7.2.2018 | 20:00
Mun Óli Björn standa við orð sín.
Og fella ríkisstjórnina ef hún stendur ekki við fyrirheit sín.
"En það gerði ég og greiddi því atkvæði og studdi í því trausti að við værum að fara inn í tímabil þar sem við myndum ná fram lækkun á neðra þrepi tekjuskattsins, hugsanlega umbylta tekjuskattskerfinu, ég tala nú ekki um að lækka hressilega tryggingagjaldið. Það eru loforð sem voru gefin og það eru loforð sem ég tek hátíðlega og voru forsenda þess að ég tók þátt í að greiða atkvæði með hækkun skatta fyrir áramót."
Það er kominn tími til að hugsa skattkerfið uppá nýtt.
Það er líka tími til kominn að gera þá útlæga sem leggja til hagræðingu, í hverri mynd sem hún nefnist.
Sífelld hagræðing er bein ávísun á sóun fjármuna og óskilvirkt kerfi.
Samanber hin einföldu sannindi að þú bregst ekki við uppskerubrest með því að sá minna, hætta við að kaupa áburð, éta útsæðið. Þá ertu komin í vítahring hungurs og hungursneyðar.
Það er hægt að skattleggja skattstofn til andskotans.
Og það er hægt að hagræða til andskotans.
Í dag eyðum við án þess að fjárfesta til framtíðar.
Í dag skattleggjum við eins og ennþá sé fjármálakreppan haustið 2008.
Þessu þarf að breyta.
Kveðja að austan.
Það er áhyggjuefni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 546
- Sl. sólarhring: 720
- Sl. viku: 6130
- Frá upphafi: 1400069
Annað
- Innlit í dag: 497
- Innlit sl. viku: 5261
- Gestir í dag: 475
- IP-tölur í dag: 468
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Ómar - sem og aðrir gestir, þínir !
Til: að svara þessarri spurningu þinni, sem felst í fyrirsögninni.
NEI.
Óli Björn Kárason - mun ekki koma almenningi né fyrirtækjunum í landinu til liðs, á nokkra vegu.
Óli Björn: er einn þeirra 63ja á þinginu/ sem ÞORA ekki, eða vilja síður koma mér til liðs, við atlöguna að Lífeyrissjóða Mafíunni í landinu, t.d.
Í Desember 2016 - sendi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda mér loka- aðvörun vegna ''meintra gjaldfallinna iðgjalda'' minna, fyrir árið 2009.
Til allrar ólukku: hafði ég bjálfast til, að greiða þessu þjófa- bæli (Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda) um 153.700.- krónur, á árunum 2004 - 2008, eða síðan ég hóf sjálfstæða atvinnustarfsemi, snemmsumars 2004.
Síðan - bættu þessi fífl (Sigurbjörn Sigurbjörnsson, svo kallaður forstjóri Söfnunarsjóðsins) / og lagsmaður hans Bjarni Þór Óskarsson hrl.frá Lögheimtunni um betur, í Janúar 2017, og sendu mér greiðzlu áskorun, upp á tæpar 180.000.- krónur, til greiðzlu ''skuldarinnar''.
Ekki að orðlengja Ómar minn: ég fór með málið til Ríkissaksóknara og Umboðamanns alþingis m.a., og ekki að orðlengja frekar, 3. Febrúar 2017 semdi Bjarni Þór Óskarsson mér Tölvupóst, þar sem hann:: fyrir hönd þessarra ræfla afsagði meinta skuld mína, við Söfnunarsjóð / hvað þá Lögheimtuna.
''Skuld'' mín varð ''óvænt'' krónur 0 (núll), 3. Febrúar 2017 !
Þingmenn: sem sátu síðasta þing (fram til Októberloka 2017), sem og þau núsitjandi, hafa fulla vitneskju um þetta mál, sem ég er að fara með í frekara ferli, en einungis Ásmundur Friðriksson (með algjörlega hangandi hendi) auk nokkurra Pírata / og enn minni áhuga Þórunnar Egilsdóttur Framsóknarkonu, lásu skrif mín þessum málum viðvíkjandi, auk þess:: sem lungi íslenzka embættismanna kerfisins, færizt undan að taka á Lífeyrissjóða Orma gryfjunum.
Hvað - skyldi valda því, síðuhafi góður ?
Eva Pandóra Baldursdóttir: fyrrum þingkona Pírata á þó þakkir skyldar, fyrir að vilja kafa ofan í Lífeyrissjóða viðbjóðinn, en náði ekki endurkjöri í Október s.l., þó síðar kæmi mögulega að málum, ekki efast ég um fölskvalausan vilja hennar til verka, eftir samtöl mín við hana í fyrra, miðað við hitt þingliðið, að minnsta kosti, þó Björn Leví hafi hug á, þá er eitthvert undirliggjandi hik á honum:: enn sem komið er.
Vinnubrögð þessa liðs: eru í samræmi við þann drulludamm, sem samfélag okkar er að orðið.
Mánaðarleg ''iðgjöld'' almennra launþega, til hinna forkastanlegu Lífeyrissjóða - HVERFA jú, að 86 - 88% hið minnsta, niður í Svarthol íslenzku Mafíunnar en, ............... þorri landsmanna hefur ekki þann Mongóla blóðdropa til að bera, í sínum æðum, gagnstætt mér / en gumar því meir, að skyldleikanum við Íra og Skota, eitthvert það þýlindasta fólk, sem byggt hefur Bretlandseyjar, eins og kunnugt er.
Óli Björn Kárason hvað - Ómar minn ???
Með beztu kveðjum: sem endranær, af Suðurlandi /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.2.2018 kl. 22:19
Já Óskar Helgi, ekki vantar í þig hið mongólska stríðsblóð, það verð ég nú að segja.
Ég held svo sem ekkert um Óla Björn, hann er þó að verða einn allra síðasti þingmaðurinn til að ræða hugmyndir og hugmyndafræði við kjósendur sína, sem og aðra landsmenn.
En ég er alveg viss um að það renni ekki í honum deigur dropi af blóði stríðsmanna sléttunnar, og ekki hef ég séð örla á ættarfylgju Egils Skallagrímssonar. En hann stóð með okkur í ICEsave baráttunni, og fyrir það á hann alltaf þakkir skyldar.
Látum reyna á kallinn Óskar, það veitir ekki að því að menn hugsi hlutina uppá nýtt.
Og umræða er þar til alls fyrst.
En eitt veit ég þó, hann mun ekki neina ríkisstjórn sprengja.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 7.2.2018 kl. 23:11
Sæll á ný: Ómar !
Mér sýnast ályktanir þínar, fara nokkuð nærri raunveruleikanum.
Þér að segja Ómar - gæti ég alveg séð fyrir mér Austur- Asíska hjálp, til þess að bylta þessum óþverra öllum, sem við nú búum við.
Gæti skraut fígúran á Bessastöðum (Guðni Th. Jóhannesson): ekki orðið nothæfur eldgleypir eða annarrs konar sirkuss fyrirbrigði / austan hafs eða vestan þess, að lokinni þeirri sorp- hreinsuninni, sem hér á landi er hvað brýnust á næstunni, t.d. ?
Svo - aðeins skyldi nefnt.
Ekki: var Guðni Th. svo duglegur alla vegana, að svara þeim Tölvupóstum, sem ég beindi að honum, viðvíkjandi Lífeyrissjóðunum, í fyrra.
Ekki - 1 einasta þeirra.
Með sömu kveðjum - sem seinustu /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.2.2018 kl. 23:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.