Hvenær gengur djúpríkið of langt??

 

Það eru þekkt sannindi að glæpir borgi sig, það er ef þeir eru skipulagðir, og glæpaforingjar hafa vit á deila hluta hagnaðarins með meintum löglegum starfsgreinum eins og lögfræðingum, stétt sem skipar dómara, og stjórnmálamönnum, stétt sem setur leikreglur á þann hátt að glæpamenn eru því sem næst ósnertanlegir.

 

Mín kynslóð ólst ekki bara upp við Star Wars myndirnar, og af mörgum öðrum góðum myndum þá er myndirnar um Guðföðurinn minnisstæðar.  Og á þeim árum hélt maður pínu pons með mafíunni, það er þeim hluta hennar sem Al Pacino túlkaði á svo frábæran hátt. 

Þá vissi maður ekki að þær myndir voru samtímaspegill á réttarkerfi sem var undirlagt hagsmunatengslum og fjármögnun skipulagðara glæpasamtaka (mafían) og ítök þeirra náðu langt inní stjórnmálin.  Eitthvað sem Bandaríkjamenn ráku sig á eftir slysið á Three mile Island sem aðeins gæfan sá til þess að varð ekki þeirra Chernobyl.

Eftir þann atburð urðu múturnar ekki eins augljósar, eftir þann atburð fór fjármagnið í að tryggja leikreglur, og hagsmunatengsl sem gerði forkólfa mafíunnar því sem næst ósnertanlega. 

 

Bandarísk fangelsi eru yfirfull af smáglæpamönnum, en það telst til tíðanda ef lykilmenn mafíunnar, mennirnir sem bera ábyrgð á öllu, endi á bak við lás og slá.  Yfirleitt er það vegna minniháttar brota í stærra samhenginu, og eða þegar handlangar, sem eru ekki með lögfræðipróf, heldur gráðu í manndrápum, vitna til að fá léttari dóma. 

Síðan eru það skattsvikin, en skattaskil eru forsendur alríkisins, og þar gildir öfug sönnunarbyrði, ef þú getur ekki sannað heiðarlega tekjuöflun, það er peningaþvottavélin ekki nógu öflug, þá geta jafnvel verndaðir glæpamenn hlotið dóm fyrir skattaundanskot.  Aðallega vegna þess að málaliðar þeirra í stétt stjórnmála og lögfræðinga hafa ekki ennþá náð því í gegn að sérstakur reitur sé á skattaskýrslu sem heitir tekjur af ólöglegri starfsemi eins og sölu eiturlyfja, mannsali, vændi, spilavítum eða annað sem hið frjálsa flæði hefur ekki ennþá gert löglegt.

En í kjarna er glæparíkið ósnertanlegt.

 

Þetta var þá, og þá átti Evrópa ekki sína mafíu, fyrir utan þá sem þreifst á Miðjarðahafsströnd Frakklands og Ítalíu.

Svo hrundi múrinn, og frjálst flæði glæpahyski var ein af grunnstoðum Evrópusamvinnuannarinnar.

Alltí einu varð jaðaratvinnugrein að grunnatvinnugrein, eiturlyfjasala, vændi, mannsal, hnupl og rán, smygl eða allskonar spilerí á landbúnaðarstyrkjum, eða hvað það er sem mafíur (skipulögð glæpastarfsemi) leggja fyrir sig, og peningaflæðið til að tryggja starfsfrið sem og hagstætt lagaumhverfi margfaldaðist.

 

Menn geta spurt sig hvað kostar það að hafa réttarkerfi í löndum eins og Danmörku þar sem glæpasamtök fyrir opnum tjöldum selja eiturlyf og enginn kemst í innsta hring nema að hafa morð í ferilskránni?

Hvað margir dómarar, hvað margir lögfræðingar, hvað margir stjórnmálamenn?

Eða þann mesta viðbjóð sem hefur þrifist frá falli múrsins sem er flutningur á fátæku fólki úr austri til að þjóna lægstu hvötum í vestri, kennt við mannsal.

Hvað kostar að vera ósnertanlegur??

 

Kannski stór spurt í smáu landi, því yfirtaka glæpamanna á réttarríki Evrópu er svo sem fyrir utan áhrifasvæðis Moggabloggsins.

Nærtækara væri að spyrja hvað einn sýknudómur yfir glæpaforingja kostar, og hvaða fjárflæði er á milli skipulagðar glæpastarfsemi á Íslandi og þess að handrukkunin sem er forsenda aga á eiturlyfjamarkaðnum, sé dæmd skaðabætur þegar lögreglan vogar sér að skipta sér að henni.

Eða hvað er eitt morð á milli vina, þegar vinirnir eru annars vegar, ekki leigumorðingjar, heldur stétt lögfræðinga og dómara, og hins vegar þeir sem selja æsku landsins eitur, og hafa af því gríðarlegar tekjur??

 

Djúpríkið er kennt við hagsmunatengsl sem sjást ekki.

Við upplifum sýnilega hluta þess þegar börn hafa verið fjármögnuð í þá stöðu að geta selt orkuauðlindir þjóðarinnar í vasa einkavina sem stundum voru kallaðir útrásarvíkingar, eða hrægammar, en í dag hafa þeir fjármagnað hið virðulega heiti, fjárfestar.

Ef klippurnar hans Guðmundar Kjærnested sem reyndust svo vel gegn Bretum í þorskastríðunum væru ennþá til, og þær mundu duga til að klippa á fjárstreymið frá mönnum með dollaraglampa í stað augnsteina til stjórnmálamanna, þá væri málþófið vegna orkupakkans á hinn veginn, Viðreisn með stuðning Samfylkingarinnar legði dag við nótt að selja þjóð og orku, restin af þingheim stæði á móti. 

Vegna þess að kvislinga þarf ekki að fjármagna, þeir svíkja af hugsjón, en valkvæða heimsku þarf hins vegar að fjármagna.

 

Djúpríkið skattleggur líka falda ríkið kennt við glæpi.

Peningaþvotturinn, hagstæð löggjöf, því sem næst ósnertanleiki gagnvart réttarkerfinu, allt er liðið, eða gert mögulegt, ef hluti gróðans fer í vasa þeirra sem í raun völdin hafa.

Það er elítunnar, hið vanheilaga bandalag stjórnmála, embættis og fjármála.

Það er aðeins þegar glæparíkið heldur að það sé ríki í ríkinu, og þurfi ekki að greiða skattinn, sem hið opinbera réttarkerfi snýst gegn þeim, og þá til að tukta til hlýðni.

Annars eru þetta bara smáglæpamenn, burðardýr, og einn og einn sem gengur of langt í mannsali sínu, sem réttarkerfið matar þjóðina á.  Svona til þess að fólk hafi það á tilfinningunni að það geri ekkert annað en að ofsækja hinn venjulega borgara sem fer út af strikinu.

 

En þó glæpamenn undir vernd djúpríkisins séu því sem næst ósnertanlegir, þá gildir ekki það sama um djúpríkið.

Hinn sýnilegi hluti þess sækir umboð sitt til almennings, þökk sé frönsku stjórnarbyltingunni og afleiðingum hennar.

Og þó það umboð sé yfirleitt auðsótt, enda auðvelt að gera út mismunandi flokka til að sækja atkvæðin, þá koma þau augnablik að almenningi ofbýður.

Nærtækt dæmi er frá Belgíu þar sem einn angi mannsalsins komst uppá yfirborðið þegar níðingur svelti til dauðs börn sem hann hafði rænt, og selt.  Í smá tíma á eftir urðu hinir ósnertanlegu snertanlegir á eftir, sérstaklega vegna þess að almenningur krafðist þess að allavega barnaníðingar nytu ekki verndar þó glæparíkið borgaði fyrir þá vernd. 

 

Við Íslendingar erum seinþreyttir til vandræða.

Þegar erlendir fjárkúgarar reyndu að skuldaþrælka þjóðina, þá risum við vissulega upp, en við sögðum ekki einu sinni suss við djúpríkið eða hyskið sem reyndi að selja okkur í þrældóm.

Enda er þetta næstum því sama lið sem ógnar okkur í dag.

Því sem næst sömu fjölmiðlarnir, enda sama fjármagnið að baki, sömu stjórnmálamennirnir, sömu hagsmunatengslin út í atvinnulífið.

Fólkið sem telur sig hafa allt á þurru, og gefur skít og djöful í hlutskipti náungans.

Og í takt gengur sá hluti almennings sem treystir sér ekki til að lifa af daginn nema honum sé sagt að ganga gæsagang flokkshollustunnar.

 

En eru þessi vandræði of mikil fyrir okkur til að hundsa??

Margt bendir til þess enda þjóðin von því að geta kynnt hús sín án þess að fara á hausinn.

Annars væri henni eiginlega alveg sama held ég.

 

Síðan er það eldra fólk sem ennþá man fundinn á Þingvöllum 1944, og man neistann sem kviknaði í augum ömmum þess og öfum, þegar sjálfstæði þjóðarinnar kom til tals.

Gamalt og grátt, en ekki til sölu. 

Sem og að heimska æskunnar vill þurrkast út með aldrinum.

 

En hvort það nái að sigra Djúpríkið í annað sinn er aðeins tímans að vita.

Hins vegar er þörf á að taka til í þessu ríki, og afhjúpa fjártengslin sem flæða um þéttar en nokkurt æðakerfi mannslíkamans.

Hvort sem það er ásælnin í orkuna, eða friðhelgi eiturlyfjaviðskiptanna.

Salan á æskunni, eða salan á orkuauðlindinni.

 

Þjóð sem hefur sál, og viðurkennir sið, á ekki að lúta þeim sem hvorki þekkja sið eða sóma.

Þeim sem með gjörðum sínum og athöfnum reyna að afsanna að maðurinn hafi sál, það er að það sé algilt.

 

Hún segir NEI við dómskerfi sem dæmir manndrápurum skaðabætur vegna þess að lögreglan reyndi að koma lögum yfir þá. 

Og hún spyr spurninga hvað veldur.

 

Hún segir líka Nei við þing sem selur þegar það á að gæta.

Hún segir Nei við öflin sem öllu ráða án þess að hafa verið til þess kosinn.

 

Hún segir Nei við Djúpríkið.

Kveðja að austan.


mbl.is Jón Trausti fær 1,8 milljónir í bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Ómar!!! Þú ert snillingur, þessi pistill þyrfti að koma fyrir almannasjónir.

Eg ætla að ramma þetta inn.

Það sem er ömurlegast í þessu er að forsætisráðherrann svokallaður er  ekki sjáanlegur.

Ekki þar fyrir að það sé neitt gaman að sjá þessi gerpi, því að ef þeir láta sjá sig kemur ekkert frá þeim af viti.

Kv af Suðurlandi

Óskar Kristinsson, 24.5.2019 kl. 20:13

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Óskar.

Ég var dálítið djúpur í þessum pistli og reiknaði ekki með neinum viðbrögðum, enda kannski ekki augljós flötur milli þessarar fréttar um gjaldþrot réttarríkisins og þess máls sem er efst á baugi í dag.

Hvað þá að þessi flötur sé djúpríkið.

En mín er ánægjan ef einhver hefur haft sömu ánægju að lesa eins og ég að semja, en markhópurinn er lesendur þessa bloggs, sem og alheimurinn sem tekur endalaust við hugsunum sem hann lætur gróa og gerjast og springa út í einhverri mynd einhvers staðar á einhverjum tíma ef þannig æxlast. 

Markhópurinn er bæði það smæsta sem og hið stærsta, en almenningur er ekki þar á milli, þessi pistill er ekki hugsaður til deilingar, umhugsunar eða neitt, mig langaði bara að semja hann.

En svo við víkjum okkur að alvörunni þá er fjarvera Katrínar meira áberandi eftir að Bjarni fór að bulla á þingi um fyrirvarana.

Líklegast er Katrín það skynsöm að vita að bullið loðir lengur við stjórnmálamenn en þau mál sem það studdi á hverjum tíma.

Hennar eina sannfæring er að þetta er gjaldið fyrir stólinn, og það er gjald sem hún er tilbúin að greiða.

Eina raunverulega sem á að spyrja hana að er hvar eru mörkin, hvenær verður þessi sannfæring hennar gjaldþrota?

Því ég held að hún eigi erfitt með að svara þeirri spurningu, að að séu kannski engin mörk.

En það er ekki mitt að svara því eða geta mér þess til.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 24.5.2019 kl. 21:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 998
  • Frá upphafi: 1321550

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 837
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband