Svona eru kosningamálin búin til.

 

Grómteknir kommúnistar standa stilltir á beinum röðum, bíðandi að halda niður í námur vogunarsjóðanna.  Halda á sér hita með því að ræða gamlar sögur í kaldastríðinu.

Sést hafi til FBI, þeirra menn staðið vaktina og hindrað ásóknina.  Jafnvel vísað sjálfum Hover úr landi.

 

Á meðan eru tugir, ef ekki hundruðir útsendarar vogunarsjóðanna að störfum í þjóðfélaginu að því eina markmiði að breyta fólki í þræla.

Vegna vaxtastefnu AGS bætast tugir milljarðar árlega í hítina sem sogin verður úr þjóðfélaginu eftir kosningar.

Mun hærri upphæð en kostar að reka spítalakerfi landsins.

 

Svo er þjóðin hissa að heilbrigðiskerfið er komið í öndunarvél, alveg að þrjóta örendið.  

En að snúast gegn vogunarsjóðunum og leppum þeirra. 

Það hvarflar ekki að henni.

 

Skyldum við fá fréttar á morgun að Bjarni Ben biðji um skýrslu um starfsemi kínverska sendiráðsins, eða hvort búið sé að rannsaka Kleifarvatn?

 

Samt má ekki dæma þá hart.

Þeir eru aðeins að anna eftirspurn.

 

Þjóðin bað og þjóðin fékk.

Kveðja að austan.


mbl.is Óskar eftir greinargerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, þetta er pólitískur hráskinnaleikur og þarf að fylgjast með til skilja samhengið í leiksýningunni.

Starfshópur sem sagður var eiga að kanna fangaflug CIA í íslenskri lofthelgi var sýndarmennska ein, samkvæmt Wikileaks-skjali úr bandaríska sendiráðinu. Raunverulegt hlutverk hópsins hafi verið að koma höggi á Steingrím J. Sigfússon og láta líta út fyrir að stjórnvöld væru eitthvað að aðhafst.

Starfshópinn skipaði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi utanríkisráðherra árið 2007. Í Wikileaks skjali sem skrifað er í júlí sama ár er greint frá samtölum starfsmanna bandaríska sendiráðsins í Reykjavík, við starfsmenn utanríkisráðuneytisins.

Samkvæmt þeim virðist vinna starfshópsins ekki hafa snúist um rannsókn á hugsanlegum mannréttindabrotum eða hvort fangar væru fluttir til landa þar sem fyrirhugað væri að pynta þá, heldur íslenska pólitík.

Æfing í gegnsæi eru orðin sem notuð erum um skipan starfshópsins og því er lýst þegar starfsmaður mannréttindaskrifstofu utanríkisráðuneytisins vekur sérstaka athygli á því að talað sé um skoðun á fangaflugi, en ekki rannsókn í yfirlýsingu stjórnvalda. Það undirstriki að utanríkisráðuneytið hafi engar áætlanir, né umboð, til þess að hefja formlega rannsókn.

Skipan starfshópsins væri hugsuð til að vængstífa Steingrím J. Sigfússon áður en honum gefist færi á að valda utanríkisráðherranum meiri vandræðum.

„Mikilvægast er að það líti út fyrir að við séum að gera eitthvað," segir starfsmaður utanríkisráðuneytisins en hann átti einmitt sæti í starfshópi ráðherra sem falið var að kanna fangaflug CIA í íslenskri lofthelgi.

Niðurstaða starfshópsins var að þessar vélar hefðu farið um íslenska lofthelgi og lent á Íslandi, en engin leið væri að sannreyna eftir á hvort um ólöglega fangaflutninga hefði verið að ræða nema í fullri samvinnu þeirra sem að slíku flugi stóðu.

Steingrímur J. Sigfússon segir að sér hafi verið full alvara með starfi hópsins og hann hafi ætlast til hins sama af þáverandi stjórnvöldum. Af skjölunum að ráða virðist svo hins vegar ekki hafa verið.

Hvorki fyrrverandi utanríkisráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir né núverandi, Össur Skarphéðinsson, þekktust boð um að tjá sig um málið við fréttastofu í dag.

http://www.visir.is/syndarmennska-ad-skipa-starfshop-um-fangaflug/article/201078317454

Bullumsull (IP-tala skráð) 5.2.2013 kl. 18:53

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Þetta er bara algjört bullumsull.

Takk fyrir innlitið.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 5.2.2013 kl. 20:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 357
  • Sl. viku: 3510
  • Frá upphafi: 1330340

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 2979
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband