Hugleiðing um sannleikann og framtíðina, aðfaraorð um sannleiksnefndina.

Í góðum pistli Arinbjörns Kúld, "Sundruð þjóð" átti ég nokkur innslög sem þróuðust út í samantekt mína á þeim rökum sem ég tel mæla með leið Sannleiksnefndar til að gera upp Hrunið.  Gegn því að segja satt, þá fá allir sem Sannleiksnefndin telur ástæðu að ræða við, uppgjöf saka gegn því að segja satt og rétt frá um athafnir sínar í aðdraganda Hrunsins.   En hinsvegar myndu þeir endurgreiða skaknæmt fé,  á ég þá við þar sem lögbrotum, hvort sem það voru undanskot, skattabrot eða eitthvað annað ólöglegt, var beitt við öflun þess.

Í frekar saklausum pistli dagsins, sem ég setti nú aðallega saman til að fá athygli á þá staðreynd að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis kom með lokarökin fyrir réttlæti skuldaleiðréttingar, minntist ég á að afsökunarbeiðni Björgólfs yngri væri spor í rétta átt, og mættu fleiri gera slíkt hið sama.  Um þetta sjónarmið skapaðist umræða sem á alveg rétt á sér, en á sér aðeins eina rökréttu niðurstöðu, og það er leið sannleiksnefndarinnar. 

Til að útskýra mál mitt, þá ætla ég að birta innslög mín við greinarkorn Arinbjörns, og koma þau hér á eftir i nokkrum köflum.  Þetta er grunnhugsun sem fólk, sem vill framtíð, verður að skilja svo vilji þess nái fram að ganga.  Vegna þess að þetta er engin venjuleg kreppa sem við erum að glíma við, þetta eru hamfarir af völdum kerfis, sem við þurfum að jarða, og byggja upp nýtt og betra, ef við viljum lifa mannsæmandi lífi í framtíðinni.

Og það er ekki nóg að vilja betri tíð, það þarf að gera það sem þarf að gera svo af verði.  Þess vegna lesa allir áhugamenn um tíðarfar þessa pistla, og máta sínar skoðanir við þá.  Og sjá vonandi ljós sem lýsir þeim inn í framtíðina.

En hér á eftir er byrjunin á löngu máli því sumt er bara ekki hægt að afgreiða í fáum orðum.  Ekki ef maður vill rökstyðja sínar hugsanir.

Kveðja að austan. 

 

Takk fyrir mjög góðan pistil.  Það er langt síðan sem ég hef lesið annan sem hefur vakið hjá mér eins mörg hugrenningatengsl.  Og þar sem ég er ekki að trufla neina umræðu þá langar mig aðeins að festa  sum niður á blað.

Þar sem ég er einn af þeim sem hef gert bandalag við ömmu andskotans til að hnekkja ICEsave samkomulaginu þá langar mig að árétta mína ástæðu fyrir hörkunni.  

Lágur barnadauði og almennar lífslíkur barna okkar eru ekki eitthvað sem er sjálfgefiðÞetta kostar pening.  Og þann pening á núna, vegna einhverra óskilgreindra hótana að setja í að borga breskum og Hollenskum stjórnvöldum skaðabætur vegna banka sem þau leyfðu starfsemi eftir reglugerðum sem þau eins og önnur öflug hagkerfi Evrópusambandsins sömdu.  Þar komu íslensk stjórnvöld hvergi nálægt og þeirra eini glæpur var að leyfa starfsemi eftir þeim reglugerðum, en til að hindra það þá þurftu þau að segja landið úr samstarfinu um Evrópska efnahagssvæðið.  Og ég var ekki var mikinn þrýsting um það, heldur var þrýstingurinn í hina áttina að þjóðin stigi skrefið til fulls.   Það var ofsalega auðvelt að gagnrýna Hrunflokkana núna, en hvaða hreyfing stóð gegn þeim þá?????  Hverjir vildu út úr EES????   Og hvað hefði komið í staðinn?????

Ekki ætla ég að réttlæta gjörðir þessara manna, enda er ég hatrammur andstæðingur þess siðleysis sem mér fannst stjórna alþjóðavæðingunni, og kaus gegn Hruninu allan tímann, þrátt fyrir rætur á miðjunni.  En að mínu dómi var það kerfið sem brást, það var vitlaust gefið í upphafi því það vantaði allt siðferði inn í hagmódelið, það siðferði sem segir að rangt sé rangt, þó þú græðir á því.  Og gjaldþrot þeirrar andstöðu, sem þó var til staðar gegn einkavinavæðingu Nýfrjálshyggjunnar, var eftir kosningarnar 2007 þegar allir flokkar vildu í pólitískt hjónaband með Sjálfstæðisflokknum.  Hugmyndfræði hans virtist hafa sigrað, alveg þar til raunveruleikinn sagði annað.  En þó hafa menn ekki lært meira en það að eins og Þorsteinn Pálsson sagði réttilega í Morgunblaðsviðtali, núna eru VinstriGrænir undir forystu Steingríms Joð að framfylgja þeirri stefnu sem Sjálfstæðiflokkurinn er að heykjast á.  

Og til hvers var þá byltingin spyr ég bara??

En þetta er ekki kjarni minnar andstöðu.  Ég vil meina að faðir sem horfir á látið barna sitt vegna þess að það fékk ekki sömu heilbrigðisþjónustu og hann fékk sjálfur vegna þess að erlendar vaxtagreiðslur sjúga allt fjármagn úr ríkissjóði, honum sé alveg sama um söguskýringar, hvað þá hver gerði hvað einhvern tímann.  Hann spyr sig aðeins einnar spurningu og hún er þessi; Af hverju???????????????

Og í kjölfarið mun hann spyrja; Hvað gerðir þú til að hindra að þetta gerist????  Og þá er eins gott að menn hafi svör sín á hreinu.

Af hverju standa spjót mín á Steingrím Joð, þann mæta mann sem ég mat einna mest íslenskra stjórnmálamanna????  Það er ekki eingöngu vegna þess að hann er gerandi dagsins í dag, en umræðan um Hrunflokkana er söguskýring, og ég átti alveg eins von á því að stjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins hefði látið undan kúgun bretanna.  Nei það var vegna þess að þarna hjó sá sem hlífa skyldi.  Hver annar átti að verja hagsmuni þess föður sem ég lýsti hér að framan????

Þegar ég las pistil þinn fyrst þá rifjaðist upp fyrir mér löngu gleymd saga en það er um frægasta svikara grískrar sögu, hann Hippías.  Hann vann sér sinn vafasama sess í sögunni um 490 fyrir Krist (fletti þessu upp, man nú ekki svo vel staðreyndir).  Þá réðist Daríus Persakonungur á Grikki með mikinn liðsafla og sjálf gríska siðmenningin og sjálfstæði var undir.  Nokkur grísk borgríki fylgdu Persunum en Aþena og Sparta stóðu á móti ásamt megninu af grísku ríkjunum.  Spartverjar voru þá þekktir fantar og fúlmenni og í kjölfar þessarar fyrstu orrustu við Persana stofnuðu Aþeningar Sjóríkjasambandið sem þeir kúguðu síðan seinna meir miskunnarlaust.  Spartverjar og Aþeningar urðu síðan seinna meir "Hrunríki" grísks sjálfstæðis með sínum linnulausa ófriði.  Auk þess voru ótal margir liðhlaupar í liði Persanna.  

En eitt nafn lifir, og það er nafn Hippíasar, fyrrverandi harðstjóra (Tyran) Aþenu, sem bauð Daríusi þjónustu sína til að endurheimta sín fyrri völd í Aþenu.  Þá hjó sá sem hlífa skyldi, Hippías notaði hæfni sína og þekkingu til aðstoða óvininn í stað þess að verja sitt fólk.

Og hefur verið fyrirlitinn æ síðan.

Kannski eru þær ógnir sem Steingrímur sá í spákúlu sinna ráðgjafa það mikil að honum féllust hendur, en það gaf honum ekki vald til að svíkja stefnu sína og hugsjónir.  Skorti honum kjark eða þrek til að berjast við Helstefnu Nýfrjálshyggjunnar, þá átti hann að víkja og hleypa viljugum baráttumanni að, en EKKERT gaf honum rétt til að ganga til liðs við óvininni og afvopna þar um leiða alla Andstöðu gegn honum.

Í því eru hin grundvallarsvik fólgin.   

Pétain marskálkur mátti gera í sínar brækur andspænis mætti Þjóðverja, hin svik hans við frönsku þjóðin fólst í uppgjöfinni, í stað þess að fela De Gaulle völdin.  Þá hélt franska auðvaldið að það gæti samið við siðlausa ræningja, en það reyndist vera rangt.  Ræningjar stela alltaf, og ef þeir eru siðlausir í þokkabót, þá valda þeir ómældum hörmungum komist þeir upp með það.  

Nýfrjálshyggjan er siðlaus ræningja stefna.  Eðli hennar er að fá sem mest út úr fórnarlömbum sínum með sem minnstum tilkostnaði.  Og hún drepur fólk.  Og það mun hún gera á Íslandi.  Allstaðar þar sem ein birtingarmynd hennar, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur náð ítökum, þar hefur fólk fallið, sem annars hefði lifað

Og þetta fólk er alþýðufólk, alveg eins og ég, sonur húsvarðar í Gagnfræðiskólanum í 35 ár.  Ég og mínir líkar hafa notið góðs af þeirri velferð sem uppgjafasinnar vilja fórna fyrir friðinn.  Og ég er nógu skynsamur til að gera mér grein fyrir því að það sem hefur einu sinni tapast, það tekur ómælda baráttu að ná til baka.  Og á meðan óþarfa þjáningar þeirra sem velferðin átti að hlífa.

Arinbjörn.  Þetta skylduð þið aldrei nógu vel í Borgarahreyfingunni.  Þræll þarf ekki réttlæti, hann þarf frelsi.  Og í dag er verið að gera íslensku þjóðina að þrælum erlends auðvalds.  Og þið ræðið um ýmsa augljósa vankanta okkar gamla þjóðfélags á meðan.  En hvort sem það var gott eða slæmt (ekki verra en það að við vorum á topp þrjú lista Sameinuðu þjóðanna yfir mesta velmegunina í heiminum) þá var það okkar þjóðfélag.  Í dag er Steingrímur Joð Sigfússon vinnumaður hjá þeim sem vilja svipta okkur þessu þjóðfélagi og gera Ísland að hjálendu alþjóðlegs auðmagns.  

Pólitík Andófsafla í dag snýst ekki um að sníða vankanta af hina gamla þjóðfélagi, alvöru Andófsöfl eru í frelsisbaráttu.  Og sú barátta er að tapast af tveimur ástæðum.  Breytingaraflið (sem fann sér meðal annars farveg í Borgarahreyfingunni) vill uppgjör við fortíðina, en á meðan sér það ekki hina aðsteðjandi ógn skuldaþrældómsins og afsal auðlynda þjóðarinnar í hendurnar á erlendu auðvaldi og þeir sem sökum róttækra stjórmálaskoðana sinna ættu að vera í fararbroddi Andstöðunnar, þeir sviku.  

Og það skiptir ekki máli af hvaða toga svikin eru.  Þeir sviku.

Og Arinbjörn, sá leiðtogi sem þú kallar eftir, hann mun ekki ná  að sameina þjóðina um réttlæti skuldaþrælsins.  Og ef hann trúir því að græðgi Nýfrjálshyggjunnar sé eitthvað náttúrulögmál, sem ekki er hægt að breyta, og því snúist starf hans um gera gott úr þjóðfélagi sem notar lungann af sínum tekjum til að borga vexti og afborganir til erlends auðvalds, þá hefur hann lesið stöðuna hrikalega vitlaust.  Og skiptir þá engu hversu góður og gegn hann er að öðru leyti og hve vel hann vill.   Og þá skiptir heldur engu máli hver gerði hvað, hverjum og hvurs, og allt það.

Ekki það að réttlæti skipti ekki máli.  En það er grundvallarmunur á réttlæti og réttlátri framtíð.  Og það er lítið réttlæti sem lætur sér duga að gera upp við einstaklinga, en ekki kerfið sem skóp þá.  Hvað þá ef sú barátta festir verri birtingarmynd siðleysisins í sessi.   Þjóðfélög Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru ekki réttlát og í þeim eiga börn alþýðufólks sér enga framtíð.  Þar eru þau aðeins ódýrt vinnuafl, ekki manneskjur.

Þess vegna gerði ég bandalag við ömmu andskotans.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 18
  • Sl. sólarhring: 472
  • Sl. viku: 5509
  • Frá upphafi: 1327333

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 4919
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband