"Þau hata frelsi ein­stak­lings­ins"

 

Það frelsi að geta labbað út í næstu búð og keypt drápsvopn til að drepa mann og annan.

Sjaldan hefur frelsiskrafa frjálshyggjunnar verið betur orðið, það má ekkert fyrir þessum bölvuðum lögum og reglum.

Nema náttúrulega í landi frelsisins, þar sem digrir sjóðir vopnaframleiðanda tryggja frelsið, frelsið til að kaupa drápstál, til að drepa.

Eða eru þessar byssur notaðar til annars??

 

Það athyglisverða í þessari frétt er samt félagsskapurinn sem kaus að hlusta á þessi afhjúpandi orð mannsins sem er beint ábyrgur fyrir voðaverkunum í bandarískum skólum, að hann er ekki að tala á fundi hjá Ku Klux Klan eða öðrum sambærilegum mannahaturs samtökum, heldur er hann eins og segir í fréttinni að ávarpa "alþjóðlega ráðstefnu íhalds­manna.".

Þar sem honum var boðið að tala.

Hann notaði ekki hríðskotabyssu til að fá áheyrnina, og honum var ekki hent út.

 

Hvaða samtök skyldu þetta vera??

Eru þau svo alþjóðleg að Íslendingar eigi aðild að þeim??

Eða umgangast íslenskir stjórnmálamenn aðila sem telja sig í góðum félagsskap með þessum siðblinda manni?

Og félögum hans í Samtökum byssueigenda í Bandaríkjunum.

 

Verður svo næsta mál á dagskrá frelsið til að gera plánetuna óbyggilega?

Eða frelsið til að koma öllu í bál og brand svo hægt sé að selja fleiri drápstól?

 

Merkilegt þetta frelsi annars.

Misjafn er félagsskapur þess.

 

Ef mannkynið nær að lifa það af, mun það eftir nokkrar aldir vekja svipaðan hroll og orðið plága gerði fyrir daga nútíma læknavísinda??

Svona eins og Svarti dauði??

 

Eða er það gísl??

Fórnarlamb eins og öll þau börn sem hafa verið drepin fyrir tilverknað þessara frelsisunnanda, bæði beint og ekki hvað síður óbeint.

 

Veit ekki, en hitt veit ég þó, að það eru ekki margir áratugir síðan að enginn ærlegur íhaldsmaður hefði nauðgað frelsishugtakinu líkt og gert er í samtökum þeirra í dag.

Hvað þá hlustað á aðra gera það í þeirra nafni.

Enda voru íhaldsmenn skjólvörnin gegn Helinu, hvort sem það kom frá alræði kommúnismans eða mannhatri nasismans.

 

Og eru það í dag.

Því það er gjörðin, ekki orðin sem gera manninn að því sem hann er.

 

Og engin orð fá því breytt.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Segir gagnrýni á NRA skammarlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir fiska sem róa.

 

Á þau mið sem afla er að fá.

 

Það er nefnilega ekki nóg að róa og róa, og koma alltaf tómhentur í land.

Það má vel vera að fiskurinn sé vitlaus þegar hann færir sig til, en það breytir því ekki að ef hann gerir svo, þá þarf að elta hann á hin nýju mið.

Og leggja veiðarfærin þar, en ekki þar sem hann var.

 

Fiskurinn nefnilega ræður.

Ekki veiðimaðurinn.

Kveðja að austan.


mbl.is Framboðslistinn samþykktur í Valhöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvert er gjaldið?

 

Til að ráðherra brjóti vísvitandi lög?

Hvað kostar dómarasæti??

 

Á meðan þessum spurningum er ekki svarað er Landsréttur spilltur dómur.

Og spilling hinna flokksskipuðu er spilling allra.

 

Það er nefnilega ekki eins og fjármálaráðherra sagði við annað tækifæri í morgun, "hverjar eru sannanirnar?", þegar hann varði þann ósóma að fyrrum aðstoðarmaður hans sem tók þátt í þeirri stefnu að gefa vogunarsjóðum hundruð milljarða á kostnað þjóðarinnar þegar ríkisstjórn Sigmundar Davíðs hvarf frá markaðri stefnu um stöðugleikaskatt, réði sig beint í vinnu hjá hinum sömu vogunarsjóðum eftir að hlutverki hans var lokið í fjármálaráðuneytinu.

Svona spyrja aðeins þeir sem eru samdauna spillingunni.

Sem hafa hag af spillingunni.

 

Annað hvort þekkir þú rétta hegðun, eða ekki.

Annað hvort gjörir þú rétt eða ekki.

 

Og ef ekki, þá svarar þú spurningunni hér að ofan.

Það er ef þú ert flokksskipaður dómari.

Kveðja að austan.


mbl.is Landsréttur metur Arnfríði hæfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. febrúar 2018

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 38
  • Sl. sólarhring: 315
  • Sl. viku: 1099
  • Frá upphafi: 1321862

Annað

  • Innlit í dag: 35
  • Innlit sl. viku: 914
  • Gestir í dag: 34
  • IP-tölur í dag: 34

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband