Sjónhverfingar eða alvara????

Markmið Bjarkar er gott.

Félagsskapurinn slæmur.

Og þessi slæmi félagsskapur, stuðningsmenn núverandi ríkisstjórnar, eru úlfar í sauðargæru.

Þeir sjá til þess að veita óánægju fólks í meinlausar undirskriftir, við undirleik gólara.  

 

Ef eitthvað af meðreiðarsveinum Bjarkar, meina orð af því sem þeir segja, þá mæta þeir á Austurvöll, klukkan 15.00 og góla seið gegn ríkisstjórninni.

"Vanhæf ríkisstjórn, AGS úr landi".

 

Jafnvel ólæst fólk getur lesið út úr skýrslu AGS að eina haldreipi hennar er að allt verði virkjað, sem hægt er að virkja.  Aðeins þannig næst sá skammtímagróði sem stendur undir vaxtagreiðslum til sjóðsins.,

Eða hvernig ætla menn að greiða  236 milljarða í beinhörðum gjaldeyrir, aðeins í vexti til AGS, næstu 4 árin.

Og þá eru höfuðstólsgreiðslur eftir.

 

Líf ríkisstjórnarinnar er komið undir virkjunum og stóriðju.

Þeir sem styðja ríkisstjórnina, þeir styðja rányrkju á orkuauðlindum landsins.

 

Hinir mæta og tunna stjórnina burtu klukkan þrjú í dag.

Kveðja að austan.


mbl.is Björk afhenti undirskriftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 412
  • Sl. sólarhring: 1020
  • Sl. viku: 5620
  • Frá upphafi: 1328433

Annað

  • Innlit í dag: 351
  • Innlit sl. viku: 5023
  • Gestir í dag: 338
  • IP-tölur í dag: 333

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband