4.9.2019 | 12:32
Orkuauðlind þjóðarinnar var afhent fjárfestum.
Sem þýðir að einn daginn mun launafólk þurfa að fara útí skóg til að ná í eldivið til að kynda hús sín þegar norðanáttin bítur.
Að ekki sé minnst á arðinn og gróðann sem fer frá almenningi í vasa fjárfestana.
Allan þann tíma heyrðist ekki múkk í Sólveigu Önnu Jónsdóttir.
En í dag agnúast hún við niðurstöðu lýðræðislegra kosninga hjá stærsta og voldugasta bandamanni þjóðarinnar.
Ef eitthvað afhjúpar fólk, og raunverulegan tilgang þess.
Þá er það augnablikið sem það gáir ekki að sér, og sýnir sitt rétta andlit.
Frasar um kjör láglaunafólks afla fylgis.
En það þarf alvöru að baki til að það fylgi sé í raun hjá fólki sem vill berjast fyrir bættum kjörum og betri heim.
Og raunveruleikinn afhjúpar frasana.
Sólveig Anna Jónsdóttir afhjúpaði sig í dag.
Kveðja að austan.
Sýni lokunum engan skilning | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:52 | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 599
- Sl. sólarhring: 639
- Sl. viku: 6330
- Frá upphafi: 1399498
Annað
- Innlit í dag: 513
- Innlit sl. viku: 5368
- Gestir í dag: 469
- IP-tölur í dag: 463
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Tek undir hvert orð í þessum pistli. Hræsnin uppmáluð hjá þessum verkalýðsforkólfi. Afhjúpunin alger.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 4.9.2019 kl. 13:41
Þú átt hrós skilið fyrir að segja það sem ég læt mér nægja að hugsa.
"Orkuauðlind þjóðarinnar var afhent fjárfestum [s]em þýðir að einn daginn mun launafólk fara útí skóg til að ná í eldivið til að kynda hús sín[. Þá] heyrðist ekki múkk í Sólveigu Önnu Jónsdóttur."
Esja frá Kjalarnesi (IP-tala skráð) 4.9.2019 kl. 14:31
Sæll Ómar, þú hittir naglann á höfuðið að venju.
Það er ekki nóg að losna við Gylfa og fá þessi í stað marghöfða þurs, jafnvel þó það hafi samið um sautjánþúsundkall, sem þursið sjálft og ríkið skipta á milli sín, og jú skattlækkanir "einhverntíma" seinna.
Tek undir hvert orð, þó þessi séu slagkrafturinn. "Ef eitthvað afhjúpar fólk, og raunverulegan tilgang þess. Þá er það augnablikið sem það gáir ekki að sér, og sýnir sitt rétta andlit."
Með kveðju að ofan.
Magnús Sigurðsson, 4.9.2019 kl. 15:56
Blessaðir félagar.
Kosturinn þó við hina sögulegu landsölu síðastliðinn mánudag var sá að víglínur almennings gagnvar auðnum og græðgivæðingunni hafa skýrst.
Því margir hafa afhjúpast.
Þess sjást merki í bloggpistlum mínum, vettlingatökin voru skilin eftir heima.
Efinn snýr að rebellunum, ég held reyndar að hluti af þeim sé okkar megin, en það er þeirra að skera úr um.
Þjóna þeir flokk eða þjóð??
Um brandarann á Bessastöðum þarf hins vegar ekki að efast.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 4.9.2019 kl. 17:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.