So what??

 

Palli er flottur, reyndar einn sá flottasti.

Rök hans eru líka flott.

Þó stafrænt ofbeldi sé ógn, þá þarf alltaf tvo til, þann sem dreifir, sem er einn og vissulega getur margfaldast, en ógnin er alfarið þeirra sem horfa, njóta og hneykslast.

 

Páll skilaði skömminni, eftir stendur hinn margplægði akur hnýsni og fordæmingar.

Er þetta lífið sem við viljum, eins og enginn sé morgundagurinn, eins og þetta snerti ekki fyrr eða síðar, allt fólk, allar fjölskyldur.

Þar liggur meinið, skortur á uppeldi, léleg siðferðiskennd.

 

Í raun er glæpurinn þeirra sem njóta, en ekki þeirra sem dreifa.

Munum það og horfum í eigin barm, næst þegar við leitum eftir svona myndum.

Í dag er það Palli, en við vitum aldrei hver það er á morgun.

 

Og svoleiðis verður það þangað til að miðillinn sem dreifir, verður gerður ábyrgur fyrir ósómanum.

Því alnetið er mannanna verk, þó vissulega hafi ríkt þar lögleysa sem kenna má við jaðarbyggðir Villta vestursins, þá náðu lögin að lokum yfir þær byggðir.

Eins verður það með alnetið.

 

Þar verður ekkert til að sjálfu sér.

Að halda öðru fram er blekking þeirra sem hafa hag af lögleysunni.

Og þeim þarf að mæta.

Hvort sem það er viðrini Pírata eða annað.

 

Það sem er ekki líðandi, er ekki líðandi.

Kveðja að austan.


mbl.is „Skömmin er aldrei hjá þeim sem treystir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kanntu annan Guðlaugur?

 

Kínverjar brutu á bak aftur lýðræðisþrá íbúa Hong Kong, þvert á undirritaðan samning við Breta um að gera ekki slíkt fyrr en eftir 20 ár eða svo.

Framferði þeirra gagnvart múslímskum íbúum Xianjian-héraðs er þjóðarmorð sem á sér enga samsvörun í nútímasögu aðra en í þekktum þjóðarmorðum Stalíns.

Þjóðarmorð sem bitnaði á íbúum Eystrasaltsríkjanna, Tatörum Krímskaga, Volgu Þjóðverjum og fleirum.

 

Svo segir þú að mannréttindi eigi við alla, alls staðar.

Og engin alvara býr að baki, enda Kína verksmiðja alþjóðavæðingarinnar, í boði nýfrjálshyggju Vesturlanda sem hlóð auð í hendur Örfárra sem fluttu síðan framleiðslu okkar þangað, til að auka enn á margfaldan hagnað sinn, eftir stendur sviðin jörð vestrænnar framleiðslu og þeirra landsvæða sem byggðu velmegun sína á henni.

Þar skiptir framferði kínverskra stjórnvalda engu.

Ekki á meðan kostunaraðilar þínir, Guðlaugur Þór Þórðarson, græða og græða.

"Mannréttindi eiga við alla, alls staðar", er í raun ennþá aumkunarverðar mjálm en hjá meðvirkum stjórnmálamönnum sem horfðu þegjandi á uppgang nasismans á fjórða áratug síðustu aldar, þá sáu allir ofsóknirnar, kynþáttahatrið sem endaði í því sem við seinna upplifuðum sem útrýmingarbúðir.

En þá kusu bara flestir að þegja.

 

En sumir kunna ekki að skammast sín, fyrir meðvirkni sína og undirlægjuhátt.

Þú ert einn af þeim Guðlaugur Þór.

Þú afhjúpaðir þig í landsölunni sem kennd var við Orkupakka 3.

Varst svo ósvífinn á eftir að segja flokksmönnum þínum að sjálfstæði þjóðarinnar snérist um að ganga ekki í Evrópusambandið.

 

Eftir að þú afsalaðir því sjálfstæði í hendur sama sambands með samþykkt Orkupakkans, þar var glæpurinn ekki afsal yfirráða yfir orkuauðlindum þjóðarinnar, vissulega smán, en glæpurinn var röksemdin, að aðildin að EES þýddi að íslensk stjórnvöld þyrftu að samþykkja allt sem frá Brussel kæmi.

Þú svo vitgrannur að þú fattaðir ekki að jafnvel á myrkustu tímum nýlendusambands okkar við Dani, þá höfðu dönsk yfirvöld  aldrei þau algjöru völd, að þau þyrftu ekki að bera kröfur  sínar um valdaafsal undir Alþingi Íslendinga.

 

Þú ert maðurinn Guðlaugur sem talar í frösum.

Og frasar þínir eru aumkunarvert yfirklór manns sem gerir ekki neitt til að verja mannréttindi þeirra sem þjást vegna kúgunar alræðisstjórna, eða verja sjálfstæði þinnar eigin þjóðar.

 

Þess vegna spyr ég eins og bjáni.

Auðvitað kanntu annan.

Og þú kannt marga.

Svona á meðan þú kemst upp með það.

 

En til þess þarf tvo.

Og sökin er hjá þeim sem láta þig komast upp með þennan annan, aftur og aftur.

Sem jafnvel taka mark á þér.

 

Á meðan þrífast brot alræðisins.

Gegn minnihlutahópum, gegn sínum eigin þjóðum.

Gegn mannúð og mennskunni.

 

Það er ekki fordæmt á meðan það eru menn sem kóa með.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is „Mannréttindi eiga við alla, alls staðar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Ísland.

 

Þetta tókst hjá okkur.

Stjórnvöldum bar gæfa til að grípa snöggt inní, og við sem þjóð höfum virt sóttvarnir með þeim árangri að daglegt líf er aftur að komast í eðlilegt horf.

Og munum að ekkert er verðmætara en þetta daglega, hvort sem virðið er metið út frá samfélagslegum sjónarmiðum eða efnahags.

 

Þess vegna ber stjórnvöldum skylda til að tryggja að landamærin haldi, og þau halda ekki nema með tvöfaldri skimun og öruggri sóttkví ferðalanga á milli.

Og heimasóttkví er ekki örugg, það er alltaf einhver misbrestur á henni.

Þess vegna eiga stjórnvöld að tryggja lagagrundvöllinn til að hægt sé að skylda alla í örugga sóttkví þó auðvita megi skoða fleiri kosti en sóttvarnahótel.

Getur þetta ekki bara verið hluti af ferðaþjónustunni í hinum dreifðu byggðum, að bjóða uppá örugga sóttkví í friðsælli náttúru??, svo dæmi sé tekið.

 

En kóvid er ekki búið.

Það er á fullu víða um heim, fjölgun smita í löndum eins og Indlandi og Brasilíu er gróðrarstía stökkbreytinga, aðeins tímaspursmál hvenær vörn núverandi bóluefna brestur.

Og frá Evrópu berast fréttir að breska afbrigðið sé farið að veikja yngra fólk en áður, þetta mátti lesa í frétt frá Þýskalandi í gær;

"Þeir sem hafa lagst inn und­an­farið eru yngri en í fyrri bylgj­um, flest­ir á milli 40 og 60 ára, að sögn Marx. "Þeir þurfa oft að vera í önd­un­ar­vél­um og eiga síðan í langri bar­áttu við eftir­köst Covid-19," sagði Marx í sam­tali við AFP og bætti því við að fjórði hver sjúk­ling­ur sem lagst hafi inn lifi ekki af bar­dag­ann við Covid-19.".

Það er ekkert öruggt fyrr en þjóðin hefur náð hjarðónæmi með bólusetningum, og jafnvel þá þurfum við að passa vel uppá landamærin okkar.

 

Höfum það hugfast næst þegar einhver krakkinn kemur og segir að það eigi að opna landið fyrir ferðalöngum, að það eigi að taka pappíra gilda en ekki örugga sóttkví.

Það er bara ávísun á nýja bylgju.

 

En í dag getum við slakað á.

Boltinn er byrjaður að rúlla, og jú eitthvað annað líka.

Er á meðan er.

 

Njótum.

Kveðja að austan.


mbl.is Ekkert smit greindist innanlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lög gegn þjóð.

 

Er skýring á nýrri sóttvarnarbylgju sem við munum upplifa þegar líður á mai mánuð, en að baki liggur ómælt vanvit og heimska sem við kennum við þingmenn sem samþykktu mótatkvæðalaust, árás sína á sóttvarnir þjóðarinnar.

En allt á sér sínar rætur, og við megum aldrei gleyma að myrkrið sem hefur yfirtekið ritstjórnarherbergi Morgunblaðsins, að á meðan ljósið hrekur það ekki út, þá fáum við frétt eins og þessa.

Nöldur og nag lögfræðinnar að kóvid veiran skyldi ekki fá frelsi til að drepa nógu marga.

 

Munum, og við megum aldrei gleyma, að innlendar sóttvarnir hafa bjargað hundruð mannslífa, og þá eigum við ekki síður að íhuga hvað drífur áfram norska lagaprófessorinn sem vitnað er í þessari frétt.

Hvað gengur honum til, hvaða grimma myrkur, dauði og djöfull, knýr hann áfram??

Munum, að kæmi hann ekki úr myrkrinu, þá er fólk, ekki gott fólk, sem upphefur þessa ónáttúru.

 

Lög gegn þjóð.

Lögfræðingar er eina háskólastétt vestrænnar akademíu, sem réðst beint gegn þekkingu, í þeim eina tilgangi að brjóta niður varnir okkar gegn útbreiðslu kóvid veirunnar.

Og úrkynjun samfélags okkar er á því plani að þeir hafa þau völd til að drepa og veikla, þegar enginn á að hafa þau völd, nema veiran, sem ógnar okkur, hótar að drepa foreldra okkar, sem og þá sem við þekkjum, og vitum í dag að sé fólkið með undirliggjandi sjúkdóma.

 

Og við sem þjóð hlæjum.

Eða horfum á kostunaraðila atlögunnar að samfélagi okkar, eiganda Morgunblaðsins, monta sig, vissulega að verðleikum, með sitt nýja skip.

En enginn spurði Þorstein, hvert er dauðahlutfall þess??

Hvernig getur þú flutt inn nýtt skip, þegar blaðið sem þú fjármagnar, ræðst að lýðheilsu þjóðarinnar, að baki hina stolta nafni sem þú valdir á hið nýja skip, þá liggur fjármögnuð atlaga að lífi og limum þjóðarinnar, sem þú berð beina ábyrgð á.

 

Það vex ekkert upp úr tómarúmi.

Hvorki þeir aumkunarverðu sem færðu fagleg rök fyrir að útrýmingarbúðir nasista væri hagkvæm lausn á þekktum gyðingaofsóknum liðanna alda, eða viðrinin sem vísa í meinta faglega þekkingu um að stríðið við veiruna kalli á lög sem vernda okkur öll.

Í raun er viðrinishátturinn sá sami.

 

Þekkjum hann.

Fordæmum hann.

 

Það er jú líf í húfi.

Kveðja að austan.


mbl.is Segir Noreg sóttvarnaríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lok lok og læs og allt í stáli.

 

Við lokum skólum, við hótum þjóðinni nýjum sóttvarnarhandjárnum.

En við lokum ekki fyrir lekann á landamærunum.

 

Ömurlegast af öllu ömurlegast sem þjóðin hefur þurft að þola og þjást með, er viðtalið við manninn sem gat ekki virt sínar eigin sóttvarnir, en ákvað í viðtali Kastljós gærdagsins að gefa þjóð sinni fingurinn.

Hvað er lokun landamæra sagði hann, eigum við að banna allt flug til landsins??

Gerði sig heimskan og hver meðalgreindur blaðamaður hefði sett í rannsókn meint fjárhagsleg tengsl viðkomandi við gíruga sérhagsmuni sem fjármagna heimsku þingmanna og ráðherra.

En engin fyrri tengsl við þríeykið, sem vissulega hefur kóað með óráð stjórnmálamanna með að leyfa leka á landamærunum, með ómældu tjóni og þvingaðar sóttavarnir innanlands, en við trúðum öll að óráðin væru vel meint, að þríeykið hefði ekki getað gert betur.

Eða þangað til í gær.

 

Lokun landamæra spurði Víðir Reynisson, er það að banna allt flug til landsins??, og með því svari sínu gerði hann sig heimskari en allir málaliðar hinna þröngu fjárhagslegu sérhagsmuna sem hafa haldið þjóðinni í herkví sóttvarna, mánuð eftir mánuð.

Hvaða andskotans fífl og fáviti var að tala um það, ekki Vigdís spyrill, eða nokkur annar sem hefur komið nálægt sóttvörnum þjóðarinnar.

Þetta var samt rökfærsla Víðis til að afsaka að sóttvarnaryfirvöld hafa ekki varið landamæri þjóðarinnar.  Vísa ég þar í val fólks til að vera í sóttkví eður ei, að ekki sé minnst á þau fáráð að taka pappír gildan um hvort fólk smiti.

 

Það var enginn að tala um að loka landamærunum, krafan var aðeins ein, að veirunni yrði ekki hleypt viljandi vitandi vits inn í landið.

Það er vitað að eina vörn á landamærum sem virkar, er skimun, örugg sóttkví, og svo önnur skimun.

 

Að halda öðru fram eins og Víðir Reynisson gerði í viðtalinu við Jóhönnu Vigdísi, er fyrir utan allan ramma skynseminnar, bendir til annarlegra hagsmuna.

Annarlegra hagsmuna sem hafa svo oft vegið að okkur, okkur hinum, almenningi, sem dagsdaglega er kenndur við þjóð.

 

Svo er bara skólum lokað.

Allt gúddí.

 

Á meðan gírugir hagsmunir stjórna vörnum, eða réttara sagt, brjóta niður varnir okkar á landamærunum.

Og meintur fulltrúi þríeykisins boðar aðeins sóttarnarhandjárn á þjóð sína.

Í stað þess sem þjóðin spyr um, af hverju lokið þið ekki landamærunum fyrir nýsmiti inn í landið??

 

Því var ekki svarað í gær.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Fimmta smitið í Öldutúnsskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar vanvitið fær vægi.

 

Þá fáum við svona frétt.

Og þá er ég ekki að vísa í hægri öfgamanninn, sem hefur það einbeitta markmið að fækka kjósendum Sjálfstæðisflokksins, sem fékk sína fréttaskýringu í gær þar sem hann vísaði í dóm vina sinna, í dómarastétt, heldur þá sorglegu staðreynd að Svanhvít, er út á túni í vörnum þjóðarinnar á landmærunum.

Svo ég vitni í spurningu blaðamanns og svar hennar;

"Sýn­ir þetta að það sé mögu­lega ónauðsyn­legt að skima bólu­setta við kom­una? „Það sýn­ir okk­ur alla vega að hingað til erum við að sjá að við get­um treyst þess­um bólu­setn­ing­um en það auðvitað brýn­ir okk­ur líka í því að fylgj­ast mjög vel með þessu. Ég held að það sé ekki ástæða til að hætta þessu,".

 

Spurningin var um þá staðreynd að bólusettir hefðu ekki mælst smitaðir í fyrri skimun.

Nema það er ekki seinni skimun.

 

Var okkur ekki sagt sömu vitleysuna fyrir tæpu ári síðan, þegar ein skimun á landamærum átti að verja þjóðina.?

Allir vita hvernig það fór, mánuðir eftir mánuð, vorum við í herkví sóttvarna, þúsundir samlanda okkar voru sviptir lífsviðurværi sínu, engin leikhús, engir tónleikar, engin líkamsrækt, engar íþróttir, veislur, mannfagnaðir.

Svo vogar heilbrigðisráðherra sér að kóa með heimskunni og endurtaka þessa vitleysu.

Þegar það er vitað að það þarf tvær skimanir á landamærunum til að þau haldi.

 

Myrkraöfl stjórna Morgunblaðinu, varðandi kóvid er það ekki þessa heims.

En síðast þegar alþjóð vissi þá var Svanhvít þessa heims, og í liði með þjóðinni.

Samt lætur hún þetta út úr sér, að ein skimun dugi til að verja landamærin, þegar raunveruleikinn segir allt annað.

Og bólusett fólk, nýsmitað er engin undantekning þar á.

 

Fékk Svanhvít ekki fréttirnar í dag, um smitið sem lak inn yfir landamærin?'

Af hverju kóar hún með myrkrinu á Mogganum??

Hún sveik í ICEsave, en af hverju þarf hún að bregðast núna??

 

Eðlilegt líf þjóðarinnar er komið undir tveimur skimunum á landamærunum, og öruggri sóttkví þar á milli.

Allt annað er bein árás á líf okkar, því veiran finnur sinn farveg, til að sýkja, til að veikla, og þá er svar stjórnvalda alltaf það sama, sóttvarnarhandjárn á þjóðina.

En að tækla flakkið á landamærunum, sem prómil þjóðarinnar tekur þátt í, það er ekki í umræðunni.

Hinir fáu, hinir afbrigðilegu, halda restinni af þjóðinni í herkví.

 

En sökin er ekki þeirra.

Því þegar hið afbrigðlega, óeðlið tekur yfir almannahag, þá er skýringanna ekki að leita í óeðlinu, heldur þeirra sem sjá sér hag í að níðast á þjóð sinni og bera fyrir sig mannréttindi viðrina á kostnað hins helga rétt þjóðar að fá að verja sig gegn ytri ógn, hvort sem það er af völdum erlends ríkis, eða heimsfaraldurs drepsóttar.

Sökin er hjá þessu fólki.

Ekki samlöndum okkar, eins ömurlegir og þeir eru, sem telja sig hafa rétt á að ógna okkur hinum, með því að virða ekki sóttkví á landamærum.

 

Það er Svanhvítar að skera úr um hvort hún tilheyri þjóð sinni eða ógnaröflunum.

En þar duga ekki orð, heldur gjörðir.

Sem og að hundskamma það fjölmiðlafólk sem vinnur fyrir myrkrið, og spyr þeirra spurningar sem hún gat ekki svarað eins og maður.

 

Það þarf ekki að skríða fyrir myrkrinu eða ógnaröflunum.

Það þarf að mæta þeim.

 

Það gerði Svanhvít ekki.

Segir margt.

Kveðja að austan.


mbl.is Sérreglur fyrir bólusetta ekki í kortunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei, eru landamærin strax farin að leka??

 

Og þjóðinni hótað sóttvarnarhandjárnum uppá nýtt?

Eða hvernig á að skýra þessi orð Þórólfs á annan hátt?? "Í tveim­ur til­fell­um er ekki klár teng­ing við önn­ur smit eins og staðan er núna.".

 

Vissulega er beðið eftir raðgreiningu veirunnar, en mikil má tilviljunin vera, að sama óþekkta smitið sem hefur verið á kreiki í nokkrar vikur, valdi smiti sem greinist á Suðurnesjum, Vesturlandi og á höfuðborgarsvæðinu á sama tímapunktinum, og engin augljós tengsl eru á milli þeirra smituðu.

Og þó það væri gaman að berja á ógæfufólkinu í lögfræðistétt, sem skemmdi varnir þjóðarinnar á landamærunum, þá verðum við líka að íhuga hvað felst í að pappír um bóluefni eða fyrri smit sleppi fólki við sóttkví.

 

Hópsmitið í Mýrdalnum var vegna slíkra pappíra sem veiran bara því miður tók ekki mark þó íslensk sóttvarnaryfirvöld geri slíkt.

Þar var smitberinn einstaklingur sem framvísaði vottorði um fyrra smit, en reyndist vera með nýsmit i sér engu að síður, og smitaði út í sitt nánasta umhverfi.

Gæfa þjóðarinnar var að viðkomandi vann á fámennu vinnustað í dreifbýlinu, annars hefði stórslys út frá sóttvarnarsjónarmiðum átt sér stað.

 

En meinið, það alvarlega er að þeir sem eru bólusettir geta þrátt fyrir það borið veiruna á milli, ef þeir á annað borð smitast af veirunni.

Á þetta benti vísindamaður hjá íslenskri erfðagreiningu í nýlegir grein á Vísi.is.

"Bólusetning dregur úr dreifingu SARS-CoV-2 veirunnar í samfélaginu og smiti milli einstaklinga, þegar 60-80% íbúa hafa verið bólusettir, en áhrifin eru háð afbrigðum veirunnar. Meðan við höfum ekki náð hjarðónæmi með bólusetningu 60-80% þjóðarinnar þurfum við skima alla á landamærunum, líka þá sem eru bólusettir, þar sem við höfum takmarkaðar upplýsingar um hvort og hve mikið bólusetningar vernda gegn því að bera veiruna og smita aðra. Bólusetningavottorð tryggir engan veginn að fólk beri ekki veiruna og geti ekki smitað.".(Ingileif Jónsdóttir, prófessor í ónæmisfræði og deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu)

 

Það eru nefnilega takmarkaðar upplýsingar um hvort og hver mikið bólusetningar vernda gegn því að bera veiruna og smita aðra.

Bólusetningar eru nefnilega hannaðar til að hjálpa ónæmiskerfinu til að sigrast á veirunni, en þær tryggja ekki að menn geti ekki smitast, og smitað aðra. 

Og um slíkt eru komnar vísbendingar sem verður að taka alvarlega.

 

Það er ekki bæði sleppt og haldið,  að vernda þjóðina og hafa leka á landamærunum á sama tíma.

Veirur virða ekki opinbera pappíra, þó þeir séu stimplaðir í bak og fyrir.

Og sjálfval um sóttkví á landamærunum endar alltaf á einn veg.

 

Þann veg sem fréttir dagsins gefa í skyn.

Með leka, með dreifingu veirunnar út í samfélagið.

 

Spurningin er, eigum við að láta þessa örfáu einstaklinga sem þurfa að flækjast á tímum farsóttarinnar, komast upp með það að halda okkur hinum innilokuðum, að samfélagið sé meir og minna í herkví veirunnar??

Ef ekki, þá þurfum við að senda stjórnvöldum skýr skilaboð þar um.

Og það er ekki nóg að gera það í skoðanakönnunum.

 

Nú er lag fyrir leiðtoga að stíga fram.

Kveðja að austan.


mbl.is Smitin í dag dreifð um landið og ekki rakin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðin eitt.

 

Lögmenn gegn sóttvörnum núll.

 

Landamærin halda og stjórnvöldum ber þá skylda til að færa allt mannlíf í eðlilegt horf.

Til vara alla íþróttaiðkun.

Til vara vara allavega fótboltann.

 

En víkjum aðeins að orðum Þórólfs; ".. mik­il­vægt að hafa góða stjórn á landa­mær­un­um, ann­ars fáum við þetta bara inn í landið".

Það er ekki hans hlutverk að tala um þetta, það er hans hlutverk að sjá til þess að þetta sé gert, að sóttvarnir á landamærum séu þess eðlis að þær haldi.

Annars er hann ekki starfi sínu vaxinn, og ber að víkja.

Nema lekinn sé eftir óþekktri leið sem illt er að verjast, til dæmis með kaffisendingum frá Brasilíu eða öðrum svæðum þar sem ófullnægjandi sóttvarnir hafa gefið veirunni tækifæri á að þróa með sér illvígari afbrigði.

 

Hópsmitið í Mýrdalnum var vegna þess að maður með pappír um að hann smitaði ekki, smitaði, en Þórólfur sagði líkurnar svo litlar að slíkt hefði ekki átt að gerast, og þar með útilokað að menn með pappíra um smitleysi, smiti á ný inní samfélagið.

Hafi Þórólfur rangt fyrir sér hvað það varðar, sem auðvita allir vona að svo sé ekki, þá er svarið ekki eins og hann gaf í skyn, að þá yrði hann tilneyddur að taka á ný upp sóttvarnarhandjárnin úr læknatösku sinni, og setja á þjóðina, heldur að hann axli ábyrgð og víki.

Veiran er þá komin til að vera, það er ekki endalaust hægt að fíflast í þjóðinni.

 

Sama gildir ef sóttkvíar í heimahúsum halda ekki, eða ef hin svokölluðu sóttvarnarhótel eru meira hótel en sóttkví, ekki sé gætt að einangrun veirunnar.

Reglugerðin treystir fólki, og sé fólk ekki traustsins vert, þá só bí it.

Þjóðin á ekki að vera scapegoat vanhæfra embættismanna sem geta ekki varið landamærin.

 

Það er nefnilega þannig að það er komið að Ögurstundu í sóttvörnum þjóðarinnar.

Fjórar bylgjur höfum við látið yfir okkar ganga vegna þess að landamærum er ekki lokað.

Ekki á fólk heldur smit, það er veiran sem smitar en ekki fólk, þeir sem smita eru aðeins hýslar hennar.

 

Skýringarnar á þeim öllum er óskhyggja í bland við bull um að ekki sé hægt að halda veirunni úti.

Margfalt, margfalt fjölmennari lönd hafa náð því, þar á meðal fjölmennasta ríki heims.

Óskhyggjan hefur alltaf snúist um að það dugi að ná næstum því öllum smitberum, en sama tíma fara menn með möndru þekkingarinnar, að það þurfi aðeins eitt smit til að smita samfélag.

Í Wuhan tók það rúmar 6 vikur frá fyrsta skráðu smiti þar til veiran var það útbreidd, að eina ráðið var að læsa allt mannlíf inni, og hleypa fólki ekki út fyrr en öruggt var að veiran var útdauð.

 

Núna vita menn betur og segja að varnirnar á landamærunum dugi, veiran haldist úti.

Hafi menn rangt fyrir sér þá axla menn ábyrgðina en koma sökinni ekki á þjóðina enn einu sinni.

Aðeins þá, hugsanlega, hugsanlega er almenningur tilbúinn að taka einn slag í viðbót.

En ef sama fólkið stjórnar, þá er slíkt algjörlega tilgangslaust, og eins gott að láta veiruna hafa sinn gang.

Því annars er þetta bara aftur og aftur og aftur.

Hringekjan endalausa sem enginn vilji er til að stöðva.

 

Vonandi halda landamærin.

Vonandi mun það sem er fullreynt að virki ekki, loksins virka.

Annað eins hefur nú gerst.

Liverpool varð til dæmis Englandsmeistari í fyrra.

 

Annars.

Já, annars??

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Skilar minnisblaði í dag – útlit fyrir tilslakanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klúður heilbrigðisráðherra.

 

Hafi einhver efast að á meðal vor sé ennþá til rammgöldrótt heiðni sem hefur vald og kraft til að gala magnaðan seið, þá ættu síárásirnar á sóttvarnir þjóðarinnar á landmærum að færa hinum sama sönnur á að sá efi hafi verið óþarfur.

Er ég þá ekki að vísa í að myrkraröfl hægri öfga hafa lagt undir sig ritstjórnarherbergi Morgunblaðsins, rót illskunnar hefur jú fylgt manni frá því sköpun hans, heldur þá atburðarrás á þingi sem varð til þess að fyrsta stoð réttarríkisins, löggjafarvaldið brást þjóðinni á Ögurstundu hennar.

 

Á Alþingi er svona að öllu jöfnu skipað fólki sem er eins og við flest, bara venjulegt fólk, vissulega margir lögfræðingar þar en ætti varla að skaða því hlutverk þingsins er að setja lög.

Viðrinisháttur er þar ekkert algengari innan þings en utan, þó á þingi sé segull í einum flokki sem dregur að sér slíka hegðun, en þar er verið að uppfylla eftirspurn útí þjóðfélaginu.

 

Þess vegna getur ekkert annað en forn vitneskja skýrt hvernig þingmenn gengu úr skafti og viti, gerðust Píratar, og fóru að fikta í hinum nýju sóttvarnarlögum, gerðu þau andvana fædd með því að taka út þau ákvæði sem þurfa að vera til að markmið sóttvarna náist, það er heimild yfirvalda til að skylda fólk að fara í sóttkví og heimild yfirvalda að setja á útgöngubann þegar enginn annar möguleiki er í stöðunni til að stöðva bráðsmitandi drepsótt.

Heimskan er líkt og að setja lög sem banna skotvopnanotkun almennings, og eftir að markmiðum laganna og tilgangi er skilmerkilega lýst, að hafa svo þriðju málsgrein svona; Öllum skal heimilt að eiga skotvopn, allar gerðir.

 

Klúður heilbrigðisráðherra er kannski ekki að gera sér grein fyrir að hið óútskýranlega, að hópur venjulegs fólks breytist ekki á einni nóttu í hóp viðrina, sé ekki þessa heims, að baki hljóti að búa forn þekking sem seinna var kennd við svartagaldur, heldur að mæta ekki leiðtogum viðrinisháttarins, skora þá á hólm með rökum, kalla til samfélag vísindanna til að mæta bábiljunni.

Í stað þess að leyfa fiktinu að renna átakalítið í gegn.

 

Síðan var það skylda hennar, því hún er jú kjörinn embættismaður þjóðarinnar, að afneita frumvarpinu, leggja sjálf fram nýtt, krefja forsetann um að senda bastarðinn til baka með ávítum til óvitanna, standa og falla með þjóð sinni.

Ekki að lúffa, hvað þá að lýsa yfir fögn.

 

Þetta er klúður heilbrigðisráðherra.

Söguna þekkjum við síðan.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Stjórnsýsla í molum í heilbrigðisráðuneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landamærin opin.

 

Smit leka inn, fórnarlömb þess skikkuð í sóttkví.

Og þjóðin fær ekki að lifa eðlilegu lífi.

 

Þessa pattstöðu þarf að rjúfa núna þegar stjórnmálin bregðast okkur, ríkisstjórnin hefur ekki styrk til að framfylgja sóttvörnum, að henni er sótt úr röðum stjórnarandstæðinga, þar sem kverúlismi er hreyfiaflið.

Hvernig getur það verið að 6% þjóðarinnar, blanda að kverúlöntum, lítt gefnu fólki og fólki sem bregst við dauðaangist sinni með afneitun á alvarleik faraldursins, haldi þjóðinni í gíslingu?

Þó gírugir fjársterkir sérhagsmunir með beina leið í vasa þingmanna og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, kyndi undir.

 

Hvernig voga stjórnmálin að ganga gegn þjóð sinni með vísan í hina algjöra minnihluta sóttvarnarandstæðinga?

6 prósent fólkið.

Hvernig er þetta hægt á lýðræðistímum að svona lítill minnihluti, örfáir peningamenn, haldi einni þjóð í svona pattstöðu, hún má sig vart hæra, öll barátta hennar við veiruna eyðilögð jafn óðum með hinum viljandi leka á landamærunum?

 

Hví látum við bjóða okkur þetta??

Er eitthvað að okkur??

 

Spyr sá sem ekki veit.

Kveðja að austan.


mbl.is Tvö smit og hvorugur í sóttkví
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2021
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1440175

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband