Beðið eftir Bjarna.

 

Er eins og Beðið eftir Godot, leikrit.

Sett á svið í þeim eina tilgangi að loka og læsa endanlega gildrunni sem Sigmundur var veiddur í.

 

Þátttakendur eru stjórnmálamenn og fjölmiðlamenn, sem lúta boðvaldi þess fjármagns sem hefur allan hag af að Bjarni verður ekki snertur á meðan hann afhendir svokölluðum kröfuhöfum gömlu bankanna allar eignir þrotabúanna án þess að þjóðin fái raunveruleg verðmæti uppí þann skaða sem fjárglæfraeigendur gömlu bankanna ollu þjóðinni með athæfi sínu.

"Hvað gerir Bjarni?" er spurt í blöðunum í vasa auðsins, "hvað gerir Bjarni" er spurt í útvarpinu og sjónvarpinu.

Eins og Bjarni hafi eitthvað val, sjálfur tekinn í bólinu í skattaskjóli.

Eins og það hvarfli ekki að neinum að þetta sé aðeins toppurinn á ísjakanum, þó frágangur sé líklegast meir í þá ætt sem vinir Pútíns notuðu til að fela hans hlut.

 

Í Gangseterlandi eru svona leikrit eðlileg.

Hvaða bófaforingi er voldugastur, hver vinnur gengjastríðið.

Rænum svo og ruplum, sukkum og spillum (í merkingunni að ástunda spillingu).

 

En það er ekkert eðlilegt við þetta leikrit á Íslandi í dag.

Tími gangsteranna er liðinn.

 

Þjóðin hefur fengið nóg.

Og héðan af hafa stjórnmálamenn og hinir keyptu fjölmiðlamenn, aðeins eitt val.

Að vera með þjóðinni.

 

Annað mun hún ekki líða.

Og óþarfi að feta slóð Sigmundar til að komast að því.

Kveðja að austan.


mbl.is Bjarni og Ólafur komnir heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er hárrétt athugð Ómar.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 5.4.2016 kl. 10:47

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir það Pétur.

Vonandi verður ekki kattaþvottur í þetta sinn.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 5.4.2016 kl. 14:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 93
  • Sl. viku: 4176
  • Frá upphafi: 1338875

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 3743
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband