2.3.2018 | 13:04
Húmor Samfylkingarinnar á sér engin takmörk.
Og þá er ég ekki að vitna í Loga og þegar hann gerði sig að algjöru fífli með kröfunni að fjármálaráðherra notaði nóttina og helgar til að lesa farmskrár íslenskra flutningsfyrirtækja.
Látum okkur duga að vitna í Gylfa forseta, og styrk hans og kraft að virkja samfylkingarfólk innan verklýðshreyfingarinnar til að styðja stöðugleika ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttir, sem felst aðallega í að topparnir fái sjálftöku, og að vogunarsjóðirnir fái að rýja hagkerfið um það sem eftir er að rýja.
Sem staðfestir það, að ef VG hefði fengið minna fylgi, og Samfylkingin meira fylgi, að þá hefði ekkert breyst, nema nafnið á forsætisráðherra, og það tekur lengri tíma að stafsetja Samfylkinguna en VG.
Gylfi hafði verk að vinna.
Og vann það vel.
Húmorinn er þegar hans fólk kallar á upprætingu siðrofs, virðingarleysi og misskiptinu sem viðgengst hefur í samfélaginu allt frá því að Mammonsdýrkendur lögðu kristni og borgarlegan kapítalisma að velli.
Og Gylfa fólk ályktar herhvöt sem aðeins er hugsuð til að vekja aðhlátur, og jú reyndar til að gera Gylfa trúverðugri í eyrum þeirra sem íslensku ekki skilja.
"Misskipting og sjálftaka sérstakra hópa viðgangist á meðan almennt launafólk hafi sætt grímulausum skerðingum meðal annars á húsnæðis, vaxtabótum og atvinnuleysisbótum. Þá hafi persónuafsláttur gjörsamlega tapað verðgildi sínu og ávinningur af áherslum verkalýðshreyfingarinnar á lægstu launin hafi stjórnvöld tekið til baka með skerðingum sem ekki sjái fyrir endann á.".
En við óvart segjum ekki upp kjarasamningum.
Það gæti nefnilega komið illa við þann stöðugleika sem sjálftakan og misskiptingin byggist á.
Það er ekki logið uppá Samfylkinguna.
Ekki eftir að hún nýtti sér veikindi Ingibjargar Sólrúnar haustið 2008 til að selja sálu sína.
Vonum hennar vegna að hún hafi fengi gott verð.
Fyrir siðrof sitt og sálarsölu.
Kveðja að austan.
Kalla eftir upprætingu á siðrofi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 694
- Sl. sólarhring: 760
- Sl. viku: 6278
- Frá upphafi: 1400217
Annað
- Innlit í dag: 633
- Innlit sl. viku: 5397
- Gestir í dag: 601
- IP-tölur í dag: 587
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.