21.3.2015 | 10:08
Tveir alvöru frambjóðendur?
Ef Sigríður Inga hefði verið alvöru frambjóðandi þá hefði hún ekki ráðist gegn Árna Pál með þeim hætti sem hún gerði.
Ef hún hefði verið alvöru frambjóðandi þá hefði notað önnur rök en þau sem hún notaði í útvarpsviðtali að hún hefði ákveðið að grípa tækifærið þegar það gæfist. Svona tala egóistar sem í raun velja stjórnmálaflokk eftir framamöguleikum en ekki lífsskoðunum.
Ef hún hefði verið alvöru frambjóðandi þá hefði hún ekki stamað út sér þegar hún var spurð um hvort einhver málefnaágreiningur væri til staðar, að hún vildi skerpa áherslur í velferðarmálum. Hún hafði ekki hugsað svarið því hugur hennar var allur við stóra tækifærið sem henni var lofað. Ef hún hefði verið búin að hugsa svarið, þá hefði hún ekki fallið í þá gildru að svara einhverju sem vel undirbúinn fréttamaður hefði getað afhjúpað með næstu spurningu; "Hvar sjást merki un hinn meinta málefnaágreining?, hvar sjást merki um að þú hafir barist fyrir hinum meintu skerpingum, og mætt andstöðu núverandi formanns?".
Málið er að það var bara einn alvöru frambjóðandi, mótframboðið var á vegum grímulausra hagsmunaafla, sem vildu refsa Árna Páli fyrir að vera ekki nógu leiðitamur.
Og í framboð var fengin dúkkulísa, sem átti að brosa og vera sæt.
Eftir stendur klofinn flokkur, eyðilagður formaður.
Og svipan sem allir óttast.
Kveðja að austan.
Kaus ekki sjálfa sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 4
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 450
- Frá upphafi: 1412812
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 389
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.