6.2.2023 | 18:06
Hvað er þessi maður að gera sig gildandi??
Rúinn öllu trausti, háðung þess embættis sem honum var trúað fyrir.
Eitt er samt að þekkja ekki sinn vitjunartíma, annað er að bæta í háðung sína, eins og að honum dugi ekki að vera athlægi flestra, heldur liggi metnaðurinn að vera athlægi allra; "Ég er að vinna eftir bestu samvisku að minni lagaskyldu og mun halda því áfram.".
Vonandi þjónuðu afglöpin öðrum hagsmunum en hans bestu samvisku, ef svo er þá er leitun að öðrum eins dómi yfir sjálfum sér.
Jafnvel harðari en að hafa lög þjóðar okkar í þeim flimtingum að afgöpin séu í samræmi við lagaskyldu hans.
Hvernig úthrópaður maður vegna gjörða sinna, sem aðeins ranglát stjórnvöld halda hlífðarskyldi yfir, telur sig geta boðað til fundar í krafti embættis síns, er eitthvað sem seinna verður kennt í heimspeki siðfræðinnar sem dæmi um algjöra blindu eða firringu.
En of heimskt til að nokkurn tímann verði minnst á sem dæmi um algjört klúður í samningatækni.
En hugsanlega, fræðilega eru einhverjir meintir verkalýðsfrömuðir, sem allir sem einn eru í verkalýðsráði Samfylkingarinnar, sem myndu mæta á fund sem Aðalsteinn Leifsson boðar til, en ekki aðrir.
Hvort sem þeir eru óflokksbundnir, meintir rebellar, í Sjálfstæðisflokknum eða Vinstri Grænum, svo djúp er gjáin á milli Aðalsteins og samtaka launþega í dag.
Enn og aftur á Mogginn mikla þökk fyrir að upplýsa almenning um atburði líðandi stundar, að fara frá rógi og níði, yfir í fréttir um þessa kjaradeilu Eflingar og Samtaka Atvinnulífsins þar sem ekkert er dregið undan, og öll sjónarmið koma fram.
Því einn af hornsteinum lýðræðisins er hlutlaus fréttamennska sjálfstæðs fjölmiðils, það er sjálfstæðs í þeirri merkingu að fréttaskrif eru aðskilin frá hagsmunum eiganda, eitthvað sem ríkisútvarpið mætti hafa í huga þegar það endurvarpar háðung Samfylkingarinnar og Góða fólksins til þessarar varnarbaráttu láglaunafólks þjóðarinnar.
Þegar á reyndi hélt Mogginn sjó, en því miður er það enn og aftur ekki sagt um Ruv, þar skiptir meira máli að vega Sólveigu Önnu en að segja satt og rétt frá.
Eins og við séum að endurupplifa enn og aftur ICEsave deiluna.
Aðalsteinn, rúinn öllu trausti, er ekki gerð meiri háðung en að orð hans séu skilmerkilega endurtekin á öllum fréttamiðlum þjóðarinnar.
Svo má taka viðtal við Katrínu aftur og spyrja hana um þessa meintu sérfræðinga hennar sem sannfærðu hana um að afglöp hans væru í anda laga og góðrar stjórnsýslu.
Með þeirri einni spurningu; Katrín, hverjir voru þessir sérfræðingar aftur??
Það er ástæða fyrir því að fjölmiðlar eru múlbundnir í einræðisríkjum eins og Hvíta Rússlandi eða Rússlandi.
Það er ástæða fyrir því að beittar gagnrýnar spurningar eru ógn við ríkjandi valdhafa.
Það dugar að leyfa Aðalsteini að tala.
En það á ennþá eftir að spyrja Katrínu.
Á mannamáli en ekki Dagísku.
Og ég velti fyrir mér hvaða fjölmiðill verður fyrstur til þess??
En efa samt að það verði Rúv.
Á meðan; Keep on running Moggi.
Kveðja að austan.
![]() |
Boðar SA og Eflingu á fund um atkvæðagreiðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.2.2023 | 13:45
Ríkissáttasemjari þiggur ekki vald sitt frá guði.
Eins og Lúðvík Sólkonungur gerði á sínum tíma, heldur frá mannanna lögum.
Lögum sem hafa ákveðinn tilgang, og ætla honum ákveðið hlutverk.
Þessar augljósu staðreyndir lýðræðisins útskýrir lögfræðingur Alþýðusambandsins, Magnús M. Norðdahl, og Morgunblaðið á heiður skilinn fyrir að gera orðum hans skýr og greinargóð skil, það er eins og blaðið sé aftur orðið hlutlaus fréttamiðill.
Það er engu við grein Magnúsar að bæta, þetta eru bara staðreyndir málsins, lögin um ríkissáttasemjara voru sett til að stuðla að friði og jafnvægi á vinnumarkaði, ekki ófriði þar sem samningstilboð annars aðilans er lagt fram sem einhver miðlunartillaga.
Þar skiptir ekki máli hvor deiluaðilinn hefur ríkissáttasemjara í taumi, það hefði verið jafn mikil árás á lögin um embætti hans ef hann hefði lagt kröfugerð Eflingar óbreytta sem miðlunartillögu.
Þess vegna er það sárgrætilegt að í einfeldningsskap sínum skuli Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vísa í einhverja óskilgreinda sérfræðinga sem segi henni að tilboð Samtaka Atvinnulífsins undir formerkjum miðlunartillögu embættis ríkissáttasemjara, sé löglegt.
Slíka árás á heilbrigða skynsemi fólks, sem og beina árás á tilgang laganna um ríkissáttasemjara, getur forsætisráðherra þjóðarinnar ekki sett fram án þess að með fylgi ítarleg greinargerð viðkomandi meintra sérfræðinga.
Því annað er bara bull út í loftið, orðagjálfur, það sem dagsdaglega er kallað Dagíska.
Það er eins og Katrín geri ekki greinarmun á þeirri óskhyggju sinni að Efling verði til friðs um laun sem duga ekki fyrir brýnustu lífsnauðsynjum, og því að það þarf að virða lög til ná þeim friði.
Hvað þá að hún fatti að líklegast er eðli deilunnar orðið þess eðlis að það sé ekki á færi atvinnurekanda einna að tryggja þessi lágmarkslífskjör, stjórnvöld þurfa líka að íhuga sína ábyrgð á verðhækkunum, Seðlabankinn þarf að íhuga sína ábyrgð, og svo þurfa menn að stöðva hið frjálsa innflæði á fólki, því við síeftirspurn á húsnæði, þá er það láglaunafólk sem fyrst hrökklast af húsnæðismarkaðnum.
Það þiggur enginn vald sitt frá guði og flestar deilur eru mannannaverk.
Bæði ástæður þeirra sem og hvort menn vilji magna þær eða stuðla að sáttum.
Embætti ríkissáttasemjara var mikið gæfuspor á sínum tíma.
Sameiginlegur skilningur aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um að allir þyrftu eiga kost á Þak yfir höfuð, uppbygging velferðarkerfisins og svo framvegis, allt þetta hefur dregið úr deilum og átökum á vinnumarkaði.
Það þarf nefnilega ekki að finna upp hjólið í dag.
Hjólið er til staðar.
Það þarf aðeins að finna upp nýjar leiðir til að virkja þau tæki og tól sem hafa virkað svo vel fram að þessu.
Ef einhver vitglóra er í stjórnvöldum þá hlusta þau á verkalýðshreyfinguna.
Ef einhver vitglóra er í stjórnvöldum þá leita þau sátta við hinar lægstlaunuðu stéttir þjóðarinnar.
Heimskulegar deilur eru nefnilega það síðasta sem þjóðin þarf á að halda í dag.
Aðeins rödd skynseminnar.
Aðeins rödd skynseminnar.
Þá greiðist* úr hinu.
Kveðja að austan.
* Sbr að greiða úr netum.
![]() |
Heimildir ríkissáttasemjara ekki óumdeildar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.2.2023 | 15:03
Negldu fyrir glugga Sólveig Anna.
Lýðræðið er komið í þrot þegar ólögum er beitt til að buga stéttarfélög og neyða uppá þau kjarasamninga sem þau vilja ekki sjá.
Með því að meina þeim að nýta lögbundinn verkfallsrétt sinn, með því að knýja fram ólýðræðislega miðlunartillögu.
Það er kjarni málsins og snýst ekki um neitt annað.
Kemur í raun hvorki Eflingu eða Samtökum atvinnulífsins nokkuð við.
Heldur er þetta þróun frá lýðræði til annað hvort stjórnræðis eða einræðis.
Svipuð leið og til dæmis ofsatrúar og öfgafólk er að fara í Ísrael í dag.
Og ef einhver skyldi ekki fatta það, vera það takmarkaður í sinni eða dómgreind, þá er það sömu ólög að segja miðlunartillögu fallna, þó hún sé samþykkt af meirihluta greiddra atkvæða, ef fjöldi greiddra atkvæða nær ekki 25% af kjörskrá.
Þá myndi heyrast hljóð úr horni, hjá þeim sömu sem þegja í dag, því þeim finnst það sjálfsagt að slík ólög beygi verkfalla skúringakvenna sem og annarra láglaunahópa.
Í úrkynjun frjálshyggjunnar og hins frjálsa flæðis Góða fólksins er sú speki siðaðs fólks að þú skulir ekki gera öðrum það sem þú vilt ekki að þér sjálfum sé gert, löngu gleymd og grafin.
Enda þar sem þetta fólk gengur laust og fær að sýsla með fjármuni og ýmis fjöregg þjóðarinnar, þá ná orðin ormagryfja eða ýldupyttur ekki að lýsa því í raun sem á sér stað í kringum það.
Lýðræði þarf að verja.
Mennskuna þarf að verja.
Og nú er bolti varnarinnar hjá Eflingu.
Sólveig Anna.
Negldu fyrir gluggana, ekki afhenda kjörskrána.
Láttu pakkið beita lögreglunni til að grafa það sem það sór að verja þegar þáði völdin sín frá þjóðinni, stjórnarskrána og lýðræðið.
Rétturinn er þín megin.
Kveðja að austan.
![]() |
Munu áfrýja ef dómur fellur ekki þeim í vil |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.2.2023 | 10:02
Skylda að ná kjarasamningum.
Segir Halldór Benjamínsson, og réttari orð í þessari kjaradeilu er ekki hægt að mæla.
En það er svo að maður getur aldrei gefið góð fyrirheit nema fyrir sjálfan sig, og í stað þess að vera sífellt að leggja inn orð fyrir forystu Eflingar ætti Halldór að líta í eigin barm og íhuga hvað hann og hans samtök geta gert til að liðka fyrir lausn deilunnar.
Til dæmis gætu Samtök Atvinnulífsins ályktað opinberlega að Aðalsteinn Leifsson eigi að draga miðlunartillögu sína til baka, og í kjölfarið segja af sér því hann er rúinn öllu trausti, aðkoma hans eftirleiðis herðir hinn fræga hnút kjaradeilunnar en liðkar ekki fyrir lausn hennar.
Skilji Aðalsteinn ekki sinn vitjunartíma, að hin meinta snjalla lausn hans, miðlunartillagan sé mesta skemmdarverk embættis hans frá stofnun þess, þá á SA að fylgja ályktun sinni eftir með því að skora á ráðherra vinnumarkaðarins að víkja Aðalsteini, rökin liggja öll fyrir, og þó afneitun þeirra hafi svo sem ekkert með vit að gera, þá er lítið vit í að reyna leysa erfiða kjaradeilu með því að hlaupa öllu í bál og brand í upphafi hennar og skemma mjög fyrir mögulegri lausn á síðari stigum hennar.
Samtök Atvinnulífsins geta síðan sagt að þó það sé ekki á þeirra valdi að hækka laun í Reykjavík það mikið að láglaunafólk þar eigi minnsta möguleika að leigja eða kaupa á viðunandi kjörum, að þá sé það skylda allra, bæði atvinnurekanda, ríkis og borgar að vinna að því koma böndum á hið Villta vestur húsnæðis og leigumarkaðarins, það hlýtur allt sanngjarnt fólk að sjá að ef fólk getur ekki tryggt sér og sínum Þak yfir höfuð, þá er ekki hægt að biðja það sama fólk að sýna meinta ábyrgð og sanngirni í kjarakröfum sínum.
Til lengri tíma eiga menn að viðurkenna að eins mestu afglöp Íslandssögunnar var að leggja niður hið félagslega húsnæðiskerfi án þess að nokkuð kæmi í staðinn.
Til skemmri tíma verður að gera eitthvað til að draga úr þrýstingnum, Samtök Atvinnulífsins geta til dæmis lagt til að svona síðustu 10 hótel eða svo á höfuðborgarsvæðinu verði gert að loka, því það sér hver heilvita maður að fjárfesti getur ekki bara tekið ákvörðun að opna hótel án þess að nokkrir innviðir séu til staðar að mæta þörfum þess starfsfólks sem hann flytur inn í landið til að vinna á hóteli sínu.
Það þarf að segja sannleikann, fjölgun hótela er fyrir löngu orðin ósjálfbær, og innflutt starfsfólk þeirra hrekur þá sem fyrir eru út á gaddinn, því hópur einstaklinga yfirbýður alltaf fjölskyldur með einni eða tveimur fyrirvinnum, ekki nema laun þeirra séu þeim mun hærri.
Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og stjórnvöld þurfa síðan að meint góðmennska þeirra að galopna landið fyrir útlensku förufólki hefur aðeins þá beinu afleiðingu að húsnæðisskortur og þar með spenna á honum sé viðvarandi ástand.
Spenna sem hrekur láglaunafólk á gaddinn.
Það er nefnilega svo að það eru skýringar á hörku Eflingar, skýringar sem eru ekki til staðar á landsbyggðinni, og fólk á hrakhólum, eða sér megnið af launum sínum renna í leiguhítina svo ekkert er eftir fyrir minnsta vott af mannsæmandi lífi handa börnum þess, það er ekki tilbúið að skrifa uppá kjarasamning sem dugar ekki fyrir brýnustu þörfum þess.
Svarið hjá Samtökum Atvinnulífsins er ekki að segja; Við og okkar fólk höfum það gott og eigum ekki í nokkrum vandræðum húsnæði eða búa börnum okkar mannsæmandi líf.
Skilningur á þessu mun leysa þessa kjaradeilu.
Skilningsleysið herða hana.
Sökin er nefnilega ekki hjá Eflingu, sama hvað marga níðstafi Halldór Benjamínsson og félagar reisa til heiðurs Sólveigu Önnu og félögum hennar í forystu Eflingar.
Hún liggur nær honum.
Og það er skylda hans að bregðast við.
Því eins og maðurinn sagði.
Það er skylda að ná kjarasamningum.
Kveðja að austan.
![]() |
Efling stundi aðferðafræðina að telja og velja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.2.2023 | 22:39
Hefur Jón misskilið stöðu sína??
Að hann starfi í sirkus en sé ekki ráðherra í ríkisstjórn Íslands??
Að leiðin til að ná í lífsnauðsynlegt fjármagn í öryggisinnviði þjóðarinnar, sé show og skemmtiatriði þar sem hann er trúðurinn.
Það er ekki bara að Jón Gunnarsson hafi sett niður sem auli, heldur hefur hann í eftirmála þessa skrípaleiks, náð að gera samráðherra sína, sérstaklega fjármálaráðherra, formann flokksins hans, samseka að þessari aðför að innviðum þjóðarinnar
Líkt og Jón sé undercover, einhvers konar fimmtaherdeild sem grefur undan trausti og trúverðugleik ríkisstjórnarinnar og ráðherra hennar.
Hafi verið ástæða til að láta Jón fara eftir þetta upphlaup, þá er enginn efi í dag, Bjarni er minni á eftir, einhvers konar gufa, ef hann lætur Jón sitja áfram.
Það eru örugglega ýmsar ástæður fyrir fjárhagsvanda Landhelgisgæslunnar, í grunninn að hún, líkt og aðrir öryggisinnviðir þjóðarinnar, fær ekki næga fjármuni, en þetta er ekki boðleg leið fyrir fagráðherra að sækja aukna fjármuni.
Sama hvaða álit menn hafa á núverandi ríkisstjórn, hvort sem menn eru stuðningsmenn hennar eða andstæðingar, þá er svona hegðun ekki líðandi og íslensk stjórnsýsla setur mjög niður með svona framkomu.
Því þrátt fyrir allt þá megum við ekki gleyma því að landið okkar, þjóðin, og þær stofnanir sem hún hefur mótað til að stjórna landinu, að þetta er allt stærra en einstaka stjórnmálaflokkar, miklu stærra en dægurþras líðandi stundar.
Við eigum að gera kröfu til stjórnmálamanna, til ráðherra að sýna þessum stofnunum lágmarksvirðingu, að sýna stjórnsýslunni þá lágmarksvirðingu að virða leikreglur, og haga sér alla vegar ekki eins og götustrákar séu menn kosnir til trúnaðarstarfa fyrir almenning og þjóð.
Allt í þessu upphlaupi Jóns Gunnarssonar er ólíðandi, fyrst hvernig hann rökstyður ákvörðun sína (ha!!, var hún ekki hvort sem er alltaf í útlöndum) og síðan hvernig hann eys samstarfsfólk sitt innan ríkisstjórnarinnar aur þegar hann er á flótta undan mótmælum sem hann átti ekki von á og réði ekki við.
Ríkisstjórn Íslands er betri en þetta.
Þjóðin á betra skilið en þetta.
Og munum, ef við virðum ekki sjálf okkur, þá getum við ekki ætlast til virðingu annarra.
Þetta ættu Katrín Jakobsdóttir og Bjarni Benediktsson að hafa í huga þegar þau íhuga stöðu Jóns.
Það er munur á tjóni og altjóni.
Og ennþá er hægt að forðast altjón.
En líði þau sirkustrúðnum að koma út sem hetju sem sótti fjármuni í lokaðan ríkissjóð, þá er ljóst að þau eru ekki mjög stór, hvorki inní sér eða útá við.
Því leiðtogi lifir ekki af svona lítilsvirðingu.
En að gefnu tilefni.
Svei attan.
Kveðja að austan.
![]() |
Vill falla frá sölu TF-SIF |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.2.2023 | 11:48
Að verja hið óverjanlega.
Er tíska þessa dagana og kannski skýring þess hve almenningur hefur ofboðslega lítið álít á stjórnmálamönnum sem og stjórnvöldum.
Svo lítið að jafnvel Samfylkingin mælist stærst stjórnmálaflokka í dag.
Af hverju er ekki hægt að taka á málum, játa mistök þegar þau hafa verið gerð, leysa deilur í stað þess að magna þær og svo framvegis.
Það eru fáir sem draga í efa að ríkissáttasemjara hafi ekki verið heimilt að leggja fram miðlunartillögu sína, það er bara ekki málið, hún gengur svo gersamlega gegn tilgangi og hlutverki embættisins að það hálfa og jafnvel helmingur þess er nóg.
Til skamms tíma magnar hún upp ófrið, til langs tíma eyðileggur hún embætti ríkissáttasemjara á meðan Aðalsteinn Leifsson gegnir því.
Því hann er ekki lengur hlutlaus, annaðhvort gengur hann erinda atvinnurekanda eða stjórnvalda, eða jafnvel beggja.
Af hverju fattar ráðherra þetta ekki, af hverju spilar hann sig bjána og spilar með augljósum afglöpum Aðalsteins, í stað þess að segja; Hey Aðalsteinn, ég held að þetta séu stór mistök hjá þér og ljóst að ef þú greiðir ekki úr þeim, ertu ekki bara rúinn trausti allra stéttarfélaga landsins, heldur líka mínu trausti.
Þetta er ekki flókið, og það er ekki þannig að ráðherra og flokkur hans VG; hafi miklu fylgi að tapa eða líta ráðherrar flokksins svo á að núverandi stjórnarþátttaka sé einhvers konar siðayfirbót fyrir svikin miklu 2009, og að eðli þeirrar yfirbótar sé að fá fólk til að gera sem það átti að gera strax 2013, það er þurrka flokkinn út af þingi.
Nei ég held ekki, þetta er hreinn aulaskapur, og allt yfirklórið ræðst beint að heilbrigðri skynsemi fólks.
Við sjáum það sama með nýjustu afglöp Jóns Gunnarssonar, þau benda sterklega til þess að það sé bara ekki alltí lagi með manninn, sem og þá embættismenn í dómsmálaráðuneytinu sem hafa eitthvað með almannaöryggi að ræða, sem og bara almenna stjórnsýslu.
Þetta klúður vefur bara uppá sig og þau Jón sé aðallega varinn með þögninni, þá er sú þögn æpandi eftir því sem fleiri sem tengjast almannavörnum og viðbrögðum þjóðarinnar við náttúruvá, tjá sig um málið.
Allir segja að maðurinn sé hreinræktað fífl sem viti ekki hvað hann er að gera, rökin gegn ákvörðun hans er eins og að segja frá manni; "já hann setti vatn á bensíntankinn, sagðist spara mikinn pening, já hann brenndi húsið sitt til grunna, nei nei ekki viljandi, honum fannst dýrt að kynda og ákvað að kveikja varðeld á stofugólfinu líkt og hann sá í gömlum vestrum í gamla daga, já já, það er ekki logið uppá hann Jón".
Samt er Jón varinn með þögninni í stað þess að vera fyrrverandi dómsmálaráðherra í dag.
Og þökk sé Guðmundi þá eykst ólgan á vinnumarkaðnum með hverjum deginum.
Og fylgi Samfylkingarinnar bólgnar út eins og myglan í nýuppgerðum skólum Reykjavíkurborgar.
Þetta er svo skrýtið allt saman.
Hvar fengu menn þá flugu í höfuðið að þegar þeir yrðu ráðherrar, þá yrðu aldrei gerð mistök sem þyrfti að takast á við og reyna að leiðrétta.
Fara þeir á námskeið þar sem þeim er kennt að verja hið óverjanlega??
Eða er þetta bara uppblásinn hroki sem lítur á almenning, þennan venjulega, sem fífl, og því megi bulla út í eitt, eða það sem verra er, tala Dagísku öllum stundum.
Veit ekki, en meðan ég man.
Svei attan.
Kveðja að austan.
![]() |
Ráðuneytið vísar frá stjórnsýslukæru Eflingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.2.2023 | 13:58
Stundum þarf að nota mannamál.
Og einhver verður að spyrja Bjarna Benediktsson að því hvaða erkifífl hann skipaði sem dómsmálaráðherra í stað Guðrúnu Hafsteinsdóttir, kjördæmi sem sendir svona mann á þing, á engan rétt á ráðherrastól.
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar reis opinberlega upp gegn yfirboðara sínum, Jóni Gunnarssyni, og með rökum útskýrði hann svarið við þeirri spurningu sem ég spurði hér að ofan á mannamáli.
Maðurinn er fífl er það eina sem Georg Lársson átti eftir að segja.
Spurning hvort hann segi það hreint út í dag þegar hann les þessa aumu vörn Jóns, að um sameiginlega ákvörðun Gæslu og ráðuneytisins væri að ræða, að Georg væri einhver svona útgáfa af Hyde og Jekyll, auðmjúkur jámaður í návist ráðherra, en óforbetranlegur rebel, svona Sólveig Anna týpa af embættismanni, þegar hann veitti viðtöl í fjölmiðlum.
Í þessu dæmi getur nefnilega bara annar haft rétt fyrir sér, annað hvort er Jón að ljúga uppá Georg, eða Georg er tvíklofi, og þar með ekki hæfur til að gegna starfi sínu.
Stundum þarf nefnilega að segja satt, og þá allan sannleikann.
Á meðan er gaman að lesa álit Magnúsar Tuma, prófessors á þessum afglöpum.
"Það má eiginlega líkja þessu við það að lögreglan er í tímabundnum rekstrarerfiðleikum og selur bílana sína til þess að rétta sig af og getur þess vegna ekki farið í útköll nema fótgangandi." (Rúv í gær).
"...það að minnka öryggisráðstafanir með því selja flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, í sparnaðarskyni sé eins og að hafa slökkt á götuljósum borgarinnar á nóttunni til að spara. Magnús Tumi segir rökin um að flugvélin sé lítið notuð ekki halda vatni. Hann líkir því við það að fólk vilji almennt hafa slökkvitæki heima hjá sér þó svo að það kvikni ekki í.".(Mbl.is).
En ég ætla að gefa Birni Bjarnasyni lokaorðið, þegar hann gagnrýnir afglöp ráðherra Sjálfstæðisflokksins, þá er líklegast fokið í öll skjól Bjarna Benediktssonar, því ábyrgðin á dvergunum er jú alltaf hans.
""Ja, ég verð nú að segja að ég hef sjaldan orðið jafnhissa og þegar ég sá þessa frétt [að selja ætti TF-SIF] núna áðan. Ég verð að játa að ég skil þetta ekki, að þetta skuli vera að gerast," segir Magnús Tumi á ruv.is í dag (2. febrúar). Hann mælir þar fyrir munn þess sem hér skrifar og líklega alls þorra þjóðarinnar.".
En að gefnu tilefni.
Svei attan.
Kveðja að austan.
![]() |
Sameiginleg niðurstaða ráðuneytis og LHG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.2.2023 | 11:42
Viðbragðsaðilar í áfalli.
Segir Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar hjá Veðurstofu Íslands, líklegast daprasti áfellisdómurinn yfir Jóni þriðja, dómsmálaráðherra.
Þetta frjálshyggjukjaftæði Jóns, nátttröll frá síðustu öld, um að hagræða burt því eina sem til er, er nefnilega ekkert annað en dapurlegur vitnisburður um óhæft stjórnvald, og ef hann kemst upp með atlögu sína af almannaöryggi og almannahag, um verkstjórn þeirra Bjarna og Katrínu á dvergunum í ríkisstjórn Íslands.
Meir að segja stjórnarandstaðan, sem yfirleitt er upptekin í Ó-málum og innihaldslausum upphrópunum, kveikir á alvöru málsins, og nær að spyrja hinnar óhjákvæmilegu spurningar;
"Vissi það einhver"??
Það er aðrir en Jón þriðji og kannski nánast aðstoðarmaður hans, Brynjar Níelsson.
Því ef svo er þá er ríkisstjórn Íslands vanhæf, hættuleg þjóðarhag.
Það vekur athygli að í þessari frétt minnist blaðamaður Moggans á engan stjórnarliða sem tók til máls.
Eins og þeir tilheyri ekki lengur þjóð sinni, og viti ekki hvað skiptir máli, og hvað skiptir ekki máli.
Þekki ekki lengur mun á dægurmáli og sjálfri alvörunni.
Að þeir séu í raun eins og Píratar eða þaðan af verra.
Oddvitar ríkisstjórnarinnar skulda þjóðinni svör.
Sem og viðbrögð.
Rétt viðbrögð á mannamáli en ekki orðagjálfur Dagískunnar.
Þetta er ekki líðandi.
Svei attan.
Kveðja að austan.
![]() |
Vissi það einhver? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.2.2023 | 08:25
Veruleikafirring eða þaðan af verra??
Stórfrétt dagsins er að Selenski sé boðið og við þurfum að flytja inn löggur til að passa upp á hann og aðra leiðtoga á stóru Skál-Skál ráðstefnunni sem verður haldin í vor.
Við erum sko þjóð meðal þjóða, eða þannig.
Hvort á maður að hlæja eða gráta??
Við erum nýbúin að fá tilkynningu að þriðja flokks stjórnmálamaður brúki munn við það fólk sem þjóðin treystir til að gæta öryggis síns á hættustundu.
Og í nafni hagræðingar, af öllum þeim ó-orðum sem íslensk tunga býr yfir, í nafni hagræðingar ætlar sá þriðji að hagræða einu flugvél landhelgisgæslunnar úr landi, varanlega í þetta sinn.
Sumir eru jú með forgangsröðina á hreinu.
Ekki skal ég gera lítið úr alþjóðlegu samstarfi, en á meðan við segjumst ekki hafa fjármagn til að reka lágmarks öryggisbúnað í okkar stóra víðfeðma landi, með ennþá stærri og víðfeðmari landhelgi, þá eigum við ekki og megum ekki eyða í svona flottræfilshátt sem þessi leiðtogafundur er.
Þetta er eins og að taka matarpeninga frá börnum sínum til að geta skellt sér á næsta ball.
Það er ekki bæði sleppt og haldið, og þegar búið er að sleppa, þá er ekki haldið í svona vitleysu, það er móðgun gegn viti og skynsemi.
Síðan má spyrja þeirrar stóru spurningar, hvað er eiginlega að þessu fólki sem opnar varla munninn nema til að tala um kolefnishlutlaust Ísland fyrir árið eitthvað innan ekki svo langs tíma, að það getur aldrei verið heima hjá sér, og ef það er heima hjá sér, þá fær það fólk til sín.
Allt flandrið á eins mengandi hátt og hugsast getur enda flugsamgöngur mesti mengunarvaldur þjóðarinnar.
Hvað fordæmi er þetta á hinum háalvarlegu tímum þegar menn segja að sjálf siðminning sé undir, allavega menn skála fyrir því á einhverjum Skál-Skál ráðstefnum??
Heldur þetta fólk virkilega að syndaaflausn þess sé aukinni skattheimtu á okkur þessa fátæklinga sem höfum ekki á nýjum rafmagnsbílum, eða farartækin sem flytja okkur nauðsynjar eftir þjóðvegum landsins???
Það er svo margt æpandi við þessa stórfrétt.
Hún afhjúpar svo mikið um fólkið sem stjórnar okkur.
Og þetta er ótækt á meðan sá þriðji er með frjálsar hendur.
Hagræðing.
Svei attan.
Kveðja að austan.
![]() |
Selenskí boðið og lögreglan leitar liðsinnis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.2.2023 | 23:24
Jón er kátur karl og hraustur.
En óttalegur bjáni eins og segir í vísunni.
Eða kannski sagði það ekki í vísunni en hvað má segja um okkar ágætis dómsmálaráðherra sem kýs að rífa sig við fagmann, hann pólitíkus sem getur þakkað tvennt frama sinn innan Sjálfstæðisflokksins, dugnaðinn við að taka í hendurnar á fólki og hæfninni til að rífa kjaft í frösum.
Georg Lárusson er margreyndur, bæði vegna starfa sinna innan lögreglunnar og síðan sem farsæll forstjóri Landhelgisgæslunnar um árabil.
Georg segir;
"Enginn góður kostur var í stöðunni og það eru okkur sár vonbrigði að neyðast til að hætta rekstri eftirlitsflugvélarinnar en hún er sérútbúin eftirlits-, björgunar- og sjúkraflugvél og mikilvæg eining í almannavarnakeðju landsins. Frá árinu 1955 hefur Landhelgisgæslan gert út flugvél til eftirlits og björgunarstarfa við Íslandsstrendur. Ákvörðunin nú er því mikil afturför í viðbragðs- og ekki síst eftirlitsgetu þjóðarinnar. TF-SIF er ein af mikilvægustu einingunum í viðbragðskeðju stofnunarinnar og með þessari erfiðu ákvörðun er stórt skarð höggvið í útgerð Landhelgisgæslunnar. Þá teljum við veru flugvélarinnar hér á landi vera brýnt þjóðaröryggismál, sér í lagi í ljósi breyttrar heimsmyndar,".
Jón segir;
"Dómsmálaráðherra telur ekki að stöðvun á rekstri eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, muni setja strik í reikninginn hvað varðar viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar í leit og björgun. Hann segir að á undanförnum árum hafi meginverkefni vélarinnar snúið að landamæraeftirliti í Evrópu. "Vélin hefur ekki gegnt veigamiklu hlutverki þegar kemur að leit og björgun hér við Íslandsstrendur. Henni var flogið eitthvað vel innan við hundrað flugstundir á síðasta ári, samkvæmt mínum upplýsingum".
Já Jón telur, og rífur sig og vissulega er það rétt hjá honum að Landhelgisgæslan hefur séð á eftir TF-SIF löngum stundum erlendis, en það eru þekkt frjálshyggjufræði að stjórnmálamenn sem fá fylgi út á að rífa kjaft um almannaþjónustu, fjársvelti hana síðan þegar þeir eru í ríkisstjórn, og benda síðan á; Sjáið þið bara, ríkið er handónýtt.
En þau afglöp segja ekkert til um mikilvægi SIF fyrir Landhelgisgæslunnar og þann hlekk sem hún er í viðbragðskeðju stofnunarinnar. Ef ég man rétt þá byrjaði þessi útvistun þegar ríkið átti erfitt með að fjármagna almannaþjónustu eftir þjófnaðinn sem kenndur er við bankahrunið, en það getur ekki endalaust verið afsökun, og því á mikilvægi flugvélarinnar metast eftir þörfinni fyrir hana, en ekki axarsköftum og afglöpum þeirra sem Sjálfstæðisflokkurinn skipar í embætti dómsmálaráðherra.
Segjum það hreint út að það eru fífl sem taka meira mark á Jóni Gunnarssyni en Georg Lárussyni í þessu máli.
Og ef Jón Gunnarsson er einn af þeim sem telur að hann hafi meira vit á þessum málum en sjálfur forstjórinn, þá er augljóst að hann á að láta Georg fara fyrir opinber mótmæli sín.
Því ef það er ekki þörf fyrir þessa flugvél, og forstjóri Landhelgisgæslunnar segir annað þá á forstjórinn að víkja, brottrekstrarsökin að hafa logið að þjóðinni.
Því svona gengur ekki, að alls konar fuglar eru settir í ráðherrastól, þykjast vita betur en fagfólkið, og skilja svo allt eftir sig í rjúkandi rústum.
Svo nú reynir á hvort þessi Jón sé kræfur karl og hraustur og hreinsi út þetta fólk hjá Gæslunni sem segir að SIF sé nauðsynlegur hlekkur í öryggiskeðjunni.
Eða hann hlusti af auðmýkt og geri skyldu sína gagnvart land og þjóð.
Eða er ég kominn út í furðusögur og furður??
Jón Gunnarsson að hlusta!!!!
Nei, það verður víst að vera takmörk á öllu því sem ímyndunaraflið fær mann til að segja og skrifa.
En, en, en, en. En. En!!!!
Það eru 62 aðrir á þingi, þar af ótal ráðherrar.
Þeirra er ábyrgðin, þeirra er að hrinda þessari aðför að þjóðaröryggi.
Því jafnvel vanhæfni á sín mörk.
Svona gerir maður ekki.
Svona er ekki gert.
Svei attan.
Kveðja að austan.
![]() |
Vélin mest verið suður í höfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 463
- Sl. sólarhring: 592
- Sl. viku: 4612
- Frá upphafi: 1453953
Annað
- Innlit í dag: 416
- Innlit sl. viku: 3967
- Gestir í dag: 372
- IP-tölur í dag: 360
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar