Smán Vinstri manna er algjör.

Jón Valur Jensson, þekktur hægri maður, hefur tekið upp brjóstvörn fyrir íslenska alþýðu.  

Hann segir Nei við þrælahlekkjum  ICEsave Nauðungarinnar. 

Hann vill ekki að börnin okkar séu svipt rétti til mannsæmandi lífs.  

Hann segir Nei við kúgun alþjóðlegs auðvalds.

Til skamms tíma sögðust Vinstri menn hafa einkarétt á baráttu alþýðu fyrir réttlæti og betri heimi.  En þegar réttlætinu var nauðgað og lífskjörum  almennings fórnað fyrir velferð auðmanna og féspámanna, þá sviku Vinstrimenn alþýðuna fyrir 30 silfurpeninga.

Smán þeirra er algjör. 

Um langa framtíð munu orðin "vinstri" og "félagshyggja" vera skammaryrði í daglegu máli íslenskrar alþýðu.  Fáir munu þekkja söguna af Júdasi en allir söguna af Steingrími.

Og menn eins og Jón Valur munu vera hetjur morgundagsins.

Áróðursmaskínan með ríkisfjölmiðlana í fararbroddi blekkir um stund, en hin ljóta ásýnda lyginnar mun brjótast í gegnum Holtaþoku blekkinga og lyga.

Almenningur segir Nei, við ICEsave.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Mótmæli vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 995
  • Frá upphafi: 1321547

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 834
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband