Kosningajólasveinn syngur.

 

Við lofum öllu fögru,

Trarala, tralara.

öllum gefum gjafir,

traralara.

Það eru að koma kosningar,

trarala, tralara

...........

 

Og það skal ekki hvarfla að nokkrum manni að kosningajólasveinn meini ekki stakt orð af því sem hann segir.  Jú, stakt orð skrifaði ég, það er til full mikils ætlast af öllum jólasveinum að meina hvert orð, og kosningajólasveinn kemur aðeins fjórða hvert ár svo hann er ekki í æfingu, að lofa og meina eða var það að meina og lofa???

Eitthvað meinar hann örugglega þó erfitt sé um slíkt að spá, það er hvað hann meinar af því sem hann segir.

En allir alvöru kosningajólasveinar meina eitthvað, eitthvað, já, eitthvað.

 

Ekki vegna þess að það er meiri þungi í svikum ef loforð eru mæld fram af þunga og einlægni, nei, þeir meina eitthvað.  Það er eitthvað sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir meinar af því sem hún lofar fyrir þessar kosningar.

Já, eitthvað.

Og það er ekkert að marka þó vandi sé um slíkt að spá.

 

Það er eitthvað, já það hlýtur að vera eitthvað.

Kveðja að austan.

 

 

 


mbl.is Þak á verðbætur raunhæfur kostur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Sko, við ætlum ekki að hætta að ræna almenning, en við skulum svína minna á þeim sem kaupa tryggingarvernd, sem kostar alveg!". Þetta eru skilaboðin. Þetta mál er á leið fyrir dómstóla erlendis og á fullt erindi þangað. Annað er þrautreynt!

Hrúturinn (IP-tala skráð) 11.12.2012 kl. 22:22

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Hrútur, þeir meina ekki orð af því sem þeir segja, fyrir utan þetta staka orð sem ég veit ekki hvað er.

Ef þeir gefa eftir, þá er það aðeins vegna þess að meir er í húfi.

Dómsstólar bjarga ekki þjóðinni, hún verður að gera það sjálf.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 12.12.2012 kl. 09:00

3 identicon

Ríkisstjórnin er nefnilega vond.

Karl (IP-tala skráð) 12.12.2012 kl. 10:58

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Já, og líka ljót og leiðinleg, svo er táfýla af henni.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 12.12.2012 kl. 11:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 287
  • Sl. sólarhring: 479
  • Sl. viku: 4932
  • Frá upphafi: 1326463

Annað

  • Innlit í dag: 262
  • Innlit sl. viku: 4360
  • Gestir í dag: 253
  • IP-tölur í dag: 245

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband