Og svo segir atvinnulífið að það sé að komast í þrot.

Heimilin segjast vera að gefast upp.  Og forseti lagadeildar Háskóla Íslands segir að ICEsave-samkomulagið sé nauðungarsamkomulag, uppsegjanlegt hvenær sem þjóðin fær aftur völdin frá Leppstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Og það er engin von í þjóðfélaginu því ríkisstjórnin er á annarri plánetu.  

Hver eru endamörk heimskunnar.  Hvenær sér fólk í gegnum skrípaleik þess fólk sem fékk völd sín með svikum og lygum.  

Það er ekkert sem þessi Óstjórn er að gera sem skiptir almenningi máli í dag.  Því hún er að vinna að röngum hlutum, eftir rangri stefnu.

Stefnu auðmagns og Nýfrjálshyggjunnar.  Og í þokkabót vinnur hún markvisst að því að gera landið gjaldþrota svo auðmagnið og innlendir Leppar þess geti hirt auðlyndir landsmanna.  Það er ekki bara í Suður Afríku þar sem fólk mun þurfa að borga fyrir grunþjónustu á töxtum sem það ræður ekki við.

Sjálfur landstjórinn yfir Íslandi, Mark Flanagan sagði að á móti skuldum okkar ættum við svo miklar eignir.  Og þær má selja og einkavæða, allt í boði Nýfrjálshyggjustjórnar Jóhönnu Sigurðardóttir.  

Þegar stjórnin hefur klárað verkefnalista sinn, þá er engin von eftir á Íslandi.  

Þá mun máttur fótanna hjá ungu fólki taka yfir.  Fagurgali félagshyggjunnar mun ekki duga til að unga fólkið okkar muni ala börn sín upp í fátækt og vesöld.  Það á valkosti að flytja af landi brott en eftir situr félagshyggjan og skilur ekkert í af hverju hún er án þjóðar.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Segir 21 verkefni af 48 afgreidd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 65
  • Sl. sólarhring: 150
  • Sl. viku: 5382
  • Frá upphafi: 1338840

Annað

  • Innlit í dag: 53
  • Innlit sl. viku: 4739
  • Gestir í dag: 52
  • IP-tölur í dag: 52

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband