Hvað er hann þá að gera í stjórn með Samfylkingunni?

 

Hennar eina kosningamál var að útrýma þessari sömu krónu og Steingrímur kallar bjargvætt.

Er það svona rosalega mikilvægt að hjálpa illskuöflum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að rústa hér velferð og gera allan almenning að skuldaþrælum.

Hvenær yfirtók Mr. Hyde Steingrím Joð????

Kveðja að austan.


mbl.is Steingrímur þakkar fyrir krónuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það sem blessunin hann Steingrímur gleymdi í þessu öllu er að gengisfelling er lítið annað en flutningur fjár frá launþegum og til útflytjenda. Og ekki minninst hann heldur á þá staðreynd að krónan er ekki aðeins hluti lausnar á vanda Íslendinga nú, heldur einnig ein af meginrótum vandans. Hann minnist ekki heldur á það að fall krónunnar hefur sett stóran hluta atvinnulífsins á hausinn, vegna þess að það er að drukkna í erlendum lánum -- hversu mikið atvinnuleysi ætli það hafi skapað? Eða það að Grikkir hafa þó nothæfan gjaldmiðil sem við höfum ekki -- og þeirri spurningu hefur ekki verið svarað hvernig leysa á vanda krónunnar í framtíðinni. Og allra síst minntist hann nokkuð á það vandi Grikkja er ekki evran heldur arfavitlaus efnahagsstefna -- og reyndar er evran eina ástæðan fyrir því að evruríkin eru tilbúin að rétta þeim hjálparhönd og koma í veg fyrir ríkisgjaldþrot.

Gunnar (IP-tala skráð) 3.5.2010 kl. 09:50

2 identicon

Sæll Ómar.

Það er enginn J&H í Nágrími Nei-kvæða

Það er Jóhanna sem stjórnar honum gegnum rassg.... . Hann er meira svona "Gosi".

Óskar (IP-tala skráð) 3.5.2010 kl. 09:50

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Félagar.

Óskar, þú segir það.  

Gunnar, þú mikli Evrumaður, þarf fyrst að frjósa í helvíti áður en þú skilur til hvers gjaldmiðlar eru, og hvaða kraftar ákveði verðgildi þeirra.

En það er merkileg óvild ykkar Eurokratanna á útflutningsatvinnuvegunum, haldið þið að innflutningur komi eins og rekinn forðum daga, að hann reki til landsins og það þurfi ekkert að greiða fyrir hann????

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 3.5.2010 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 404
  • Sl. sólarhring: 1013
  • Sl. viku: 5612
  • Frá upphafi: 1328425

Annað

  • Innlit í dag: 344
  • Innlit sl. viku: 5016
  • Gestir í dag: 332
  • IP-tölur í dag: 327

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband