"Fá mál væru á dagskránni vegna skuldamála heimilanna"

 

Og öll neðarlega í umræðunni.

Verðbólgan æðir að stað, sjálfvirk vísitala hækkar lánin margfalt umfram verðmætasköpun, heimilin brenna, og þingheimur hefur ekki tíma í að ræða málin.

Hvað þá að gera eitthvað til að stöðva drápstækið sem engu eirir.

Hvers á þjóðin að gjalda, engar syndir eru það miklar að þessi skrípasamkunda sé réttlát refsing.

 

Upphróp, kosningakeilur, hávaði.

Þetta er ekki þjóðinni boðlegt.

Þetta er sárgrætilegra en nokkur grátur.

 

Þess vegna er þjóðin boðuð á fund næstkomandi miðvikudag.

Mætum og segjum; Hingað og ekki lengra.

 

Við höfum fengið nóg.

Kveðja að austan.


mbl.is Deilt um ábyrgðina á þingstörfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvar verður þessi fundur Ómar og á hver vegum er hann?

Ljóðskáld lífsins (IP-tala skráð) 18.3.2013 kl. 13:29

2 Smámynd: Óskar

skuldavandi heimilanna blablabla... afhverju á ríkissjóður að borga niður skuldin sem heimilin komu sér sjálfviljug og meðvitað í ?  Afhverju eiga mínir skattar að fara í að aðstoða þá sem tóku kolvitlausar ákvarðanir í fjármálum ?   Ef menn vilja afnema verðtrygginguna og fá lán á eðlilegum kjörum í framtíðinni þá er aðeins ein leið til þess, ganga í ESB og taka upp Evru.

Óskar, 18.3.2013 kl. 14:02

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Ljóðskáld.

Í þessum tengli má lesa allt um þennan fund og á vegum hvers hann er.

 
Reikna með að hann verði auglýstur, ég er svona bara að minna á að ekki eru allir búnir að gefast upp fyrir lýðskruminu sem þrælahaldarnir halda að fólki.
 
Það er von á meðan einhver stendur í lappirnar.
 
Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 18.3.2013 kl. 14:09

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Óskar.

Ég var farinn að halda að vogunarsjóðirnir væru hættir að fóðra ykkur Snatana, hérna rekur hvern snilldarpistilinn á fætur öðrum, og þið nennið ekki  einu sinni að mæta og blabla.  

Það lá við að ég væri farinn að sakna þín.

Sakna gömul góðu dagana þegar menn höfðu skoðanir og rifust um ICEsave og AGS.

En rás tímans verður ekki stöðvuð Óskar, stökktu upp á lestina og sameinastu fjölda lífsins, við endum með því að leggja Wall Street, verðtryggingin er aðeins upphitun.

Og evran, ha ha ha ha.  

Þú hlýtur að kunna annan betri.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 18.3.2013 kl. 14:13

5 identicon

Þú hefur oft talað um konur sem hafi líf að verja.   Heldurðu að liljur vallarins beri gæfu til að mæta?

Ljóðskáld lífsins (IP-tala skráð) 18.3.2013 kl. 14:32

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Ja, ef ég stæði fyrir þessum viðburði, þá hefði ég eytt löngum tíma í að ræða við þær um samhljóman tilverunnar.

Meginskýring tregðunnar er tregðan sjálf.

Ekki skortur á hinum raunverulega samhljóman.

En ég bý í afdölum og veit ekkert um hvað gengur á þarna fyrir sunnan.

Ég bendi aðeins á, bendi aðeins á.

Einhver verður nota puttann.

Alveg eins og einhver verður að yrkja lífinu óð kæra ljóðskáld.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 18.3.2013 kl. 14:46

7 identicon

Það er til apparat sem heitir sími Ómar, ég nota það stundum til að benda fólki á hið augljósa.

Sjaldnar í seinni tíð, því mín orð hafa fallið í grýttan jarðveg þeirra sem ég hélt áður að skildu þau.

Því er ég bara einn í mínum víða himingeim en rekst enn einstaka sinnum á skylda sál í anda.

Kannski liljur vallarins kunni ekki á síma?  Kannski boðberar samhljómsins kunni heldur ekki á síma?

Ljóðskáld lífsins (IP-tala skráð) 18.3.2013 kl. 15:17

8 Smámynd: Ómar Geirsson

Sími skapar aldrei samhljóman , kannski skýring þess hve tregðan vinnur á þessa dagana. 

Það er augnsambandið, og ljóðið.

Síminn er aðeins brúklegur eftir að samhljóman hefur komist á.  

En eins og ég segi, þá veit ég ekki hvernig boðendur þessa fundar hafa unnið.  Veit aðeins að þeir stefna á samhljóman, og vonandi gengur það eftir.

En það er þetta með grýtta jarðveginn skáld mitt, gráttu hann eigi.  Við stríðsmennirnir höfum eytt mörgum póstum og nokkrum stundum í síma til að fá fólk í stríð en fyrirhöfnin getur ekki einu sinni talist hafa fallið í grýttan jarðveg.

Árangurinn mældist ekki.  

Sama er með bloggpistla mína þar sem ég ákallaði lesendur mína um að snúa bökum saman og láta kné fylgja kviði eftir ICEsave ósigur verðtryggingaþursanna.  

Annars væri stríðið um verðtrygginguna tapað.  Vogunarsjóðirnir myndu hafa endalegan sigur.

Salurinn tæmdist við þessi orð mín ljóðskáld, undirtektirnar engar.

Ég hef bent á hið augljósa, að almenningur þekkti Framboðið innan um hin óteljandi naflaframboð, og að fólk myndi koma til þeirra sem væri alvara með baráttu sinni.  Að hún snérist um framtíð þjóðarinnar en ekki þess eigin frama.

Eitthvað sem fólk gerir kröfu um.

Frá því að dómur féll í ICEsave og hið augljósa blasti við, þá hefur rignt yfir þjóðina tilkynningum um allskonar framboð, og áður tilkynnt framboð líka látið rigna yfir þjóðina alls konar loforð og yfirlýsingar.

Um allt og ekkert nema eitt hefur verið sameiginlegt.  Fullvissa um eigið ágæti.  

En enginn sagst ætla gera það sem þarf að gera svo verðtryggingarófreskjan verði lögð af velli, svo skuldaánauð þjóðarinnar verði forðað.  

Þann falska tón skynjar þjóðin og fylgi hinna óteljandi framboða eftir því.

Örfylgi.

Nei ljóðskáld gott, í dag telst það góður árangur að geta sagt að orð falli í grýttan jarðveg.  

Ég get ekki státað af þeim árangri.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 18.3.2013 kl. 15:38

9 identicon

Ég hef alltaf haldið því fram að skinhelgin væri versta syndin,

en eftir að hafa lesið gaumgæfilega síðustu athugasemd þína Ómar,

þá hefurðu dýpkað skilning minn og ég sé það nú að stoltið (drambið) er alversta syndin. 

Vegna stolts (drambs) egós síns stendur hver og einn og reigir sig, hani sem hæna,

góla og gagga sem varplausir fáráðlingar

en skynja ekki hinn dýpsta samhljóm við sammannlega alheimsandann.

Ætli ég mæti ekki á fundinn og steinþegi þar til fólk byrji að tala tungum hreinum.

Kannski ég verði vitni að þeim undrum?  Kannski enn sé lífsins von fyrir heimilin?

Ljóðskáld lífisins (IP-tala skráð) 18.3.2013 kl. 16:04

10 identicon

Ég neita að trúa öðru en að liljur vallarins skilji um hvað er að ræða,

annars eru þær ekki konur samstöðu um lífið til að verja.

Ég neita að trúa öðru en að menn samhljómsins skilji það líka,

annars eru þeir ekki menn samstöðu um lífið til að verja.

En kannski er stoltið svo mikið að hvorki menn "samhljómsins" né "liljur vallarins" nái saman?

Geti ekki einu sinni talað saman vegna stolts, vegna sérgæsku drambsins.

Það nærir þá best sláttumenn dauðans til helbleikrar framtíðar íslensku þjóðarinnar í fjötrum. 

Ljóðskáld lífsins (IP-tala skráð) 18.3.2013 kl. 16:29

11 identicon

Í akur sérhagmuna hverra verður þá sáð af sláttumönnum dauðans?

Nú mun ég þagna.

Þau skilja sem vilja.

Allir mega reiðast mér, hanar sem hænur, það skiptir mig engu máli lengur.

Skjótið mig, sendiboðann og njótið þess eins og ykkur þykir hæfa lund ykkar.

Nú mun ég hverfa

upp í himgeiminn.

Ljóðskáld lífsins (IP-tala skráð) 18.3.2013 kl. 16:41

12 Smámynd: Ómar Geirsson

Svo var spáð að "bræður myndu berjast og að bönum verðast" ljóðskáld gott. 

Ég er hræddur um að þessi spá hafi ræst, og að hér séu forlög að verki.

Í bréfi til ágæts manns lýsti ég þeim raunveruleika sem blasir við mér.

"Málið er að sá sem tekur að sér svona verk, verður að gera það eftir bestu samvisku, og eftir sinni nálgun.  Og aðrir eiga að virða það.  

 
Eða gera eitthvað sjálfir. 
 
Ég reyndi það, ég reyndi að þróa áfram blogg mitt yfir í beinan andspyrnuhóp, og það vægast sagt tókst ekki.  Sem segir mér að fólk er ekki ginkeypt fyrir minni nálgun.  Ég tel mig því ekki hafa neinn rétt til að þykjast vita betur, ég greinilega vissi ekki nóg til að mín áform um að fá fólk til liðs við mig í að láta kné fylgja kviði í ICEsave málinu, gengu eftir."
 
Ég reyndi það sem ég gat og lagði tilveru mína í hættu.  Með engum árangri.
 
Ég ætla ekki að setja mig á háan hest gagnvart öðrum, hef ekki efni á því.
 
Ég skil ekki það sem er að gerast, ég skil ekki að fólk skuli ekki snúast til varnar.  Að það skuli láta sömu mennina og unnu fyrir breta í ICEsave málinu, komast upp með illvirki sín gagnvart heimilum landsins.  
 
Sömu áróðursskrípin, sömu málaliðarnir.  
 
Allur tíminn sem fór í fundi um hitt og þetta, um hin og þessi þörfu málin, allur tíminn sem fór í að koma saman framboðslistum hér og þar, allur tíminn sem fór í deilur og sundrungu, aðeins brot af honum þurfti til að koma saman lögfræðilegri réttri ákæru á hendur ICEsave fjárkúgurunum, og áróðursmaskína verðtryggingarþjófanna hefði hrunið eins og spilaborg.
 
Hvað hafa menn að gera við að setja saman stefnuskrá, eða setja saman loforðalista, eftir að vogunarsjóðirnir hafa eignast verðtrygginguna. 
 
Hvað hefur skuldaþrællinn að gera við loforð um hitt og þetta, þegar hann þráir frelsi.  Þráir það eitt að fá að lifa frjáls, sem maður, lifa mannsæmandi lífi í friði fyrir þjófum og þrælahöldurum.  
 
Ég skil ekki þessa blindu ljóðskáld gott, hún er ekki þessa heims.
 
Eina sem ég veit, að ég reyndi allt sem í mínum mætti stóð, og mér mistókst.  Gat ekki einu sinni fengið fólk til að halda einn fund um réttlæti, um herkall til þjóðarinnar að nú sé komið nóg, að núna þurfi að mæta ræningjunum.  
 
Núna er gott fólk að boða til fundar sem vonandi sendur út þetta herkall.  Ef ekki þá er við mjög ramman reip að draga.  
 
Við allt nornafárið sem vogunarsjóðirnir ná að magna upp gegn réttlætinu, gegn framtíð barna okkar.
 
Hvort þessi staða sé stolti að kenna, veit ég ekki.
 
Það eina sem ég veit, að í henni er feigðin fólgin.
 
Feigð barna okkar.
 
Og feigðin er algjör ef ljóðskáld lífsins þagnar.
 
Kveðja að austan. 
 

Ómar Geirsson, 18.3.2013 kl. 17:05

13 identicon

ÞEGAR  ÉG  DEY

 

Þegar ég dey – þá þætti mér vænt um

að bara einhver liti upp til himins,

 

hlustaði á fuglana syngja – bara smá stund

og um kvöldið, eða nóttina, skimaði einhver

eftir skini og sveigju stjarnanna.

 

Bara það og ekkert meira og þá skal ég reyna

að blikka kankvíslega til baka

og kannski reyna líka að syngja þakkaróð

 

til einhvers – og um leið til ykkar allra, sem

hugsanlega viljið sjá og hlusta þá – eftir.

Ljóðskáld lífsins (IP-tala skráð) 18.3.2013 kl. 17:19

14 Smámynd: Ómar Geirsson

Kannski feigð, en vonin lifir samt.

Á meðan ljóðið lifir.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 18.3.2013 kl. 17:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 92
  • Sl. viku: 4176
  • Frá upphafi: 1338875

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 3743
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband