Kjaftshögg ferðaþjónustunnar.

 

Er síðasta hópsmitið sem tengja má við Hótel Rangá.

 

Í raun kraftaverk að þetta skyldi ekki hafa gerst fyrr, en þar eiga smitvarnir þakkirnar, skimun við landamærin hefur stöðvað á þriðja tug slíkra mögulegra smita.

Samt rífa menn sig og kenna ríkisstjórninni um heimsfaraldur kórónuveirunnar og afleiðingar hans.

 

Sjúkleiki fréttamennskunnar er síðan staglið um afbókanir, enginn spyr hvaðan koma þessar afbókanir??

Svona í ljósi þess að Íslandi siglir hraðbyri upp rauða listann um fjölda smita, og slík lönd lenda sjálfkrafa í kröfu um sóttkví við heimkomu.

Af ferðamannalöndum voru aðeins Danir og Þjóðverjar eftir á okkar örugga lista, og Þýskaland er ekki lengur talið öruggt land, ekki frekar en Frakkland, Bretland eða Spánn.

 

Alls staðar frá Evrópu berast fréttir um fjölda smita.

Og alls staðar er sama skýring gefin, hið heimska fólk sem ferðast í miðjum heimsfaraldri, það smitar við heimkomuna.

Það getur aðeins þakkað mildi tíðarandans að það skuli ekki vera tjarga og fiðrað við heimkomuna, eða grýtt eða hent útí næstu á.

Því dauðans alvara var dauðans alvara fyrir ekki svo löngu.

 

Út á þessa heimskingja vill íslensk ferðaþjónusta gera, og skiptir hana engu hvaða afleiðingar það hefur á mannlíf innanlands.

Í stað þess að feisa alvöruna, þá eru málaliðar fengnir til að bulla og rugla um sóttvarnir, núna síðast er málgagn stórútgerðarinnar keypt til þess.

Eins og þrugl um sóttvarnir, að ekki sé minnst á illskuna sem að baki býr við að tala þær niður, henti málstað Samherja í nýlegum deilum fyrirtækisins við Ríkisútvarpið.

 

En hvaða framtíð er í þessari óendanlegri heimsku?

Hvenær segir almenningur í Evrópu stopp við innflutningi á smiti??

Og þar sem mannvonska frjálshyggjunnar hefur yfirhöndina í stjórnkerfinu, hvenær tekur almenningur málin í sínar eigin hendur??

 

Sagan kann ekki eitt þekkt dæmi frá tímum drepsóttar, að fíflin komist upp með að smita náungann viljandi.

Af hverju ætti undantekning sögunnar að bjarga íslenskri ferðaþjónustu??

 

Er ekki mál að skurðgreftrinum linni.

Er ekki tími til kominn að láta umræðuna snúast um alvöruna.

Alvöruna sem blasir við öllu því fólki sem mun missa vinnuna vegna heimsfaraldursins??

 

Af hverju er ríkisstjórnin ennþá með fríspil hvað það varðar??

Af hverju er ekki búið að tilkynna um framlengingu hlutabótarleiðarinnar.

Og af hverju hefur ríkisstjórnin í samvinnu við Seðlabankann lagt drög að endurfjármögnun þeirra fyrirtækja sem örlögin sviptu rekstrargrundvöll á svipstundu??

Hvaða rétt höfum við til að láta þau fara á hausinn á þessum forsendum, og svipta fólk bæði eignum og lífsviðurværi??

 

Látum Hótel Rangá vera vítið sem vakti okkur til vitundar.

Til vitundar um bjargráð mennskunnar og mannúðarinnar.

 

Þetta er aðeins verkefni sem er auðvelt að leysa.

En til þess þarf vilja.

Kveðja að austan.


mbl.is Smitrakning og raðgreining enn í gangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 316
  • Sl. sólarhring: 480
  • Sl. viku: 4764
  • Frá upphafi: 1329326

Annað

  • Innlit í dag: 260
  • Innlit sl. viku: 4187
  • Gestir í dag: 235
  • IP-tölur í dag: 232

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband