Skinhelgi á jólum.

 

Ótrúlegt að upplifa hvernig fólk og fjölmiðlar gátu farið hamförum út af meintum brotum Bjarna Ben á sóttvörnum, það hefði mátt halda að Bjarni hefði boðið til mannfagnaðar og staðið fyrir djammi langt fram á nótt, í stað þess sem gerðist, að honum varð á, og gætti ekki að sér.

Hvernig fólk gat velt sér uppúr þessu eða gripið tækifærið til að vega að pólitískum andstæðingi, á þessum tíma þar sem við eigum að huga að ljósinu og birtunni, jafnvel hafa aðgát í dómum okkar og fordómum gagnvart náunganum, að ekki sé minnst á að leggja eitthvað gott til, gagnvart okkar nánustu, gagnvart náunganum, gagnvart samfélaginu.

 

Jafnvel á erfiðum stundum kemst maður ekki hjá því að finna fyrir inntaki jólanna þegar sagt er í fréttum frá hinu óeigingjarna sjálfboðastarfi hermanna Hjálpræðisins sem gefa gjafir, gefa mat, og ekki hvað síst, gefa kærleik.

Þá eyða menn tímanum í aðför að manni, manneskju, sem gaf á sér höggstað, og bullusullast út um víðan völl um eitthvað sem á sér ekki flugufót í raunveruleikanum.

 

Góðglaður Bjarni var ekki að vanvirða fólk sem býr við einangrun þessi jól. Einangrun þess stafar af því að það er í áhættuhópi, og þarfnast því sérstakrar verndar.

Mistök hans eru ekki hvatning til annarra að virða ekki sóttvarnir, fólk er ekki svo heimskt að það lætur einhverja meinta áhrifavalda stjórna lífi sínu, til góðs eða ills.  Þeir sem virða sóttvarnir, halda áfram að virða þeir, hins vegar gæti umræðan um þessi mistök orðið til þess að þeir sem eru kærulausir, hugsi betur sinn gang, og þá eru þessi mistök til góðs.

 

Síðan er engin tvískinnungur fólginn í því að gegna skyldum sínum innan ríkisstjórnar Íslands og taka réttar ákvarðanir um sóttvarnir þjóðarinnar, sem og í kjölfarið að hvetja fólk til dáða, og verða síðan sjálfum á mistök á þessum tímapunkti þar sem fólk slakar og vill gleðjast með sínu nefi. 

Annars vegar er það hin opinbera persóna, hins vegar er það manneskjan að baki henni. 

Og illa er fyrir sálarlífi fólks ef það áttar sig ekki á þessum mun.

 

Fjarstæðan er síðan sú að leggja út af þessu broti og samkvæmi, að eitthvað meint ríkt fólk telji sig geta komist upp með athæfi sem almenningi líðist ekki.  Það er tekist á við þetta brot eins og önnur, það fær sína afgreiðslu, eins og önnur sama eðlis.

Frekar mætti halda því fram að hinir skinheilögu krefjist að strangara sé tekið á sumum en öðrum, og þessir sumir séu allir þeir sem viðkomandi er illa við, hvort sem það er pólitískt, eða persónulegt.

 

En af hverju er ég með svona langan aðdraganda að því sem ég sagt vildi hafa út frá þessari frétt?

Jú, þegar fárið stóð sem hæst, þá blöskraði mér hvernig ómál fékk alla athygli en stórmál, mál sem snerta okkur öll, falla í skuggann, eru ekki rædd, nema þá sem aukafrétt.

 

Stórfréttin fyrir jól, fyrir utan hörmungarnar á Seyðisfirði, var sú staða sem upp var komin að fyrirheitin um bólusetningu uppúr áramótum, og hjarðónæmi fyrir vorið, var orðið að engu, hafði drukknað í skriffinnskutilburðum Brussel.

Eitthvað sem átti að kalla á svör, og jafnvel kröfu um afsögn heilbrigðisráðherra.

 

Þá hjó ég eftir því að Bjarni hjólaði ekki í VG þó það hefði glatt margann haukinn í flokki hans; hann lét til dæmis þessi orð Katrínar ekki út úr sér; " .. að vissu­lega séu það von­brigði að málið hafi komið upp og að það skaði traust milli flokka í rík­is­stjórn".

Hann fóðraði ekki nagið gegn ríkisstjórninni með því að ráðast á samstarfsflokk og ráðherra sem lá við höggi.

 

Þess í stað var reynt að bæta úr, Katrín tók upp tólið, sambönd voru virkjuð.

Þá kom stórfrétt þessarar hátíðar, hugmynd var uppi um samstarf við Pfizer um tilraunabólusetningu þjóðarinnar til að rannsaka hið mögulega hjarðónæmi, sem í dag er aðeins tilgáta, nútíminn hefur aldrei staðið frammi fyrir viðlíka hremmingum gagnvart svona smáum og illvígum drápara.

Frábær frétt, en hvað gerðist svo?

 

Jú, aðilar málsins fóru að karpa eins og smástrákar um heiðurinn, drógu skugga deilna fyrir tjald vonarglætunnar.

Hversu heimskt þetta er er í raun ekki hægt að lýsa með orðum, það eina sem afsakar er þandar taugar hinna örmögnuðu sem hafa of lengi staðið vaktina í framlínu baráttunnar.

 

Eitthvað sem snerti líf og limi, eitthvað sem gæti flýtt fyrir að við fengjum líf okkar aftur úr hremmingum sóttvarna, og þá karpa menn um heiðurinn.

Og fjölmiðlar og netheimar veltir sér uppúr mannlegum breyskleika, eins og drulluslagur og mannorðsníð sé það eina sem menn hafa til málanna að leggja á dauðans alvöru tímum.

Eins og við séum stödd á þeim tíma þar sem Íslands ógæfu varð allt að vopni.

 

Margir eiga að skammast sín eftir þessa hátíð.

Það er enginn sómi að svona aðför á sjálfri jólahátíðinni.

Vonandi hafa menn vit til að sjá það.

 

En fyrst og síðast erum við að bregðast framtíðinni með því að láta svona.

Það þarf ekki að eyða orðum að vitleysingabandalaginu, en full ástæða til að lesa yfir fullorðnum mönnum sem taka uppi hætti smástráka.

Kyrrð jólanna virðist samt hafa haft góð áhrif, Kári gerðist auðmjúkur og Þórólfur er hættur að kýtast.

 

Það er vel því þannig á það að vera.

Það er verkefni sem þarf að vinna.

Ekki með hangandi hendi heldur með eldmóði þess sem trúir að hann nái árangri, að hann skili góðu verki.

 

Gangi ykkur vel Þórólfur, Kári, Katrín og þið öll hin.

Verk ykkar skiptir máli.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Þórólfur: Vonandi sér Pfizer kosti Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Bjarni er einn þeirra sem settu reglurnar. Það er sjálfsögð skylda hans að fara þá eftir þeim sjálfur.

Þorsteinn Siglaugsson, 26.12.2020 kl. 16:52

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Mér fannst Kári algerlega auðmjúkur gagnvart Þórólfi og viðurkenna hans þátt.

Ég tel klukkutímana sem líða þangað til að maður heyrir einhver tíðindi. Mér finnst að ég hafi aldrei upplifað annað eins sem skiptir svona rosalegu máli. 

Halldór Jónsson, 26.12.2020 kl. 16:52

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Þorsetinn, það er engin að rífast við þig um það sem Bjarni gerði. Það var ekki lagi fyrir ráðherra að láta hánka sig svona. Enda er Bjarni aumur eftir því vitlaus er hann ekki né hrokafullur. Líklega búinn að fá einnn í tána og maður er þá kannski seinni til að hugsa allt í botn þó að Logi Már, Píratasnillingarnir og séníið frá Þingvöllum Helga Vala viti allt.

Halldór Jónsson, 26.12.2020 kl. 16:56

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaðir félagar, og gleðileg jól Þorsteinn.

Að sjálfsögðu, og hann braut,og honum varð á.

En þú ert ekki þannig maður Þorsteinn að þú sért fyrir nornafár, eiginlega held ég þveröfugt.

Halldór, held að ég sú búinn að senda þér jólakveðjur, en við þekkjum það að menn fá sér í tána, og verði síðan á.

Það smækkar hins vegar hina sem upphefja sig eins og þeir séu án mannlegra breyskleika, líkt og þú bendir réttilega á.

Varðandi það fyrra, þá held ég að það sé renna í góðan farveg, enda eins og þú aftur bendir réttilega á, þetta skiptir máli.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 26.12.2020 kl. 17:28

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Fólk í Sjálfstæðisflokknum hefur einnig gagnrýnt formann og varaformann flokksins fyrir partístand og brot á sóttvarnarreglum, eins og dæmin sanna, en að sjálfsögðu stendur stjórnarandstaðan fyrir þessu öllu saman. cool

"Á Glæsivöllum aldrei
með ýtum er fátt,
allt er kátt og dátt.
En bróðernið er flátt mjög og gamanið er grátt,
í góðsemi vegur þar hver annan."

24.12.2020 (í fyrradag):

Sóttvarnalæknir og Almannavarnir gagnrýna Bjarna Benediktsson

Þorsteinn Briem, 26.12.2020 kl. 17:48

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Steini hið seinna skáld sem kennt er við Stein.

Ef þú hefðir sleppt orðinu partístand, þá færir þú nærri lagi.

En sú gagnrýni sem þú ert að vísa í er gagnrýni hælbíta og fólks sem hefur lagt sig fram við að berjast fyrir heilögu rétti hins smæsta af öllu smáa, veiru og frelsi hennar til að strádrepa náungann.

Það að þetta fólk leggi á sig krók til að vega að Bjarna, segir eiginlega allt um það.

Hins vegar á sóttvarnarlæknir, sem og almannavarnir að gagnrýna brot á sóttvörnum, meira væri nú helvítið ef svo væri ekki.

Út frá því legg ég þessi orð mín; ".. hins vegar gæti umræðan um þessi mistök orðið til þess að þeir sem eru kærulausir, hugsi betur sinn gang, og þá eru þessi mistök til góðs."

Þar sem þú ert ekki bara nýorðinn stórskáld Steini líkt og nafni þinn fyrrum, heldur líka farinn að lesa texta, og leggja út frá þeim á skynsamlegan hátt, þá fattar þú alveg þessa útleggingu mína.

Þú vegur andstæðing þinn með rökum, ekki bulli og vitleysu.

Ekki nema náttúrulega að þú sért Pírati.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 26.12.2020 kl. 19:34

7 identicon

Mikið hefur legið á að markaðsetja bóluefni gegn COVID-19. Þess vegna hafa efnin ekki farið í gegnum reynsluferli eins og venja er með bóluefni. 

Komið hefur í ljós að annað af tveimur COVID-19 bóluefnum sem samþykkt voru til notkunar í Bandaríkjunum valda bólgu í andliti hjá fólki með fegrunarfyllingar í andliti. 

Þá gerist það oft að bólusetningunni fylgja verkir á stungustað, þreyta og höfuðverkur.

Fleir aukaverkanir gætu komið á daginn.

Guðmundur Örn Ragnarsson (IP-tala skráð) 26.12.2020 kl. 20:39

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar

þú ert drengilegri en ég átti von á. Þú ert sanngjarn og yfirvegaður í garð Bjarna sem er áreiðanlega með böggum Hildar yfir þessu öllu.

En að hugsa til gumpsins á Helgu Völu á Þingvöllum þegar danska konan Pia kom í heimsókn og bera það saman við kröfur hennar um afsögn Bjarna í dag færir manni heim sanninn um hvernig fólk eins og hún hugsar.Akkúrat eins og Þorgeir Hávarsson  sem gat ekki staðist að láta öxina falla þegar vesæll smalamaður lá vel við höggi. Sama eðlið og innrætið.Zero Tolerance.

En kampavín um kvöldið var í lagi og ekki sleppti hún því að sjálfsögðu. 

Halldór Jónsson, 27.12.2020 kl. 00:21

9 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Hér erum við krakkarnir í sandkassanum. Kristur sjálfur með fyrirgefninguna kominn í umræðuna. Þetta er líkt og í bíblíu kennslu í barnaskólanum í gamladaga. Sætta ósættið. Við erum allir komnir í kennslu hjá reynslunni. Þakk, Ómar Geirsson.  

Egilsstaðir, 27.12.2020   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 27.12.2020 kl. 01:28

10 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Jónas.

Gaman að heyra í þér.  Gleðileg jól til þín uppá Hérað.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 27.12.2020 kl. 12:29

11 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Halldór.

Einhver verður að halda haus í umræðunni, mér finnst umræða þagnarinnar líkt og margir af þínum mönnum ástunda, ekki vera að halda haus.

Hins vegar veit ég að það er víða grátið í kirkjugörðum landsins yfir þessari arfleið hinna rótæku jafnaðar og vinstrimanna.

Arfleið sem er fátt annað en hávaði án innihalds, hefur ekkert annað fram að færa en fylgispekt við sovétveldið hið nýrra, þar sem þar sem hið frjálsa flæði grefur undan velsæld hins vinnandi manns, eykur fátækt og misrétti.

Skömm þess er algjör, en það reynir samt alltaf líkt og núna um hátíðarnar, að finna lægri samnefnara en því hefur áður tekist.

Svei því.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 27.12.2020 kl. 12:35

12 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Guðmundur.

Það getur alveg eins framkallað horn á andlit og hala á afturenda, aðeins reynslan sker úr um aukaverkanir.

Það eina sem er vitað er að öll lyf hafa aukaverkanir, misalvarlegar þó.

Samt notum við þau því þau hafa lengt líf, bætt heilsu og almennt aukið lífsgæði manneskjunnar á 20. öldinni.

En að baki þeim árangri eru mörg hliðarsporin, bæði í tilraunum með lyf, sem og í ófyrirséðum aukaverkunum, stundum til góðs, stundum til ills.

Spurningin er bara hvernig við viljum fá líf okkar aftur, með því að stráfella eldra fólk og veikla hið yngra, með sífellda hættu á stökkbreytingu sem fellir líka ungt og hraust fólk, eða með bólusetningu með allri þeirri áhættu sem henni fylgir.

Það er áratuga reynsla á þróun bóluefna, ferlið er nokkuð öruggt.

Engin ástæða til að ætla að það verði eitthvað öðru vísi núna.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 27.12.2020 kl. 12:41

13 identicon

"Bugðast af listfengi loðið skott,

lyftist með tign er þú gengur brott,

aldrei fær mannkindin aftanverð

á við þig jafnast að sundurgerð".

Þessi vísa Jóns Helgasonar flaug mér í hug þegar ég horfði á eftir Helgu Völu á Þingvöllum,

sællar minningar.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 27.12.2020 kl. 14:37

14 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir vísuna Hörður.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 27.12.2020 kl. 19:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 995
  • Frá upphafi: 1321547

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 834
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband