Þegar spurt er rangrar spurningar.

 

Fá menn rangt svar.

Það er rétt  hjá Bjarna að agi  kemur innan frá hjá sjálfstæðri þjóð.

Utanaðkomandi agi þýðir utanaðkomandi stjórn.  Þess vegna ætla  ríki ESB gefa eftir sjálfstæði sitt fyrir þýskan aga.

 

En spurningin er röng.

Fjármálakreppan stafar ekki að agaleysi í ríkisfjármálum, þeirri bábilju er haldið á lofti af leppum braskarafjármagnisins, og jú almennum vitleysingum.

Efnahagskreppan í Evrópu stafar af yfirþjóðlegum gjaldmiðli, sem drepur niður hagkerfi álfunnar.

Og aukið aðhald í ríkisfjármálum dýpkar þá kreppu.

Augljóst mál, blasir við skynsömu fólki.

 

Og röng spurning Bjarna, að auka aga í ríkisfjármálum á tímum þegar ríkisvaldið þarf að sá fyrir nýjum hagvexti, mun skila sama árangri og hjá hægri mönnum sem bulluðu sömu vitleysuna fyrir kosningarnar á Spáni og á Bretlandi.

Heimska þeirra hefur aukið vandann.  Og bitnað sérstaklega hart á kjósendahópi hægriflokka, millistéttinni.  Sérstaklega öllum smáatvinnurekstri.

Heimska Bjarna mun hafa sömu áhrif.

 

Væri vottur af viti í honum, þá myndi hann véfengja hina 80 milljarða vaxtatölu sem ríkissjóður greiðir á þessu ári.

Hún hentar stórauðvaldinu en drepur niður millistéttina.

Þjónar erlendum kröfuhöfum útrásarinnar, drepur niður kjósendur Sjálfstæðisflokksins.

Þar er meinið, þar er lausnin.

 

En það þarf kjark og forystuhæfuleika til að ráðast tröllið.

Til að afneita heimskunni.

Til að sýna vit þegar stórauðvaldið þrýfst á heimskunni.

 

Og við erum að tala um Bjarna Ben.

Yngri, ekki eldri..

 

Því miður.

Kveðja að austan.


mbl.is Auki aga án atbeina ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Geta ekki heiðarlegir sjálfstæðismenn reynt að koma Bjarna ræflinum út úr frystiskápnum? 

Ég er svo aumingjagóður og alls ekki illa við greyið, en ég verð bara að benda á hið augljósa, að hann er gaddfreðinn, kallgreyið og ég veit

að  heiðarlegir sjálfstæðismenn leiðast gaddfreðnir menn til höfuðs, herða og táa. 

Þeir munu fara annað, fyrr en síðar, því þeir treysta illa gaddfreðnum mönnum i stíl kremlverja, þessarra með loðhúfurnar, en andlitsdrætti dauðans. 

Það er þetta með að kunna að standa í lappirnar, án þess að vera gaddfreðinn, sem kremlverji með löhúfu, en andloitsdrætti dauðans. 

Þeir sem kunna þá list að standa í lappirnar, mótmæla harðlega hryðjuverkalögum Breta.

Þeir sem kunna þá list að standa í lappirnar samþykkja ekki Icesave á bakvið grátmúra alþingis.

Þeir sem kunna þá list að standa í lappirnar, þeir standa með einyrkjum og smáatvinnurekendum.

Bjarni Benediktsson kann því miður ekki þá list, fremur en kremlverjarnir með andlitsdrætti dauðans.

Það er Akkilesarhæll Icesave formanns "Sjálfstæðis"flokksins.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 24.9.2012 kl. 17:50

2 identicon

Jú og hann er gaddfreðinn líka til hnjánna. Þannig menn velta oft, þá skortir liðleika hins smáa og lipra.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 24.9.2012 kl. 17:52

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Verða þeir ekki bara að auglýsa eftir Davíð Pétur???

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 24.9.2012 kl. 20:26

4 identicon

Má vera Ómar að þeir syrgi Þann gamla.  Þorsteinn Pálsson getur kannski útvegað þeim ókeypis auglýsingu hjá syni prestsins ... í Fretblaðinu?  Svo eru reyndar hæg heimatökin hjá Davíð að auglýsa eftir sjálfum sér ... í Mogganum. 

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 24.9.2012 kl. 22:52

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Það virðist enginn skilja auglýsingar Davíðs í Mogganum.

Ég hef samt reynt að hjálpa honum með því að vekja athygli á þeim en það dugar ekki til.

Feigð íhaldsins virðist algjör.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 25.9.2012 kl. 08:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 84
  • Sl. sólarhring: 123
  • Sl. viku: 5401
  • Frá upphafi: 1338859

Annað

  • Innlit í dag: 63
  • Innlit sl. viku: 4749
  • Gestir í dag: 60
  • IP-tölur í dag: 59

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband