Ljóð til heiðurs Fári.

 

Þó hér á þessum síðum hefur margt verið sagt, og haft skoðanir á mörgu, sérstaklega í aðdraganda allra þeirra þjóðaratkvæðagreiðsla sem forseti vor og ríkisstjórn hafa útvegað okkur á kjörtímabilinu, þá er það regla, næstum án undantekninga, að ég held friðinn á kosningadag.

Og ríf hann ekki fyrr en úrslit liggja fyrir.

En gott ljóð skaðar ekki og stundum segir gott ljóð meir en maður sjálfur hefur mátt til.  

 

 

Mesta furðuverkið á jörðinni.

 

Þú ert eins og sporðdreki,

bróðir, lifir í þínu huglausa myrkri

eins og sporðdreki.

Þú ert eins og spörfugl, bróðir,

alltaf á sífelldu flökti.

Þú ert eins og skeldýr, bróðir,

lokaður í skelinni, sjálfum þér sæll.

Þú ert skelfilegur, bróðir,

eins og munnur gígsins, útbrunninn.

 

Ekki einn,

ekki fimm, því miður, þú ert einn af milljónum.

Þú ert eins og sauður, bróðir,

flykkist í hjörðina,

þegar smalinn hóar ykkur saman

og hleypur svo fagnandi,

jarmandi stoltur,

beinustu leið til slátrunar.

 

Þú hlýtur að skilja orð mín.

Þú ert mesta furðuverkið á jörðinni,

meira að segja furðulegri en fiskurinn

sem sér ekki hafið fyrir dropunum.

Kúgun valdhafanna er vegna þín, bróðir.

Og ef hungrið, sárin og nagandi þreytan

sækja okkur heim

og við erum kramdir í spað,

eins og berin í víni okkar,

er það vegna þín, bróðir.

Ég get varla fengið mig til að segja það,

en mestu sökina –kæri bróðir - átt þú.

 

N. Hikmet þýðing: Pétur Örn Björnsson.

 

Já, það rænir enginn óviljugan, ekki aftur og aftur.

Kveðja að austan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Á móti öllu

Sjálfstæðisflokkurinn er og verður helsta ógn íslensks samfélags. Með honum frýs allt fast. Án hans er allt hægt. 
Sjálfstæðisflokkurinn hefur í raun tekið við gamla neikvæðnikeflinu, sem VG geymdi forðum. Sjálfstæðisflokkurinn í dag er eins og VG var: Á móti öllu. Hann er á móti nýrri stjórnarskrá, á móti samningaviðræðum við Evrópusambandið, á móti endurskoðun kvótakerfisins, á móti þjóðaratkvæði um nýja stjórnarskrá, á móti nýjum lausnum í gjaldeyrismálum … you name it. 

Láki (IP-tala skráð) 20.10.2012 kl. 10:29

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Sjálfsagt allt satt og rétt Láki.

En þú hlýtur að vera einn af þeim sem sofnaði haustið 2008 og hefur vaknað upp við vondan draum. 

En lát  huggast, íhaldi fór úr stjórn snemma árs2009.

Að vísu hefur ekkert breyst, en Óbermin sem níðast á þjóðinni, þau njóta ekki aðstoðar Sjálfstæðisflokksins.  Sem betur fer því hann væri ekki svona klaufskur í illverkum sínum eins og ríkisstjórn Vinstri Grænna og Samfylkingarinnar.

Við eigum því von.

Gangi þér að koma þér á fætur Láki minn.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 20.10.2012 kl. 10:51

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

En Lukku-Láki jarmar stoltur á leið til slátrunar.

Helga Kristjánsdóttir, 20.10.2012 kl. 11:00

4 identicon

Sjálfstæðisflokkurinn er og verður helsta ógn íslensks samfélags. Með honum frýs allt fast. Án hans er allt hægt. 
Sjálfstæðisflokkurinn hefur í raun tekið við gamla neikvæðnikeflinu, sem VG geymdi forðum. Sjálfstæðisflokkurinn í dag er eins og VG var: Á móti öllu. Hann er á móti nýrri stjórnarskrá, á móti samningaviðræðum við Evrópusambandið, á móti endurskoðun kvótakerfisins, á móti þjóðaratkvæði um nýja stjórnarskrá, á móti nýjum lausnum í gjaldeyrismálum … you name it. 

Svo kvað Láki og smurði á vef veraldarsögunnar eigin heimsku.

Láki lukkulegi (IP-tala skráð) 20.10.2012 kl. 11:24

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Láki, þetta er úr bloggfærslu rithöfundar sem var búin til,sem marktækur rithöfundur,með fölsuðum sölutölum og hafður fremstur í hillum bókabúða,r

Helga Kristjánsdóttir, 20.10.2012 kl. 11:31

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skemmtilegt ljóð með eiturstungu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.10.2012 kl. 14:20

7 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Ásthildur.

Þetta er svona sem Pétur Örn kemur nálægt, en þessi N. Hikmet er tyrkneskt alþýðuskáld og þetta segir Pétur um hann á Feisbókarsíðu sinni.

"Tekið skal fram að Nazim Hikmet (1902-1963) var heiðarlegur sósjalisti, marxisti og byltingarsinni, en einkum var hann yndislegur humanisti og í gegnum öll hans ljóð skín í gegn manngæska hans og vonin um réttlátara og betra samfélag. Honum var hent margsinnis inn og hann sat inni í mörg ár í tyrkneskum fangelsum fyrir stjórnmála- og byltingarskoðanir sínar. "The blue eyed giant" kallaði hann sig oft í gríni, enda með slatta af pólsku blóði í bland við tyrkneskt. Hann var hávaxinn, bláeygur og með rauðleitt, krullað hár. Haus hans gnæfði upp úr tyrknesku mannhafi. Það hlaut eitthvað sérstakt að verða úr þannig manni, sem það og varð ... ljóðskáld og byltingarsinni. Líkast til mætti helst kalla hann pólitískt séð, sósjalískan anarkista, eins og Majakovskí var líka þó þeir föttuðu það ekki alveg sjálfir í lifandi lífi. Aldrei var Hikmet banginn. Kynnið ykkur endilega þetta yndislega ljóðskáld á gúgglinu. Í dag er mér sagt að N. Hikmet sé vinsælasta alþýðuskáld tyrknesk almennings".

Burtséð frá því sem fólk er sammála eða ósammála í dægurþrasinu þá á þetta ljóð helv. vel við margt það sem er að gerast í dag á Vesturlöndum.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 20.10.2012 kl. 16:58

8 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir að stríða Láka fyrir mig Helga á meðan ég var fjarverandi. 

Menn eiga oft til að grípa gæsina.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 20.10.2012 kl. 16:59

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er magnað sammála því Ómar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.10.2012 kl. 17:05

10 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Við erum öll undir feldi núna í lausu lofti,og skoðum málin eftir messu á morgunn/Kveðja að sunann!!!

Haraldur Haraldsson, 21.10.2012 kl. 00:12

11 Smámynd: Ómar Geirsson

Góðann daginn Haraldur.

Þér er alveg óhætt að koma undan feldinum, Samfó liðið náði ekki að brjóta 33% múrinn, þeirra lið mætti, alveg, aðir misvel.

Þessi úrslit eru ekki einna messu virði.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 21.10.2012 kl. 09:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 153
  • Sl. sólarhring: 344
  • Sl. viku: 5644
  • Frá upphafi: 1327468

Annað

  • Innlit í dag: 136
  • Innlit sl. viku: 5041
  • Gestir í dag: 132
  • IP-tölur í dag: 130

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband