7.6.2019 | 15:17
Spilling staðfest.
En Davíð greiddi hátt gjald.
Trúverðugleikann.
Eiðsvarinn að vernda stjórnarskrána, gaf hann lagaálit gegn mentorninum sem aldrei hefur þegið aur fyrir lagaálit sín.
Davíð Þór Björgvinsson er lögmaðurinn sem formaður utanríkismálanefndar vitnar í þegar hún ræðst gegn heiðarlegu fólki sem var ekki keypt til að segja annað en satt um það brot á stjórnarskránni sem samþykkt regluverks Evrópusambandsins um orkupakka 3 er.
Íslenskur réttur er aldrei afsalaður til erlends valds.
Og íslenskir dómarar eru eiðsvarnir til að verja þann rétt.
En gegn góðri borgun má segja ýmislegt.
Jafnvel vanvirða eiða og þau fræði sem menn eru menntaðir í.
Í því ljósi eru skammir vægt gjald.
Ég ætla samt að segja;
Davíð, skammastu þín.
En ef þetta er of persónulegt.
Skammið þá Hæstarétt.
Kveðja að austan.
Davíð þarf ekki að víkja en fær skammir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 37
- Sl. sólarhring: 627
- Sl. viku: 5621
- Frá upphafi: 1399560
Annað
- Innlit í dag: 30
- Innlit sl. viku: 4794
- Gestir í dag: 29
- IP-tölur í dag: 29
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.