21.3.2020 | 09:58
Wuhan veitir heiminum von
Er haft eftir framkvæmdarstjóra WHO.
Orð að sönnu og munum að kínversk stjórnvöld gerðu ekkert annað en það sem er viðurkennt í fræðunum, þau skáru á smitleiðir milli fólks.
Og það er þetta sem er verið að gera víðsvegar í heiminum, núna síðast í stórum borgum Bandaríkjanna.
Eina spurningin snýst um vilja stjórnvalda á hverjum stað.
Hvort þau ætli að drepa veiruna með öllum tiltækum ráðum, eða hvort þau leyfi veirunni að drepa fólk.
Þetta snýst ekkert um hvers eðli stjórnarfar viðkomandi landa, aðeins þetta grunnviðhorf.
Að gefast ekki upp fyrir veirunni fyrr en hún er sigruðu.
Hjarðhegðun heimskunnar er meðal annars fóðruð á Íslandi með því að þetta sé tiltölulega meinlaus flensa fyrir flesta, nema fólkið sem það telur missa sig, fólk komið á aldur og fólk með undirliggjandi sjúkdóma.
Það hefði gott af því að lesa þessa lýsingu manns á besta aldri, hreint út sagt, hann var hætt kominn;
"Ég var mest með fjörutíu stiga hita. Ég var með þessi týpísku flensueinkenni; beinverki, höfuðverk og mikinn hósta. Í fjórar nætur svitnaði ég út úr rúminu. Við þurftum að skipta á rúminu; það var allt rennandi blautt. Kærastan mín fékk aðeins vægari hita, en hún er með viðkvæmari lungu og hefur verið með ofboðslega slæma vöðvaverki. Hún hljóðar undan verkjum. Hún hefur verið virkilega kvalin, segir Jónas, sem segir að kærastan sé enn með hita af og til. ".
Munum bara, það eru ekki allir svo heppnir að veikjast bara illa.
Sumir koma ekki til baka.
Þetta er ekki flensa segir ítalskur læknir í miðri eldlínunni.
Þetta er drepsótt.
Þetta er drepsótt.
Feisum það.
Kveðja að austan.
Fjölgar í hópi þeirra sem snúa smitaðir heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.11.): 1
- Sl. sólarhring: 758
- Sl. viku: 4381
- Frá upphafi: 1402269
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3812
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.