Er maðurinn með rugluna??

 

Það hvarflar að manni þegar hann skammast útí forystufólk verkalýðshreyfingarinnar vegna fyrirhugaðra verkfallsaðgerða.

 

Hvað vill hann að verkafólk geri í nauðvörn sinni??

Fari heim til hans og þrífi kauplaust??

Sætti sig þegjandi og hljóðalaust við  sjálftöku toppanna og að vegna hennar sé ekkert til skiptanna handa þeim sem vinna störfin.??

 

Þessi orð hans eru vissulega rétt og benda til óbrenglaðar dómgreindar; "„Árás­ir á ferðaþjón­ust­una eru árás­ir á sam­fé­lagið í heild sinni,“ seg­ir Jó­hann­es. „Mik­il­vægi þess­ar­ar grein­ar í efna­hags­líf­inu ger­ir það að verk­um að tjón ferðaþjón­ustu­fyr­ir­tækja er ekki bara tjón fyr­ir­tækja sem slíkra held­ur alls sam­fé­lags­ins.“".

En þá á hann líka að skammast út í þá sem ábyrgðina bera.

Þá sem hækkuðu laun sín margfalt fram yfir það sem verðmætaaukning þjóðarframleiðslunnar leyfir.

 

Og hann á að fara í Múrbúðina og kaupa sér múrbrjót til að brjóta niður fílabeinsturninn sem þau Katrín og Bjarni dveljast í þessa dagana.

Ríkisstjórnin gat margt gert, en hún gerði ekkert af því sem þurfti að gera.

Hún móðgaði í stað þess að sætta.

 

Taktleysi þeirra sem leiða er vandinn í dag.

Ekki nauðvörn þeirra sem eiga ekki önnur úrræði.

 

Ef framkvæmdarstjóri Samtaka ferðaþjónustunnar skilur það ekki, þá er hann einfaldlega;

Vanhæfur.

 

Og ekkert meir um það að segja.

Kveðja að austan.

 


mbl.is „Sem mest tjón á sem skemmstum tíma“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrkynjun úrkynjaðra.

 

Kristallast í þessari frétt.

Samt er hún ekki glimps frá Sódómu og Gomoru.

 

Að vilja fá allt, án þess að leggja á móti, er sjónarmið út af fyrir sig.

Og kannski er það full harkaleg viðbrögð að breyta fólki sem svona hugsar í saltstólpa.

 

Nær væri að senda dímona sem ala á þessari hugsun sjálfselskra karla beint til baka til húsbónda síns í neðra.

Þá myndi kannski fækka því aumkunarverðu fólki sem játar að það hafi kosið hörmungar yfir samfélög okkar með þeim rökum að það sagðist kjósa með buddunni.

 

Yfirleitt hefur svona úrkynjun samt tengst skattaráðgjöf siðblindingja sem vilja sjúga til sín fjármagn úr samfélögum okkar, án þess að greiða krónu, eða þá mjög fáar, til baka.

Samt greiða blindingjarnir til baka, ekki reyndar til samfélagsins, heldur til stjórnmálamannanna sem gera þessa skattaráðgjöf mögulega.

Munum að þegar allt orðgjálfrið sem sagt er til að láta kjósa sig, er dregið úr ræðum og ritum Bjarna Ben yngri, þá stendur aðeins eitt eftir, og það var sú knýjandi nauðsyn að fjármálamenn gætu flutt óhindrað auð úr landi, en skilið skuldir eftir á innlendum kennitölum.  Kallast frjálst flæði fjármagns.

Sá eldri talaði hins vegar um miðja síðustu öld um nauðsyn að tryggja undirstöður atvinnuveganna, um nauðsyn þess að byggja hafnir og vegi, að öflugt atvinnulíf væri forsenda velferðar og velmegunar fjöldans.

Á milli er ginnungargap.

 

En auðmönnum er vorkunn, gullþorsti tærir upp sálu þeirra.

Hins vegar hef ég aldrei lesið frétt sem vísar svona sterkt í úrkynjun hins venjulega manns.

Og þá gamalmenna sem vilja skilja börnin sín eftir á köldum klaka.

 

Munum að í kjarna hefur líf okkar aðeins einn tilgang, og það er að ala af okkur líf, og sjá til þess að komist á legg.

Þess vegna verndum við afkvæmi okkar, en étum þau ekki.

 

En sú úrkynjun sem þarna er lýst, er varla skömminni skárri.

Aumkunarverði getur mannleg hugsun varla orðið.

 

Og það er eins og fólk varla sjái það eða skilji.

Kveðja að austan.


mbl.is Njóta skattleysis í Portúgal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elítan skilur þetta ekki.

 

Láglaunafólk ætlar ekki eitt að bera byrðar stöðugleikans á herðum sér.

Þeir tugþúsundir sem eru á okurmarkaði leigunnar er nákvæmlega sama þó verðtryggð lán hækka, það er seinna tíma vandamál.  Það sem telur er að geta borgað leigu næstu mánaðar.

Fólk sem er með verðtryggð lán ætlar sér ekki að taka á sig aðra stökkbreytingu lána, það veit eins og er að þó Bjarni og hinir auðmennirnir fái alla sína leppa og skreppa til að verja kastala verðtryggingarinnar, að þá er atkvæðafjöldi þeirra aðeins dropi á hafi samstöðunnar.

 

Fólk veit þetta allt saman.

Og það þýðir ekki lengur að hóta því með búgí mann.

Því búgí mann er bara hlægilegur kall á nærbuxunum, afhjúpaði sig í Hruninu sem bullukall.

 

Fólk er einfaldlega búið að fá nóg.

Og gamlir hræðslufrasar bíta ekki lengur.

 

Á þetta bendir Styrmir ítrekað í pistlum sínum.

Ég dreg það ekki í efa að elítan lesi þá, en hún er bara of heimsk til að skilja innihald þeirra.

Áunnin heimska þess sem hefur of lengi komist upp með að skara eldinn að sinni köku, og heldur að slík sjálftaka sé innbyggð í kerfið, einhvers konar náttúrulögmál tekjuskiptingarinnar.

 

Þess vegna eru átök óumflýjanleg.

En ábyrgðin er ekki launþega.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Kjarabaráttan snýst ekki um staðreyndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. febrúar 2019

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 959
  • Sl. viku: 4458
  • Frá upphafi: 1329020

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 3937
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband