niður vopn til að hlífa saklausum á Gasa.

Í stað þess að taka afstöðu með morðum og morðingjum.

 

Lágt er risið á Vilhjálmi í dag.

Kveðja að austan.


mbl.is Verkalýðshreyfingin dregur Palestínufánann að húni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Engvu við þetta að bæta Ómar.

Sorglegt að það skuli vera til svona mikið af hálfvitum

sem sjá ekki muninn á frjálsri Palestínu og HAMAS.

Enginn í þessum mótmælagöngum hér á landi hefur sagt eitt styggðaryrði um HAMAS.

Meðan það er ekki gert er gengið fyrir HAMAS.

Ég styð frjálsa Palestínu en meðan HAMAS er við völd verður Palestína aldrei frjáls.

Hvað er svona erfitt að sjá það ekki.

Sigurður Kristján Hjaltested, 15.1.2024 kl. 18:15

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

"Þann viðbjóð að líkamar kvenna séu notaðir sem vopn í stríði,"

Persónulega myndi ég nota haglabyssu.

"... allir þeir sem drepa, nauðga, misþyrma, limlesta, hafa alltaf gert það í þágu einhvers göfugs málstaðar, því af hverju ættu menn að breytast í skrímsli??"

Göfugur málstaður, já.  Nei, margir eru bara í þessu fyrir morðin.  Eða peningana. 

"Skilaboð íslensku verkalýðshreyfingarinnar eru skýr, ef þú berst fyrir heilagan málstað, þá máttu nauðga konum, limlesta þau, brenna fólk lifandi,"

Vegna þess að þetta eru kommúnistar. 

"Eitthvað sem hefur mistekist og hefur afhjúpað fjölda kynníðinga á Vesturlöndum, sem þvinga konur og stúlkur til að hylja sig með slæðum miðaaldasamfélaga, sem og þekkta gyðingahatara, og hve gyðingahatur er ennþá útbreitt í Evrópu."

Það er tvennt sem eykur mjög gyðingahatur á esturlöndum:

1: Fjölgun múslima
2: ADL 

"Engin þessara kvenna, sem eftir þaulleit meðvirkra fréttamanna sem styðja að nauðganir og limlestingar kvenna séu vopn í stríði,"

Þú gætir eins sagt: öndun er vopn í stríði, eða melting er vopn í stríði.  Hvort tveggja er jú óhjákvæmilegur hluti stríðs. 

Þú hefðir meira að segja réttar fyrir þér.

Manni: vopn eru vopn.  Vopn eru notuð til að auðvelda ofbeldi.  Limlestingar eru niðurstaða ofbeldis.

Hvað næst?  Spaghetti er verkfæri til að neyta matar! 

"Það er nefnilega enginn svona sjúkur í sinni, eða geðveill."

Ahem: https://www.louderwithcrowder.com/nashville-shooters-manifesto

Ásgrímur Hartmannsson, 15.1.2024 kl. 19:36

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Sigurður.

Þessi orð þín eru kjarni málsins; "Enginn í þessum mótmælagöngum hér á landi hefur sagt eitt styggðaryrði um HAMAS".

Á þessu er einföld skýring, kjarninn í þessum göngum er fólk af arabískum uppruna, megnið kynníðingar sem neyða konur og unglingsstúlkur niður í 10-12 ára aldur til að hylja hár sitt, og fjölbreytt flóra fólks yst á vinstri vængnum, ásamt stjórnleysingjum, eiga það sameiginlegt að trúa samsæriskenningum um heimsyfirráð gyðinga.  Gyðingaandúð og gyðingahatur er hluti af kúltúr þessa fólks.

Auðvita er þarna líka ærlegt fólk sem ofbýður blóðbaðið, en þetta fólk er í vondum félagsskap sem styður morð og blóðbað, bara ef það er á hinn veginn.

Hvað heldur þú Sigurður að margir hefðu verið myrtir í morðárásum Hamas ef það hefðu verið nokkur þúsund unglingar á friðartónleikunum í stað nokkur hundruð, eða morgunumferðin hefði verið byrjuð af fullum krafti, eða ef vígamennirnir hefðu ekki kastað mæðinni til að hlíta fyrirmælum leiðtoga sinna (fréttamenn fengu að sjá skriflegar leiðbeiningar um framkvæmd morðæðisins)um að nauðga og limlesta??

Það voru aðstæður sem skýrðu af hverju fleiri voru ekki myrtir en ekki skortur á vilja til að drápa.

Og það er óhugnanlegt að sjá íslensku verkalýðshreyfinguna styðja beint viljann til að útrýma 9 milljón íbúa Ísrael, hvað þá morð og nauðganir, limlestingar, að börn séu skotin í bílstólum sínum, höggvin í spað í rúmum sínum.

Aðeins sjúkt fólk styður svona viðbjóð.

Sjúkt fólk stýrir verkalýðshreyfingunni í dag.

Eins sorglegt og það er.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 16.1.2024 kl. 09:21

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Ásgrímur, stundum tekst þér að ganga fram af mér, hef ég þó reynt að taka þig eins og þú ert.

Þér til upplýsingar að eftir að Wellington hertogi tók upp þann sið í breska hernum, sem barðist við Frakka á Spáni, að hengja menn fyrir rán og nauðganir, þá hefur slíkur heragi tíðkast í flestum nútímaherjum.  Nema menn eru kannski hengdir fyrir það í dag.

Í borgarstyrjöldum takast ekki á agaðir herir, þess vegna ber oft á mönnum sem telja morð, nauðganir og limlestingar óbreyttra borgara vera sjálfsagt mál, líkt og ég fæ ekki annað skilið orð þín.

Gegn slíkum voðaverkum hafa kvennasamtök barist í áratugi, síðustu áratugina undir kjörorðin að "Líkami kvenna er ekki vopn".

Mannleg skrímsli og skepnur taka náttúrulega ekki mark á því, þau þjóna sínu eðli, en alþjóðasamfélagið tekur mark á því, slíkt er alltaf álitið stríðsglæpur í dag.

Og þó þú skiljir það ekki Ásgrímur, þá eiga femínistarnir í verkalýðshreyfingunni að skilja baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi í stríðsátökum.

Þetta skilja allar konur, en það er þetta með femínistana!!

Ég hins vegar bara vorkenni þér Ásgrímur.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 16.1.2024 kl. 09:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 33
  • Sl. sólarhring: 465
  • Sl. viku: 5524
  • Frá upphafi: 1327348

Annað

  • Innlit í dag: 29
  • Innlit sl. viku: 4934
  • Gestir í dag: 29
  • IP-tölur í dag: 29

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband